Morgunblaðið - 05.04.1989, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 5. APRÍL 1989
Eitt verka Sigridar Valtingojer.
Gallerí Borg:
Sigríd Valtingojer opnar sýningn
SIGRID Valtingojer opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Gailerí
Borg, Pósthússtræti 9, á morg-
lAUFAS1
FASTEIGNASALA
SÍÐUMÚLA 17
82744
Mikil sala - mikil sala
Okkur vantar allar gerðir eigna
2ja herb.
AUSTURBRÚN
2ja herb. íb. á 7. hæö. Ekkert áhv. Verð
3,8 millj.
un fimmtudaginn 6. aprfl klukk-
an 17.
Þetta er sjötta einkasýning
Sigridar, auk þess hefur hún tekið
þátt í fjölda samsýninga, í alþjóð-
legum grafíksýningum og tvíær-
ingum í Evrópu, USA t>g Japan.
Hún hefur verið búsett á íslandi
síðan 1961 og stundaði nám við
Myndlista- og handlðaskóla ís-
lands á árunum 1975—1979, með
grafík sem sérgrein.
Sigrid hefur hlotið tvenn verð-
laun í alþjóðlegum grafíksýning-
um í Japan og Grand Prix 1987
á alþjóðlegri grafíksýningu í Bi-
ella, Italíu.
Á sýningu Sigridar Valtingojer
nú éru sautján verk grafík-, blý-
ants- og olíukrítarmyndir.
Sýningin er opin virka daga frá
klukkan 10—18 og frá klukkan
14—18 um helgar. Henni lýkur
þriðjudaginn 18. apríl.
DIGRANESVEGUR
2ja herb. íb. í parhúsi. Miklð endurn.
Bílskréttur. Áhv. ca 1 millj. Verö 4 millj.
KLEPPSVEGUR
2ja herb. 50 fm íb. lítiö niðurgr. Verð
3,3 millj.
ÞÓRSGATA
2ja herb. íb. á 2. hæö í þríb. Áhv. 650
þús. V.erð 3,4 millj.
3ja herb.
BARMAHLÍÐ
3ja herb. björt og falleg kjíb. í fjórb.
Laus fljótl. Ekkert áhv. Verö 4,1 millj.
HRAUNTEIGUR
3ja herb. kjíb. nýuppgerö. Ekkert éhv.
Laus strax. Verð 4,1 millj.
HRINGBRAUT
Rúmg. 92,5 fm 3ja herb. íb. á 2. hæö
í nýuppg. fjölbhúsi. Sérinng. Bílskýli.
NJÁLSGATA
3ja herb. kjíb. í góðu ástandi. Lítiö áhv.
KARFAVOGUR
3ja herb. risíb. Endurn. að hluta. Ekkert
áhv. Verö 4 millj.
ÞINGHÓLSBR. - KÓP.
3ja herb. sérh. Mikiö endurn. íb.
Bílskúrsréttur.
4ra herb. og stærri
ÁLFHEIMAR
127 fm efri sérh. með bílsk. Falleg og
vel meö farin íb. 3-4 svefnherb. Verð
8,5 millj.
ENGIHLÍÐ
Falleg 106 fm efri sérh. Mikið endurn.
Parket. Ný eldhinnr. o.fl. Skipti koma
til greina á stærri eign. Verð 6,8 millj.
SOGAVEGUR
4ra herb. 90 fm sérh. + herb. í kj. Áhv.
ca 2,0 millj. Verð 5,1 millj.
Einbýlis- og raðhús
DALSBYGGÐ - GBÆ
Glæsil. einbhús ca 300 fm m. innb. tvöf.
bíisk. Mjög vandaðar innr. séríb. á
jaröh. Verð 17,0 millj. Uppl. aðeins veitt-
ar á skrifstofu.
RÉTTARHOLTSVEGUR
130 fm raðhús. Stofa, 3 svefnherb,
baðherb., þvottaherb., geymsta. Laust
f júni nk. Ekkert áhv. Verð 6,5 millj.
TORFUFELL
Glæsii. 140 fm raöh. á einni hæö ásamt
bilsk. 4 svefnherb., sjónvhol og stofa.
Sérsmíðaöar innr. Parket á gólfum.
Gróinn garöur. Verö 9,5 millj.
VITASTÍG B
26020-26065
Bergstaðastræti. 2ja herb.
sérbýli 56 fm.
Unnarbraut — Seltjnes. 2ja
herb. íb. 60 fm á jarðh. Sérinng. Góður
garður. Verð 3,6 millj.
Skeiöarvogur. 2ja herb. íb. ca
60 fm i tvíbhúsi. Verð 3350 millj.
Jörfabakki. 2ja herb. falleg íb. 65
fm á 3. hæð. Suðursv. Góð lán.
