Morgunblaðið - 22.02.1989, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.02.1989, Qupperneq 20
20 »>u jti't : > i ;u: í í i; /;■ if ■ i i t 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 Hvalshræið dysjað Búrhvalurinn sem rak á Qörur skammt sunnan liafa verið 45 ára gamall og vó hann um 25 tonn. við borgina Ostende í Belgíu i síðustu viku hef- í ráði er að opna gröfina þegar náttúran hefúr ur verið dysjaður og var myndin tekin er hann séð um að hreinsa beinin og setja þau þá upp á var lagður til hinztu hvíldar. Hvalurinn er talinn safiii. Bandaríkin: Alríkislögreglan skil- ar skýrslu um Tower Washington. Reuter. BANDARÍSKA alríkislögreglan hefúr lokið skýrslu varðandi ásakan- ir á hendur John Tower, sem George Bush Bandaríkjaforseti hefiir tilnefiit sem varnarmálaráðherra. Sam Nunn, formaður hermála- nefndar Bandaríkjaþings, sagði á mánudag að fyrirhugað væri að nefndin greiddi atkvæði um tilnefiiingu Towers sfðar í þessari viku eftir að hafa lesið skýrsluna. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, sagði á mánu- dagskvöld eftir að hann og George Bush höfðu lesið hluta skýrslunnar að þeir hefðu ekkert fundið sem gæfi ástæðu til að ætla að tilnefn- ing Towers yrði ekki samþykkt. Þrátt fyrir sögusagnir um fortíð Towers, einkum ásakanir um of mikla drykkju og kvensemi, hefur Bush ítrekað lýst yfir stuðningi við hann. Dagblaðið Washington Post hafði eftir bandarískum embættismönn- um að í skýrslu alríkislögreglunnar kæmi fram að Tower hefði „drukk- ið of mikið“ á áttunda áratugnum en að alríkislögreglan staðfesti hins vegar þær staðhæfingar Towers að hann hefði aðeins drukkið í hófi undanfarin tíu ár. Blaðið hafði einn- ig eftir háttsettum embættismönn- um í Hvíta húsinu að í skýrslunni væri því algjörlega vísað á bug að Tower hefði tekið við mútum þegar hann var formaður hermálanefndar öldungadeildarinnar á árunum 1981-84. RYSTI-VOKVAKERFI Drifbúnaður fyrir spil o.f I. HEÐINN VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNÚSTA - LAGER _Dale . Carneqie þjálfun RÆÐUMENNSKA OG MANNLEG SAMSKIPTI Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn fjmmtudaginn 23. febrúar kl. 20.30 á Sogavegi 69. Allir velkomnir. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ Öðlast hugrekki og meira sjálfstraust. ★ Láta í Ijósi skoðanir þínar af meiri sannfæring- arkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér virðingu og viðurkenningu. ★ Talið er að 85% af velgengni séu komin und- ir því hvernig þér tekst að umgangast aðra. ★ Starfa af meiri lífskrafti - heima og á vinnu- stað. ★ Halda áhyggjunum í skefjum og draga úr kvíða Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma 82411 0 STJÓRIMUIMARSKÓLIIMIU Vo Konráð Adolphsson Einkaumboð fyrlr Dale Carnegie námskeiðin" Norsku selveiðarnar: Byggjast ásakanir um hrottaskap á fáfræði? Ósló. NTB. HLUTAR sjónvarpskvikmyndar- innar sem sænskir og breskir aðilar fengu Svíann Bo Lundin til að gera, gefa til kynna að norskir selveiðimenn séu hinir mestu hrottar. Myndin er að mestu byggð á myndsnældum Norðmannsins Odds Lindbérgs, sem hann segist hafa tekið 1988. Atriði, sem reyndar hefiir komið í ljós að voru tekin úr eldri, kanadískri mynd, sýna m.a. veiði- menn drepa nýfædda kópa og urtur; 1988 var búið að sam- þykkja bann við áðurnefiidum atriðum og þóttust menn því sanna lögbrot á veiðimennina. Loks má nefiia að kanadíska myndin er talin snjöll fólsun; Grænfriðungar hafi fengið nokkra menn til að leika selveiði- menn við Nýfúndnaland. Norsk blöð hafa auk þessa haldið því fram að Lindberg hafí misþyrmt kópum með því að svelta þá í nokkr- ar vikur í því skyni að fá þá til að gefa frá sér þau eymdarhljóð sem voru tekin upp á segulband og síðan notuð í sjónvarpsmyndina á viðeig- andi stöðum. Lindberg vísar þessum ásökunum á bug. Hann hvetur aðal- skyttuna á selveiðiskipinu Harm- oni, þar sem Lindberg hafði aðsetur vorið 1988, til að viðurkenna lög- brotin. Að sögn Lindbergs voru mörg hundruð selir drepnir með ólöglegum hætti á vertíðinni þótt hann nefni aðeins 20 - 30 hroðaleg- ustu dæmin í skýrslu sem hann sendi til sjávarútvegsráðuneytisins að lokinni vertíðinni. Ráðuneytið neitaði að taka mark á skýrslunni og sagði Lindberg ekki geta sannað mál sitt. Formaður sjávarútvegsnefndar norska Stórþingsins, Hans Svends- gaard, bendir á að Harmoni hafí komið með um 3.000 seli í land og 20 - 30 tilvik þar sem lög hafí ver- ið brotin geti því vart talist há tala. Svendsgaard gagnrýndi síðastliðínn laugardag Bjame Merk Eidem sjáv- arútvegsráðherra fyrir meðferð hans á selamálinu. Segir þingmað- urinn að ráðherrann eigi ekki að gefast upp fyrir umhverfisvemdar- mönnum heldur sjá til þess að rang- færslum sé mótmælt. Þrátt fyrir hvatningar frá áhorf- endum hefur norska sjónvarpið enn ekki sýnt hina umdeildu sjónvarps- mynd sem öllu miklu írafári er hún var sýnd í Bretlandi og Svíþjóð. Reuter Mótmæli Amazon-indíána Brasilískir indíánar af Kaiapo-ættbálki söfiiuðust í gær saman í bænum Altamira á Amazon-svæðinu til að mótmæla áformum stjórnvalda um að reisa raforkuver nærri heimkynnum þeirra. Indíánarnir hyggjast skipuleggja frekara andóf á fimm daga fúndi í Altamira en þeir segja framkvæmdir þessar ógna afkomu þeirra og menningu Skrifstofutækninám Betra verö - einn um tölvu Tölvuskóli íslands S: 67 14 66 Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.