Morgunblaðið - 22.02.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐE) IÞROTTJR MIÐVnCUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989
43
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN I FRAKKLANDI
Morgunblaðið/Símon Klingelschmitt
Guðmundur GuAmundsson hefur leikið vel i B-keppninni. Hér sést hann geysast fram hjá Rubin Martin og skora
eitt af þremur mörkum sínum gegn Sviss. Guðmundur náði 100% skotnýtingu í leiknum.
Hvað sögðu þeir?
Vorum hræddir
við slæma leikinn
- sagði Þorgils Óttar Mathiesen
Þorglls Óttar Mathlesan
„Þetta var mjög gott. Við vor-
um búnir að leika tvo mjög góða
leiki í röð og menn því ef til vill
hræddir undir niðri um að „slæmi"
leikurinn væri að nálgast. Menn
voru líka spenntir fyrst Þjóðveijar
unnu Rúmena. En geysileg bar-
átta skóp sigurinn í dag, sem fyrr
í þessari keppni, svo og frábær
stuðningur íslensku áhorfendanna
sem ég vil þakka stuðninginn. En
þetta er ekki búið, við verðum að
vinna Hollendinga til að vera ör-
uggir með sæti í A-keppninni.“
GuAmundur Hrafnkelsson
„Það var mjög gaman að koma
svona inn í leikinn — fá að vera
með. Ég var alveg laus við alla
taugaspennu og fann mig vel. Það
var alveg ljóst að þessum leik
yrði um stanslausa baráttu að
ræða og við höfðum gert okkur
grein fyrir því að allar miklar líkur
væru á að ekki munaði nema einu
marki í lokin."
Valdimar Grfmsson
„Þetta var mjög erfitt og sýnir
enn einu sinni hversu erfiðir and-
stæðingar Svisslendingar eru. Við
höfum leikið þrjá landsleiki við
þá á stuttum tíma, Valur lék tvo
Valdlmar Qrímsson.
Evrópuleiki við svissneskt lið á
dögunum og munurinn hefur allt-
af verið mjög lítill. Með þetta í
huga er sigurinn enn sætari. Við
erum nokkum veginn komnir með
ömggt sæti í A-keppninni og ef
liðið spilar eins gegn Hollending-
um og það hefur gert í keppninni
þá er engin spuming um að sigur-
inn lendir okkar megin."
„Verðum
að vinna
Hollend-
ingaf<
- segir Bogdan
Kowalczyk
Þessi leikur var eins og ailir
aðrir gegn Svissiendingum,
mjög erfiður. Kannski var hann
þó erfíðari en venjuiega því úr-
slit hans gátu ráðið því hvort
við ættum möguteika & að spila
um fyrsta sætið í keppninni eða
hvort við ættum á haettu að ná
ekki að komast upp úr B-keppn-
inni," sagði Bogdan Kowalczyk,
landsliðsþjálfari íslands, í gær-
kvöldi.
„Við eigum enn eftir leikinn
gegn Hollandi og allt getur enn-
þá gerst hér. Svisslendingar
beijast geysilega vel í leikjum
sínum og að mínu mati geta
þeir unnið Rúmena, þannig að
við verðum að vinna Hollend-
inga.“
I dag er ekki leikið hér í Stras-
bourg, síðustu leikimir f milli-
riðlunum verða annað kvöld.
„Strákamir fá alveg frf hálfan
daginn á morgun til að fara út
ef þeir vilja, en eftir það verðum
við að byija að undirbúa okkur
undir viðumignina við Hollend-
inga. Eins dags frí er gott fyrir
þá, en slæmt fyrir okkur vegna
þess að við erum í mun betri
iíkamlegri æfingu."
íslenska liðlð hefur enn ekki
átt slæman leik í þessari keppni,
og sagði Bogdan það í raun
koma sér á óvart. „Ef vel á að
vera verður liðið að vera mjög
samstillt og einbeitingin verður
að vera til staðar og allir að
vinna sem einn maður. Það hef-
ur tekist og því er ég mjög
ánægður með það sem af er,“
sagði Bogdan.
Villtur stríðsdans
íslendingar unnu mikilvægan sigur á Svisslendingum
Reuter
Þorglls Óttar Mathlessn sést hér skora eitt af þremur mörkum sfnum
af lfnu. Roger KeUer og Christian Ledermann náðu eldri að stöðva hann.
BARÁTTA, viljastyrkur og mikil
einbeiting skópu sigur íslands
i Sviss í ieiknum mikilvæga í
gærkvöldi. Mann vissu að gegn
Sviss mætti ekki sofna á verð-
inum í vörninni, sóknir liðsins
eru langar og þvf erfttt að halda
einbeitingunni. En þaðtókst
og enn einu sinni var liðsheild-
in góð, eins og verið hefur í
öllum leikjunum til þessa.
Þegar sex sekúndur voru eftir
af leiknum og Sviss í sókn —
ísland einu marki yfír, 19:18, —
var Guðmundur Guðmundsson rek-
inn af velli. Þorgils
Skapti Óttar hafði áður
Hallgrimsson verið vísað útaf
sex. Tíminn var stöðvaður og Sviss-
lendingar höfðu því nægan tíma til
að skipuleggja hvað gera skyldi.