Hraunbær. 2ja herb. ib. 60 fm á
3. hæð. Suðursv. Laus.
Austurströnd. 3ja herb. góð ib.
á 80 fm á 5. hæð. Frábært útsýni. Suö-
ursv. Bílskýii.
Laugarnesvegur. 3ja herb.
endaíb. 75 fm á 3. hæð. Suðursv. Verð
4,5 millj. Æskil. makaskipti á stærri íb.
I sama hverfi.
Njálsgata. 3ja herb. ib. 70 fm á
2. hæð. Verð 3,9 millj.
Njálsgata. Sérh. 80 fm auk 36 fm
bilsk. á 1. hæð.
Marbakki — Seltjnesi. 3ja
herb. ib. 115 fm í kj. i tvibhúsi. Sér-
inng. Verð 4,5 millj. Góö lán áhv.
Hraunbær. 4ra herb. ib. 110 fm
auk herb. í kj. Tvennar sv.
Stóragerði. 4ra herb.ib. á 1. hæð
100 fm. Bílskréttur.
Suðurhólar. 4ra herb. íb. 110tm
á 2. hæð. Suðursv. Verð 5,3 miHj.
Safamýri. 4ra herb. endaib. 115
fm á 1. hæð. Tvennar sv. Bilskréttur.
Grettisgata. 4ra-5 hertr ib. 160 fm
á 3. hæð. Séri. fallegar innr. Tvennar sv.
Geithamrar. Raðhús 140fmauk
30 fm btlsk. Sérlega hugguiegt hús. Góð
lán.
Fannafold — nýbygging.
4ra herb. íb. i parhúsi 105 fm auk biisk.
Stór garður. Húsið verður fullb. að ut-
an, fokh. að innan. Verð 4950 milij.
Miöhús. Einbhús átveimur hæðum
148 fm auk bilsk. Húsíð verður fuilb.
að utan en fokh. að innan. Verð 6,8
millj. Teikn. á skrifst.
Vorsabær. 140 fm einbhús á einni
BÆJARGIL
175 fm einbhús ásamt bflsk. Afh. tilb.
aö utan, fokh. að innan. Verö 6,0 millj.
GRAFARVOGUR
Tvær íb. í sama húsi. Önnur er 125 fm
ásamt bflsk. Hin er 75 fm. Afh. fokh.
VEGHÚS
Stór 2ja herb. íb. Afh. tilb. u. trév. i
haust. Verö 3,8 miflj. jm
Auöur Guömundsdóttir m"1
. sölumaöur >
Magnús Axelsson fasteígnasali p
hæð auk 40 fm bílsk. Góður suöurgarður.
Suöurgata. Til sölu verslhúsn. á
jarðh. 124 fm auk kj. Verð 7,0 millj.
Veitingastaður. TJl sölu veit-
ingastaður á góðum stað i miðborginni.
Snyrtistofa. Til sölu handsnyrti-
stofa á góðum stað f miðb. Full kennsla
í faginu innifalin i veröinu. Göð velta.
Uppl. á skrifst.
Skoðum og verðmetum
samdægurs. JBm
Bergur Oliversson hdl., II
Gunnar Gunnarsson, s. 77410.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
AGNES BRAGADÓTTIR
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins í kvöld:
Búist við hörðum átökum
á löngum og ströngum fimdi
Olafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalags-
ins talinn eiga í vök að verjast innan miðstjórnarinnar
LÍKUR eru taldar á þvi að til átaka komi á miðstjórnarfiindi Al-
þýðubandalagsins í kvöld. Þeir sem kröfðust þess að þessi fundur
yrði haldinn, eigi siðar en í dag, eru flestir úr hópi þeirra sem
takmarkaða hrifningu sýndu, þegar stjómarþátttaka í ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar var samþykkt sl. haust. Meginástæður
andúðarínnar þá, eins og nú, vom bjaramál, en á liðnu hausti vora
Qölmargir alþýðubandalagsmenn sem töldu með öllu óviðunandi að
Álþýðubandalagið gengi til stj órnarsamstarfs, meðal annars á þeim
grundvelli, að samningsréttur væri ekki í gildi. Kjaradeiluraar og
launagreiðslur til BHMR verða fúndarefiiið í kvöld, og búast viðmæ-
lendur Morgunblaðsins við miklum átökum á fundinum.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, var
spurður hvaða augum hann liti
þessa kröfu um 30 miðstjómar-
manna um að haldinn verði mið-
stjómarfundur, þar sem hann svari
til um ákvarðanir sínar í kjaramál-
um: „Ég tel að ákvörðun mín um
að greiða BHMR-félögum ekki laun
á meðan þeir verða í verkfalli sé
ekki þess eðlis sem fundarboðendur
telja. Hins vegar er Alþýðubanda-
lagið lýðræðislegur flokkur og ég
hef ætíð hvatt til þess að þar séu
mál tekin til umræðu á o_pinskáan
hátt og af hreinskilni. Eg fagna
því að miðstjómarmenn skuli telja
það þess virði að taka þessi mál
fyrir — kjaramálin og launastefn-
una,“ sagði Ólafur Ragnar.
