Morgunblaðið - 23.05.1989, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.05.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1989 13 sjúkdóma hindraðir með því að veita lækniseftirlit og meðferð auk þess að tryggja hraðan og þægilegan flutning á spítala. Það er álit mitt að það eigi að nota þyrluna meira en gert er til sjúkraflutninga á styttri vegalengd- um hér á Suður- og Vesturlandi því þar býr mikill íjöldi manna og víða er umferð þung og umferðarslys tíð. Við alvarleg slys skiptir oft sköpum að meðferð sé hafín sem fyrst og henni haldið áfram þar til komið er á sjúkrahús. Þetta á sér- staklega við ef um bijóst- og kviðar- holsáverka með miklum blæðingum er að ræða eða alvarleg höfuðhögg. í þessum stuttu sjúkraflugum er viðbragðstími einnig styttri því nyög auðvelt er að afla upplýsinga um flugveður á leiðinni. Nauðsyn- legt er að kalla út þyrlu strax og ljóst er að alvarlegt slys hefur átt sér stað og síðan að afla nánari upplýsinga um ástand á slysstað. Það hefur oft sýnt sig að notkun þyrlunnar í nágrenni Reykjavíkur hefur stuðlað að slq'ótri læknishjálp og flutningi á sjúkrahús. Þess má geta að það tekur þyrluna 15 mín. að fljúga á Selfoss og 8 mín. á Akranes. Þó svo að stærri þyrla Land- helgisgæslunnar hafi reynst fram- úrskarandi vel, er ljóst að hún full- nægir ekki þeim kröfum sem við íslendingar verðum að gera til björgunarþyrlu. Vegna takmark- aðrar burðargetu er ekki hægt að taka um borð fleiri en 5—6 menn af skipsáhöfn, skilja yrði eftir alla umfram það. Flugdrægi þyrlunnar er um 150 sjómílur frá eldsneytis- stað miðað við að hún þurfi að vera á slysstað i 30—60 mínútur við björgun. Það nægir ekki hér við land vegna fjarlægðar fiskimiða okkar. Þyrlan er ekki búin afísing- artækjum, en ísingarhætta er óvíða meiri en einmitt hér á landi. Af ofansögðu ætti öllum að vera ljóst að við Islendingar verðum að eignast öfluga björgunarþyrlu, sem fullnægir þeim kröfum sem við verðum að gera til hennar. Vonandi tekst okkur að gera það áður en einbver atburður á sjó eða landi rekur okkur til þess. Höfiindur hefiir starfað se'm lækn- irá þyrlu Landhelgisgseslunnar sl. tvöár. HERPI- HÓLKAR HÓLKAR SEM HERPAST UTAN UM RÖRIN MEÐ ÞVÍ AÐ HITA ÞÁ. LENGIR ENDINGARTÍMA RÖRA SEM LIGGJA í JARÐVEGI. TILVALDIR T.D. Á VATNSLAGNIR ÚR VATNSÆÐUM INN í HÚS O.FL. LEITIÐ UPPLÝSINGA. ^ VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLA 21 SlMAR 686455 — 685966 33 LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673413 - 673416 verðlækkun út maí Takmarkað magn —Nú er tœkífœríð tíl að geragóð kaup - Hæðarstilling með sveif Útdiegin plata * Utdregin plata Létt hæðarstilling Kapalrennur Urval tölvu- og prentaraborða, allt á hálívirði Sænsk gæðavara á ótrúlegu verði Ath! Opið laugardaga frákl. 10-14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.