Morgunblaðið - 05.04.1989, Page 18

Morgunblaðið - 05.04.1989, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989 Borgarfiilltrúar Alþýðubandalags og Framsóknarflokks: >----------------- Oeðlileg viðbrögð Alþýðuflokksins SIGURJÓN Pétursson borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins og Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, eru sammála um að viðbrögð Bjarna P. Magnússonar borgarfulltrúa Alþýðuflokksins, séu óðelileg vegna ákvörðunar menntamálaráðherra, að auglýsa stöðu skóiastjóra við Ölduselsskóla. Bjarni hefur hótað því, að ekkert verði af samstarfi minnihlutaflokkana í borgarstjóra nema ráðherra dragi auglýsinguna til baka. „Miðað við það sem ég hef heyrt af ástandi mála í þessu skólahverfi og það sem ég hef séð af umræðum í fræðsluráði þá er ég sannfærður um að nauðsynlegt var að gera eitt- hvað,“ sagði Siguijón Pétursson. Sagði hann að umræður í fjölmiðlum, meðal annars hjá fulltrúa kennara og foreldrafélags í útvarpi, bentu til að ákvörðunin hafi verið óhjákvæmi- leg og að um eðlilega stjómvaldsað- gerð sé að ræða en ekki pólitíska. Formanni fræðsluráðs og ráðinu sjálfu hafi verið kunnugt um hvemig málið var statt í menntamálaráðu- neytinu. „Ég veit að fyrir stuttu bað formaður fræðsluráðs menn að slíðra sverðin. Hafi þurft að slíðra þau þá, hefur þeim greinilega verið bmgðið áður,“ sagði Siguijón. Sagði hann að viðbrögð Bjama P. Magnússonar kæmu sér á óvart. Uppsögnin væri sjálfstætt mál, sem ekki tengdist samstarfí minnihluta- flokkana. „Ég get ekki séð að sam- starfíð eigi að hanga á því hvort Sjöfn Sigurbjömsdóttir sé hæfur skólastjóri eðaekki," sagði Siguijón. Sigrún Magnúsdóttir borgarfull- trúi Framsóknarflokksins telur við- brögð Bjama P. Magnússonar óeðli- leg og ekki sé hægt að tengja ákvörð- un eins ráðherra við borgarmálefnin í heild. „Ég get að mörgu leyti vel skilið, að menntamálaráðherra grípi til þess að auglýsa stöðuna vegna þess sem á undan er gengið og heyrst hefur frá skóianum,“ sagði Sigrún. „Þar hafa verið mjög alvar- legir samskiptaörðugleikar en hvort reka eigi alla kennarana eða Sjöfn, það er spumingin. Skólans og bam- ana vegna hefði mátt draga þessa ákvörðun um sex vikur." Morgunblaoio/ttjami fciriksson. Á myndinni eru f. v. Páll Sigurjónsson framkvæmdastjóri ístaks hf, Halldór Árnason, Guðbjöra Freyr Jónsson og Ágúst Valfells sljórnar- formaður Steypustöðvarinnar. Stærðfræðikeppni framhaldsskóla: Sigairvegarinn úr MA Guðbjöra Freyr Jónsson Menntaskólanum á Akureyri sigraði í stærð- fræðikeppni framhaldsskólanema sem ístak hf og Steypustöðin hf stóðu fyrir í vetur. Til verðlauna unnu einnig Halldór Árnason MR og Agni Asgeirsson MR sem höfhuðu I öðru og þriðja sæti. Níu efstu keppendunum verður keppa fyrir íslands hönd Halldór boðið að keppa í þriðju Olympíu- keppni Norðurlanda í stærðfræði, en hún verður haldin í skólum keppenda 10. apríl næst komandi. Islendingar sjá um keppnina í fyrsta sinn. Auk þeirra Guðbjöms, Halldórs og Agna, Pálsson MR, Yngvi Þór Siguijónsson MR, Ásta Kristjana Sveinsdóttir MR, Hrafnkell Kárason MS, Ólafur Öm Jónsson FS og Kristján Leosson MR, en þetta var einnig röð þeirra í keppninni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá fundi þingmannanefiidar NATO-ríkja sem haldinn var i veitingahúsinu Litlu-Brekku á