Morgunblaðið - 05.04.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
Morgunblaðið/Þorkell
Barnabókaverðlaun afhent
EÐVARD Ingólfsson fékk í gær, 120.000 króna verðlaun Skóla-
málaráðs Reykjavíkur fyrir bókina Meiriháttar stefhumót en hún
var valin besta frumsamda barna- og unglingabókin sem kom út
í fyrra. Þá fékk Ólafúr Bjarni Guðnason 60.000 króna verðlaun
fyrir bestu þýddu barnabókina árið 1988, Ævintýraferðina, og á
myndinni sést Davíð Oddsson borgarstjóri afhenda honum verð-
launin í Höfða.
Seðlabankinn:
Reglum breytt um bindi-
skyldu og lausaflárhlutfell
SEÐLABANKINN hefúr breytt reglum um bindiskyldu, lausafjárhlut-
fall og gjaldeyrisjöfnuð innlánsstofiiana, í kjölfar breytinga á lögum
um Seðlabankann. Bindiskylda er lækkuð úr 12% í 11% en grunnur
hennar stækkaður í áföngum. Lausafjárhlutfall er lækkað úr 10% í
9% en gengisbundið fé er nú ekki talið með lausu fé. Þá er verð-
bréfasjóðum gert að kaupa spariskirteini fyrir sem svarar 20% aukn-
ingu ráðstöfunarfjár, þar til sparifjáreign þeirra hefúr náð 11% af.
Bindiskylda bankanna hjá Seðla-
banka, sem verið hefur 12% af inn-
lánum, verður nú 11% eins og áður
segir, en nú er reiknað inn í grund-
völl hennar bankabréf, veðdeildar-
bréf og nettótekjur. Eiríkur Guðna-
son aðstoðarbankastjóri Seðlabank-
ans sagði við Morgunblaðið að
grunnurinn myndi stækka í mánað-
arlegum áfongum, og þær stofnanir
sem gefið hefðu út mikið af banka-
bréfum og starfræktu veðdeildir
fengju lengstan aðlögunartífna.
Reglum um lausafjárhlutfall af
ráðstöfunarfé innlánsstofnana er nú
aftur breytt í sama horf og um mitt
síðasta ár, þ.e. að erlendar gjaldeyri-
sinnistæður teljast ekki að fullu með
lausu fé, og innistæður á innlendum
gjaldeyrisreikningum eru teknar út
úr lausaflárgrunninum. Ertilgangur-
inn sá að koma í veg fyrir gjaldeyrist-
ilfærslur, þannig að bankar geti t.d.
fjármagnað afurðalán í erlendri mvnt
með innistæðum á innlendum gjald-
eyrisreikningum, án þess að það hafi
áhrif á lausafjárstöðu þeirra.
Eftir að þessi breyting var gerð á
síðasta ári, komu upp efasemdir um
að þær stæðust lög og því var reglun-
um breytt aftur um síðustu áramót.
Með breytingunni á Seðlabankalög-
unum nú, hefur bankinn fengið ótví-
ræða lagaheimild til þessara breyt-
inga, að sögn Eiríks Guðnasonar.
Verðbréfasjóðum var fyrst gert
að kaupa spariskírteini fyrir a.m.k.
20% af aukningu ráðstöfunarfjár
þeirra, eftir efnahagsráðstafanir
ríkisstjómarinnar í maí á síðasta
ári. Nú er tekin inn ný regla um þak
á spariskírteinaeign, sem er 11% af
stöðutölu ráðstöfunarfjár.
F orsætisráðherra um Útvegsbankann:
Framtíðin ræðst
á næstu vikum
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 5. APRÍL
YFIRLIT í GÆR: Sunnan- og suðaustanótt á landinu, víöast kaldi
eða stinningskaldi. Allhvasst. Norðanlands var þurrt að mestu, en
rigning eða súld um sunnanvert iandið. Hlýjast var á Reyðarfirði
og Nautabúi í Skagafirði, 9 stiga hiti, en kaldast á Hveravöllum
3ja stiga hiti.
SPÁ: Hæg sunnan- og suðvestanátt og fremur hlýtt. Smáskúrir
eða slyddué! á stöku stað við suöur- og vesturströndina, en ann-
ars að mestu þurrt.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðaustanátt og dálítil súld eða slydda
um austanvert landið, en austan- og suöaustanátt og skúrir eða
slydduél um vestanvert landið. Hiti 1 til 5 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V
Él
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
— Þoka
= Þokumóða
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
’ , » Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
j~7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akursyri 7 skýjað
Reykjavík S rigning og súld
Bergen 5 léttskýjað
Helsinki vantar
Kaupmannah. 2 skýjað
Narssarssuaq +9 snjókoma
Nuuk +9 snjókoma
Osló 5 léttskýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 16 háifskýjað
Amsterdam 2 snjókoma
Barcelona 13 skýjað
Berlfn 6 alskýjað
Chlcago 6 þoka
Feneyjar 16 þokumóða
Frankfurt S mistur
Glasgow 4 skúr
Hamborg S skýjað
Las Palmas 19 skýjað
London 7 skýjað
Los Angeles 16 heiðskfrt
Lúxemborg 2 jtokumóða
Madríd 8 skýjað
Malaga 16 alskýjað
Mallorca 1S alskýjað
Montreal S þokumóða
New York 6 þokumóða
Orlando 20 þokumóða
París 2 alskýjað
Róm 19 þokumóða
Vfn 16 skýjað
Washington 16 alskýjað
Winnipeg +6 skýjað
Hagstofustjóri áfram formaður bankaráðs
STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra segist hafa gert sam-
komulag við Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, þess efiiis að hann
sættist á að Hallgrímur Snorrason, hagstofústjóri gegni áfram for-
mennsku í bankaráði Útvegsbankans, en forsætisráðherra hafði áður
sagt að hann teldi að það samrýmdist ekki að vera hagstofustjóri og
bankaráðsformaður í Utvegsbankanum, og hann hygðist því ekki gera
tillögu um að Hallgrímur gegndi formennsku í bankaráðinu áfram.
Forsætisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær: „Viðskipta-
ráðherra hefur óskað mjög eindregið
eftir því við mig, að hagstofustjóri
verði áfram formaður bankaráðsins.
Ég hef rætt þetta bæði við hann og
hagstofustjóra og hef nú fallist á
þessa tilhögun, en það er ekki mín
tillaga."
Steingrímur sagðist hafa fallist á
þessa ósk viðskiptaráðherra bréf-
lega, „og ég segi í þvi bréfi, að þótt
ég telji að ýmsu leyti vafasamt að
hagstofustjóri gegni slíku starfi, þá
fallist ég á það nú, vegna þess að
framundan eru róttækar breytingar
á stöðu Útvegsbankans. Því geti ég
fallist á að óráðlegt sé að skipt sé
um bankaráð á meðan á þeim breyt-
ingum stendur. Ég geri þetta jafn-
framt í trausti þess að formaður
bankaráðs, sem er fulltrúi viðskipta-
ráðherra, framfylgj stefnu ríkis-
stjómarinnar i vaxta- og peninga-
málurn," sagði forsæt.isráðherra.
Forsætisráðherra sagðist hafa
sagt viðskiptaráðherra að hann teldi
að leita bæri að öðrum manni i þessa
stöðu og viðskiptaráðherra hefði
reynt það. Hann hefði á hinn bóginn
greint sér frá því um helgina að það
hefði ekki tekist. Hann hafí jafnframt
bent sér á að framtíð Útvegsbankans
myndi ráðast á næstu vikum.
Steingrímur í agði að á næstu dög-
um og vikum myndi reyna á það
hvort Alþýðubankinn og Verslunar-
bankinn næðu samstöðu um að
kaupa Útvegsbankann. Viðræður
Verslunarbankans og Iðnaðarbank-
ans um hugsanlega sameiningu og
kaup á Útvegsbankanum munu hefj-
ast þann 10. þessa mánaðar.
Nýjar upplýsingar um byggingii álvers:
Kostnaður minni
en áður var talið
A FUNDI ATLANTAL-hópsins í Reykjavík nú á föstudag verða lagðar
fi-am nýjar upplýsingar sem gefii til kynna að kostnaður við byggingu
nýs álvers hér á landi er ekki eins mikill og fi-am kemur í hagkvæmnis-
könnun Bechtel Inc. Per Olof Aronson forstjóri Gr&ngers Aluminium
í Svíþjóð segir að við endurmat á könnun Bechtel hafi komið i \jós að
kostnaðarliðir lækka nokkuð frá því sem þeir eru í könnuninni. C.
Scheer Qármálaráðgjafi þjá hollenska fyrirtækinu Alumined Beheer
tekur undir þetta og segir að við nýja útreikninga á nokkrum kostnað-
arliðum hafi þeir lækkað.
Alusuisse hefur áhuga á að ræða
þann möguleika að um stækkun
ISAL verði að ræða fremur en bygg-
ing nýs álvers. Kom sú hugmynd upp
í framhaldi af fyrstu niðurstöðum
Bechtel sem sýndu að bygging nýs
álvers væri mun óhagkvæmari en
áður var talið. Aðspurður um þennan
möguleika segir Per Olof að hann
vilji ekki tjá sig um hann að svo
stöddu. Slíkt sé of snemmt og mögu-
leikinn ekki á dagskrá fundarins í
Reykjavík sem slíkur. Per Olof er
aftur á móti opinn fyrir öllum mögu-
leikum og telur sjálfsagt að ræða
alla hugsanlega fleti á málinu.
„Ég held að þessi fundur komist
ekki að neinni lokaniðurstöðu í mál-
inu. Við munum fara yfir hag-
kvæmniskönnunina og þær breyting-
ar sem orðið hafa á henni við endur-
matið,“ segir Per Olof Aronson. „Við
höfum athugað könnunina gaum-
gæfilega og gert á henni breytingar.
Nú þurfa allir aðilar málsins að velta
fyrir sér þessum nýju upplýsingum
sem liggja fyrir. Því mun nokkur tími
líða þar til lokaákvörðun liggur fyr-
ir.“
Undir þetta tekur C. Scheer. Hann
segir að á fundinum verði einkum
rætt um hagkvæmniskönnunina og
þær breytingar sem á henni hafa
orðið. Hann á því ekki von á að
málið liggi ljóst fyrir fyrr en eftir
1-2 mánuði.
Hvorki Per Olof eða Scheer vilja
nefna tölur í sambandi við þá lækkun
sem orðið hefur á kostnaðarliðum
við endurmat fyrirtækjanna á hag-
kvæmniskönnuninni. Scheer segir að
fulltrúar fyrirtækjanna fjögurra eigi
eftir að ræða þessa útreikninga sam-
eiginlega og verði það gert á fundin-
um í Reykjavík. Morgunblaðinu tókst
ekki að ná tali af talsmanni Austria
Metall í gærdag.