Morgunblaðið - 05.04.1989, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
33 '
mælum, að slíkt samræmdist ekki
ríkjandi skoðunum og hefðum á
íslandi, og bætt því við um leið og
hann sagði til nafns og heimilis-
fangs, að þeir gætu kært sig ef
þeir vildu.
Það var einstaklega ljúft að vinna
með Sigurði Magnússyni, því að
milli heila hans og hjarta voru heil-
brigð tengsl. Var hann því starfi
íslandsdeildar Amnesty Internat-
ional mikilvægur liðsmaður. Hann
var ritfær vel og snjall útvarpsmað-
ur og því til hans leitað, þegar mik-
ið lá við til kynningar starfi samtak-
anna, bæði til að annast útvarps-
þætti og erindi, skrifa greinar í blöð
eða þýða mikilvæga texta, sem lutu
að verkefnum og siðfræðilegum við-
fangsefnum samtakanna. Þetta
framlag hans vó þungt, því aldrei
leyndi sér heiðarleiki hans gagnvart
viðfangsefninu og þeim margvís-
legu vandamálum, sem það hlaut
að hafa í för með sér.
Sigurður hafði einlæga and-
styggð á valdníðslu og valdhroka í
sérhverri mynd og vildi leggja sitt
af mörkum til að liðsinna fórn-
arlömbum slíkra eiginleika.
Eftir margra ára starf fyrir
Amnesty skipti hann um vettvang
og lagði lið sitt starfi Rauða kross-
ins allt þar til heilsan leyfði ekki
meira.
Um einkalíf Sigurðar veit ég
ekki ýkja margt umfram þann kær-
leika og þá tryggð, sem hann sýndi
systur sinni, minni góðu vinkonu,
Guðríði, sem hann talaði við svo til
daglega eftir að hún missti mann
sinn, hinn mikilhæfa tónlistarmann
Róbert A. Ottósson. Þau voru hvort
öðru kærleikslind og þótt fjölskyld-
an væri stór var eins og þau gætu
endalaust gefið af þessum nægta-
brunni vinum og öðrum, sem erfið-
leikum mættu og áföllum.
Um leið og ég þakka Sigurði
góða samvinnu og samverustundir
allar á liðnum árum flyt ég honum
kveðjur og þakkir yngri sem eldri
félaga íslandsdeildar Amnesty Int-
emational fyrir framlag hans og
stuðning við málstað þeirra sam-
taka.
Margrét Heinreksdóttir
Það mun hafa verið fyrir hartnær
þremur árum að við Sigurður
Magnússon settumst sem oftar nið-
ur yfir kaffibolla og ræddum um
lífið og tilvemna. Talið barst að
aldri manna og endingu og ég lét
í ljósi að Sigurður myndi verða allra
karla elstur. Sigurður brosti, hristi
höfuðið og sagði: „Nei, það verð
ég ekki, ég verð ekki og vil ekki
verða of gamall. Ég er búinn að
eiga gott líf og bráðum verður þetta
Blombera
Kæli- og
frystiskápar.
6 gerðir
Hagstætt verð.
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR.
___________M,'__
Einar Farestveit&Co.hff.
BORGARTOWI 28, SÍM116995.
Lelð 4 stoppar vlA dymar
nógu langt.“ Það var svo á 75 ára
afmælisdegi Sigurðar, sem þau
hjónin héldu upp á með miklum
glæsibrag að viðstöddum fjölda
vina, að frændi Sigurðar, séra Ámi
Pálsson, flutti frábæra ræðu til
heiðurs afmælisbaminu. Sigurður
svaraði af ekki minni fimleik tung-
unnar. Hann endaði ræðu sína með
því að þakka sinni ágætu eigin-
konu, Dýrleifu Ármann, fyrir langa
og góða samfylgd, því: „I gegnum
þykkt og þunnt hefur hún reynst
mér best.“ Nokkru eftir afmælið
veiktist Sigurður. Það stríð endaði
fyrir fáum dögum. Umhyggja Dýr-
leifar og fjölskyldu létti þá baráttu.
Sigurður Magnússon átti til
kjamafólks að telja. Hann stundaði
almenn sveitastörf í æsku en
hneigðist snemma til bókar, fór í
Flensborgarskóla og síðar í Kenn-
araskóla og lauk kennaraprófi
1933. Fyrst heyrði ég Sigurðar
getið er frændi minn, skólabróðir
hans og góður kunningi, Stefán
Jónsson kennari og rithöfundur,
sagði okkur frá þessum skemmti-
lega og harðduglega Snæfellingi.
Þeir voru síðar lengi samkennarar
við Austurbæjarskólann i
Reykjavík.
Það var svo löngu síðar að leiðir
okkar lágu saman. Hann þá orðinn
þroskaður maður í vandasömu
starfi og miklu áliti, undirritaður
nýlega orðinn blaðamaður, kominn
til landsins úr heimshomaflakki.
Nokkmm ámm síðar urðum við
kollegar — keppinautar — blaðafull-
trúar hvor hjá sínu félaginu, Sigurð-
ur hjá Loftleiðum, undirritaður hjá
Flugfélagi íslands. Oft var hart
barist um hylli farþega á þessum
ámm og margt brallað. Báðir vildu
blaðafulltrúamir veg síns félags
sem mestan og bestan og neyttu
ýmissa bragða til þess að svo mætti
verða. Þótt ekki færi hátt var samt
dtjúg samvinna milli þeirra og þá
sérstaklega á sviði landkynningar.
