Morgunblaðið - 23.05.1989, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1989
Tónlistarskóli EyjaQarðar:
Færðar út kvíarnar
á næsta skólaári
FYRSTA starfsán Tonlistarskola Ejrjaqarðar lauk fyrir skömmu, en
aðsókn að skólanum var mjög góð í vetur. Um 200 nemendur voru
skráðir í skólann. Allir nemendur voru á grunnskólaaldri og fór
aðsóknin upp í um 60% í einum grunnskólanna.
Kennt var á flest blásturshljóð-
færi, píanó, orgel, gítar og slag-
verk, en auk þess störfuðu forskóla-
deildir á öllum þeim stöðum sem
kennt var á, en þeir voru sex, Þela-
merkurskóli, Hrafnagilsskóli, Sól-
garður, Laugarlandsskóli, Barna-
skólinn á Svalbarðseyri og á
Grenivík.
Starfsemi skólans Iauk með
þrennum vortónleikum, þar sem
flestir nemendur skólans komu
fram og lúðrasveit skólans lék á
öllum tónleikunum.
í fréttatilkynningu frá skólanum
kemur fram að eftir góða byrjun
sé ætlunin að færa út kvíamar,
bæði með því að fjölga námsgrein-
um og að bjóða fullorðnum upp á
kennslu. Bætt verður við söng-
kennslu, fiðlu- og harmonikku-
kennslu. Fimm kennarar störfuðu
við skólann í vetur auk skólastjóra,
Atla Guðlaugssonar, en á næsta
skólaári er búist við að þeim fjölgi
nokkuð miðað við þann fjölda nem-
enda sem þegar hefur skráð sig í
nám.
Lögreglan:
I nógu að snúast
LÖGREGLAN á Akureyri hafði í ýmsu að snúast um helgina. Tvö
umferðarslys urðu aðfaranótt laugardags og eitt á sunnudagsmorg-
un. Þá voru níu kærðir fyrir að
A sunnudagsmorgun ók maður á
ljósastaur ofarlega í Þómnnar-
stræti. Hlaut hann höfuðhögg og
kvartaði um eymsli í hálsi og baki.
Bíllinn skemmdist töluvert. Að-
Í-Hranótt laugardags urðu ryskingar
milli tveggja manna í Kjallaranum
og tveir menn fundu sig knúna til
slagsmála í miðbæ Akureyrar.
Brotnaði kjálki annars þeirra og
kærði hann til rannsóknarlögreglu.
Tveir sextán ára piltar tóku bif-
reið ófrjálsri hendi og hugðust fara
sveitaferð. Sú fór öðmvísi en ætlað
var og lenti bíllinn utanvegar og
:a of hratt.
skemmdist mikið, en piltarnir
sluppu með skrekkinn. Þá var einn-
ig ekið á ljósastaur við Drottningar-
braut aðfaranótt laugardags og er
ökumaður granaður um ölvun við
akstur.
Lögreglan á Akureyri kærði níu
ökumenn fyrir of hraðan akstur um
helgina og sagði varðstjóri lögregl-
unnar mikið um hraðaakstur þessa
dagana. Hann sagði að fljótlega
yrði farið að hnippa í þá ökumenn
sem enn keyrðu um götur á negld-
um hjólbörðum, þar sem nú mætti
gera ráð fyrir að vorið væri komið
og þeirra ekki þörf lengur.
Embættismenn JC-hreyfingarinnar á landsþinginu á Akureyri. Morgunbiaðið/RunarÞor
Landsþingi JC-íslands lokið á Akureyri:
Þorsteinn Fr. Sigurðs-
son nýr landsforseti
LANDSÞING JC-íslands er ný-
lokið Akureyri og voru þátttak-
endur um 200, en 21 aðildarfé-
lag myndar JC-ísland og eru
félagsmenn um 600. Þingið var
sett í Akureyrarkirlyu og með-
al gesta var Sigfús Jónsson
bæjarstjóri.
