Morgunblaðið - 05.04.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
17
ferill þeirra hjóna saman er rofinn.
Megi hollar vættir og blessun kyrrð-
ar og friðar veita henni hlíf og vernd
allt til loka. Afkomendum þeirra
Hjóna óska ég þess að þeir erfi og
tileinki sér að marki þáveiginleika
og skaphöfn sem þau voru gædd,
greind, drenglund og dugnað. Þá
mun þeim vel farnast og þjóðfélag-
ið verða ríkara og.betra.
Stefán Júlíusson
Ein af bemskuminningum
mínum er sólbjartur sumardagur
um sláttinn í Stakkadal á Rauða-
sandi, fæðingarbæ mínum. Túnið
hafði verið slegið og ilmandi grasið
lá í flekkjum á jörðinni. Við höfðum
verið að rifja og settumst niður til
að kasta mæðinni. Með okkur var
í þetta sinn Sigurvin föðurbróðir,
mikill aufúsugestur á heimilinu,
einn af skemmtilegustu mönnúm
sem ég hef kynnst um dagana og
sagnameistari með afbrigðum þeg-
ar sá gállinn var á honum. Og sem
við sátum þama við flekkjaðarinn
fór hann að segja okkur sögur af
gömlum Rauðsendingum og Snæ-
fellingum sem hann hafði kynnst
þegar hann var kennari og skóla-
stjóri í Ólafsvík. Ég man að ég lá
máttlaus af hlátri að sumum þess-
um sögum og meðan hann dvaldist
hjá okkur elti ég hann á röndum
til að missa ekki af neinni sögunni.
Síðar þegar ég rifjaði upp þessar
sögur sá ég ljóslega að sumir þeirra
atburða, sem Sigurvin lýsti, voru
svo sem ekki neitt sérstakir, það
var bara hin frábæra frásagnar-
snilld hans sem gerði sögumar
svona skemmtilegar.
Mörgum árum síðar, þegar ég
var orðinn fulltíða og fluttur að
heiman, kom ég í sumarleyfi vestur
og dvaldist í Saurbæ hjá Sigurvini
sem þá bjó þar. Eina nóttina fór
heimilisfólkið á fætur til að bjarga
heyi undan aðvífandi rigningu og
fór ég með því. Við Sigurvin unnum
saman og enn á ný upplifði ég
sagnasnilld hans þessa vökunótt svo
ég hefði gjaman viljað lifa margar
slíkar, ekki meira gaman en ég
hafði þó af heyvinnu.
Sigurvin fæddist og ólst upp í
Stakkadal, eins og ég 20 árum
síðar. Hann nam einn vetur við
Samvinnuskólann og lauk kennara-
prófi 1923, ári síðar en kona hans,
Jörína G. Jonsdóttir, sem lifir mann
sinn og var ári yngri en hann. Þau
gengu í hjónaband það ár og flutt-
ust til Ólafsvíkur. Til Reykjavíkur
fluttust þau 1932. Kenndi Sigurvin
við Miðbæjarskólann í 11 ár, var
gjaldkeri og bókari Dósaverksmiðj-
unnar hf. í 9 ár og framkvæmda-
stjóri hennar í 17 ár. Búskap stund-
aði hann í Saurbæ á Rauðasandi í
5 ár og var þar til heimilis lengi
eftir það. Hann sat á Alþingi frá
1956 til 1971 sem þingmaður fyrir
Framsóknarflokkinn í Barðastrand-
arsýslu og síðar Vestfjarðakjör-
dæmi. Hann hreifst snemma af
hugsjónum samvinnumanna og
hvikaði ekki frá þeim skoðunum
sínum.
Þeim Sigurvin og Jörínu varð sjö
bama auðið, fjögurra sona og
þriggja dætra. Einn sonurinn lést á
unga aldri. Bamaböm þeirra hjóna
eru 26 og bamabamaböm einnig
26, allt mannvænlegt fólk.
Gamansemi Sigurvins og frá-
sagnargleði dofnaði engan veginn
á þingmennskuámm og brá hann
oft fyrir sig fýndni í þingræðum.
Við slíkt tækifæri skaut einn and-
stæðingur hans því eitt sinn að
honum að það væri nú enginn vandi
að fleyta sér á bröndumm í ræðu-
haldi. „Seg þú þá einn,“ sagði Sig-
urvin og bætti við hlæjandi þegar
hann sagði mér frá þessu: „Ég vissi
nefnilega að það gat hann ekki.“
Sigurvin var ágætlega hagmælt-
ur og brá sér oft á bak ljóðfáknum,
allt frá æsku og fram á efri ár.
Flest af því bundna máli sem ég
hef heyrt eftir hann vom gaman-
vísur og kvæði sem hann orti af
gefnu tilefni í hvert sinn, eins og
þessi sem hann orti í bíl með
Steingrími Hermannssyni, nú for-
sætisráðherra, er" honum þótti
bílstjórinn fara nokkuð geyst:
Skrapar vegi, skemmir brýr,
skepnur leggja á flótta.
Undan bílnum fólkið flýr
frávita af ótta.
Eitt af því sem Sigurvin taldi sér
til ágætis var að hann hefði bjargað
lífi mínu og féllst ég auðvitað á að
telja hann lífgjafa minn. Það bar
þannig til að koma mín í þennan
heim gekk treglega og hafði móðir
mín þjáðst í sólarhring þegar ekki
þótti lengur unnt að fresta því að
sækja lækni. Varð Sigurvin til að
fara þeirra erinda yfir á Patreks-
fjörð og þar með var mér og móður
minni tryggt líf en Sigurvini verð-
skuldaður sómi af vasklegri fram-
göngu.
Með Sigurvini er horfið úr þess-
um heimi síðasta föðursystkini mitt.
Hugur minn er fullur þakklætis
fyrir þær ánægjustundir sem ég
átti með honum, fyrir allar sögum-
ar og gamansemina.
Ekki er mér kunnugt um að Sig-
urvin hafi velt þeirri gátu mikið
fyrir sér, hvort líf væri eftir þetta
líf, en ekki kæmi mér á óvart þótt
ég ætti eftir að hitta hann hinum
megin og hlusta á hann segja sögur
af reynslu sinni og kynlegum kvist- ,
um á hinum æðri plönum tilverunn-
ar, að sjálfsögðu kryddaðar þeim
húmor sem hann hlýtur að hafa
haft með sér yfír landamærin.
Eftirlifandi konu hans og niðjum
þeirra votta ég, fyrir hönd okkar
systkinanna, innilegustu samúð
mína.
Torfí Ólafsson
KOMATSU og BÍLABORG hf. bjóða öllum íslend-
ingum, sem verða á BAUMA ’89 á sýningarsvæði
KOMATSU nr. 107 þriðjudaginn 11. apríl kl. 16:00,
þiggja þar léttar veitingar og kynnast öilum þeim stór-
kostlegu nýjungum, sem KOMATSU kynnir á sýning-
unni. Láttu ekki þetta tækifæri til að kynnast framtíð-
arvélunum frá KOMATSU fram hjá þér fara!!
KOMATSU
. _ í MUNCHEN 10.-16. 4. _
i boumo 89
BILABORG H.F.
FOSSHÁLS11, SÍMI68 12 99
TVOFALDUR
á laugardag
handa þér, ef þú hittir
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511
Gódan daginn!