Morgunblaðið - 05.04.1989, Qupperneq 44
u
V^terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
SJÓVÁ-ALMENNAR
Nýtt fólag með sterkar rætur
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
3,5% hækk-
un á dollar
Bandaríkjadollar hefur
——hækkað um 3,56% síðan gengi
krónunnar var fellt um 2,5%
fyrir tveimur mánuðum. Pund
hefur hins vegar aðeins hækkað
um 0,27% á sama tíma.
Þegar gengið var fellt 7. febrúar
sl. fékk Seðlabankinn heimild til
að skrá daglegt gengi með 2,25%
fráviki frá ákveðnu meðalgengi.
Hafa erlendir gjaldmiðlar flestir
hækkað frá þessum tíma, en mis-
mikið.
Þannig hefur þýskt mark hækk-
að um 2,4% en japanskt yen um
1,26%. SER hefur hækkað um
2,46% en ECU, evrópsk mynt, hef-
ur hækkað um 2,24%.
BHMR:
Aprílút-
borgnn
_um 50.000
ÚTBORGUÐ launagreiðsla í
apríl til félagsmanna þeirra fé-
laga Bandalags háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna, sem boð-
að hafa verkfall, var í kringum
50 þúsund krónur, að sögn Ind-
riða H. Þorlákssonar, formanns
Samninganeftidar ríkisins.
Þarna eru innifalin laun fyrir
fyrstu fimm daga mánaðarins eða
til þess dags sem verkfall hefur
verið boðað, auk yfirvinnu og ann-
arra greiðslna sem greiddar eru
eftir á en ekki fyrirfram eins og
föstu launin. Samsvarandi launa-
^greiðsla að meðaltali til félags-
manna í Hinu íslenska kennarafé-
lagi var um 53 þúsund krónur, að
sögn Indriða.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Hinu íslenska kennara-
félagi voru öll gjöld tekin af laun-
þeg^um eins og um venjulega út-
borgun væri að ræða, nema félags-
gjöld, sem tekin voru í hlutfalli af
greiddum dagvinnulaunum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Fyrsti rauðmaginn á Ægissíðunni
Björn Guðjónsson trillukarl kom með fyrsta rauðmagann að landi
á Ægissíðunni í gær. Kom hann með 96 rauðmaga og er stykkið
selt á 150 krónur. Viðskiptin voru lífleg þennan fyrsta söludag
rauðmagans hjá Birni.
Utanríkisráðherra segir forsætisráðherra hafa vitað um umfkng heræfíngaima frá 1987:
Man ekki tíl að hafa fengið að
vita um 1.000 manna æfingu
segir forsætisráðherra
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra segir að hann muni
ekki eftir að sér hafi verið sagt
frá þvi að hingað ættu að koma
1.000 hermenn vegna heræfinga
Bandarílgamanna í sumar.
Steingrímur segir hins vegar að
það sé rétt að varnarliðið haldi
því fram að honum hafi verið sagt
frá umfangi heræfinganna á
kynningarfundi á Keflavikurflug-
velli, og vera kunni að hann bresti
Utanríkisráðherra sagði frá því í
Dregur til úrslita um
skammtímasamning
Verkfall ellefii félaga BHMR hefet á miðnætti semjist ekki áður
FUNDUR Samninganefndar rikisins og formanna ellefu félaga ríkis-
starfsmanna og forsvarsmanna Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja hófst seint í gærkveldi og stóð enn þegar Morgunblaðið fór í
prentun. Taka átti upp þráðinn þar sem frá var horfið í fyrrinótt,
er þessi hópur hafnaði tilboði um 3.800 króna launahækkun samtals
til haustsins, sem mun jafngilda um 6-7% hækkun. Þá má telja líklegt
að á það reyni verulega í dag hvort möguleiki sé á samkomulagi
milli Alþýðusambands íslands, Vinnuveitendasambands íslands og
Vinnumálasambands samvinnufélaganna um kjarasamning til hausts-
ins.
Verkfall ellefu aðildarfélaga
Bandalags háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna hefst á miðnætti í
nótt, hafi samningar ekki tekist
fyrir þann tíma. í gærkvöldi fund-
uðu félögin með samninganefnd
ríkisins í fyrsta skipti í nokkra daga
-og var fundinum ekki lokið um
miðnættið. Ríkissáttasemjari tekur
ákvörðun fyrir hádegi í dag um. |
fund með aðilum eftir að hafa kann-
að stöðuna.
Þá samþykkti fulltrúaráð Kenn-
arasambands Islands á fundi í gær
áskorun til félagsmanna um að þeir
felli niður kennslu á morgun,
fimmtudag, og efni til funda um
kjaramál í skólunum.
