Morgunblaðið - 23.05.1989, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAI 1989
23
Sovétmenn reknir frá
Bretlandi vegna njósna
- Bretum svarað í sömu mynt í Moskvu
London. Daily Telegraph.
SOVÉSK sljórnvöld skipuðu á sunnudag átta breskum stjórnarerind-
rekum og þremur blaðamönnum að hverfa frá Sovétríkjunum innan
tveggja vikna. Með þessu voru Sovétmenn að svara breskum sljórn-
völdum, sem á föstudag ráku 11 Sovétmenn frá Bretlandi fyrir að
hafa gerst sekir um verknaði, sem „samræmdust ekki stöðu þeirra“
en þetta orðalag er venjulega notað um njósnir. Breska stjórnin
hefur sagt, að Sovétmenn hafí gripið til gagnaðgerða, sem þeir geti
alls ekki réttlætt. í gær var síðan skýrt frá því í Moskvu, að ætlun
stjórnvalda þar væri, að ekki yrðu fleiri Bretar við störf í Sovétríkj-
unum en Sovétmenn í Bretlandi sem þýðir að tæplega 200 Bretar
verða að hverfa frá Sovétríkjunum.
Þessi ágreiningur milli ríkis-
stjórna Bretlands og Sovétríkjanna
gýs upp aðeins sex vikum eftir að
Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleiðtogi,
heimsótti Bretland og ræddi þar við
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra og Elísabetu Bretadrottningu,
sem hann bauð að heimsækja Sov-
étríkin. Var þá látið í veðri vaka,
að heimsókn Gorbatsjovs væri upp-
haf nánari og vinsamlegri sam-
skipta ríkjanna.
Breska utanríkisráðuneytið
skýrði ekki frá því á föstudag, að
Sovétmönnunum 11 hefði verið
vísað frá Bretlandi, Iíklega í þeirri
von, að Sovétmenn myndu ekki
svara í sömu mynt. Hins vegar var
það breski sendiherrann í Moskvu,
Sir Rodric Braithwaite, sem skýrði
frá atburðunum á sunnudag. í hópi
beggja eru embættismenn í miðl-
ungsstöðum og þrír blaðamenn.
Bretamir starfa hjá Sunday Times,
BBC og sjónvarpsstöðinni ITN.
Bretar hafa ekki rekið Sovét-
menn úr landi síðan 1985, þegar
25 sovéskum stjómarerindrekum
og blaðamönnum var skipað að
hafa sig á brott, eftir að háttsettur
KGB-foringi, Oleg Gordievskij,
hafði gengið á hönd vestrænum
leyniþjónustum. Þegar Sovétmenn
svöraðu með brottrekstri 25 Breta,
ráku Bretar 6 Sovétmenn til við-
bótar og var 6 Bretum þá vísað frá
Moskvu.
Sir Geoffrey Howe, utanríkisráð-
herra Breta, sagði að ákvörðunin
um brottreksturinn nú hefði verið
erfíð. Samskipti þjóðanna væru góð
um þessar mundir og af þeim sökum
bæri að harma, að starfsemi Sovét-
manna á einu sviði varpaði enn
skugga á þau. Ákvörðunin hefði
verið byggð á óhrekjanlegum sönn-
unum. Breska stjómin hefði ekki
viljað að neitt áróðursbragð yrði af
málinu eða unnt yrði að skýra það
á nokkum hátt sem ögran. Utanrík-
isráðherrann hafði engin orð um
það, hvað Sovétmennimir höfðu
unnið sér til saka.
Chapman Pincher, sem hefur
sérhæft sig í rannsóknum á njósna-
starfsemi Sovétmanna, sagði að
þeir hefðu fært sig upp á skaftið á
því sviði á undanfömum áram, þrátt
fyrir opnun í stjómkerfínu heima
fyrir. Þeir Iegðu sig sérstaklega
fram um að afla upplýsinga um
tæknibúnað og nýjungar til að auð-
velda sér vopnaframleiðslu og efla
iðnað sinn. Á undanförnum mánuð-
um hafa bresk stjórnvöld oftar en
einu sinni hvatt Sovétmenn til að
draga úr njósnastarfsemi sinni á
Bretlandi.
Reuter
Jeremy Harrís, fréttamaður BBC
í Moskvu, á skrifstofú sinni i
Moskvu skömmu eftir að honum,
tveimur öðrum fréttamönnum og
átta stjómarerindrekum hefði
verið vísað úr landi.
Grænland:
Samstarf við Quebec-Inúíta
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKA landstjórnin
vinnur nú að gerð samstarfs-
samnings við Quebec-fylki í
Kanada. Markmiðið með samn-
ingnum er að stofíia til náinnar
samvinnu þessara aðila á sviði
físksölu, menningarmála og
námarekstrar.
Raymond Savoie, sem fer með
málefni frumbyggja á vegum fylk-
isstjómarinnar í Quebec, er stadd-
ur í Grænlandi um þessar mundir,
og segir Jonathan Motzfeldt, for-
maður landstjómarinnar, að samn-
ingurinn sé í burðarliðnum. í norð-
anverðu Quebec-fylki er fjölmenn
Inúítabyggð í 14 bæjarfélögum.
Motzfeldt sagði í viðtali við
grænlenska útvarpið, að hann von-
aðist til, að Grænlendingar gætu
lært námarekstur af ættbræðram
sínum í Quebec. Motzfeldt hefur
verið boðið þangað í haust til að
kynna sér þessa atvinnugrein.
Samstarfið á einnig að taka til
menntamála, þar sem Grænlend-
ingar era á undan Quebec-Inúítum,
og menningarmála, þar sem stefnt
er að gagnkvæmum heimsóknum
listamanna o.fl.
í Grænlandi er einnig gestkom-
andi Tikuli Kleist, sem er formaður
„þings" Inúítabæjanna 14. Hann
er Grænlendingur, en fluttist til
Quebec fyrir 15 áram. Hann segir,
að Inúkar í Quebec vilji kaupa sjáv-
arafurðir frá Grænlandi, og hefur
átt framkvæði að því að koma á
viðskiptatengslum milli þessara
aðila.
í aprílmánuði síðastliðnum skrif-
aði grænlenska landstjómin undir
samstarfssamning við Inúíta á Al-
askasvæðinu, og svipaði honum til
þess, sem nú er að fæðast. Áætlan-
ir hafa verið gerðar um að koma
á sameiginlegu Inúíta-ritmáli, sem
grandvallist á grænlensku og nái
til alls Inúíta-svæðisins í Kanada
og Alaska.
S.IONVARPŒ) MEÐ FORYSTU
- enda miðill allra landsmanna.
Sjónvarpsnotkun um landið allt, miðvikudaginn 17. maí.
Athyglisverðar upplýsingar fyrir auglýsendur!
% ■iilaiRúv
Dagana 17.-18. maí kannaði SKÁÍS
sjónvarpsnotkun um landið allt. Mæld
voru sex 30 mínútna tímabil hvorn
dag. Eins og þetta dæmi ber með sér
nýtur Sjónvarpið yfirburðavinsælda.
SJONVARPIÐ
ekkert rugl:
.ms8?ftn?8'30