Morgunblaðið - 22.02.1989, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 22.02.1989, Qupperneq 25
CJ i,. J > 1 : N S S fU JM'l ý j:\ti ;J'Í tlC-vIíí. JtJ ')\ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 25 Skátar halda 22. febrúar hátíðlegan SKÁTAR um heim allan halda 22. febrúar hátíðlegan. Þennan dag, árið 1857, fæddist Baden-Powell, stofinandi skátahreyfingarinnar. Eiginkona hans, Olave Baden-Powell, fyrsti alheimshöfðingi kven- skáta, var borin í þennan heim réttum 32 árum síðar, eða þann 22. febrúar 1889. í dag eru því hundrað ár liðin firá fiæðingu hennar. Hagaskóli: Sjö kennslustofur byggðar * Aætlaður kostnaður 44 milljónir Til að undirstrika friðarhugsjón skáta hafa alheimssamtök drengja- og kvenskáta ákveðið að standa fyrir sérstakri friðarviku sem hefst á fæðingardegi þessara hjóna, 22. febrúar, og stendur hún til 29. febr- úár. Þessa daga mun sérstök áhersla verða lögð á frið og friðar- umræður. Skátahreyfíngin er alþjóðleg og í dag eru starfandi 24.000.000 skáta í yfír 150 löndum. Það er því ríkur þáttur í uppeldi hvers skáta að auka með honum alþjóðavitund til eflingar samskipta þjóða um heim allan. (Fréttatílkynning) BYGGINGARDEILD Reykjavík- urborgar hefur ákveðið að bjóða út 620 fermetra viðbyggingu við Hagaskóla. Verkið er boðið út í einu lagi, uppsteypa og endan- legur frágangur úti sem inni og er kostnaður áætlaður um 44 milljónir. Að sögn Guðmundar Pálma Kristinssonar yfirverkfræðings á byggingardeild, verða sjö kennslu- stofur í nýbyggingunni, sem er á einni hæð og tengist gamla skóla- húsinu með tengibyggingu. í haust eiga fjórar kennslustofur að vera tilbúnar og lokið við endanlegan frágang að utan. Þegar er búið að girða og grafa grunn að húsinu á lóð skólans við Dunhaga. Arkitektar hússins eru Guðmundur Kr. Guð- mundsson og Ólafur Sigurðsson. Borgarstjórn: Múrtiihlutínn mótínælir kostnaði við ráðhúsið Næring og heilbrigði í Fjölbraut í Breiðholti í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti hófst á mánudag verkefiii sem ber heitið næring og heilbrigði. Um er að ræða samnorrænt verk- efiii sem Fjölbrautaskólinn í Breiðholti tekur þátt í, ásamt einum skóla frá hverju hinna Norðurlandanna. Aðrir skólar eru; ALLIR minnihlutaflokkarnir í borgarstjórn lögðu á fundi borgar- stjórnar á fimmtudag fram bókanir þar sem mótmælt er hækkunum á kostnaði vegna ráðhúsbyggingarinnar í Tjörninni. Einnig kom fram gagnrýni vegna byggingahraðans og sögðu sumir borgarfull- trúar minnihlutans að svo virtist sem Sjálfstæðisflokkurinn stefiidi að því að geta flaggað ráðhúsbyggingunni í næstu kosningum. Davíð Oddsson, borgarstjóri, sagði minnihlutann ávallt vera að bera saman tölur á gömlu verðlagi við nýjar tölur án þess að taka.tillit til verð- lagsbreytinga. Borgarstjóri sagði að fyrri tölur hefðu einungis verið skot á hugsan- legan kostnað en nýju tölumar fýrsta ráunvemlega kostnaðaráætl- unin sem ekki hefði verið hægt að vinna fyrr en hönnun var kominn á lpkastig. Bjóst hann ekki við mikl- um frávikum frá henni þegar upp væri staðið, í hæsta lagi 10-15%. Vakti það furðu hjá borgarstjóra að nú virtist sem minnihlutinn ótt- aðist það mest að þetta, að þeirra mati, „ljóta og ógeðslega hús“ næði að rísa upp fyrir kosningar. Ef ráð- húsið væri eins hræðilegt og minni- hlutinn vildi vera láta ætti hann frekar að fagna því ef það yrði til- búið fýrir kosningar svo hægt væri að hengja þann aðila sem lét byggja það. Gat hann þess einnig til saman- burðar að áætlað verð á fermetra