Morgunblaðið - 05.04.1989, Side 37

Morgunblaðið - 05.04.1989, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989 37 BÓKAÚTGÁFA Einhell vandaöar vörur Don Cano Skvaldrað um OlofPalme Sú dýrlingamynd sem Olof Palme hefur haft á sér eftir dauða sinn er fölsk. Það er kom- inn tími til þess að afhjúpa hann og gera hann mannlegan í augum einfeldninga," segir rithöfundur- inn og blaðamaðurinn Chris Mos- ey. Hún hefur nýlega gefið út bók með þvi frumlega nafni „Svíþjóð og morðið á Olof Palme“ og fjall- ar hún um líf fyrrverandi forsætis- ráðherra Svíþjóðar, það er að segja um einkalíf hans sem hún fullyrðir að hafi verið með fjöl- skrúðugra móti. Þessi bók er ein af þeim „hneykslisbókum" sem verða æ óftar til eftir lát þekktra manna, hvaða tilgangi sem slík útgáfa oft þjónar. Þar er að miklu leyti lögð áhersla á velgengni Olofs í kvennamálum og byggt á gömlum orðrómi sem fékk á slnum tíma byr undir báða vængi eftir skrif erlendra fréttaritara frá Svíþjóð. Bókin átti í fyrstu að koma út í Englandi af Weidenfeld-forlaginu undir nafninu „Blóð I snjónum". Hætt var við þá útgáfti mjög skyndilega og segja menn að þar hafi mátt greina fingraför eins af auðkýfíngum Evrópu, fjár- málakóngsins Rothschilds lávarð- ar. Dóttir hans, Emma Rothschild, er nafngreind í bókinni sem ein af ástkonum Olofs. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem samband þeirra kemst í hámæli. Ungfrú Rothschild gekkst.upp í vinstrimennsku í sljórnmálum og bjó í nágrenni Olofs, í gamla bænum I Stokkhólmi. Sást hún oft í sama hópi og hann. Þrátt fyrir fullyrðingar um annað er líklegast að samskipti þeirra hafi fremur byggst á áhuga á framtíð mannkyns og friðarmálum en einkamálum. Starfaði Emma Rothschild hjá alþjóðlegu friðar- stofnunni, SIPRI, I Stokkhólmi. Þá endurtekur Chris söguna um Chris Mosey lýsir Qálglega vel- gengni Olofs Palme í kvenna- málum í bókinni „Sviþjóð og morðið á Olof Palme“. að leikkonan Shirley MacLaine hafi verið önnur ástkona Palme og eru fleiri þekktar konur tíndar til. Chris Mosey var fréttaritari í Svíþjóð um tíu ára skeið, meðal annars fyrir Londonarblöðin Tim- es og Observer. Henni farast svo orð um einkamál Palme: „Sam- band hans við konur var hluti af lífi hans og fráleitt að láta sem svo hafi ekki verið. Hinsvegar sakna ég Palme, hann var gáfað- ur hugsuður sem gerði Svíþjóð mikilvægari en hún eiginlega er.“ Það er Wahlströms-forlagið sem gefur bókina út og er reiknað með að margir Svíar verði til að andmæla henni. Lögfræðingar sem lesið hafa bókina að beiðni útgefanda sáu ekki ástæðu til þess að leggja til að bókin kæmi ekki út. Talið er að auðvelt verði að kvikmynda bókina og hefur ónafngreindur kvikmyndafram- leiðandi þegar sýnt hehni áhuga. boftpressur FYRIR LIGGJANDI ALLTAF SAMA LÁGA VERÐIÐ Skeljungsbúðin Siðumula 33 símar 681722 og 38125 KVARTKÚLAN ER STÍLHREIN OG GEFUR FALLEGA BIRTU Kvartkúlan fæst í fjórum mismunandi stærðum og 3 litum: Svörtu, hvítu og krómi. Verð frá kr. 1.680,- 5BRSAR SKEIFONNI 8 SÍMI 82660 ' y&é/Z: - « OSRAM 2486.-kr sparnaður * með Dulux El sparnaðar perunni. Til dæmis Dulux El 15w • Sparar 2486 kr. í orkukostnaði miðað við orkuverð Rafmagns- veitu Reykjavíkur 5,18 kr/kw.st. • Áttföld ending miðað við venju- lega glóperu. KRUMPUGALLARNIR eru komnir. Sendum í póstkröfu Don Cano-búóin, Glæsibæ, sími 82966. BáJaM í fenmingargjöf Þessi stóll siyður vel við bakið og gœtirþess að þú sitjir rétt. Hann er með iéttrí hœðastill- ingu, veltanlegu baki og fimm arma öryggis- fœti. :$$$$$$ Þetla er gœðastóll á góðu verði. SíiwíS:* Þetta er góð fermingargjöf. i* csm> Hallarmúla 2 Sími 83211 Söluaðili Akureyri, Tölvutœki — Bókval.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.