Morgunblaðið - 05.04.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
25
Afmæliskveðja:
Bjarni I. Bjamason fv.
organisti - Akranesi
Fyrir rúmum 30 árum gegndi ég
um nokkurt skeið þjónustu í veik-
indaforföllum tengdaföður míns, sr.
Jóns M. Guðjónssonar á Akranesi.
Þetta var á föstunni, og varð því
að ráði, að föstuguðsþjónustur á
miðvikudagskvöldum kæmu í stað
hinna hefðbundnu guðsþjónusta á
sunnudögum, þar er ég var þá
bundinn störfum í mínu eigin
prestakalli.
Þessi þjónusta leiddi til nokkurra
kynna við starfsfólk kirkjunnar,
ekki síst organistann, sem þá var
Bjarni Bjarnason málarameistari.
Mér er minnisstætt þegar fund-
um okkar fyrst bar saman. Það var
á söngloftinu í Akraneskirkju. Þar
höfðum við mælt okkur mót til þess
að ræða fyrirkomulag og fram-
kvæmd fyrstu föstuguðsþjón-
ustunnar. Það sem mér fannst ein-
kenna hann mest við þessi fyrstu
kynni, var annars vegar hógværð
hans og yfirlætisleysi, en hins vegar
sú einlæga hjartahlýja, sem ljómaði
af svip hans og fasi. Umræðuefni
okkar er mér nú löngu horfið úr
minni. En hitt man ég vel, að ég
hugði gott til samstarfs við þennan
ljúfa og viðmótsþýða mann, sem
virtist svo heill og drengilegur í
hlutverki sínu. Og þar varð ég síst
fyrir vonbrigðum.
Nú er Bjarni Bjamason áttræður
í dag. Hann er borinn og barnfædd-
ur Akurnesingur, fæddur 5. apríl
árið 1909 að Austurvöllum, sem nú
heitir Akurgerði 15, þar í bæ. For-
eldrar hans vom hjónin Bjarni
Gíslason trésmiður og Helga Sigríð-
ur Bjamadóttir, mikils metin og
valinkunn sæmdarhjón í sinni tíð.
Þau eignuðust 4 böm, sem öll kom-
ust til fullorðinsára og var Bjarni
elstur systkina sinna. Næstur hon-
um var Gísli, sem látinn er fyrir
mörgum árum, þá er Sighvatur,
málarameistari í Reykjavík og
yngst er Ingibjörg húsmóðir á Akra-
nesi, ekkja Aðalsteins Ámasonar,
fyrmm kaupmanns þar.
Bjarni ólst upp hjá foreldmm
sínum á Austurvöllum. Hann lærði
málaraiðn hjá Árna Sigurðssyni
málarameistara. Sveinsprófi lauk
hann 1938 og meistararéttindi í
iðngrein sinni hlaut hann árið 1942.
Bjami var ungur að árum, þegar
það kom ótvírætt í ljós, að hann
var gæddur miklum tónlistarhæfi-
leikum. Hann hafði fagra söngrödd
og framúrskarandi næmt tóneyra.
Hann var ekki nema 10 ára gam-
all, þegar hann hóf nám í orgelleik
hjá Svövu Þórleifsdóttur, sem þá
var skólastjóri á Akranesi. Hjá
henni var hann í tvö ár. Minnist
hann þess tíma með miklu þakk-
læti, segir Svövu hafa verið sér ein-
staklega góða og uppörvandi.
Þegar Bjarni var 15 ára gamall
fór hann að syngja í kirkjukór Akra-
neskirkju. Nokkm síðar lá svo leið-
in til Kjartans Jóhannessonar. Hjá
honum stundaði Bjarni nám bæði í
söng- og orgelleik. Og svo þegar
sú ákvörðun var tekin að gerast
organisti og söngstjóri kirkjukórs
Akraness, þá var hann vetrarlangt
við nám hjá Páli ísólfssyni í
Reykjavík.
Það mun hafa verið á árunum
1933—1934 sem Bjarni tók við
starfinu við kirkjuna. Þá var sr.
Þorsteinn Briem sóknarprestur á
Akranesi og tókst bráðlega mjög
gott og náið samstarf með þeim.
