Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 29
29
<*»!? i' vlrtiia? }B3Ci<»a^iP«jpi
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989
Árás mannætusýkilsins
Hver er þetta? Mynd- Eggert frá Nautabúi Eggfert Jónsson, mynd'
in úr Þjóðminjasafrii. ungur maður. sú sem fylgja átti
greininni um hann.
Röng mynd af Egg-
ert frá Nautabúi
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Öskraðu á meðan þú getur („The
Blob“). Sýnd í Stjörnubíói.
Bandarísk. Leikstjóri: Chuck
Russell. Helstu hlutverk: Kevin
Dillon, Shawnee Smith, Donovan
Leitch og Joe Seneca.
Sama árið og Steve McQueen fékk
aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum
„Wanted: Dead or Alive" (1958,
Rafrnagnið fór alls staðar af um
Qögurleytið aðfaranótt sunnudags
og var þá rafmagnslaust til klukkan
9 á mánudagsmorgun, en þá kom
rafmagnið aftur. Viðgerðarmenn
stóðu í ströngu dag og nóttt við
erfíðar aðstæður við að koma raf-
magninu í lag og eiga þeir þakkir
skildar. Símasamband rofnaði á
sunnudagsmorgun og var símasam-
bandslaust fram eftir kvöldi á
mánudag.
Ekki höfðu alllir tæki til að hita
upp húsin og urðu því að flýja til
næsta nágranna sem gátu hitað
upp. Gífurlegt hafrót var hér, sér-
staklega á laugardag og var þá
mikið sjórok. Tveir bátar voru í
sællar minningar) lék hann í mynd,
sem hét „The Blob“, og. í æfiskrá
hans er kölluð „vísindaskáldskapar-
vitleysa". í kvikmyndageymslunni
hefur hún lent í sömu hiilu og furðu-
verk eins og „The Attack of the Kill-
er Tomatoes", sem segir frá mann-
ætutómötum. „The Blob“ var um
morðóðan sýkil sem hámaði í sig fólk.
Báðar eru hluti af undirmenningu,
hroðvirknislegrar en sannarlega hug-
myndaríkrar B-myndagerðar í
höfninni á Amarstapa og voru þeir
í mikilli hættu, svo mikil voru brim-
sogin í höfninni að bátamir stóðu
á þurru þegar útsogið var mest og
lögðust á hliðina, en það bjargaði
að þeir stóðu á sandi.
Einhveijar skemmdir urðu á bát-
unum en ekki kom að þeim leki.
Síðan á áramótum hafa gæftir ver-
ið með afbrigðum slæmar, fjórir
bátar sem róa frá Amarstapa með
línu hafa farið 3-7 róðra hver, en
afli virðist vera sæmilegur í þessum
róðrum. Tveir bátanna hafa verið
settir upp í fjöru í þar tilgerðum
sleðum, en hinir tveir legið við
bryggju.
- F.G.L.
Bandaríkjunum. Nú hefur „vitleys-
an“ verið búin til á ný og kemur
3kemmtilega á óvart. Enn heitir
hún„The Blob", sem hlýtur að teljast
eitt af tíu bestu nöfnum B-mynda-
sögunnar (Öskraðu á meðan þú get-
ur, á íslensku) og enn er morðóða
fruman komin á kreik, aðeins tækni-
lega betur útfærð en fyrir 30 árum.
Þið getið haft ósvikna skemmtun af
þessari útgáfu.
Það skemmtilegasta við „The
Blob", sem sýnd er í Stjömubíói, er
að gamli B-mynda svipurinn
(klassísk myndskeið af fólki á hlaup-
um undan ófreskjunni) og löngu út-
dauður kaldastríðsmórall sjötta ára-
tugarins fær að skína í gegn í
ágætri leikstjóm Chuck Russells
(„Nightmare on Elm Street"), í bland
við bestu hryllingsmyndabrellur nút-
(mans.
