Morgunblaðið - 04.06.1989, Síða 8

Morgunblaðið - 04.06.1989, Síða 8
e □ 8 C .5®®/.nUAHUOAglMHUa GlQAiaKIIOHOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1989 Gvendur Eyja ÆVINTYRAMAÐUR EN ÆVINLEGA í GÓÐU SKAPI Ljósmynd/Gísli Friðrik Johnsen Gvendur Eyja sautján ára á síld með Guðmundi Vigfússyni á Voninni VE. Morgunblaðið/Árni Johnsen ég ekki ráðið. Þetta situr víst eins fast í manni og sjómennskan. Fimmtán ára byijaði ég til sjós árið 1945, fór á síld á tvílembing- unum Gretti og Fylki frá Stykkis- hólmi. Það reyndist hins vegar fyrsta síldarleysisárið í gamla daga, en ég sneri aftur heim til Eyja og réðst á Gísla J. Johnsen með Klömbru-Jóni. Mikið var það ljúfur kali, hugsaði um mig eins og ég væri sonur hans. Um vorið var ég með Guðmundi Vigfússyni á Voninni í 20 daga og þénaði með honum 2.000 kr. meira en ég hafði þénað alla vertíðina á Gísla. Þetta voru miklir peningar, brennivínsflaskan kostaði 45 kr. þá. Um haustið var ekkert að gera eins og oft á þeim árum í Eyjum. Ég sé þá að Helgafellið liggur inni og fer að leita að skipstjóranum, Þorsteini Einarssyni. Hann hafði þá skvett eitthvað í sig og var í heimsókn hjá Guðlaugi Gíslasyni sem sá um útgerðina. Þangað fór ég og bankaði upp. Ég bar upp erindið, en Steini sagðist ekkert ráða neina helvítis strákavillinga, hann hefði nóg af þeim. „Þú ræður strákinn, það er ekkert með það,“ Hvers son er hann Gvend- ur Eyja eiga bestu vinir hans til með að spyrja, því Gvendur Eyja er eyland út af fyrir sig, ein af þessum alþjóðlegu persónum sem gnæfa upp úr hvar í álfú sem er. Hann er Guðlaugsson, Vestmann- eyingur, en hefúr andskot- ast um allar jarðir og sótt sjávarafla I heimshöfín til allra átta jarðarkringlunn- ar, búið á Græplandi, í Nígeríu, Brasilíu, Bergen, fískað á Persaflóa og La- brador og allt þar á milli og unnið við olíulindirnar í Sameinuðu fúrstadæmun- um. En nú er hann fluttur heim til íslands og hefúr meðal annars annast bensín- afgreiðslu um sinn. Hann hefúr spannað sviðið allt, unnið að dælingu úr olíu- lindunum og síðasta stigið er að koma dreitlinum á bílana. Gvendur Eyja verður ekki tálgaður til og ekki rit- skoðaður. Hann er eins og hann er, blanda af harð- skeyttum skipstjóra og ótrú- lega hlýrri manneslgu. ,J$álfrœbinpurinn sem rrTip ÁRNA JOHNSEN átti vid mig lenti á Kleppi u Rispa með Gvendi Eyja skipstjóra og ílakkara um heimshöfin Yndislegt líf, þrátt fyrir fáar kirkjuferðir „Nei, ég hef einu sinni gengið í hjónaband, en ég hef búið með fjórum konum og ástæðan fyrir því að þær eru svona fáar er sú að ég komst ekki á gelgjuskeiðið fyrr en um fimmtugt. Blessaður ég ætla að biðja þig að hafa þetta ekki leiðinlegt, ekkert helvítis sléttlendi eða feluleik. Það á ekki við mig. Einu sinni las ég ævisögu Við olíuborpallana í Persaflóa. Togarinn sem Gvend- ur Eyja stjórnaði á Grænlandsmiðum. um vin minn sem ég vissi að átti fjögur börn framhjá í Amsterdam, en í ævisögunni komst Íýsing hans í þeim efnum lengst frá trú- mennsku við eiginkonuna þegar hann lýsti kaffidrykkju og kleinu- áti óvænt hjá konu í Vesturbæn- um.