Ennþá segist Bjami muna hvaða
sálmur það var, sem fyrst var sung-
inn í Akraneskirkju eftir að hann
hóf þar starf sitt. Það var sálmur-
inn „Lofið vom Drottinn, hinn líkn-
sama föður á hæðum“. (Sálmb. nr. 3)
Starfsferill Bjarna við Akranes-
kirkju varð bæði langur og blessun-
arríkur. Enginn organisti hefir
starfað jafn lengi þar og hann. Alls
urðu starfsárin hans á söngloftinu
27 talsins. Hann hætti árið 1960,
þegar nýtt pípuorgel kom í kirkj-
una. Þá fannst honum rétti tíminn
til að draga sig í hlé. Enda var þá
ráðinn til starfans einn af okkar
fremstu tónlistarmönnum, Haukur
Guðlaugsson, núverandi söngmála-
stjóri. Vissulega var það ekki sárs-
aukalaust fyrir Bjarna að hverfa
þannig af hólmi, en honum var
Ijóst, að við þau þáttaskil, sem koma
Fiskverd á uppboðsmörkuðum 4. apríi.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 49,50 49,50 49,50 6,500 321.750
Þorskur(ósl.) 47,50 38,00 43,33 26,552 1.150.463
Ýsa 35,00 35,00 35,00 0,414 14.490
Karfi 27,00 27,00 27,00 0,863 23.315
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,090 1.350
Koli 50,00 35,00 44,32 1,940 85.990
Steinbitur 24,00 24,00 24,00 0,391 9.396
Lúða 330,00 205,00 297,39 0,350 104.088
Skötuselur 160,00 160,00 160,00 0,061 9.760
Samtals 46,59 37,302 1.737.942
Selt var úr ýmsum bátum. I dag verða meðal annars seld 40 tonn af þorski, 2,5 tonn af steinbít og 0,5 tonn af keilu úr Ljós-
fara HF. Einnig verður selt úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 47,50 30,00 46,61 32,905 1.533.695
Þorskur(dbt) 47,00 46,00 46,34 5,355 248.134
Þorsk(2.nátta) 48,00 42,00 45,09 11,661 525.784
Ýsa 70,00 68,00 68,37 1,713 117.114
Ýsa(óst) 70,00 43,00 67,55 0,318 21.482
Karfi 29,00 23,00 28,42 15,952 453.415
Ufsi 24,00 16,00 17,41 4,988 86.832
Steinbítur 28,00 25,00 25,32 0,269 6.812
Steinbítur(ósL) 15,00 15,00 15,00 0,116 1.740
Hlýri 15,00 15,00 15,00 0,465 6.975
Hlýri+steinb. 25,00 25,00 25,00 0,262 6.550
Skarkoli 47,00 47,00 47,00 0,221 10.387
Blálanga 34,00 34,00 34,00 0,187 6.358
Lúða(stór) 225,00 100,00 179,49 0,498 89.385
Lúða(milli) 300,00 300,00 300,00 0,042 12.600
Lúða(smá) 240,00 235,00 238,03 0,127 30.230
Grálúða 48,00 32,00 42,53 28,898 1.228.963
Skata 20,00 20,00 20,00 0,102 2.040
Rauðmagi 35,00 30,00 34,87 0,466 16.250
Hrogn 50,00 50,00 50,00 0,071 3.550
Samtals 42,14 104,615 4.408.296
Selt var úr Gylli ÍS, Freyju RE, Sigga Sveins (S og trillum. í dag
verður selt úr bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 47,50 41,00 45,20 10,336 467.226
Ýsa 62,00 45,00 50,23 12,783 642.123
Karfi 28,50 27,50 28,05 6,672 187.142
Ufsi 19,50 10,50 16,35 14,883 243.286
Steinbítur 15,00 7,00 14,71 1,170 17.223
Skarkoli 45,00 35,00 41,93 0,780 32.665
Langa 21,00 21,00 21,00 1,040 21.840
Lúða 300,00 50,00 160,00 0,172 27.598
Samtals 33,75 48,907 1.650.446
Selt var aöallega úr Reyni GK, Eldeyjar-Boða GK, Hrafni Svein-
bjarnarsyni GK og Farsæli GK. I dag verður selt úr dagróðra-
og snurvoðarbátum ef á sjó gefur.
nýja orgelsins markaði, væri eðli-
legt, að þar yrðu hans verkalok á
vettvanginum þeim.