Formaður Alþýðubandalagsins
var spurður hvort hann ætti ekki
von á því að verða fyrir harðri
gagnrýni á þessum fundi: „Ég tel
það bara eitt af verkefnum stofn-
ana í lýðræðislega kjömum flokki
að gagnrýna forystumenn og veita
þeim aðhald til að forða þeim frá
einangrun í ráðuneytum og rangöl-
um stjórnkerfisins."
— Hefur þú þá einangrast frá
flokknum í starfi þínu sem ráð-
herra? „Það held ég nú ekki. Ég
hef fengið fjölmargar símhringing-
ar og ábendingar frá mörgum
flokksmönnum, sem eru eindregið
sammála þeirri ákvörðun sem ég
tók. Það er hins vegar alltaf sú
hætta fyrir hendi að menn sem eru
lokaðir í ráðuneytum frá því
snemma morguns og oft fram und-
ir miðnætti, umluktir embættis-
mönnum og öðrum ágætis mönn-
um, lokist um tíma af frá flokks-
félögum sínum og öðrum. Til þess
eru stofnanir flokkanna að koma á
slíkum sameiginlegum sturtuböð-
um fyrir flokksmenn og ráða-
menn.“
Vilborg Harðardóttir, skólastjóri
Tómstundaskólans, var eir. þeirra
sem undirrituðu kröfuna um mið-
stjómarfund. Áður hafði Alþýðu-
bandalagsfélagið í Reykjavík sam-
þykkt harðorða yfírlýsingu á fé-
lagsfundi, þar sem þeirri skoðun
var lýst að afstaða fjármálaráð-
herra til launagreiðslna BHMR-
félaga samrýmdist ekki stefnu og
starfsháttum Alþýðubandalagsins.
Vilborg sagði í samtali við Morgun-
blaðið, um ástæður þess að hún
undirritaði kröfuna: „Mér fannst
að núna hefði verið tækifæri fyrir
Alþýðubandalagið að hegða sér
öðru vísi og sýna samkomulagsvilj-
ann í verki, með því að borga þessi
umsömdu laun fyrirfram. En það
er fleira sem hangir á' spýtunni.
Ég vii gjaman að miðstjómin ræði
þessar heræfmgar, því það þarf að
koma á daginn hvort ráðherrar
okkar í ríkisstjóminni vissu af því
hvað til stóð. Hafí þeir vitað þetta,
þá vom þeir einfaldlega að pukrast
með vitneskju sína, á meðan þeir
reyndu að fínna út hvemig þeir
ættu að koma henni á framfæri
við félaga sína í Alþýðubandalag- ,
Svo kann að fara að Ólafiir
Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins og fjár-
málaráðherra, lendi i kröppum
dansi á fúndi miðstjórnar í
kvöld, þó að hann sé glað-
hlakkalegur á þessari mynd.
inu. Hafí þeir á hinn bóginn ekki
vitað af þessu, þá sýnir það einfald-
lega fram á að Bandaríkjamenn
líta á ríkisstjóm íslands sem al-
gjöra dulu. Eg veit hreinlega ekki
hvor kosturinn mér þykir verri."
Vilborg sagðist ekki hafa verið
ánægð með það á sínum tíma að
Alþýðubandaíagið færi í þessa
ríkisstjóm, án þess að tryggja
samningana í gildi og samnings-
réttinn. „Það vom margir góðir
félagar sem sögðu sig úr Alþýðu-
bandalaginu, þegar þessi ákvörðun
varð ofan á, enda stríðir hún að
sjálfsögðu gegn meginstefriu
flokksins," sagði Vilborg.
í samtölum við alþýðubanda-
lagsmenn, bæði úr Reykjavík og
utan af landi, kemur á daginn að
viðmælendur eru sammála um að
hér sé um almenna óánægju að
ræða, sem hafí verið að geijast á
undanfömum mánuðum, eða allt
frá því að ákvörðun var tekin um
myndun þessarar ríkisstjómar. Hér
sé mestmegnis um sama kjama að
ræða og hafi verið andvígur kjara-
skerðingunni þá. Þessir menn segja
ljóst að til tíðinda muni draga á
miðstjómarfundinum í kvöld og að
Ólafur Ragnar muni eiga við
ramman reip að draga. Ekki er þar
með sagt að þeir telji sig eiga vísan
meirihluta miðstjómarmanna ef
borin verði upp harðorð tillaga til
samþykktar, þar sem formanninum
verði settur stóllinn fyrir dymar.
