Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Þorkell
MYNDLIST
Viðurkenning fyrir
myndir á Lidice ’88
Fyrir skömmu voru átta íslensk-
um bömum veittar viðurkenn-
ingar fyrir þátttöku í sýningunni
Lidice ’88 í Tékkóslóvakíu. Þau eru:
Ævar Bjamason, Helga Hauks-
dóttir, Linda Kristín Sveinsdóttir,
Saga Steinþórsdóttir, Ingvar Rafn
Gunnarsson, Ema Björg Róberts-
dóttir, Sigrún Dögg Helgadóttir og
Kristín Anna Guðjónsdóttir, nem-
endur í Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Fyrir glæsilegt framlag
hópsins í heild hlaut skólinn heið-
urspening Rósarinnar frá Lidice.
Er það I sextánda sinn sem sýn-
ing þessi er haldin sem liður í ár-
legri athöfn til að minnast þess er
Lidice var jöfnuð við jörðu af nasist-
um árið 1942. Ýmis tékknesk sam-
tök stóðu að sýningunni ásamt
menntamálaráðuneyti Tékkóslóv-
akíu og UNESCO. Böm á aldrinum
5-15 ára frá öllum heimshlutum
tóku þátt í sýningunni.
Morgunblaðið/Sverrir
ISAFJARÐARPRESTAKALL
Nýr prestur vígður
Séra Magnús Gamalíel Gunnars-
son var vfgður til prestsþjón-
ustu fýrir söfnuði ísafjarðarpre-
stakalls í Dómkirkjunni fyrir
skömmu. Jafnframt verður hann
.fræðslufulltrúi kirkjunnar á Vest-
fjörðum.
Á myndinni, sem tekin er í Dóm-
kirkjunni, eru frá vinstri í efri röð:
Bjöm Bjömsson, prófessor, forseti
guðfræðideildar Háskóla íslands,
sr. Bemharður Guðmundsson
fræðslustjóri kirkjunnar, dr. Einar
Sigurbjömsson og sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson settur Dóm-
kirlquprestur. Neðri röð f.v.: Sr.
Baldur Vilhelmsson settur prófast-
ur ísfirðinga, herra Pétur Sigur-
geirsson biskup,, Magnús Gamalíel
og eiginkona hans, Þóra Ólafsdóttir
fóstra.
Kitty og Michael Dukakis veifa til aðdáenda sinna á fundi á
siðasta ári. Kitty tók virkan þátt i kosningabaráttunni og leitaði
á náðir Bakkusar er kosningavél George Bush bar eiginmann
hennar ofuriiði.
EFTIRKÖST
Kitty Dukakis
í áfengismeðferð
Kitty Dukakis, eiginkona Mic-
haels Dukakis sem bauð sig
fram fyrir Demókrataflokkinn í
forsetakosningunum í Banda-
ríkjunum í haust, á við ofdrykkju-
vandmál að stríða og hefur afráð-
ið að leita sér lækninga á sjúkra-
húsi einu í Rhode Island-ríki. Mic-
hael Dukakis skýrði frá þessu í
byijun vikunnar og lofaði mjög
þessa „hugrökku ákvörðun" eigin-
konu sinnar. Gert er ráð fyrir því
að meðferðin taki einn mánuð en
árið 1982 þurfti Kitty, sem er 52
ára að aldri, á aðstoð lækna að
halda til að venja sig af neyslu
megrunartaflna sem hún kvaðst
hafa ofnotað í 26 ár.
Michael Dukakis sagði að Kitty
hefði stóraukið áfengisneyslu sína
eftir tapið í forsetakosningunum
f nóvember á síðasta ári. Hefðu
hlotist af þessu veruleg vandræði
í tví- eða þrígang en Kitty hefði
fram til þessa ævinlega haft stjóm
á áfengisdrykkju sinni. „Kitty er
sterkur persónuleiki og stendur
sig ávallt best þegar á móti blæs.
Þetta kom vel í ljós í kosningabar-
áttunni, mér fannst hún standa
sig stórkostlega," sagði Dukakis.
Kitty Dukakis tók virkan þátt
í kosningabaráttu eiginmanns síns
og hélt fjölda funda upp á eigin
spýtur. Það vakti athygli frétta-
manna að hún varð öskuill er
aðstoðarmenn George Bush tóku
að veitast að Dukakis með ósví-
fnum hætti í sjónvarpsauglýsing-
um. Sjálf hefur Kitty Dukakis
sagt að hún sé „nokkuð spennt á
taugum“ og þykja þrotlauar síga-
rettureykingar hennar til marks
um að það. Michael, sem er svar-
inn hatursmaður tóbaks og ann-
arra nautnaljfya, þykir hins vegar
geðprúður með afbrigðum og
hófstilltur í hvívetna.
Michael Dukakis skýrði nýlega
frá því að hann hygðist ekki fram-
ar gefa kost á sér I kosningum
til ríkisstjóra Massachusetts en
því embætti hefur hann gegnt (
þijú kjörtímabil. Ýmsir stjóm-
málaskýrendur vestra telja hugs-
anlegt að hann hyggist reyna fyr-
ir sér að nýju er forsetakosningar
fara fram í Bandarfkjunum eftir
fjögur ár.
BOLUNGARVÍK:
íþróttamaður ársins
Ung og efnileg skíðakona Ásta
Halldórsdóttir var útnefnd
íþróttamaður ársins í Bolungarvík
árið 1988. Ásta var bikarmeistari
íslands árin 1986 og 1987 í ungl-
ingaflokkum en á síðasta keppnis-
ári keppti hún í fyrsta- skipti í full-
orðinsflokki.
Auk þess að útnefna íþróttamann
ársins veitti íþróttaráð Bolung-
arvíkurkaupstaðar um tuttugu ein-
staklingum viðurkenningar fyrir
góðan árangur og ástundun í ýms-
um íþróttagreinum.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Ásta Halldórsdóttir, íþróttamaður ársins 1988 í Bolungarvík ásamt
foreldrum sínum, Halldóri Benediktssyni og Steinunni Annarsdóttur.