mánudaginn. Þingmannanefiid NATO-ríkja: Fundur um fiiðarmál í Stjórnmálanefiid NATO-ríkja stofhaði síðastliðið haust undir- nefiid um friðarmál og fundaði hún í Reykjavík á mánudaginn. Á fundinum voru þingmenn frá íslandi, Grikklandi, Frakklandi, Lúxemborg, Vestur-Þýskalandi, Tyrklandi, Danmörku og Bret- landi. „Á fundinum fluttu Albert Jóns- son hjá Öryggismálanefnd og Hjálmar Hannesson, sendiherra, erindi,“ sagði Jóhann Einvarðsson, formaður utanríkismálanefndar Al- Reylqavík þingis, í samtali við Morgunblaðið, en hann á sæti í nefndinni. „Albert fjallaði um Varnarliðið á Keflavík- urflugvelli og hlutverk þess hér og Hjálmar talaði um Vínarráðstefn- una og þátttöku okkar í henni,“ sagði Jóhann Einvarðsson. Landssöfiiun Lionshreyfíngarinnar: Söfiiunarfénu vel varið í þágu þesssara einstaklinga - segir Björn Ástmundsson, framkvæmdastjóri Reykjalundar ÁGÓÐA af landssöfiiun Lionshreyfingarinnar sem fram fer 7.-9. apríl með sölu rauðu fiaðrarinnar verður varið til byggingar vistheimilis að Reykjalundi fyrir Qölfatlaða. Að sögn Björas Ástmundssonar, fram- kvæmdastjóra Reykjalundar, er vinna við hönnun vistheimilisins þegar hafin og væntanlega verður hægt að heQast handa við byggingarfram- kvæmdir strax í vor, en heimilinu verður valinn staður á fögrum stað fyrir framan smáhýsi á Reykjalundi. „Á þessum stað er um að ræða gott útsýni og gróið umhverfí með skóglendi og þægilegum aðkomu- möguleikum, auk þess sem bygging- in kemur til með að falla vel inn í byggðakjaman á Reykjalundi," sagði Bjöm. Vistheimilið sem um er að ræða er ætlað fyrir 5-6 einstaklinga, og verður byggingin væntanlega 290-300 fermetrar að stærð. „Við ætlum okkur að hafa eins mikinn heimilisbrag á þessu vist- heimili og kostur er á, en þó verður verður það byggt þannig að við náum góðum umferðarlegum tengslum við aðalbygginguna. Þannig koma þjálf- unardeildir á Reykjalundi til með að nýtast þessu fólki, en öll aðstaða sem þegar er fyrir hendi þar mun standa þessum einstaklingum til boða. Þar nefna öflugar þjálfunardeildir, nýja sjúkraþjálfunarbyggingu og iðju- þjálfun. Við notum einnig mikið íþróttir og útivist til endurhæfíngar og afþreyingar, auk þess sem mikið er gert af því að bjóða upp á hvers MEÐAL ANNARRA ORÐA Skemmdarverk á íslenskri tiingn „ Að hlaupa upp á milli handa og* fóta“ „Tvöhundruðasti o g fimmtugi“ „Munið þið halda áfram að þykja vænt um mig u eftir Njörð P. Njarðvík Njörður P. Njarðvík mun skrifa hálfsmánaðarlega þætti um menningarmál hér í Morgun- blaðinu. Hér birtist fyrsti þáttur Njarðar og fjallar um skemmdar- verk á íslenskri tungu eins' og fyTÚrsögfnin gefur til kynna: Ég leyfí mér að hefja þessa grein á þremur dæmum um málfar í íslenskum íjölmiðlum. Hið fyrsta heyrði ég í sjónvarpsfréttum, annað í hádegisfréttum einnar útvarps- stöðvarinnar í Reykjavík þar sem fréttaþulur var svo óheppinn að þurfa að lesa úr raðtölu, og' hið | þriðja las ég í vikublaði. Þar var þessi hroðalega villa meira að segja tvítekin, birtist bæði í þýðingu á sögu og sem texti undir mynd. í fyrri tilvikunum tveimur er um að ræða fastráðna starfsmenn sem hafa atvinnu af því að flytja íslensku þjóðinni fréttir á íslensku, en hins vegar er mér ekki kunnugt um þýðanda þriðja dæmisins. Þessi dæmi eru tilfærð hér til áréttingar þeirri staðreynd, að mál- | tit far hefur farið