Þeir stilltu upp, og Keller skaut —
en framhjá, og Islendingar stigu
villtan striðsdans af fögnuði.
fslenska liðið hefur oft leikið
fallegri handknattleik en f gær-
kvöldi, en þegar mikilvægi leikjanna
er svona mikið skiptir slíkt einfald-
lega alls engu máli. Keppt er um
stig, ekki fegurðarverðlaun. Góður
vamarleikur skiptir gríðarlegu máli
og hann var í góðu lagi í gær. Sókn-
in hefur oft verið betri en vitaskuld
verður ekki kvartað yfír henni þeg-
ar svona fer.
Allir leikmennimir eiga hrós
skilið. Þeir léku sem fyrr fyrst og
fremst hver fyrir annan, bæði í
sókn og vöm.
Svisslendingar em svo sannar-
lega verðugir andstæðingar. Þeir
leika ekki fallegast allra landsliða.
Þeir hugsa um það í hverri sókn
að sleppa ekki boltanum fyrr en f
ömggu færi, og leyfa sér aldrei að
taka áhættu. Því em þeir erfíðir
viðureignar.
STAÐAN
MILLIRIÐILL1
STRASBOURG
fSLAND - SVISS...............19:18
‘ V-ÞÝSKALAND - RÚMENlA......23:21
BÚLGARfA- HOLLAND............33:26
Fj. lalkja u j T Möric Stlfl
RÚMSNlA 4 3 0 1 105:87 6
SVISS 4 3 0 1 82: 72 6
ÍSLAND 4 3 0 1 83: 74 6
V-ÞÝSKAL. 4 2 0 2 87: 76 4
BÚLGARÍA 4 1 0 3 86: 95 2
HOLLAND 4 0 0 4 78:117 0
■ VESTUR-ÞJÓÐ VERJAR
hrifust af leik Héðins Gilssonar
er íslendingar sigmðu V-Þjóð-
veija í fyrrakvöld. Svo langt náði
hrifning þýsku blaðanna að þau
yngdu hann um eitt ár og og stækk-
uðu hann um fímm sentimetra. Þau
sögðu að hann væri 19 ára og 2,06
m á hæð. Hið rétta er aðHéðinn
er tvítugur og 2,01 m á hæð.
■ MARGŒ sem hér em á vegum
ferðaskrifstofunnar SL komu að
máli við Kjartan Pálsson, farar-
stjóra, strax að leik loknum í gæs»-»
og báðu um að hann útvegaði þeim
strax miða á leiki í A-heimsmeist-
arakeppninni f Tékkóslóvakfu á
næsta ári. Kjartan þorði ekki ann-
að en að draga upp blað og penna
og er því þegar farinn að taka nið-
ur pantaniri
MILLIRIÐILL2
MARSEILLE
KÚBA- fSRAEL...............31:19
SPÁNN- PÓLLAND.............23:27
FRAKKLAND - DANMÖRK........23:21
Fj.loikja u j T Möric Stlg
PÓLLAND 4 4 0 0 109: 85 8
FRAKKLAND 4 3 0 1 89: 72 6
SPÁNN 4 3 0 1 91: 86 6
KÚBA 4 1 0 3 91: 93 2
DANMÖRK 4 1 0 3 94: 100 2
ISRAEL 4 0 0 4 71: 109 0
ísland - Sviss 19 : 18
B-keppnin f handknattleik, milliriðiU, Halle Rheinus f Strasbourg, þriðjudaginn 21. febrú-
ar 1989:
Gangur leikaina: (Sóknamýtíng innan sviga): 0:1, 1:1, 2:2, 2:4 (83.3%), 4:4, 6:5
(50%), 8:8 (44.4%), 10:9 (60%), 11:10 (52.8%), 13:11 (52%), 14:12, 16:13 (53.8%),
18:16, 19:17 (66.8%), 19:18 (62.7%).
Sóknarnýtíng: Nitján mörk 1 þrjátíu og sex aóknariotun, sem er 62.7% nýting.
faland: (Mörk, akot, knettí tapað og nýting): Valdimar Grimsson 6-8-0-75%, Þotgils
Óttar Mathiesen 8-5-0-66.6%, Guðmundur Guðmundaaon 8-3-0-0-100%, Sigurður Sveina-
Bon 2/2-8-0-60%, Siguröur Gunnarsson 1-1-1-60%, Héðinn Gilsson 1-2-2-26%, Alfreð
Gíslason 0-3-2-0%, Geir Sveinsson, Jakob Sigurðsson.
Hvemig vora mörk akorað: Sex af lfnu, Qögur með langskotum, þrjú úr homi, þijú
eftir hraðupphlaup, tvö úr vítaköstum og eitt eftir gegnumbtoL
Línuaendingar aem giftt mörk: Sigurður S. 2, Alfreð 2, Sigurður G. 1, Kristján 1,
Héðinn 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 4/2, Guðmundur Hrafnkelsson 3.
Utan vallar: 18. mfnútur.
Svisa: Jens Meyer 9, Martein Rubin 5, Roger Keller 1, hans-Rudi Schumacher 1, Rene
Barth 1, Roland Gassmann 1.
Varin akot: Peter Huriimann 8.
Utan vallar: 6 mfn.
Dómaran Spánskir og dæmdu mjög vel.