í ráðhúsinu væri mun lægra en áætlað verð á fermetra í nýja Al- þingishúsinu. Aarhus teknisk skole, Dan- mörku, Kristiansands Yrkesskole, Noregi, Champmansskolen í Karls- krona, Svíþjóð, og Hótelskólinn í Bjömeborg, Finnlandi. Markmið með verkefninu er að efla vitund nemenda um gæði matvæla og máltíða með hliðsjón af manneldis- markmiðum fyrir íslendinga, íslenskri matvælalöggjöf og áætlun um heilbrigði allra árið 2000. Verkefnið stendur fjórar næstu vikur, nemendur á matvælasviði munu matreiða, framreiða og meta máltíðir. Reiknað verður út næring- argildi máltíðar. Metið verður fram- boð í mötuneyti nemenda og unnið að könnun á ýmsum þáttum tengd- um næringu og heilbrigði. Nemend- ur á íþróttabraut vinna að verkefni er tengist næringu og hreyfingu. Nemendur á félagsfræðibraut munu leggja spumingar fyrir skóla- félaga sína um næringar- og heil- brigðishætti. Nemendur á Qölmiðla- braut vinna að kynningu verkefnis- ins í máli og myndum. Myndlistar- nemar munu einnig aðstoða við gerð veggspjalda. Staðið verður fyrir hollustuvikum í skólanum á meðan á verkefninu stendur og verða nemendur virkjað- ir í þeim efnum. Unnið verður að verkefninu næstu þijú skólaár. Aðalfundur Reiðhallarinnar: Fiskverð á uppboðsmörkuðum 21. febrúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægqta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 55,00 47,00 52,91 33,465 1.770.728 Þorskur(ósl-) 44,00 36,00 41,99 4,144 173.966 Þorsk.(dbl.óst) 33,00 33,00 33,00 1,424 46.993 Smáþorskur 26,00 26,00 26,00 1,000 26.000 Ýsa 71,00 35,00 57,08 7,285 415.893 Ýsa(óst) 60,00 60,00 60,00 0,473 28.407 Steinbítur 28,00 18,00 26,13 1,329 34.772 Steinbítur(óst) 26,00 19,00 23,35 1,953 45.608 Lúða 70,00 70,00 70,00 0,006 420 Samtals 49,78 51,080 2.542.747 Selt var aðallega úr Jóa á Nesi SH, Ljósfara HF og Hafbjörgu sf. í dag verða m.a. seld 80 til 100 tonn, aöallega af þorski, úr Júlíusi Geirmundssyni (S, Bessa IS, Stakkavík ÁR og frá Tanga hf. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 56,00 36,00 41,25 65,627 2.706.920 Þorsk(ósl.l.bt) 48,00 27,00 44,07 21,354 941.018 Þorsk(sl.dbt) 30,00 30,00 30,00 2,115 63.450 Smáþorskur 16,00 16,00 16,00 0,200 3.200 Ýsa 42,00 30,00 38,21 7,490 286.156 Ýsa(óst) 69,00 32,00 61,07 2,310 141.065 Ýsa(umálóst) 22,00 19,00 21,30 0,315 6.708 Ufsi 16,00 15,00 15,95 3,425 54.639 Karfi 15,00 15,00 15,00 0,564 8.460 Steinbítur 18,00 15,00 17,95 6,737 120.956 Skarkoli 57,00 43,00 50,51 1,075 54.295 Langa 11,00 11,00 11,00 0,025 275 Lúða 250,00 170,00 213,59 0,627 133.920 Keila 5,00 5,00 5,00 0,072 360 Rauðmagi 100,00 100,00 100,00 0,039 3.900 Hrogn 160,00 155,00 156,57 0,115 18.005 Samtals 40,39 112,167 4.545.331 Selt var úr Þrymi BA, Krossnesi SH og Farsæli SH. I dag verða m.a. seld 60-70 tonn af þorski úr Páli Pálssyni IS og bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur(óst) 60,00 40,50 48,38 14,342 693.891 Þorsk.(2og3n) 39,00 39,00 39,00 0,500 19.500 Ýsa(2.n.) 66,00 45,00 54,19 0,835 51.050 Ýsa(óst) 70,00 46,00 61,39 4,924 240.895 Ufsi(2 nátta) 20,00 20,00 20,00 4,160 83.200 Ufsi(2 og 3 n) 19,00 19,00 19,00 0,500 9.500 Ufsi(óst) 20,50 15,00 19,44 3,096 60.190 Karfi 41,00 21,00 37,26 1,698 37.769 Langa(óst) 29,00 29,00 29,00 1,000 29.000 Blálanga 23,00 23,00 23,00 0,062 1.426 Steinbitur 53,00 53,00 53,00 0,406 13.894 Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,050 750 Lúða 460,00 205,00 382,83 0,069 26.41'5 Keila 18,00 18,00 18,00 3,570 64.260 Samtals 38,62 34,499 1.332.465 Selt