Morgunblaðið - 22.02.1989, Page 40

Morgunblaðið - 22.02.1989, Page 40
40 MORGÍUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 Stöðvarflörður og Breiðdalsvík Á Stöðvarfirði eru 355 íbúar og 60 til 70 þeirra eru atvinnulausir. Á Breiðdalsvik búa um 370 manns og um 40 þeirra eru á atvinnu- leysisskrá. Hugmynd um samruna ftysti- húsanna varpað fyrir róða HUGMYND um samruna Hraðfrystihúss StöðvarQarðar hf. og Hraðfrystihúss Breiðdælinga hf. hefúr verið varpað fyrir róða en Atvinnutryggingarsjóður átti frnxmkvæðið að þessum hugmynd- um, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækjanna. í gangi eru viðræð- ur um þann möguleika að fyrirtækin reki sameiginlegar stoðdeild- ir, það er að segja neta- og vélaverkstæði, valmjölsverksmiðju og skrifstofúr, og fyrirtækið Framleiðni sf. var fengin til að kanna hagkvæmni þess. Hugmyndir eru uppi um að skrifstofúrn- ar og netaverkstæðið verði á Stöðvarfirði en mjölverksmiðjan og vélaverkstæðið á Breiðdalsvik. Guðjón Smári Svavar Lárus Björn Hafþór Öll vinnsla hjá Hraðfrystihúsi Stöðvarfjarðar og Hraðfiystihúsi Breiðdælinga liggur niðri, nema* saltfískverkun á Breiðdalsvík og harðfískverkun á Stöðvarfirði. A Stöðvarfirði eru 355 íbúar og þar af eru 60 til 70 atvinnulausir. Á Breiðdalsvík búa um 370 manns og um 40 þeirra eru á atvinnuleys- isskrá, þar af 6 trillukarlar. „Fengrim þriggja mán- aða greiðslustöðvun" „Við fengum greiðslustöðvun til þriggja mánaða 22. nóvember síðastliðinn og hún hefur verið framlengd um tvo mánuði. Öllu starfsfólki fyrirtækisins var sagt upp störfum 1. desembersíðastlið- inn og öll vinnsla liggur niðri nema harðfískverkun," sagði Guðjón Smári Agnarsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfystihúss Stöðvarflarðar, í samtali við Morgunblaðið. „Þegar allt var á fullum dampi hjá fyrirtækinu unnu hjá því 50 til 60% af útivinnandi folki á Stöðvarfirði og þá voru unnin þar rúmlega 100 ársverk. Allt atvinn- ulíf á staðnum hefur því lamast og fólk er mjög áhyggjufullt. Við sjáum ekki fram á að geta unnið aflann sjálfír fyrr en rekstrar- grundvöllurinn hefur verið bætt- ur. Fyrirtækið á tvo togara, Álfta- fell og Kambaröst, en við erum með Alftafellið i sölu. Kambaröst- in hefur siglt með aflann en afli Álftafellsins hefur farið í gáma. Hraðfrystihús Eskifjarðar og Kaupfélag Héraðsbúa voru með hugmyndir um að kaupa skipið fyrir 185 milljónir króna en hættu við það. Við kaupum ekki annað skip í staðinn fyrir Álftafellið, þannig að eftir söluna þarf ekki eins margt starfsfólk og áður við vinnslu og þjónustu: Nú er verið að kanna hag- kvæmni þess að Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar og Hraðfiystihús Breiðdalsvíkur reki sameiginlegar stoðdeildir, það er að segja neta- og vélaverkstæði, skrifstofuhald og beinavinnslu. Það er verið að tala um að skipta þessu jafnt á milli fyrirtækjanna og það eru uppi hugmyndir um að skrifstofur og netaverkstæði verði á Stöðvar- fírði en vélaverkstæði og valmjöls- verksmiðja á Breiðdalsvík. Það var mjög góð útkoma á saltfiskverkuninni hjá okkur. Það var því mikill skellur fyrir okkur þegar saltfískverkunarhúsið brann í haust. Það var þokkaleg útkoma hjá fyrirtækinu árið 1986 og fram á mitt árið 1987. Síðan hefur sigið hægt og sígandi á ógæfuhliðina. Ytri