Landkynningarmálin vom báðum
hugleikin og íslensku flugfélögin,
þótt nokkuð stór þættu á íslenskan
mælikvarða, algjör peð miðað við
risana í alþjóðafluginu. Samstarf
um ýmis mál jókst eftir því sem
árin Iiðu og kunningsskapurinn
varð að vináttu. Báðir lögðu blaða-
fulltrúamir nótt við dag í land-
kynningunni, við móttöku erlendra
blaðamanna og ferðaskrifstofu-
manna. Stanslaus upplýsingamiðl-
un til erlendra fjölmiðla og sífelld-
lega reynt að koma landinu og fé-
laginu sínu á framfæri. Stundum
tókst vel, stundum miður, en alltaf
ávannst nokkuð. Þegar hópar
blaðamanna komu til landsins var
nokkum veginn víst að blaðafulltrúi
Flugfélagsins hitti Loftleiðahópinn
og öfugt. Þetta skapaði meiri breidd
í starfsemina og „nota bene“, þetta
var löngu fyrir sameiningu félag-
anna. Þarna fundu kynningarmenn
sem störfuðu að framgangi
íslenskra ferðamála sameiginlegan
farveg sem nýttist allri starfsem-
inni.
Sigurður Magnússon var mikill
fagurkeri. Sjálfur var hann einstak-
lega vel máli farinn, jafnt í ræðu
sem riti. Mér er ekki grunlaust um
að hann hafi um stundir orðið fyrir
miklum áhrifum af frænda sínum,
heimsmanninum og rithöfundinum
Kristmanni Guðmundssyni. Frænd-
skapur þeirra, sem báðir ræktu
vel, var mikill og góður. Sigurður
naut fegurðar hvar sem hana var
að finna. Hann hreifst að fögru
ljóði, fagurri konu, fagurri tónlist.
Hann var skapríkur maður og þeg-
ar honum mislíkaði meðferð máls
eða málstaður sem var honum kær,
var mínum manni að mæta. Hann
var baráttumaður sem lét ekki deig-
an síga þótt við ofurefli væri að
etja. Þegar Sigurður hvarf frá störf-
úm hjá Loftleiðum, um það leyti
sem sameining félaganna og stofn-
un Flugleiða átti sér stað, gerðist
hann forstjóri Ferðaskrifstofu ríkis-
ins. Hann tók þar upp nýja vinnu-
hætti og við sem störfuðum að
ferðamálunum bjuggumst við stór-
tíðindum. Því miður auðnaðist
Ferðaskrifstofu ríkisins ekki að
njóta starfskrafta hans nema stutt-
an tíma. Hér sem oftar kom í ljós
að Sigurður lét ekki á sig ganga
þar sem honum fannst ranglátt, og
hann hvarf frá störfum við þetta
fyrirtæki frekar en að láta hlut sinn.
Eftir þetta fékkst hann við ýmis
störf, var m.a. ritstjóri starfs-
mannablaðs Eimskips, starfaði fyrir
Rauða krossins o.fl. Hann fylgdist
mjög grannt með gengi Flugleiða
og ferðamála, hafði enda átt sæti
í Ferðamálaráði í fjölda mörg ár
og unnið þar gott starf. Þótt Sigurð-
ur léti sig flest það varða er þess-
ari þjóð horfði til heilla, þá held ég
að flug og ferðamál hafi alla tíð
verið honum hugleiknust.
Sigurðar Magnússonar er gott
að minnast. Ég vil að endingu þessa
stutta pistils þakka honum viðkynn-
inguna, fyrir gott og ánægjulegt
samstarf í fjöldamörg ár og eins
fyrir alla hreinskilnina, því stundum
kom fyrir hér fyrr á árum að við
skiptumst á skeytum sem þó hvor-
ugur erfði. Sigurður Magnússon var
maður sem setti svip á umhverfi
sitt og markaði spor sem íslensk
ferðamál og þjóðin njóta enn í dag.
Við María sendum Dýrleifu Ar-
mann og fjölskyldunni dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Sveinn Sæmundsson
^ Bjór- ^
kollur
Sénnerkjum
bjórkollur
og bjórglös.
Leitiö upplýsinga.
Höfðabakka 9
Sími685411
LEITAÐU
AÐSTOÐAR
FAGMANNA
Áöur en þú tekur ákvörðun um húsbyggingu eða
íbúðarkaup, hvetjum við þig til að notfæra þér þjónustu
fasteignasala, hönnuða og annarra sem þekkingu hafa,
við að áætla greiöslubyrðina eins nákvæmlega
og unnt er.
GREIÐSLUBYRÐI OG GREIÐSLUGETA
Greiðslubyrðina skaltu bera saman við greiðslugetu
þína og láta þann samanburð hafa áhrif á hvaða ákvarð-
anir þú tekur.
SKYLDUR OG ÁBYRGÐ FASTEIGNASALA
Samkvæmt lögum um skyldur og ábyrgð fasteigna-
sala, ber þeim að gera íbúðarkaupendum grein fyrir
áhvílandi lánum sem kaupendur taka við, vöxtum af
þeim, hvort lán séu verðtryggð, hvenær greiðslum eigi
að vera lokið og hverjar eftirstöðvar eru að viðbættum
verðbótum.
NAKVÆM KOSTNAÐARAÆTLUN HÖNNUÐAR
Ætlir þú að byggja, er heppilegt að
fá hönnuð íbúðarhúsnæðis til
að gera nákvæma kostnaðar-
áætlun.
Láttu fagmenn aðstoða þig
við aö áætla greiðslubyrði
vegna húsbyggingar eða
íbúðarkaupa. Þannig eru
góðar líkur á að þú komist
hjá skakkaföllum.
BYRJAÐU Á RÉTTUM ENDA
HAFÐU ÞITT Á HREINU
HUSNÆÐISSIDFNUNAR