Morgunblaðið - 05.04.1989, Síða 42
42
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
KNATTSPYRNA / ENGLAND
j*.
Clough vill
fá Sigurð
í hlutverk
IMeil Webb
Sigurður Jónsson í sviðsljósinu í The Sun í gær
SIGURÐUR Jónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, hefur ver-
ið fastur gestur á síðum enskra
blaða að undanförnu. Blöðin
keppast við að segja hvaða
félög hafa áhuga á SIGGI, sem
^.Jiefurtilkynnt að hann fari frá
Sheffield Wednesday eftir
þetta keppnistímabil.
Mörg félög hafa haft augastað
á Sigurði og voru Glasgow
Rangers og Nottingham Forest
ÍÞfémR
•FOLK
I GUÐMUNDUR Steinsson,
Iandsliðsmaður úr Fram er ekki
axlarbrotinn, eins og óttast var,
heldur tognaður í axlarvöðva. Hann
verður frá æfingum í nokkra daga.
H TÓMAS Guðjónsson á bestan
möguleika á að komast í aðra um-
ferð og jafnvel þriðju í einliðaleik á
heimameistaramótinu í borðtennis.
Tómas mætir Jórdaniumanni
fyrst. Ef hann vinnur hann leikur
hann gegn Líbíumanni. Kjartan
Briem leikur gegn Luxemborgar-
-rnanni, Kristján Jónsson gegn
Pólveija og Kristinn Már Emils-
son gegn Sovétmanni.
■ EGGERT Guðmundsson
knattspymumaður, stendur í marki
sænska 1. deildarfélagsins Falken-
berg á sumri komanda. Eggert var
áður hjá Halmstad og Trelleborg
en Falkenberg, sem er frá Halni-
stad, keypti hann.nýlega. Eggert,
sem alla sína tíð hefur búið í
Svíþjóð, á einn landsleik að baki
fyrir ísland — gegn Skotum í und-
ankeppni HM á Laugardalsvelli.
■ ÞAÐ verða því fjórir íslend-
ingar sem leika í suðurriðli sænsku
1. deildarinnar í sumar, Gunnar
(Síslason og Ágúst Már Jónsson
hjá Hácken og Hafþór Sveinjóns-
son með Kalmar, auk Eggerts.
fyrst nefnd, en síðan kom boð frá
Celtic upp á 400 þús. sterlingspund
og í sl. viku upp á 750 þús. pund.
Þá hafa verið fréttir um að Arsenal
hafi augastað á honum og að
George Graham, framkvæmdastjóri
Arsenal, hafi horft á leik Sheffield
Wed. gegn Millwall á Hillsborough
sl. laugardag, til að fylgjast með
Sigurði og Nigel Worthington.
I gær var Nottingham Forest
aftur komið inn í myndina og var
sagt frá því í The Sun að Brian
Clough, framkvæmdastjóri félags-
ins, vildi fá Sigurð til að taka við
hlutverki enska landsliðsmannsins
Neil Webb á miðjunni, en Webb
væri á förum til Manchester United
eða Liverpool. Einnig var sagt frá
því að Sigurður hefði mikinn hug
á að leika á meginlandi Evrópu.
Já, það er mikið rætt og ritað
um Sigurð í enskum blöðum, en
eins og svo oft áður í Englandi, þá
eru leikmennirnir sjálfir jafnvel
síðastir til að vita fréttimar.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN
„Meiðslin stöðva
mig ekki í að
leika gegn Bayern“
- segir Diego Maradona, fyrirliði Napolí
„Ég mun leika með þó svo að
meiðslin angri mig. Ég ætla
mér ekki að sitja á bekknum.
Að sjálfsögðu tek ég áhættu,"
sagði Diego Maradona, fyrirliði
Napolí, sem leikur gegn Bayern
Munchen í kvöld - í fyrri leik
liðanna í undanúrslitum
UEFA-bikarkeppninni.
aradona lék ekki með Napolí
um sl. helgi gegn Juventus,
en hann hefur átt við meiðsli að
stríða, tognaður á lærisvöðva,
síðustu vikur.
Bayern mætir til leiks með alla
sína sterkustu leikmenn, en þeir
töpuðu sínum fyrsta leik í ár í v-
þýsku deildarkeppninni sl. laugar-
dag - 1:2, gegn Mönchengladbach.
„Ég tel að áfall okkar hafí komið
á réttum tíma. Tapið mun herða
okkur upp fyrir leikinn gegn Nap-
olí,“ sagði Klaus Augenthaler, fyrir-
liði Bayem.
Stuttgart gegn Dresden
Ásgeir Sigurvinsson og félagar
hans hjá Stuttgart leika gegn Dyn-
Tyrkjum vísað frá
landamærum f Rúmeníu
Rúmenskir landamæraverðir höfðu nóg að gera í gær - við að
snúa stuðningsmönnum tyrkneska félagsins Galatasary frá
landamærum Rúmeníu og Búlgaríu. Mörg þús. stuðningsmönnum
var snúið frá - jafnvel þó þeir hafi haft miða á leik Steaua og
Galatasaiy I Búkarest, og kvittun fyrir hóteldvöl.
Tyrkir eru afar óhressir með að fá ekki að fara inn í Rúmeníu.
Galatasary fékk aðeins 1.500 miða á leikinn, en félagið hefði hæg-
lega getað selt tíu þús. miða.
Það er vel skiljanlegt að Rúmenar séu ekki hrifnir að hieypa
mörg þúsund stuðningsmönnum Galatasary inn í landið, því að
þeir eru ekki þeir rólegustu og hefur Galatasary verið dæmt í heima-
Ieikjabann vegna óláta þeirra og einnig þurft að greiða háar sekt-
ir. Síðast fyrir framkomu þeirra á „heimaieik" liðsins gegn Mónakó
í Köln.