skilyrrði eru aðalorsökin fyrir því. Raungengi krónunnar hækk- aði, vextir hækkuðu, afurðaverð lækkaði og dollarinn féll. Mér fínnst ábyrgð stjómvalda vera mikil á því slæma ástandi sem er hjá mörgum ftystihúsum núna. Hraðftystihús Stöðvaifyarðar varð til við samruna fímm fyrir- tækja árið 1976. Fyrirtækin voru Framkvæmdir við nýjan grunnskóla á Breiðdalsvík hófúst fyrir 10 árum en hann er nú einungis fokheldur. Saltfiskverkunarhús Hraðfrystihúss Stöðvarfj arðar hf. brann í haust. Varðarútgerðin hf., sem átti bát og saltfískverkun, Álftafell hf., sem átti samnefndan bát, Steðji hf., sem var með síldarsöltun, saltfískverkun og lítils háttar frystingu, Saxa hf., sem átti bræðslu, og Hraðfrystihús Stöðv- arfjarðar, sem stofnað var árið 1946,“ sagði Guðjón Smári Agn- arsson. „Tæplega 50% atvinnu- leysi á Stöðvarfirði“ „Á Stöðvarfirði eru 60 til 70 manns atvinnulausir en hér eru um 150 manns á vinnumarkaðin- um á vetuma, þannig að atvinnu- leysið er tæplega 50%. Um 70% íbúanna byggja afkomu sína á einn eða annan hátt á fiskveiðum og vinnslu sjávarafurða," sagði Bjöm Hafþór Guðmundsson sveit- arstjóri Stöðvarhrepps. „Öllu starfsfólki saltfiskverkunarinnar Færabaks, um 20 manns, var sagt upp störfum 10. janúar síðastlið- inn og öllu landverkafólki Hrað- frystihúss Stöðvarfjarðar, um 50 manns, var sagt upp störfum 1. desember síðastliðinn. Stöðvarhreppur á 30 til 40% af hlutafé Hraðfrystihúss Stöðv- arfjarðar. Hreppurinn hefur eign- ast þetta hlutafé bæði með bein- um framlögum og með því að breyta skuldum í hlutafé. Tekjur sveitarfélagsins voru verulega góðar, ekki síst af fiystihúsinu sem hefur greitt helminginn af fasteignagjöldunum. Það fór hins vegar að síga mjög á ógæfuhliðina í október síðastliðnum og óvíst er um innheimtu fasteignagjalda af frystihúsinu á næstunni. íbúðar- húsnæði hér er verðlítið og sumir em famir að huga að því að koma sér á vertíð annars staðar. Með því að stöðva allar fram- kvæmdir á vegum Stöðvarhrepps tel ég að hann komist áfallalítið út úr þessum erfíðleikum. Skammtímaskuldir hreppsins voru í árslok 1987 14 milljónir króna, langtímaskuldir 12 milljón- ir króna, veltufjármunir tæpar 10 milljónir króna, langtímakröfur tæpar 5 milljónir króna og bók- fært eigið fé var yfír 40 milljónir króna. Framkvæmdir við nýjan grunn- skóla hófust árið 1983 og hann er nú fokheldur. Þijár kennslu- stofur í kjallara skólans voru tekn- ar í notkun í janúar síðastliðnum og nýr leikskóli var tekinn í notk- un í fyrravor. Unnið var við dýpk- un á höfninni í fyrrasumar en ekki tókst að ljúka því verki. í höfninni eru bundnar hátt í 100 milljónir króna á núvirði. Orsakimar fyrir slæmri stöðu Hraðfiystihúss Stöðvarfjarðar em fyrst og fremst hár fjármagns- kostnaður, svo og að gengi krón- unnar var haldið föstu á meðan innlendur kostnaður hækkaði. Fyrirtækið hefur ef til vill lagt upp með of mikinn skuldabagga þegar það var stofnað árið 1976. Vélarbilanir í Álftafellinu hafa einnig verið fyrirtækinu þungur baggi. Skipið var lengt þegar nýrri vél var komið fyrir f því og þá var það frá veiðum í sex eða sjö mánuði. Mér fínnst að ræða megi sam- einingu Stöðvarhrepps og Breið- dalshrepps hvenær sem er og óháð því hvort Hraðftystihús Stöðvarflarðar og Hraðfiystihús Breiðdælinga reki