Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐŒ) IÞROTT1R ME)VIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN I HANDKNATTLEIK „Gaman að gera markið í þessum leik“ Hvað segirðu — var þetta þúsund- asta markið mitt fyrir ísland?“ sagði stórskyttan Kristján Arason þegar blaðamaður Morgunblaðsins færði honum þær fréttir eftir leikinn í gærkvöldi að þriðja mark hans gegn Sviss hefði jafnframt verið 1.000 landsliðsmark hans fyrir ísland. Ég vissi að þetta var að nálgast - en var satt að segja búinn að gleyma því. Það er gaman að þetta skuli hafa gerst í svo spennandi leik." Þetta sögulega mark kom þegar 15,47 mfnútur voru eftir af leiknum og Kristján breytti þá stöðunni í 16:13 fyrir ísland. í umræddri sókn var hann ekki í sinni venjulegu sókn- arstöðu úti á hægri kantinum — þar var Sigurður Sveinsson, en Krisiján í stöðu miðjumanns. Sigurður ógnaði að vöm Svisslendinga, sendi síðan á Kristján sem braust fallega í gegn vinstra megin og skoraði örugglega. Um leikinn sagði Kristján að eins og búast hefði mátt við hefði þessi leikur fyrst og fremst unnist á mik- illi baráttu. „Hún gerði útslagið. Þetta var ekki fallegur handknatt- leikur sem leikinn var, frekar en fyrri daginn þegar við höfum leikið gegn Svissiendingum. Þá var taugaspenn- an mikil eins og ávallt í svona leikj- um.“ FRAKKLAND 1989 I „LAGLEGA gert gamli.“ Sig- urður Sveinsson fékk svohljóðandi skeyti á hótel íslenska liðsins eftir sigurinn á Vestur-Þjóðveijum í fyrrakvöld. Þetta skeyti var ekki frá íslandi heldur Vest- ur-Þýskalandi! Einn af fyrrverandi félögum Sigurðar f liði Lemgo sendi skeytið. Sigurður fór á kost- um í leiknum og skoraði 9 mörk. ■ FARARSTJÓRAR íslenska hópsins hér í Strasbourg skruppu f gær f gönguferð til Þýskalands til að kaupa þýsku dagblöðin og eitthvað fleira! Gönguferðin var þó ekki löng þvf hótel Islendinganna er aðeins um 500 metra frá landa- Skapti Hallgrímsson skrífarfrá Frakklandi mærunum... ■ „ÍSLENDINGAR eru vinir okkar, þó þeir hafi ekki verið það gær. Og ég treysti þeim til að sigra Svisslendinga og held að þeir geri það. Leikmenn eins og Gíslason, Arason, og fieiri sem hafa leikið f Vestur-Þýskalandi ættu að sjá um það,“ sagði Petr Ivanescu, landsliðsþjálfari Vest- ur-Þjóðveija á blaðamannafundi eftir sigurleik liðs síns gegn Rúm- eníu. Islendingar urðu við ósk Ivanescu og því eiga Þjóðveijar enn von um að komast í A-keppn- ina. ■ ÞÝSKUR blaðamaður kom að máli við Skúla Unnar Sveinsson, fyrrverandi íþróttafréttamann, sem hér er staddur og sagðist kunna vel að meta tilþrif Samúels Araar Erlingssonar, útvarpsmanns, við lýsingar. Þegar langt var liðið á leikinn sat Samúel á sokkaleistun- um, hrópandi til fslensku þjóðarinn- ar, og sagði sá vestur-þýski að það væri vel þess virði að koma á sam- rSppni milli hans og brasilískra knattspymuþula. Kristján Arason KRISTJÁN Arason náðl þeim árangri í leiknum gegn Sviss- lendingum að skora sitt þús- undasta mark með landsliðinu. Þriðja mark hans (16:13) var það þúsundasta og jafnframt hans 50. mark í B-keppni. Kristján hefur verið mesti markaskorari landsliðsins und- anfarin ár og hefur yfirleitt ver- ið með markahœstu leikmönn- um á stórmótum. Kristján er talinn ein besta vinstrihandar- skytta heims. Krisyán lék sinn fyrsta landsieik gegn Dönum í Taastrup í Dan- mörku 1980. Hann skoraði fjögur mörk í leiknum, sem Danir unnu, 22:17. Kristján hef- ur síðan hrellt alla bestu markverði heims. Flest mörk í leik skoraði hann gegn Ungveijum í Valence í Frakklandi 