svo versnandi í íslenskum fjölmiðjum að undan- fömu, að ekki verður lengur við unað. Nú teljast ambögur og beinar beygingarvillur því miður ekki leng- ur til undantekninga þegar hlustað er á útvarp og sjónvarp, og ekki eru blöð og tímarit miklu skárri, þótt þar ætti að mega búast við meiri rækt við ritað mál. Verst er að heyra til umsjónarmanna popp- tónlistarþátta í hinum svokölluðu fijálsu útvarpsstöðvum, sem mala blaðalaust og virðast stundum tala einhvers konar hálfamerískt hrognamál. En Ríkisútvarpið er ekki heldur saklaust, þótt það hafí sérstökum skyldum að gegna við íslenska tungu samkvæmt lögum. Þar hefur orðið sorgleg afturför á síðustu árum, þótt enn séu þar að sönnu starfsmenn sem vanda mál- far sitt. Ábyrgð fjölmiðla Vafalaust eru tengsl á milli versnandi málfars og hinnar svo- kölluðu fjölmiðlabyltingar. Útvarps- og sjónvarpsstöðvum fjölgaði og dagskrár lengdust, og mörg ný tímarit bættust við. Það hefur kall- að á nýtt og aukið starfslið. Og svo mikið er víst, að margt af þessu nýja fjölmiðlafólki hefur ekki verið ráðið ágrundvelli íslenskukunnáttu. Raunar er engu líkara en að for- ráðamönnum sumra fjölmiðla sé alls ekki ljóst að þeir beri einhveija ábyrgð á meðferð íslenskrar tungu. Þó hlýtur að blasa við hveijum manni, að fjölmiðlar hafa gífurleg áhrif á mótun málfars hjá almenn- ingi. Allir hlusta á útvarp, horfa á sjónvarp og lesa blöð. Og kannski eru þeir fleiri en okkur grunar, sem nú orðið sækja tungutak sitt fyrst og fremst til fjölmiðla, auk dag- legra samtala. Ég á við að trúlega hafí þeim fækkað hlutfallslega sem tjá hug sinn í rituðu máli. Það leið- ir óhjákvæmilega til minni og ein- hæfari orðaforða og jafnframt til aukinnar áhrifagirni. Nú get ég að vísu ekki stutt slíka staðhæfíngu öðru en hugboði, en það væri þarft viðfangsefni málvísindamanna að kanna orðaforða landsmanna og athuga mun hans hjá þeim sem nota ritmál reglulega og hinna sem sjaldan eða aldrei festa hugsun sína á blað. Ég vil leyfa mér að nefna sem dæmi um útbreiðslu málfarstísku úr fjölmiðlum að orðatiltæki á borð við að vera inni í myndinni og að vera í stakk búinn eru orðin svo útþvæld að þau eru næstum ónothæf. Og orðið varðandi og gagnvart virðast á góðri Ieið að útrýma algengum forsetningum, eins og þegar auglýst eru námskeið „varðandi meðferð véla“. Lög um íslenska tungu Ef einhver fer inn í opinbera byggingu á íslandi og vinnur þar skemmdarverk, þá er hann ekki einungis skaðabótaskyldur, heldur skal hann einnig sæta refsingu. Þetta þykir sjálfsagt, enda hefur slíkur skemmdarvargur valdið þjóð- inni eignatjóni sem auðvelt er að meta til fjár. Sömuleiðis er refsivert að vanvirða þjóðsönginn, þjóðfán- ann og skjaldarmerkið eða að vinna spjöll á þessum táknum íslensku þjóðarinnar. Aftur á móti virðist öllum heimilt að vinna þau skemmd- arverk á íslenskri tungu sem þeim sýnist refsingarlaust og meira að segja nokkurn veginn átölulaust. Og er þó tungan ekki tákn íslensku þjóðarinnar, heldur hinn raunveru- legi grundvöllur þjóðernis okkar, ásamt landinu sjálfu og þeim lífsháttum sem það hefur fært okk- ur. íslensk tunga er dýrmætasta eign okkar en virðist engu að síður réttlaus. Ef til vill hefur mönnum fundist að dýrmæti hennar væri svo ÍSÍ4£tÍͧifJUl4H##ÍÍ4 ͧliÍ«i§#*É

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.