Störfum sínum við kirkjuna
gegndi Bjarni alla tíð af fráb&rri
samviskusemi og trúmennsku,
óbrigðulli smekkvísi og þeirri holl-
ustu, sem aldrei brást. Hann var
aiinn upp í hinu heilnæma andrúms-
lofti kristinnar trúar, móðir hans
var innilega bænrækin kona, svo
að segja má, að starfróf bænar og
tilbeiðslu hafi hann drukkið í sig
með móðurmjólkinni og numið við
móðurkné. Það duldist heldur eng-
um, sem hlýddi á orgelleik Bjama
og kórstjórn í Akraneskirkju, að
trúin var undirstraumur og aflgjafi
í túlkun hans.
Bjami er mikill drauma- og vitr-
anamaður. Hann hefir frá mörgu
stórmerkilegu að segja á þeim vett-
vangi. Og ekki fer hann í neina
launkofa með þá sannfæringu sína,
að hann hafi í starfi sínu og í öllu
sínu lífi notið í ríkum mæli blessun-
ar og handleiðslu okkar himneska
föður og frelsarans, Jesú Krists.
Eins og áður hefir komið fram,
var Bjarni einnig samstarfsmaður
sr. Jóns M. Guðjónssonar, sem var
eftirmaður sr. Þorsteins Briems.
Þeir Bjarni og sr. Jón tengdust
þegar í upphafi einlægum vináttu-
böndum og svo bjart var yfir sam-
starfi þeirra, að þar féll aldrei
minnsti skuggi á.
Eins og að líkum lætur var starf
Bjarna við kirkjuna alltaf unnið í
hjáverkum, af því að málaraiðnin
var auðvitað aðalstarfið. En eigi að
síður kom það oft fyrir, að kirkjan
var látin sitja í fyrirrúmi og bæði
tíma og flármunum fúslega fórnað
í hennar þágu. Þá var organista-
starfið lítt launað og hvað Bjarna
snerti, þá gerði hann víst oft og
tíðum harla lítið í því að kreijast
þess, sem honum þó með fyllsta
rétti bar. Honum var gjarnara að
líta á störf sín sem þjónustu við
Drottin — eða vinargreiða.
í allmörg ár starfaði Bjarni sem
málari í Dráttarbraut Akraness. Þá
var hann umsjónarmaður Iðnskól-
ans á Akranesi síðustu árin sem sá
skóli var starfandi þar.
Öll sín störf, bæði í kirkju og
utan hennar hefir Bjarni unnið af
trúfastri skyldurækni og þeirri ein-
lægu viðleitni listamannsins, að láta
það eitt frá sér fara, sem fegrar
lífið, bæði hið ytra og hið innra
fyrir andann og gerir það bjartara
og gleðiríkara en það áður var.
Hinn 17. júní 1952 gekk Bjami
að eiga Guðrúnu Jónsdóttur, sem
ættuð er frá Hólmavík. Hún hefir
búið manni sínum fagurt heimili,
þar sem hamingjan situr að völdum.
Þau eiga eina dóttur, sem Helga
heitir. Hún er búsett á Akranesi,
gift Bimi Tryggvasyni starfsmanni
hjá Skallagrími hf. Þau eiga þrjú
böm, sem öll eru bjartir sólageislar
í lífi afa síns og ömmu.
Enn er Bjarni einn af hinum
góðu og trúföstu kirkjugestum við
guðsþjónustur í Akraneskirkju, þótt
ekki leiki hann lengur á orgelið og
sé löngu hættur að stjórna kómum.
En hann tekur virkan og lifandi
þátt í guðsþjónustunni eigi að síður.
Enn syngur hann með sinni björtu
og fagnaðarfullu rödd og augun
ljóma, ekki síst þegar sungnir em
uppáhaldssálmamir hans: „Víst
ertu, Jesús, kóngur klár" og „Son
Guðs ertu með sanni“.
Megi heill og blessun Guðs hlotn-
ast þér, kæri vinur, og ástvinum
þínum á merkum tímamótum. Þökk
fyrir einlæga vináttu og órofa
tryggð.
Guð gefi þér ótalmargar glaðar
stundir og góðar á ófarinni ævileið.
Bjarni tekur á móti gestum í til-
efni afmælisins í Oddfellowheimil-
inu á Kirkjubraut 54, Akranesi,
laugardaginn 8. apríl nk. frá kl.
14.30 til 17.30.
Björn Jónsson
Týlihf.:
Flytur inn
kvikasilf-
urslausar
raflilöður
TÝLI HF. flytur inn kvikasilf-
urslausar kolefiiis-sink-rafhlöð-
ur af tegundinni Ucar en Týli
hf. hefur einkaumboð fyrir Ucar
á íslandi, að sögn Frank Cassata
hjá Týli.