“ Það er Gvendur Eyja sem hefur orðið, skipstjóri á höfum heimsins, ísbijótur í næturklúbb- um heimsins, maður sem hefur lif- að tímana tvenna til sjós og lands og alltaf komið til dyranna eins og hann er klæddur. Hann er sögu- maður og það eru til margar sögur af honum; en húmorismi og skip- stjórn eru hans sérgreinar, enda segist hann hafa lifað góðu og yndislegu lífi þótt hann hafi ekki farið í kirkju á hveijum sunnudegi. „Þetta voru miklir peningar, brennivíns- flaskan kostaði 45 kr. þá“ „Veistu Árni minn, ég sé ekkert eftir árunum sem ég drakk, ekki spor, en ég sé eftir því að hafa reykt. Ég er búinn að fara í nálar- stunguaðferð, til dávalds og sál- fræðings og allan andskotann, en ekkert hefur virkað og ég held að sálfræðingurinn sem átti við mig hafi lent á Kleppi út úr þessu. Þetta er ljóta helvítið. Nú hef ég hins vegar engan áhuga á drykkj- unni lengur, hef varla orðið fullur í fimmtán ár, en við reykinn hef í sex ár bjó Gvendur Eyja í Brasilíu. Sambýliskona hans er lengst til hægri, tengdamóðirin fyrir miðju. sagði Silla kona Guðlaugs og það stóð, en Steini sagði að ég yrði að hætta eftir túrinn ef þetta gengi ekki. Það var aldrei minnst á það meira. Ég fór síðan á ýmsa aðra togara, en skellti mér síðan í Stýri- mannaskólann 1952. Þá var radar- inn að koma til sögunnar og ég var í fyrsta tímanum sem kennt var á radar hérlendis. Mikilfeng- legu ljósaborði hafði verið komið upp með kortum_á, en ljósin voru undir glerplötu. Ég var síðastur í röðinni að kortunum, en brá hins vegar á það ráð að setjast upp á borðið. Það var svo spennandi að rýna í kortin að ég hef eitthvað farið óvarlega, því skyndilega gossaði ég niður umglerborðið fína og allt fór í mask. Eg fór til Frið- riks skólastjóra og sagði honum af þessu. „Héldu þeir að þetta væri óbijótandi," sagði Friðrik og málið var útrætt, en framvegis fengu allir aðvörun um að setjast ekki upp á glerborðið eins og Gvendur Eyja hefði gert. Ég lauk Stýrimannaskólanum 1953 og fór á ísólf fyrir austan og síðan á Austfirðing með Þórði Sigurðs- syni. Það var á þessum árum sem ég hlaut viðurnefnið Gvendur Eyja og öðru gegni ég varla þótt ég sé Guðlaugsson. Þetta kom nú óvenju sakleysislega til miðað við mig, því við vorum nokkuð margir Gvendar á Óla Garða hjá Haraldi Þórðar- syni, en hann spurði mig hvort ekki mætti kalla mig Gvend Eyja til aðgreiningar hinum af því að ég var frá Vestmannaeyjum. Ég hélt nú það og jþað hefur gilt til sjós og lands. Eg var átta ár á Áustfirðingi, en mest hef ég verið á togurum og mikið með sömu skipstjórunum. Heima í Eyjum var ég mest með Gauja á Landamótum og Júlla á Skjaldbreið og einu sinni var ég kokkur hjá Bjarnhéðni Elíassyni. „Helvítis djöfullinn sjálf- ur,“ sagði Bjarnhéðinn þar sem ég hitti hann niður við höfn, „ég kemst ekki á sjó, mig vantar kökk.“ „Ég kem bara kokkur til þín,“ sagði ég um hæl og hann tók mig á orðinu þótt ég meinti ekkert með þessu. Eg slapp hins vegar ekki og var kokkur hjá honum í þijá mánuði. „Hann Bjarnhéðinn er orðinn svo matvandur eftir að þú komst um borð,“ sagði Ingi- björg kona Bjarnhéðins við mig. Það þótti mér skemmtilegt og mátti skilja á ýmsa vegu.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.