Kjörorð þingsins var „JC bætir
byggðarlagið", en í gegnum tíðina
hafa JC-félögin unnið mikið að
byggðarlagsverkefnum. Sigurður
J. Sigurðsson bæjarfulltrúi flutti
erindi um lq'örorð þingsins. Sam-
þykkt var að halda áfram vinnu
við landsverkefnið „Maðurinn og
umhverfið" sem unnið hefur verið
að um eins árs skeið.
JC-dagurinn verður 28. október
næstkomandi og er kjörorð hans
„Búum bömum betri framtíð“.
Alþjóðlegur JC-dagur verður 11.
desember og verður hreyfingin
þá kynnt.
Ný landsstjóm tók við á þinginu
og er landsforseti JC-íslands fyrir
starfsárið 1989—90 Þorsteinn Fr.
Sigurðsson, JC-Reykjavík. Guðni
Þór Jónsson var gerður að al-
mannatengslafulltrúa.
Leikári LA lýkur í kvöld:
Liðlega tíu þúsund manns
komu í leikhúsið í vetur
félags Akureyrar að veður og færð
hafi mjög spillt fyrir aðsókn að sýn-
ingunni, en fjölmargir hópar hafi
orðið að afpanta miða á sýninguna
vegna ófærðar til bæjarins. Síðasta
verk leikársins, Sólarferð verður
sýnt í fimmtánda og síðasta sinn í
kvöld og þar með lýkur leikárinu.
Auk áður taldra verka stóð Leik-
félag Akureyrar fyrir leiklestri úr
verkum Kaj Munk og var hinn
fyrsti á kirkjulistaviku á Akureyri,
en síðan var farið til Húsavíkur,
Ólafsfjarðar, Sigluljarðar og Sauð-
árkróks og sagði Sunna að hvar-
vetna hefði félaginu verið vel tekið.
„Við hlökkum til næsta leikárs
og horfum bjÖrtum augum til framt-
íðarinnar," sagði Sunna.
130 án atvinnu
UM SÍÐUSTU mánaðamót voru
130 skráðir atvinnulausir á Akur-
eyri, 60 konur og 70 karlar. A
sama tíma fyrir ári voru 50 á
atvinnuleysisskrá.
Fjöldi atvinnuleysisdaga svarar
til þess að 110 hafi verið atvinnu-
lausir allan mánuðinn. Gefin vom
út 322 atvinnuleysisbótavottorð í
apríl með samtals 2.545 heilum
bótadögum.
Atvinnuástandið hefur heldur
skánað á milli mánaðamóta, en 166
voru á atvinnuleysisskrá mánaða-
mótin mars-apríl móti 130 um þau
síðustu. Sigrún Bjömsdóttir hjá
Vinnumiðlunarskrifstofu Akur-
eyrar sagði að þó væri atvinnuleysi
nokkuð mikið miðað við árstíma.
Hún sagði að undanfarið hefði
skólafólk mikið hringt á skrifstof-
una í leit að vinnu, en hún taldi að
nemar hefðu farið fyrr af stað í
atvinnuleit nú en oft áður vegna
verkfallsins.
LEIKÁRI Leikfélags Akureyrar
lýkur í kvöld, þriðjudagskvöld
með fimmtándu sýningunni á
Sólarferð eftir Guðmund Steins-
son. Alls komu liðlega 10.000
áhorfendur á 68 sýningar í Sam-
komuhúsinu, en auk þeirra stóð
Leikfélagið fyrir leiklestri úr
verkum Kaj Munk víðsvegar um
Norðurland.
FJÓRAR NÝJAR BÆKUR!
- ÁSKRIFTASÍMI 96-24966 -
Fyrsta verk LA, Skjaldbaka
kemst þangað líka var sýnt sex
sinnum á Akureyri, en að sýningum
loknum var farið með verkið suður
og það sýnt sex sinnum í Þjóðleik-
húsinu. „Strákskrattinn“ Emil í
Kattholti átti hug og hjörtu yngri
kynslóðarinnar, en leikritið var sýnt
á tuttugu og átta sýningum og sáu
það tæplega 6000 manns.
Hver er hræddur við Virginu
Wolf var sýnt þrettán sinnum og
sagði Sunna Borg formaður Leik-
Til sölu
er grunnur að þessu húsi við Aðalstræti á Akureyri.
Upplýsingar í síma 96-22006 á kvöldin.