Rafhlöðumar eru til sölu í Týli
í Austurstræti, Focus í Lækjargötu
og í Kringlunni 4. Þar er einnig
tekið við notuðum rafhlöðum og
þeim komið til Hollustuvemdar
ríkisins sem sér um förgun þeirra.
Að sögn Frank Cassata flytur
Týli hf. einnig inn alkalískar raf-
hlöður sem innihalda kvikasilfur
sem er minna en 0,025% af þyngd
rafhlaðnanna en stefnt er að því
að settar verði samnorrænar reglur
um að rafhlöður megi ekki inni-
halda kvikasilfur og kadmíum yfir
þessum mörkum.
Jóhannes Geir
í GalleríBorg
GALLERÍ Borg er með sýningu
á verkum Jóhannesar Geírs
Jónssonar. Á sýningunni eru
pastel- og olíumyndir sem allar
eru nýjar og sýna hesta og menn
í umhverfi sínu, þá aðallega hér
á Reykjavíkursvæðinu. Allar
myndirnar eru til söiu.
Sýningin er í Gallerí Borg, Aust-
urstræti 10, 2. hæð (Pennanum).
Hún stendur til 11. apríl og er
opin virka daga frá klukkan 10-18.
Aðgangur ókeypis.
Fiskeldisráð-
stefiiu fi*estað
VEGNA komandi vinnustöðvun-
ar Félags íslenskra náttúrufræð-
inga hefur stjórn Líffiæðifélags
íslands ákveðið að fresta fyrir-
hugaðri ráðstefiiu um fiskeldi
er halda átti dagana 7. og 8.
apríl. Onnur dagsetning verður
tÚkynnt síðar.
Það sama á við um fyrirhugaða
árshátíð Líffræðifélagsins sem
halda átti í framhaldi þessarar ráð-
stefnu.
Nafti ljósa-
meistara leiðrétt
í tónlistarumsögn Jóns Ás-
geirssonar um Brúðkaup Fígraós,
sem birtist í blaðinu í gær var
ranglega farið með nafn ljósam-
eistarans. Hann heitir Jóhann B.
Pálmason. Hlutaðeigendur eru
beðnir velvirðingar á mistökunum.
Bókarkynning
hjá Pathfínder
FORLAGIÐ Pathfinder kynnir
bókina Thomas Sankara Speaks:
The Burkina Faso Revolution
1983-87 á opinberum fundi í
Sóknarsalnum, Skipholti 50 A, í
dag, miðvikudag, og hefet fimd-
urinn klukkan 20, segir í frétta-
tilkynningu.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, ávarpar fúndinn, svo og
Sigþrúður Gunnarsdóttir, formaður
Suður-Afríkusamtakanna gegn
apartheid, Nestor Bidadanure frá
Burundi, sem er ritstjóri afríska
.tímaritsins Coumbite og búsettur í
París, og Doug Cooper, höfundur
inngangs að bókinni.
Mjólk flutt í
hrognatunnum
Innri-Múli.
HÉR er enn óslitin ótíð, vegir
lokast jafiióðum og mokað er.
Það gengur erfiðlega að kom-
ast heim á bæina til að ná í mjólk-
ina, til dæmis þurfti að láta mjólk-
ina í hrognatunnur frá einum
bænum og draga hana á sleða
hálfan kílómetra í veg fyrir mjólk-
urbílinn.
- S.J.Þ.
Dudley Moore og John Gielgud
í í myndinni „Á skallanum"
Bíóhöllin sýnir
„A skallanum“
BÍÓHÖLLIN hefiir tekið til sýn-
inga myndina „Á skallanum"
með þeim Dudley Moore og Liza
Minelli í aðalhlutverkum. Leik-
stjóri er Bud Yorkin.
Arthur og Linda eru búin að
vera gift í nokkur ár. Efnahagurinn
er ágætur, þvi að Arthur hefur
enga þörf fyrir að vinna og þau
eiga fimm eða sex hús, auk bfla-
flota. Þessu má þakka að Arthur
getur helgað sig því sem honum
er bæði tómstundagaman og al-
vörustarf — að drekka dag hvem.
2486.-kr
sparnaður
OSRAM
* meö Dulux El sparnaðar
perunni.
Til dæmis Dulux El 15w
• Sparar 2486 kr. í orkukostnaði
miðað við orkuverð Rafmagns-
veitu Reykjavíkur 5,18 kr/kw.st.
• Áttföld ending miöað við venju-
lega glóperu.