Morgunblaðið - 05.04.1989, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVHCUDAGUR 5. APRÍL 1989
Dosamót- ■ »|-rr ' ■..
takarar
halda inn-
reiðsína
Maðurinn á
myndinni heitir Jón
Garðar
Ogmundsson, og M "
stendur við
nýstárlegt tæki sem
er er hið fyrsta
sinnar tegundar á
laqdinu. Þegar
farið verður að
leggja skilagjald á \fl8rilMn rV •
áldósir hérlendis
munu svona tæki,
sem sett verða upp
í verzlunum, taka IhF.
við dósunum og IWillBliffBKF- 'lj
gefa í staðinn iP* HhPIh^P^'
innleggsnótu, sem
hægt er að verzla
fyrir í viðkomandi
búð. Þetta fyrsta
tæki á landinu er í
Bónus,
matvöruverzlun í
Skútuvogi, og er að y/v T<; ’
sögn eigenda fyrst
í stað sett upp fólki
til fr óðleiks um
komandi tíð. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Páll Pétursson um varnarmálaskrifstofiina:
Legið á upplýsing-
um um æfíngamar
Utanríkisráðherra lýsir yfír fyllsta
trausti sínu á skrifstofiistjórann
Á næturfundi Alþingis vegna fyrirhug-aðra heræfinga Bandaríkja-
manna hér á landi í sumar, lýsti Páll Pétursson, formaður þing-
flokks framsóknarmanna, því yífir að upplýsingar í ræðu utanrikis-
ráðherra væru einn samfelldur áfellisdómur yfir varnarmálaskrif-
stofu utanrikisráðuneytisins, þar virtist sem viðgengist hefði
leynipukur, legið hefði verið á upplýsingum og utanríkisráðherra
ekki fengið þær í hendur.
Viðræður lífeyrissjóða og stjómvalda:
Vextir skuldabréfanna
verði ákvarðaðir efitir á
SAMBÖND lifeyrissjóðanna hafa gert stjórnvöldum tilboð um að
sjóðirnir láni til Húsnæðisstofnunar gegn kvittunum, það sem eftir
er af þessu ári. í janúar á næsta ári verði lánveitingarnar greiddar
með skuldabréfum, með vegnum meðalvöxtum spariskirteina ríkis-
sjóðs til 5 ára eða lengur, sem hafa verið seld almenningi á samnings-
tímabilinu frá 1. apríl út árið. Nái þessi bréf ekki 50% af heildar-
sem er minna en áætlanir Hús-
næðisstofnunar, en þar var gert ráð
fyrir að kaupin gætu numið tveimur
milljörðum.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Páli Pétursson að svo virtist sem
Steingrímur Hermannsson hefði
ekki fengið upplýsingar um umfang
heræfinganna her í sumar. „Ég tek
hans skýringu trúanlega, ogtel Ijóst
að það er eitthvað að þessum boð-
leiðum. Það þarf að kanna með
hvaða hætti vamarmálaskrifstofan
starfar, því að það er hennar hlut-
verk að hafa ráðherrann upplýst-
an,“ sagði Páll. Hann sagðist telja
það hlutverk utanríkisráðherra að
sjá til þess að starfshættir skrífstof-
unnar yrðu kannaðir.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra sagði á þingi í fyrri-
nótt að hann teldi upplýsingar þær,
sem hann gerði þar opinberar, ekki
gefa tilefni til að bera forstöðumenn
vamarmálaskrifstofunnar neinum
sökum. Lýsti ráðherra fvilsta
trausti á núverandi skrifstofustjóra
varnarmálaskrifstofunnar, og þótt
hann gæti ekki talað af reynslu um
forvera hans, andmælti hann ásök-
unum um brot starfsmanna varnar-
málaskrifstofunnar í starfí.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
var skrifstofustjóri varnarmála-
. skrifstofunnar til vors 1987. Morg-
unblaðið náði sambandi við hann í
Genf, þar sem hann er nú sendi-
herra. Sverrir sagðist ekki vilja tjá
sig um málið, hann hefði rætt við
vamarmálaskrifstofuna hér heima
um málið, og hefði engu við það
að bæta, sem þaðan kynni að koma.
Þorsteinn Ingólfsson, núverandi
skrifstofustjóri varnarmálaskrif-
stofunnar, sagðist ekki vilja tjá sig
um málið heldur.
Sjá firásögn af umræðum á
þingi á bls. 27.
Stal pening’-
um af skip-
verjom
PENINGUM var stolið úr
veskjum nokkurra skipveija
á loðnubátnum Hákoni ÞH í
Reykjavíkurhöfn á mánudag.
Granur féll á ákveðinn mann,
sem komið hafði um borð um
daginn og var hann handtekinn
í húsi í Reykjavík um kvöldið.