Þeir eru hins vegar sannfærðir um
að sá stuðningur sem þeir hafí í
miðstjóminni sé svo mikill að hann
segi sína sögu um veika stöðu for-
mannsins. Það eru nálægt 120
manns sem hafa rétt til fundarsetu
á miðstjórnarfundum og þeir sem
kröfðust fundarins benda einfald-
lega á að um 30 miðstjómarmenn
hafi undirritað kröfuna. Vísast séu
mun fleiri miðstjórnarmenn þeirrar
skoðunar að formaður flokksins
hafi ekki starfað sem ráðherra á
þann hátt að það samræmist stefnu
og starfsháttum Alþýðubandalags-
ins.
Það hefur lengi legið fyrir að
Ólafur Ragnar sækir ekki fylgi sitt
til verkalýðsarms Alþýðubanda-
lagsins, og að sá hluti flokksins
hyggist nú sæta lagi að koma höggi
á formanninn, sem stendur í
ströngu að semja um kaup og kjör
fyrir hönd ríkissjóðs. Annað sem
vekur athygli er að mjög eindregn-
ir stuðningsmenn Svavars Gests-
sonar í gegnum tíðina eru meðal
þeirra sem krefjast miðstjómar-
fundarins. Þar eru menn eins og
Ammundur Backman, Álfheiður
Ingadóttir, Kristinn H. Gunnars-
son, Steini Þon'aldsson, Vilborg
Harðardóttir og fleiri. Viðmælend-
ur mínir telja þetta jafnvel vera til
marks um það að aðförinni í kvöld
verði ekki beint gegn öllum ráð-
herrum Alþýðubandalagsins í ríkis-
stjóminni, heldur einkum gegn
formanninum.
Benda málsvarar verkalýðs-
armsins á, að þegar stjómarþátt-
takan var ákveðin í haust, hafí sú
ákvörðun að miklu leyti verið þing-
flokksins, sem síðan hafi unnið
hugmyndinni fylgi. Þegar mið-
stjómarfundurinn hafi hafíst sl.
haust þar sem afstaða til stjómar-
þátttöku var tekin, liafí þeir Ólafur
Ragnar og Svavar verið nokkuð
sannfærðir um að það vefðist ekki
fyrir þeim að fá tillöguna um
stjómarþátttöku samþykkta. Á
fundinum hafí á hinn bóginn komið
á daginn, að mikil andstaða hafí
verið við tillögu þeirra og því hafí
verið gripið til þess að setja skilyrð-
in varðandi þátttöku Borgara-
flokksins. Þegar loks hafí komið
til atkvæðagreiðslu í miðstjóminni,
hafí niðurstaðan orðið sú að þriðj-
ungur hennar treysti sér ekki til
þess að greiða atkvæði og aðrir
hafí gert það á þann veg, að ekki
þætti fært að gera ákvarðanir og
vilja þingflokks Alþýðubandalags-
ins að engu.
Nú sé þessi andstaða að koma
upp á yfirborðið á nýjan leik og
það mun magnaðri en hún hafi
verið á síðastliðnu hausti. Þeir sem
hafí verið andvígir stjómarþátttöku
hafí viljað bíða og sjá hvað gerðist
og dæma stjómina svo af verkum
hennar. „Nú er bara komið á dag-
inn að ekkert hefur verið gert og
þolinmæði okkar er á þrotum. Jafn-
framt hefur það sýnt sig að ráð-
hermnum finnst svo. gaman í ráð-
herraleik, að þeir hafa ekkert gert
til þess að sinna flokksstarfínu eða
finna út úr því hvað hinn stóri
óánægjuhópur í Alþýðubandalag-
inu vill að aðhafst verði, á vett-
vangi ríkisstjómarinnar," segir
verkalýðsforingi úr Alþýðubanda-
laginu.
Svanfríður Jónasdóttir, aðstoð-
armaður fjármálaráðherra og vara-
formaður Alþýðubandalagsins, er
formaður miðstjómar flokksins.
Hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þessi krafa um miðstjóm-
arfund hefði komið sér á óvart.
Hún kvaðst ekki geta tjáð sig um
það hvort þetta yrði átakafundur.
Þeir, sem krafist hefðu fundarins,
hefðu ekki snúið sér til hennar né
rætt við hana, heldur Iátið kröfuna
ganga í gegnum flokksskrifstof-
una.
Miðstjómarfundurinn hefst kl.
20 í kvöld og verður hann haldinn
í húsakynnum Alþýðubandalagsins
við IJyerfisgötu,................