var aöall. úr Eldeyjar-Boöa GK, Hraunsvík GK og frá Þor- birni. I dag verða m.a. seld 68 tonn, aöall. af þorski, úr Skarfi GK. Sljórninni heimilað að selja hluta húseignarínnar SKULDIR Reiðhallarinnar hf. nema nú 90 milljónum króna og er þriðjungur þeirra skammtíma- skuldir. Á aðalfundi Reiðhallar- Gítartón- leikar á Aust- Qörðum EINAR Kristján Einarsson gítar- leikari heldur tónleika á Aust- fjörðum í vikunni. Hann leikur fyrst á Borgarfirði eystra í dag miðvikudaginn 22. febrúar klukkan 20.30 í félags- heimilinu Fjarðarborg. Því næst verða tónleikar á Seyðisfírði föstu- daginn 24. febrúar klukkan 20.30. í Egilsstaðakirkju laugardaginn 25. febrúar klukkan 17.00. Ferðinni lýkur með tónleikum í Safnaðar- heimili Neskaupstaðar sunnudaginn 26. febrúar klukkan 17.00. Á efnisskránni eru verk eftir 16. aldar tónskáldið John Dowland, Fernando Sor, sem var 19. aldar gítarleikari og tónskáld, 20. aldar mennina Manuel Ponce og Hans Wemer Henze og auk þess tónlist frá Japan og Suður-Ameríku. Einar Kristján Einarsson lauk burtfararprófí frá Tónskóla Sigur- sveins árið 1982 og stundaði fram- haldsnám í Englandi. Hann fluttist heim til íslands sl. haust og er nú starfandi tónlistarmaður og gítar- kennari í Reykjavík. Einar hefur haldið tónleika á fslandi og einnig komið fram á Spáni og Englandi. (Fréttatilkynning) innar síðastliðinn fimmtudag var nýrri stjórn heimilað að auka hlutafé i Reiðhöllinni svo og að selja hluta af húseigninni með þeim takmörkunum að hesta- mannahreyfingin hafi full yfirr- áð yfir henni að minnsta kosti sex mánuði á ári. Sigurður J. Líndal formaður síðustu stjórnar og Gísli Ellertsson sitja áfram í nýrri stjóm. Auk þeirra eiga þar sæti Kári Amórsson form- aður Landssambands hestamanna- félaga, Guðmundur Jónsson, Hall- dór Gunnarsson, Reynir Aðalsteins- son og Geir Þorsteinsson. Úr stjóm gengu Gísli B. Bjöms- son, Ágúst Oddsson, Romsemarie Þorleifsdóttir, Sigurbjöm Bárðar- son og Gunnlaugur Júlíusson. „Reksturinn á síðasta ári var mjög erfíður," sagði Sigurður Líndal. „ Það verður hlutverk nýrr- ar stjómar að takast á við þennan vanda. En þrátt fyrir þessa erfíð- leika ríkir bjartsýni um framtíð Reiðhallarinnar. Sjálfur lít á þetta sem byijunarerfiðleika. Satt að segja fínnst mér að and- inn gagnvart Reiðhöllinni hafí verið fremur neikvæður frá upphafí og að skilning vanti á hlutverki henn- ar. í hálfan annan áratug hefur verið reynt að fá hestamennskuna viðurkennda sem íþrótt. Ef svo væri hefðu við kannski fengið fram- lög svipað og önnur íþróttafélög og ættum þá ekki við neinn vanda að stríða." Starfshópur kannar stöðu lagmetisiðnaðar í LJÓSI þeirra erfiðleika sem upp hafa komið i lagmetísiðnaði hefitr iðnaðarráðherra ákveðið að skipa starfshóp tíl að kanna stöðu iðngreinarinnar og benda á leiðir tíl að bæta markaðsstöðu hennar. Hópurinn mun einnig Qalla um Qármögnun lagmetís- framleiðsliumar. I starfshópnum eru: Halldór J. Kristjánsson, deildarstjóri i iðnað- arráðuneytinu, formaður, Sveinn Bjömsson, sendifulltrúi, tilnefndur af utanríkisráðuneytinu, Hermann Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra, tilnefndur af sjávarútvegsráðuneytinu, Davíð Lúðvíksson. deildarstióri. tiínefnd- ur af Félagi ísl. iðnrekenda, og Eiríkur Valsson, sölustjóri, til- nefndur af Sölusamtökum lagmet- is. Starfshópurinn hefur þegar tek- ið til starfa og hefur iðnaðarráð- herra óskað eftir því að hann hraði störfum svo sem kostur er. (Frétt&tilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.