Diego Maradona
amo Drtesden frá A-Þýskalandi í
hinum undanúrslitaleiknum - í
Stuttgart. Félögin hafa einu sinni
áður glímt við í UEFA-keppninni.
Það var 1979. Jafntefli varð í
Stuttgart, 0:0, og síðan i Dresden,
1:1.
Mikil bjartsýni er í herbúðum
Dresden og eru A-Þjóðverjar örugg-
ir með að félagið slái Stuttgart út
og komist í úrslit. „Við munum
sækja grimmt að þeim frá upphafi
til enda,“ sagði Ari Haan, þjálfari
Stuttgart, en félagið hefur skorað
flest mörk á heimavelli í vetur í
V-Þýskalandi - 29 mörk í þrettán
leikjum.
Jiirgen Klinsmann, sem meiddist
á ökkla í janúar, mun leika með
Stuttgart gegn Dynamo Dresden.
Stórleikurinn í Evrópukeppni
meistaraliða verður viðureign Real
Madrid og AC Mílanó í Madrid.
Steaua frá Búkarest tekur á móti
tyrkneska félaginu Galatasary í
hinum undanúrslitaleiknum.
I Evrópukeppni bikarhafa mæt-
ast Mechelen frá Belgíu og Samp-
doría frá Ítalíu, en í hinum leiknum
Barcelona og CSKA Sofía frá Bú-
lagríu.
■ MORTEN Olsen, fyrirliði
danska landsliðsins í knattspyrnu,
mun leika sinn 100. og jafnframt
síðasta landsleik gegn Brasilíu í
Kaupmannahöfn í júní í sumar.
Olsen, sem leikur með Köln, hefur
III gert tveggja ára samning sem þjálf-
ari hjá Bröndby. Hann sagðist í
gær hafa hug á að taka við stjóm
danska landsliðsins af Sepp Pion-
tek 1992.
■ TVEIR rúmenskir landsliðs-
menn ganga til liðs við franska
félagið Lens eftir þetta keppn-
istímabil. Þetta eru þeir Tudorel
Stoica, 32 ára fyrirliði Steaua og
félagi hans Victor Piturca, sem
er 33 ára.
■ ALEX Higgins, fyrrum
heimsmeistari í snóker, mun ekki
leika í úrslitakeppni um heims-
meistaratitilinn, sem hefct í
Sheffield 15. apríl. Higgins tap-
aði, 8:10, fyrir Darren Morgan frá
Englandi, en Morgan varð heims-
meistari áhugamanna 1987.
■ JOSEF Chovanec, fyrirliði
tékkneska landsliðsins í knatt-
spyrnu, sem leikur með Eind-
hoven,
meiddist á
æfingu og
verður ekki
með Tékk-
um gegn
Belgiu-
mönnum í
undankeppni
HM 29. apríl.
Siguröur Jónsson hefur
verlA orAaður vlA mörg
félög á Bretlandseyjum
aA undanförnu. í gær
var sagt aö Forest hef Ai
áhuga á aA fá hann.
BORÐTENNIS
Svíar heim víar tryggðu sér heimsmeist- aratitilinn í borðtennis þegar þeir unnu Kínveija, 5:9, í Dortmund smeistarar í V-Þýskalandi í gærkvöldi. íslend- ingar höfnuðu í 63. sæti eftir sigur á Palestínumönnum, 5:0.
KNATTSPYRNA / BELGIA
De Mos til Anderlecht?
Þjálfari Mechelen hefuráhuga á Anderlecht
Frá Bjarna
Markússynií
Belgiu
Aad De Mos, þjálfari Evrópu-
meistara bikarhafa, Mechelen,
hefur áhuga á að taka við liði And-
erlecht. De Mos er talinn einn besti
þjálfari heims og
mörg félög hafa
gert honum tilboð.
Lið hans er nú í
efsta sæti belgísku
deildarinnar en De Mos hefur sagt
að hann vilji fara frá félaginu.
De Mos sagði á blaðamannafundi
í gær að hann hefði hafnað tilboðum
frá franska liðinu Paris St. Germa-
in og ítölsku liðanum Atalanta og
Veróna. Þessi lið væru ekki freist-
andi en hinsvegar kæmi til greina
að taka við liði Anderlecht.
Samningxir De Mos við Mechelen
rennur út árið 1990 en hann getur
fengið sig lausan í vor, gegn því
að greiða háar bætur. „Ég kann
vel við mig hjá Mecheien en vil
heldur vera hjá Anderlecht. Mec-
helen getur ekki uppfyllt kröfur
mínar og ég tel að ég fái metnaði
mínum fullnægt hjá Anderlecht,"
sagði De Mos.
Anderlecht hefur ákveðið að eyða
miklum fjármunum til að fá góðan
þjálfara og kaupa leikmenn. Fyrsta
tilraun félagsins mistókst þó, því
danski leikmaðurinn Morten Olsen
hafnaði tilboði Anderlecht um að
gerast þjálfari og skrifaði þess í
stað undir tveggja ára samning við
Bröndby.
Ásgeir hefur skorað
fimm mörk gegn Dresden
Asgeir Sigurvinsson hefur
verið á skotskónum í leikjum
gegn Dynamo Dresden. Ásgeir
hefur skorað fimm mörk í þremur
leikjum gegn a-þýska félaginu.
Ásgeir skoraði þijú mörk fyrir
Standard Liege gegn Dresden,
4:1, í UEFA-keppninni 1981 og
þá skoraði hann tvö mörk fyrir
Stuttgart, 4:3, í vináttuleik gegn
Dresean 1984. Nú er spurningin
hvort að hann skori gegn félaginu
í undanúrslitum UEFA-bikar-
keppninnar.