Vísindamenn í leit að sýklavopni
til að vinna á Rússunum missa það
úr höndum sér ogsýkillinn, dulbúinn
eins og loftsteinn, lendir hjá dæmi-
gerðum amerískum smábæ (hvar
annarstaðar?). „The Blob“ er sannar-
lega slímug mynd því aðalsöguhetjan
er slepjulegur, sultukenndur, ljós-
rauður, slímugur massi sem skríður
um og innbyrðir íbúa smábæjarins á
mjög kámugan hátt og vex og dafn-
ar á því. Tæknibrellumar em mjög
góðar og jafnvel þótt maður geti
hlegið dátt að „blobbinu" og hug-
myndinni á bak við það gefur Russ-
ell manni nóg af B-hryllingi til að
halda manni við efnið. Atriðið þegar
risavaxið sultutauið er komið inní
kvikmyndahús að innbyrða áhorf-
endur er t.d. einkar skemmtilega
útfært í gamla stílnum og fleiri at-
riði mætti nefna.
Það er góður húmor í þessu.
í bókinni „Þeir sem settu svip á
öldina, íslenskir athafnamenn", sem
kom út nú fyrir jólin, er grein eftir
undirritaða um Eggert Jónsson frá
Nautabúi. Með henni fylgdi til rit-
stjóra bókaflokksins, Gils Guð-
mundssonar, mynd af Eggert, sú
sem höfundur hafði valið til að birt-
ast með greininni. Eftir útkomu bók-
arinnar kom í ljós að ritstjórinn hafði
af einhveijum ástæðum skipt um
mynd, í texta og teiknaða á bók-
arkápu. Og komin með greininni
mynd sem ættingjar kannast ekki
við sem Eggert Jónsson frá Nauta-
búi.
Við eftirgrennslan hefur komið í
ljós að sú mynd er fengin úr mynda-
safni Þjóðminjasafnsins. Hún er
þangað komin 1972 úr myndasafni
Magnúsar Gíslasonar ljósmyndara,
sem m.a. lærði hjá Árna Thorsteins-
syni og rak um skeið ljósmyndastofu
á fyrri hluta aldarinnar. Aftan á
myndina hefur verið skrifað Eggert
Nautabúi. Með samanburði við
myndir af Eggert á yngri árum er
vægast sagt mikið vafamál að þessi
mynd sé af honum. Þjóðminjasafni
væri þægð í því að fá að vita um
það ef einhver þekkir manninn á
myndinni, sem hér birtist með, auk
myndar þeirrar sem höfundur skilaði
til útgefanda með greininni og mynd
af Eggert ungum.
Þá sem keypt hafa bókina bið ég
afsökunar á þessari myndabrenglun,
sem ég vissi ekkert um fyrr en bók-
in var komin út, svo og ættingja
Eggerts frá Nautabúi. Greinin var
einmitt skrifuð til þess að halda til
haga vitneskju um þennan merka
athafnamann á fyrri hluta þessarar
aldar og það sem hann gerði, sem
hvergi er annars staðar að fínna.
Margir safna eflaust þessum bókum
um merka menn, sem settu svip á
öldina, og koma þær að gagni sem
handbækur, m.a. á söfnum. Vil ég
biðja þá um að leggja eða líma þessa
leiðréttingu í bækur sínar. Jafnframt
eru þeir beðnir um að leiðrétta í leið-
inni prentvillu þótt lesa megi I mál-
ið. Á bls. 60 miðri á að standa Jón-
as Bjömsson en ekki Kristjánsson.
Elin Pálmadóttir
Bátarnir stóðu á
þurru í útsoginu
Laugarbrekku, Breiðuvík.
MIKIÐ hvassviðri var hér helgina 11 og 12. febrúar í óveðrinu sem
þá gekk yfir landið. Rafrnagn fór af og var símasambandslaust, einn-
ig var mikið hafrót. Aðfaranótt laugardags skall á vestan rok með
snjókomu og mikilli skafhríð og hélst það allan laugardaginn og
fram á aðfaranótt mánudags.
raðauglýsingar — ~raðaugiýsingar — raðauglýsingar I
............................... ....................■—...... —..........................—.............. -..........I
ísafjörður
Stjórn fulltrúaráös sjálfstæðisfólaganna á
Isafirði boðar til fundar fimmtudaginn 23.
febrúar kl. 20.30 I Sjálfstæðlshúslnu, 2.
hæð.
Dagskrá:
Frumvarp að fjárhagsóætlun Isafjarðar-
kaupstaðar fyrlr árið 1989.
Bæjarfulltrúar flokksins kynna stöðu og
áætlun bæjarsjóðs Isafjarðar.
Stjómin.