1985, þegar íslenska landsliðið vann frækilegan sigur, 28:24. Kristján skoraði þá fimmtán mörk. Kristján hefur skorað 1000 mörk í 210 landsleikjum, sem er að með- altali 4.76 mörk í leik. Á undanföm- um árum hafa íslendingar átt margar góðar vinstrihandarskyttur, sem hafa leikið stór hlutverk f landsliði íslands. Kristján Arason skoraði sitt 1000. mark með landslið- inu gegn Svisslendingum í Strasbourg í gærkvöldi SigmundurÓ. Steinarsson tóksaman • Ágúst Svavarsson úr ÍR, var fyrsta vinstrihandarskyttan sem lét mikið að sér kveða. Hann skoraði 44 mörk í 32 landsleikjum, eða 1.37 mörk að meðaltali í leik. •Viggó Sigurðsson úr Víkingi kom sfðan fram á sjónasviðið. Hann skoraði 166 mörk í 66 landsleikjum, sem er 2.51 mark að meðaltali í leik. •Gunnar Einarsson úr FH lét einnig að sér kveða - skoraði 34 mörk í átján landsleikjum, eða 1.88 mörk að meðaltali í leik. •Sigurður Sveinsson, Val, sem lék áður með Þrótti, kom í kjölfar þeirra Viggós og Gunnars. Sigurðu.r hefur skorað 455 mörk í 172 land- sleilq'um, eða að meðaltaii 2.64 rpörk í landsleik. Ágúst Viggó Qunnar Slguröur Allirfóru f vfking Allir þessir leikmenn eiga það sameiginlegt að hafa farið í víking og leikið með erlendum félagsliðum. Ágúst Svavarsson lék með Drott í Svíþjóð og Göppingen í V-Þýska- landi. Viggó Sigurðsson lék með Barcelona á Spáni og Bayer Lever- kusen í V-Þýskalandi. Gunnar Ein- arsson lék með Bremen og Göpping- en f V-Þýskalandi og Fredensborg SKI, Noregi. Sigurður Sveinsson lék með Lemgo í V-Þýskalandi og Kristján Arason, sem leikur nú með Teka Santander á Spáni, lék áður með Hameln og Gummersbach í V-Þýskalandi. Afangamörk Kristjáns KRISTJÁN Arason skoraði sitt fyrsta landsleiksmark gegn Danmörku i Taastrup 1980, en þann leik unnu Danir 22:17. Síðan hefur Kristján skorað sin áfangamörk i eftirtöldum leikj- um: 100: Gegn Póllandi, 24:29, I Trogir I Júgóslaviu 1982. 200: Gegn Sviss í Vlissingen, 19:16, i B-keppninni i Hollandi 1983. 800: Gegn Tékkóslóvakiu, 16:22, i Bardejev I Tékkóslóvakfu 1984. 400: Gegn Sviþjóð, 19:20, á Akranesi 1984. 500: Gegn V-Þýskalandi, 20:17, i Reykjavík 1985. 600: Gegn S-Kóreu i Genf, 21:29. Leikurinn var i HM I Sviss 1986. 700: Gegn Sviss, 17:15, í Reykjavik 1987. 800: Gegn Póllandi, 26:25, á Akureyri 1987. 900: Gegn Bandaríkjunum, 22:16,1 Suwon 1988. Leikurinn var á Ólympluleikunum. 1000: Gegn Sviss, 19:18, í B-keppninni 1 Frakklandi 1989. V-Þjóðverjar lögðu Rúmena „ÞAÐ var mjög gott hjá okkur aö hressa mannskapinn við og vinna Rúmena, eftir tapiö gegn íslendingum — þaö sýnir aö viö erum með mjög gott lið,“ sagði markvörðurinn Andreas Thiel, eftir sigur Vestur-Þjóðverja, 23:21, á Rúmenum í gœr f Strasbourg. igur Þjóðveija var mjög sann- 9 jgam og öruggur, og leikurinn skemmtilegur. Þjóðveijar voru með örugga forystu um miðjan seinni hálfleikinn, 19:12. í leikhléi höfðu þeir fímm marka for- ystu, 14:9. Rúmenar skoruðu fyrsta markið en fljótlega náðu Þjóðveijamir yfirhöndinni. Þegar staðan var 5:3 var þremur þeirra vísað út af með stuttu millibili — Rúmenar páðu þá að jafna, en fljqt> Skapti Hallgrímsson skrífarfrá Frakklandi lega eftir að jafn margt var orðið í liðunum var forysta Þjóðveija orð- in fimm mörk, 10:5. Uli Roth var markahæstur Þjóð- veija með 6 mörk, Jochen Fraatz gerði 5 og Rudiger Neitzel og Mart- in Schwalb báðir 4, Schwalb 2 úr vítum. Vaseli Stinga, Berbece og Tudor Axenta Rosca gerðu allir 4 mörk fyrir Rúmena og Marian Dumitm gerði 3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.