Hann gekkst við þjófnaðinum.
sölu skal taka inn í bréf til styttri
Stjómvöld hafa þessa tillögu nú
til athugunar, en þau buðu 6% vexti
frá 1. apríl til 1. júní og 5% vexti
eftir það til áramóta. Síðasti samn-
ingur milli aðila var gerður í desem-
ber og gilti fyrir fyrstu þrjá mánuði
ársins. Vextir samkvæmt þeim
samningi vora 6,8%. Viðræður um
kaup það sem eftir er ársins hófust
fyrir helgina. Mikill ágreiningur er
um verðtryggingu. Stjórnvöld vilja
að miðað verði við hina nýju láns-
kjaravísitölu, sem samanstendur af
framfgersluvísitölu, launavísitölu og
byggingarvísitölu í jöfnum hlutföll-
um, en lífeyrissjóðirnir gera tillögu
um að skuldabréfin verði að %
tryggð með framfærsluvísitölu og
tíma þar til því marki er náð.
að % með byggingarvísitölu, sem
era svipuð hlutföll og gfltu í eldri
lánskjaravísitölunni.
Þá gera stjómvöld einnig tillögu
um að skuldabréfin verði tryggð
með evrópsku mvnteiningunni
ECU. Lífeyrissjóðimir setja þak
hvað það snertir við 20% kaupanna
af Húsnæðisstofnun.
Kaup lífeyrissjóðanna af Hús-
næðisstofnun tóku kipp í marsmán-
uði eftir að hafa fallið mjög mikið
í febrúar í kjölfar breytinganna á
lánskjaravísitölunni. Keypt vora
skuldabréf fyrir 860 milljónir, sam-
anborið við 160 milljónir í febrúar.
Þá er búið að kaupa skuldabréf
fyrir 1.526 milljónir frá áramótum,
70 vélbyssuskot fundin
UM SJÖTÍU vélbyssuskot Iiaia nú
fúndist í Qörunni við Voga á
Vatnsleysuströnd. Að sögn Þóris
Maronssonar yfirlögregluþjóns í
Keflavík er talið að skotunum
hafi verið hent fram af Stapanum
á stríðsárunum, 1943 eða 1944.
Þórir segir mildi að ekki hafi hlot-
ist slys af þegar unglingar í Vog-
um grófú upp skotin með kartöfl-
ugöfflum og skóflum. Hann vill
beina því til unglinga og foreldra
þeirra að skotanna sé ekki leitað
með áhöldum af þessu tagi.
Lögreglan í Keflavík hefur ráðgast
við sérfræðinga Landhelgisgæslunn-
ar, sem munu eyða skotunum, og
einnig við menn frá vamarliðinu og
lögreglunni í Reykjavík um hvort og
þá hvernig standa skuli að ieit að
skotfærunum. Þórir sagði niðurstöð-
una þá að útilokað vseri að hreinsa
fjörana af skotum og báast mætti
við slíkum reka hvenær sem væri.
Hins vegar væri þá biýnt að sýna
aðgát og láta lögreglu vita.
Játaði fíölda innbrota:
Sleppt og- staðinn að
verki eftir tvo tíma
MAÐUR, sem játað hafði í yfirheyrslum hjá lögreglu Qölda innbrota
í mannlaus íbúðarhús í Hafharfírði undanfarið, var handtekinn að
nýju um tveimur klukkustundum eftir að hann hafði verið látinn
laus á mánudagskvöld, grunaður um enn eitt innbrotið.
Maðurinn er síbrotamaður á tekinn og færður til yfírheyrslu.
þrítugsaldri. Úndanfarnar vikur Að fenginni játningu á ijölda inn-
hefur verið brotist inn í 20-30 brota var maðurinD látinn laus.
mannlaus íbúðarhús í Hafnarfirði Sama kvöld handtók lögregla í
en litlu verið stolið. Eftir að sást Hafnarfirði hann að nýju og hafði
til ferða mannsins við eitt slíkt hús hann þá strax tekið til við fyiri iðju.
á sunnudag-skvóld var nann nana-
Ellefii aðildarfélög BHMR
hefla verkfall á morgun
ELLEFU stéttarfélög innan Bandalags háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna leggja niður störf frá
og með morgundeginum 6. apríl ef ekki takast
samningar fyrir þann tíma.
Félögin ellefú eru: Félag bókasafiisfræðinga,
Félag íslenskra fræða, Félag háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga, Félag íslenskra náttúrufræð-
inga, Félag íslenskra sjúkraþjálfara, Iðjuþjálfafé-
lag íslands, Hið islenska kennarafélag, Matvæla-
og næringafræðingafélag íslands, Sálfræðingafé-
lag íslands, Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa
og Stéttarfélag lögfræðinga í rikisþjónustu.