Síðdegisfundur
um varaflugvallarmálið
I Átthagasal Hótel Sögu fimmtudaginn 23. febrúar kl. 17.15. Ræðu-
menn: Jón Baldvin Hannlbalsson, utanrlklsráöherra, Albert Jónsson,
framkvæmdastjórí örygglsmólanefndar og Halldór Blöndal, alþlngls-
maður Sjálfstæöisflokksins.
Vörður - Óðinn - Hvöt - Heimdallur.
Frá húsnæðisnefnd
Sjálfstæðisflokksins
Fundur I Valhöll
fimmtudaginn 23.
febrúar kl. 17.00.
Lögð fram drög að
ályktun um hús-
næðismál vegna
landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Keflavík
Almennur fundur um bæjarmál
Fulltrúaráð sjálf-
stæðisfélaganna (
Keflavik heldur al-
mennan fund um
bæjarmál föstudag-
inn 24. febrúar kl.
20.30 á Flughóteli.
Dagskrá:
1. Fjárhagsáætlun
Keflavíkurbæjar
1989. Frum-
mælendur verða
bæjarfulltrúamir
Ingólfur Falsson
og Garðar Oddgeirsson.
2. Verkaskipting rikis og sveitafélaga. Frummælendur: Ellert Eiríks-
son, sveitarstjóri, og Jónína Guðmundsdóttir, varabæjarfulltrúi.
3. önnur mál.
Stjórn fulltrúaráösins.
Viðskipta- og neytenda-
nefnd Sjálfstæðisflokksins
heldur opinn fund i
Valhöll miðvikudag-
inn 22. febrúar nk.
kl. 12.15-13.15.
Umræðuefni:
Frjáls verðmyndun í
þágu neytenda.
Málshefjendur: Geir
H. Haarde og Ragn-
heiður Hauksdóttir.
Stjórnin.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Hörgshlíft 12
Boðun fagnaðarerindlsins.
Almenn samkoma I kvöld
kl. 20.00.
I.O.O.F. 9 = 1702228'/! = 9.0.
□ Helgafell 59892227 IV/V -2
I.O.O.F. 7= 1702228'/! =
□ GLITNIR 59892227 = 1
Vaknlngarsamkoma ( kvöld kl.
20.30 með ofursta Fred Byhlln.
Athuglð að ofursti Byhlln syngur
og talar á samkomum öll kvöld
þessa viku. Fimmtudag syngur
lofsöngskór fró Veglnum.
Veriö velkomin.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Safnaðarfundur i kvöld kl. 20.00.
AAalfundur
Kristniboðsfélags kvenna (
Reykjavik verður 6 morgun,
fimmtudaginn 23. febrúar kl.
16.00 á Amtmannsstíg 2b.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
íslenski Alpaklúbburinn
Miðvikudaginn 22. febrúar sjá
Torfl Hjaltason og Snævarr Guö-
mundsson um minningarkvöld um
þá félagana Krístin Rúnarsson og
Þorstein Guðjónsson er fórust i
Himalayafjöllum slöasta haust.
Athl Hefst kl. 21.00 í Risinu,
Hverfisgötu 105.
Reykjavíkurmelstaramót
i 16 km göngu veröur haldið f
Skólafelli laugard. 25. feb. kl. 14.
Keppt veröur I öllum hefðbundn-
um flokkum kvenna og karia.
Þátttaka tilkynnist fyrír kl. 21
föstudaginn 24. feb. I sima
75971 eða 75216.
Skiðadeild Hrannar,
Skálafelll.
ÚtíVÍSt, G.olton. ,
Helgarferftir 24.-26.
febr.
1. Góuferð { Þórsmörk. Þórs-
mörk f vetrarskrúöa er engu Ifk.
Gönguferðir. Hægt að hafa
gönguskíöi. Sólarkaffi, hvaö sem
hver segir. Gist I Útlvistarskálun-
um Básum.
2. TlndfJÖU. Tilvalið að hafa
gönguskíði. Gengiö é Tmdfjalla-
jökul. Frábær fjallaferö. Glst i húai.
Uppl. og farm. á skrlfst. Grófinni
1, slmar: 14606 og 23732.
FélðyfcfcurfsrBaóHun Ptfyttsr
þegar þlö sidpulaggiö sumar-
frflö.
Geríst Útivlsterfólegar.
Sjáumet.
Útivist, ferðafélag.