Yfirvofandi verkfall BHMR hefur
sett pressu á viðræður BSRB við
stjórnvöld. Þar telja menn að óhæg-
ara verði um vik að semja eftir að
verkfall er skollið á og því sé brýnt
að niðurstaða fáist. Lögð er áhersla
á að auk flatrai' grunnkaupshækk-
unar setji ríkisstjórnin á verðstöðv-
un og lækki vexti. Þá er einnig
rætt um orlofsauka og hækkun elli-
lífeyris og örorkubóta.
Að loknum fundi samninga-
nefnda ASÍ og vinnuveitenda um
kvöldmatarleytið í gær var sú skoð-
un almenn að það myndi skýrast
inna tíðar hvort möguleiki væri á
samningi eða ekki. Boðaður hefur
verið fundur eftir hádegið í dag,
en klukkan níu verður gengið á
fund ríkisstjórnarinnar og henni
skýrt frá gangi viðræðna.
Sjá fréttir um áhrif verkfalls
BHMR bls. 2-3.
ræðu á Alþingi í fyrrinótt að
Steingrími hefði verið sagt frá um-
fangi heræfinganna er hann kom á
fund hjá vamarliðinu sem nýr ut-
anríkisráðherra í ágúst 1987, þar á
meðal fyrirætluðum hermannafjölda.
„Það er rétt að vamarliðið heldur
þessu fram,“ sagði Steingrímur.
„Þetta var langur fundur, og annað
hvort brestur minni mitt eða þetta
er rangt hjá fulltnía varnarliðsins."
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins em kynnisfundir fyrir ráð-
herra á borð við þann, sem um er
rætt, undirbúnir skriflega og það því
til skráð hjá vamarliðinu að sagt
hafi verið frá umfangi æfinganna.
Steingrímur segist hafa haldið að
heræfingarnar yrðu með mjög svip-
uðu sniði og verið hefði, og einnig
talið að það væri alveg sjálfsagt að
vamarliðið færi skriflega fram á leyfi
fyrir slíkum æfingum og gæfi í Ieið-
inni nákvæmar upplýsingar. „Ég
kynnti mér ekki nákvæmlega hvernig
ætti að hátta þessari æfingu, enda
kom ekki formleg tilkynning um
hana fyrr en 30. ágúst á mitt borð,“
sagði Steingrímur.
Utanríkisráðherra sagði á þingi
að upplýsingar um umfang æfing-
anna hefðu legið fyrir skriflegar frá
fundi skrifstofustjóra vamarmála-
skrifstofu með yfirmönnum Atlants-
hafsflota NATO í október 1986. „Ég
hef ekki séð neinar skriflegar skýrsl-
ur um það, og ég hef spurt Þorstein
Ingólfsson, forstöðumann vamar-
málaskrifstofunnar, hvort hann hafí
séð þær, sem hann hefur heldur ekki
gert,“ sagði Steingrímur. „Utanríkis-
ráðherra hefur sagt það sem hann
taldi sannast í þessu máli. Skrifstofu-
stjóri varnarmáladeildarinnar hefur
staðfest við mig að þetta mál hafi
ekki komið inn á mitt borð skriflega
meðan ég var utanríkisráðherra og
hann staðfesti einnig við mig að frá
þessum fundi í ágúst 1987 og þang-
að til ég hætti að vera ráðherra,
hafi hann ekki rætt þetta við mig,“
sagði Steingrímur.
Utanríkisráðherra skýrði frá því í
ræðu sinni að hann hefði látið forsæt-
isráðherra hafa afrit af minnisblöð-
um sínum, þar sem hafi meðal ann-
ars komið fram upplýsingar um það,
sem gerzt hafi á tveimur áðurgreind-
um fundum. Forsætisráðherra fékk
blöðin áður en hann hélt seinni ræðu
sína, en þar endurtók hann gagnrýni
sína á Bandaríkjamenn fyrir að koma
upplýsingum um æfingamar seint til
skila.
„Ég sá þessi plögg og sagði ut-
anríkisráðherra að ég kannaðist ekki
við þetta frá þessum fundi 1987, að
þar hafi verið talað um 1.000 her-
menn,“ sagði Steingrímur. „Menn
geta svo ráðið því, hvorum þeir trúa
betur, talsmanni vamarliðsins eða
mér.“ Aðspurður sagði forsætisráð-
herra að hann hefði ekki séð ástæðu
til að minnast á það í ræðu sinni að
hann hefði fengið þessar uppiýsingar
frá utanríkisráðherra. „Það má þá
eins spyija hvaða ástæðu hann hafði
til að fara með upplýsingar, sem ég
var búinn að segja að væru ekki
réttar," sagði hann.
Sjá frásögn af umræðum á þingi
á bls. 27. og frétt á bls. 2