Morgunblaðið - 05.04.1989, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.04.1989, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989 folk í fréttum íslandsmeistarar í Frístældansi. í hópnum eru Ehna Lísa Gunnars- dóttir, Helena Jónsdóttir, Nanna Ósk Jónsdóttir, Elín Guðmunds- dóttir, Sara Stefánsdóttir og Selma Björnsdóttir. „ DANS Isiandsmeistaramót í frístælkeppni unglinga Fyrir skömmu fór fram hin árlega íslandsmeistarakeppni unglinga í fristældansi. Keppt var í Tónabæ og var sýnt fyrir troðfuilu húsi. Þriðja árið í röð sigraði danshópurinn Feykir frá Reykjavík. Þær stúlkur hafa æft dans undanfarin 6-7 ár hjá Báru, í Kramhúsinu og hjá Dansnýjung Koiiu. Þær eru allar 15 til 16 ára að aldri. í einstakl- ingskeppni sigraði Katrín Einarsdóttir, 14 ára yngismær frá Neskaup- stað. Katrín Einarsdóttir. ÓSKARSVERÐLAUN „Þetta var hlut- verk lífs míns“ Kvikmyndin „Hinir ákærðu“ hefur hlotið viðlíka umtal úti í heimi og „Hættuleg kynni“ fékk á sínum tíma. Jodie Foster leikur unga lífsglaða stúlku sem lendir í þeirri raun að vera nauðgað af heilu karlagengi á bar einum. Sjálf segir leikkonan að þetta hafí verið henn- ar stærsta hlutverk og er hún mjög ánægð með kvikmyndina í heild. Hún hefur átt við ýmis vandamál að stríða. Árið 1981 sýndi vitstola maður, John Hinckley, þáverandi forseta Bandaríkjanna morðtilræði, til þess eins að ganga í augun á leikkonunni, og hafði hann áður verið með alls kyns ofsóknir á hend- ur henni. Nú er hún 26 ára og býr í Los Angeles. Fyrir fáum árum tók hún há- skólapróf frá Yale-háskóla og var þá í fríi frá kvikmyndaleik. Hlut- verk hennar í „Hinir ákærðu“ er hennar stærsta og hið eina sem hún segist vera ánægð með. „Þetta var hlutverk lífs míns. Kvikmyndin sýn- ir að nauðgun hefur í raun ekkert með kynlíf að gera. Hún ijallar Óskarsverðlaunahafínn Jodie Foster. þess í stað um það að gera að engu sjálfstæðan vilja konunnar. Þess er vænst að við sýnum af okkur kyn- þokka en þó er okkur refsað," seg- ir Jodie. Hún er ekki lengur sú unglings- stúlka sem lék í kvikmyndum eins og Taxi Driver. Þegar hún er ekki að leika vill hún vera „nafnlaus". Þá gengur hún með homspanga- gleraugu með hárið í hnút. „Líf mitt er svo hversdagslegt að flest- um myndi hundleiðast ef þeir væru í mínum sporum. Ég er einfari sem líkar að laga góðan mat og stunda íþróttir. Það veitir mér mikið öryggi að lifa reglubundnu lífi, dag eftir dag, og ég er ekki gefín fyrir að vera í margmenni. Mig langar til þess að eignast ástvin og böm.“ Vinir hennar segja að hún beri þess enn merki að geðveikur maður hn.fi ofsótt hana í eina tíð. SPRON FYRSTA KONAN KOSIN f STJÓRN Fyrir aðalfund Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, sem haldin var 17. mars síðastliðinn kaus borgarstjóm Reykjavíkur tvo fulltrúa í stjórn sparisjóðsins eins og henni ber að gera. Annar þeirra er Hildur Petersen, framkvæmda- stjóri Hans Petersens hf. Á aðal- fundinum kom fram, að Hildur væri fyrsta konan, sem kosin væri til setu í stjóm stærri sparisjóðs eða í_ bankaráði. Hildur kemur í stað Ágústs Bjamasonar, varaformanns sjóðsstjómar, en á aðalfundinum þakkaði Jón G. Tómasson, formaður stjómarinnar, honum fyrir skemmtilegt og gott samstarf í ára- tugi, en Agúst gekk úr stjóminni fyrir aldurs sakir eftir 18 ára setu þar. Á myndinni em stjóm og spari- sjóðsstjóri frá vinstri: Hjalti Geir Kristjánsson, Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri, Hildur Petersen, Jón G. Tómasson, formaður, Gunn- laugur Snædal og Siguijón Péturs- son. Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson Frá vinstri, Ólafur Skúlason framkvæmdastjóri Laxalóns, Oddur Ólafsson, Jón Þ. Jónsson, Leonid Vakhtin og Aðalsteinn Pétursson eigandi verslunarinnar Veiðivon. VEIÐISKAPUR 350 manns í dorg - veiðikeppni Dorgveiðikeppni var haldin á Hvammsvíkurtjöm um pá- skana og stóð hún yfir alla hátí- ðardaganna. Þátttaka var mjög mikil, alls komu 350 manns sem veiddu 900 regnbogasilunga. Veitt vora verðlaun fyrir þijá stærstu silungana. Oddur Ólafsson vann fyrstu verð- laun fyrir 8 punda regnboga. Önnur verðiaun hreppti Jón Þ. Jónsson fyrir 6 punda físk, en Sovétmaður- inn Leonid Vakhtin varð í þriðja sætinu með 5 punda silung. Það voru versiunin Veiðivon, Laxalón hf. og Sportveiðiblaðið sem stóðu fyrir keppninni og þau fyrir- tæki ásamt Órvis-umboðinu gáfu afreksverðlaunin. COSPER Ef þú borðar ekki matinn þinn færðu ekki meira kampavín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.