Morgunblaðið aflaði upplýsinga lijá ýmsum opin-
berum stofiiunum á áhrifum verldallsins og fara
þær hér á eftir.
Grunnskólarnír:
Mest röskun í
stærri skólum
Ekki er nákvæmlega vitað um áhrif
verkfalis HÍK á grannskóla lands-
ins. Hinsvegar má ljóst vera að þar
sem hlutfall kennara úr HÍK er
hátt, raskast skólahald veralega.
Annars staðar má ætla að óveruleg
röskun verði á skólastarfi. Að sögn
Hrólfs Kjartanssonar, deildarstjóra
skólarannsóknadeildar mennta-
málaráðuneytisins, er ekki um
nema tvennt að ræða fyrir nemend-
ur, annaðhvort að fara heim á milli
tíma eða bíða í skólunum og nýta
sér þá þjónustu sem þar er haldið
uppi kennaralausir.
Hrólfur sagði að röskunin yrði
líklega mest í stærri skólunum á
höfuðborgarsvæðinu svo sem í
Hagaskóla og Réttarholtsskóla.
Samræmdu prófín era fyrirhuguð
síðustu viku aprílmánaðar og þreyta
nú prófin um 4.200 nemendur.
Hrólfur sagði að þessi tími væri
bæði slæmur og óeðlilegur til niður-
fellingar skólahalds þó verkfall
kæmi vissulega misjafnt niður á
nemendum. „Samt sem áður má
segja að í grunnskólunum verði
minnstur skaðinn þar sem inntöku-
skilyrðin í framhaldsskólana hafa
verið rýmkuð verulega."
Hrólfur sagði að menn héldu í
vonina um að til verkfalls þurfi
ekki að koma. Ekki hefur verið
rætt um hvað beri að gera ef til
þess kemur samt sem áður, en eft-
ir síðasta kennaraverkfall, var
kennsludagurinn lengdur að af-
loknu verkfalli auk þess sem bætt
var inn laugardögum sums staðar
til að bæta nemendum upp kennslu-
tapið.
Hrólfur sagði að kennarafélögin
tvö stæðu venjulega þétt saman í
allri sinni kjarabaráttu þó annað
félagið hefði nú einvörðungu boðað
verkfall. Því væri með Öllu óvíst
hvort eða með hvaða hætti KÍ
muni styðja HÍK.
Sjúkrastofoanir:
Áhrif mest á
Landsspítala
Yfírvofandi verkfaíl mun hafa mik-
il áhrif á starfsemi Landsspítalans.
Nokkram sjúkradeildum verður lok-
að auk þess sem skurðaðgerðum
verður hætt nema þar serai brýna
nauðsyn ber til. Þá verður dregið
veralega úr starfsemd Blóðbankans.
Aðeins neyðarþjónustu verður
sinnt, eins og á stórhátiðum, en svo
það á eftir að skoða hvort ein-
hverjar undanþágur fást því til við-
bótar. Ellefu líffræðingar starfa við
Blóðbankann sem allir fara í verk-
fall. Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri
ríkisspítalanna, sagði að aldrei áður
hefði komið til verkfalls í Blóð-I'
bankanum. Einu sinni hefði komið
til hópuppsagna, en líffræðingar
hefðu sjálfir leyst þau vandamál er
upp komu.
Eftir að dregur úr starfsemi
Blóðbankans lamast öll önnur starf-
semi fljótlega, sem hefur sérstak-
lega áhrif á skurðdeildir Landsspít-
alans. „Fljótlega eftir að verkfallið
hefst, geri ég ráð fyrir að stöðva
þurfi allar stórar aðgerðir á Lands-
pítalanum," sagði Davíð.
Á Landsspítalanum fara alls sjö
stéttarfélög í verkfall, það er há-
skólamenntaðir hjúkrunarfræðing-
ar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfar, sál-
fræðingar, félagsráðgjafar, líffræð-
ingar og bókasafnsfræðingar. í allt
munu þetta vera um 280 starfs-
menn. Þar af er tæpur helminguf
háskólamenntaðir hjúkranarfræð-
ingar, en samkvæmt núgildandi
lögum má aðeins um helmingur
þeirra fara í verkfall.
Á Landsspítalanum verður rúnti
um hundrað sjúkrarúmum lokað ef
verkfall skellur á. Þar af era 44
sjúkrarúm á handlæknisdeildum]
26 rúm á barnadeild, 15 á bæklun-
ardeild og 18 á lyflæknisdeild. „Þær
deildir, sem mannaðar eru nær ein-
göngu háskólamenntuðum hjúk-
runarfræðingum, lamast strax á
verkfallsdegi. Sjúklingamir verða