sameiginlegar stoðdeildir. Ég er hlynntur þeirri hugmynd og það lá strax fyrir að algjör sameining þeirra gekk ekki upp. Ef hins vegar Hrað- frystihúsi Stöðvarfjarðar tekst ekki að komast út úr þessari greiðslustöðvun, blasir gjaldþrot þess við og óvissan um það hvort stjómvöld vilja leyfa okkur að lifa hér áfram kvelur okkur mest. Ég reyni þó að vera bjartsýnn," sagði Bjöm Hafþór Guðmundsson. „Sjáum möguleika á að spara í yfírbyggingu“ „Menn hafa varpað frá sér hug- myndum um algjöra sameiningu Hraðfiystihúss Breiðdælinga og Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar," sagði Svavar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfystihúss Breiðdælinga. „Við sjáum þó möguleika á að spara í yfirbygg- ingu og verið er að skoða hag- kvæmni þess að fyrirtækin reki sameiginlegar stoðdeildir. Við hættum vinnslu í frystihús- inu þegar síldarfrystingu lauk 10. desember síðastliðinn. Þar voru 35 heilsdagsstörf og óvíst er hve- nær fiystingin fer aftur í gang. Við emm einungis með saltfísk- verkun núna og hjá okkur vinna um 15 manns. Allur skrapfiskur, sem togarinn okkar Hafnarey veiðir, fer í gáma en þorskurinn í salt. Verið er að smíða fyrir okkur nýjan togara í Póllandi, Andey SU 210, og það á að afhenda skipið um næstu mánaðamót. Við seldum Sanda- fell til Eyrarbakka og Stakkavík ÁR fer út í staðinn fyrir Andey. Upphaflega átti Andey að verða rækjuskip og það átti að afhenda í nóvember síðastliðnum. Síðan var ákveðið að fullvinna bolfisk í togaranum. Eigendur Hraðfrystihúss Breið- dælinga eru Kaupfélag Stöðfirð- inga, Sambandið, Breiðdalshrepp- ur og einstaklingar á staðnum," sagði Svavar Þorsteinsson. „Við sitjum með galtóman kassa“ „Erfið staða frystihússins kem- ur niður á sveitarfélaginu," sagði Lárus Sigurðsson oddviti Breið- dalshrepps. „Við sitjum með gal- tóman kassa en getum ekki geng- ið hart að ftystihúsinu, því þá myndum við tapa enn meiru. Erf- iður rekstur þess leiðir einnig af sér minni atvinnu og þar af leið- andi minni staðgreiðslu skatta. Það verður að skapa grundvöll fyrir áframhaldandi rekstri fyrir- tækja, éins og Hraðfrystihúss Breiðdælinga, og það þolir enga bið. Það hefur ekki farið fram nein sérstök umræða að undanförnu um sameiningu Breiðdalshrepps og Stöðvarhrepps og ég er per- sónulega þeirrar skoðunar að tvö til þijú kjörtímabil tæki að kanna grundvöllinn fyrir sameiningu þeirra. Frá árinu 1985 hafa framkæmdir við nýja vatnsveitu verið langstærsta verkefni Breið- dalshrepps. Einnig hafa fram- kvæmdir við nýjan grunnskóla verið okkur þungar í skauti en bygging hans hófst fyrir 10 árum. Skólinn er hins vegar einungis fokheldur og það voru engar framkvæmdir við hann í fyrra. Skólinn var teiknaður fyrir 80 böm en nú eru einungis 38 böm í gamla grunnskólanum, Staðar- borg, og í Breiðdalshreppi fæddist ekkert bam í fyrra. Nýi skólinn er á milli 1.200 og 1.300 fermetr- ar en gert er ráð fyrir félagsað- stöðu í honum. Skólabyggingin og uppbygging hafnarinnar eru stærstu verkefnin á næstu áram. Höfnin er opin fyrir öllum veðram og togarar okkar og stærri bátar hafa þurft liggja inni á Reyðarfirði yfir jól og áramót. Einnig hefur þurft að taka upp fjórar trillur af átta sem gerðar eru út héðan," sagði Lárus Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.