Morgunblaðið - 22.02.1989, Page 18

Morgunblaðið - 22.02.1989, Page 18
COTT FÓLK/SlA 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 Rosoleg skólogerútsalo verður í Sundoborg 9 from á lougordog. Axel Ó heildverslun flytur og rýmir Bretland: Ovinsælar breyting- ar ríkisstjómaiTiinar St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. BREYTINGAR ríkisstjórnar Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, á mennta- og heilbrigðiskerfínu, svo og á stöðu lögfræðingafélaganna, hafa mætt mikilli andstöðu. Samkvæmt skoð- anakönnun í The Sunday Te- legraph síðastliðinn sunnudag er mikill meirihluti lækna, lögfræð- inga og kennara mótfallinn þess- um breytingum. Að undanfömu hefur ríkisstjóm Thatcher forsætisráðherra kynnt rót- tækar breytingar, m.a á stöðu og réttindum lögmanna. Ganga þær í þá átt að aflétta einkarétti þeirra til að reka mál fyrir dómstólum. Breyt- ingar þessar ná einnig til heilbrigði- skerfísins og miða _að því að skapa markað innan þess. í fyrra vom sam- þykktar róttækar breytingar á skóla- kerfínu, og em þær að byija að koma til framkvænída nú. Gallup-stofnunin framkvæmdi skoðanakönnun meðal kennara, lækna og lögfræðinga um álit þeirra á þessum breytingum. 57% að- spurðra sögðust mótfallin breyting- unum og 23% meðmælt. 19% sögð- ust hvorki með né á móti eða ekki vita, hvort þeir væm með eða á móti. 58% sögðust hafa miklar áhyggjur af þessum breytingum og 30% sögðust hafa nokkrar áhyggjur af þeim. 49% aðspurðra sögðu, að þessar breytingar yllu því, að ólíklegra væri, að þeir kysu íhaldsflokkinn í næstu kosningum. 4% sögðu, að þær gerðu það líklegra. 47% sögðu, að þær breyttu engu um það. 44% þátttakenda í könnuninni Þriðja elsta kona heims andast 1 Ósló Ösló. Reuter. NORSK kona, Maren Torp, sem samkvæmt Heimsmetabók Guin- ness var þriðja elsta kona heims, lést á mánudagskvöld 112 ára að aldri. Maren Torp lést í svefni á sjúkra- húsi í Ósló tveimur mánuðum eftir að hafa haldið upp á síðasta af- mælisdaginn. Næst elsta kona heims, Jeanne Calment frá Arles í Suður-Frakk- landi, varð 114 ára gömul í gær á hjúkrunarheimili, þar sem hún hef- ur dvalið undanfarin fímm ár. Samkvæmt Heimsmetabók Guin- ness er Carrie White, sem búsett er í Flórída í Bandaríkjunum, elsta kona heims. Hún er 114 ára gömul og fæddist 18. nóvember árið 1874. Maren Torp Margaret Thatcher sögðust hafa kosið íhaldsflokkinn í síðustu kosningum, en einungis 36% sögðust mundu kjósa hann nú. 25% sögðust mundu kjósa Verkamanna- flokkinn nú, en 18% höfðu kosið hann í síðustu kosningum. í skoðanakönnuninni kom í ljós, að þessar starfsstéttir voru mótfalln- ar breytingum á eigin högum, en hlynntar breytingum hjá hinum. Þetta á þó ekki við um breytingar á heilbrigðisþjónustunni. Þannig voru 37% lækna og lögfræðinga hlynnt breytingum á skólakerfinu, en 29% á móti. 45% kennara og lækna voru hlynnt breytingum á stöðu lögfræð- inga. 61% lögfræðinga og kennara voru mótfallin breytingum á heil- brigðisþjónustunni og aðeins 22% meðmælt. því logerinn. Verð á kuldaskóm aðeins 990 kr., aðrir skór á aðeins 790 kr. Gefðu buddunni undir fótihn og mættu f Sundoborg 9. Strox f dog. <rT&te, Opið frá 13:00 til 19:00. Miðvikudag til laugardags Sovétmenn skortir flest nema sparifé Moskvu. Reuter. Starfemenn i sovéska ríkisbankakerfínu segja, að inneignir á sparireikningum hafí aukist um 11% á árinu 1988 og svari nú til 300 milljarða rúblna, 60% af heildarútgjöldum rikisins sam- kvæmt fjárlögum. Háttsettur hagfræðingur segir, að þessar tölur sýni, að peningamagn í umferð sé allt of mikið og eigi það sinn þátt í neysluvöruskortinum. Þessar upplýsingar birtust að- eins þremur dögum eftir að stjóm- málaráð kommúnistaflokksins hafði ákveðið að grípa til tafar- lausra ráðstafana í fjármálum ríkisins, aðallega með því að draga úr framlögum til þungaiðn- aðarins og vamarmála. Sovétmenn, sem eiga fé aflögu, geta lítið við það gert annað en að leggja það inn í banka. Aðrar fjárfestingar- eða ávöxtunarleiðir eru varla til og það er erfítt að kaupa vöru, sem ekki er á boðstól- unum. Sovéskir embættismenn em sammála um, að fjárlagahallinn sé nú um 100 milljarðar rúblna og eru tveir þriðju flármagnaðir með lánum frá ríkisbankakerfínu. Verðbólga hefur ekki verið tii opinberlega í Sovétríkjunum fyrr en nú en það er álit ýmissa sov- éskra hagfræðinga, að hún sé í raun um 6%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.