Morgunblaðið - 04.06.1989, Page 33

Morgunblaðið - 04.06.1989, Page 33
C <33 „MpRfiU^BþAÐIÐ; ?y^NXJDAff yfi, 4 „ JÚNÍ; ,1-^89 kofa í garði fangelsisins. Hins vegar segir Abdallah Melaouh, sjúkraliði frá Túnis, sem gætti Hess síðustu fimm æviár hans, að hann hafi ver- ið of veikburða til að svipta sig lífí. Melaouh kom á vettvang 40 mínútum eftir að Hess lézt og að hans sögn stóðu tveir menn í banda- rískum einkennisbúningum hjá líkinu, en hann þekkti þá ekki. „Hendur hans voru lamaðar af liða- gigt,“ sagði Melaouh í fréttaþættin- um Newsnight í BBC í vetur. „ Hann gat ekki hnýtt skóþveng sinn, hvað þá lyft höndunum nógu hátt til að fyrirfara sér. Ég vissi hvað hann var fær um. Ég var hjá honum dag og nótt. Þetta er allt tómt bull. Þeir myrtu hann.“ Melaouh sagði að rafmagnssnúr- an hefði verið á sínum stað og tengt lampa við innstungu á veggnum. Líkið hefði verið langt frá glugg- anum og sjá hefði mátt merki þess að komið hefði til ryskinga. „Ég fékk það á tilfinninguna að þeir vildu ekki að ég vissi of mikið um það sem hafði gerzt,“ sagði hann. Ilse og Wolf-Rúdiger Hess sögðu í þættinum í BBC að yfirvöld hefðu sagt að rafmagnssnúrunni — helzta sönnunargagninu — hefði verið eytt með eldi. Lögfræðingur ijölskyld- unnar, Alfred Seidl, sagði að ef í ljós kæmi að snúran hefði verið eyði- lögð án þess að ijósmyndir hefðu verið teknar af henni „mundi það staðfesta þá bjargföstu skoðun mína að hann hafi verið myrtur". Á líkinu fannst stutt orðsending frá Hess um að hann hygðist fyrir- fara sér. Frú Hess og sonur hennar telja sig hafa sannanir fyrir því að miðinn hafi verið falsaður. Fjölskylda Hess kvartaði yfir því að sólarhringur leið frá því hann lézt þar til henni var tilkynnt um dauða hans. Fyrst var sagt að hann hefði látizt í brezka hersjúkrahúsinu í Berlín eftir misheppnaðar lífgun- artilraunir, en síðan var það dregið til baka og tilkynnt að hann hefði látizt í sumarskálanum. Síðan leið Fanginn í Spandau: einkennileg framkoma. Hitler, Göbbels og Hess (1934): átti Himmler að taka við af „Foringjanum“? ist fyrir því árum saman að honum yrði sleppt og sakaði Bandamenn um grimmd. Vesturveldin hvöttu margoft til þess að hann yrði látinn laus, en Rússar beittu neitunarvaldi gegn því. Rússar vildu að hann bæri beinin í fangelsinu, þar sem hann var einn elzti baráttufélagi Hitlers og tákn nazismans, sem þeir höfðu sigrað. Blöð, sem Hess fékk að lesa í fangelsinu, voru ritskoðuð, svo að hann sæi ekkert á prenti um nazismann, og hann fékk ekki að horfa á sjónvarpsþætti, þar sem nazistar komu við sögu. Hugh Thomas lýsti því yfír þegar gíðari bók hans, A Tale of Two Murders, kom út í fyrra að „Hess“ hefði verið myrtur til að koma í veg fyrir að hann yrði látinn laus. Thom- as sagði að Bretar hefðu óttazt að Rússar væru komnir á fremsta hlunn með að samþykkja að „fanga nr. 7“ yrði sleppt og að hann mundi segja frá viðkvæmum upplýsingum um samsæri í stríðinu um að steypa Winston Churchill af stóli! Samkvæmt kenningum Hughs Spandau (Bandaríkjamenn og Rússar hafa vaktaskipti): einn fangi í 24 ár og gæzlan kostaði 100 pund ámínútu. sólarhringur þar til tilkynnt var að Hess hefði kyrkt sig með rafmagns- snúrunni og enn leið nokkur tími þar til skýrt var frá því að „sjálfs- morðsorðsending" hefði fundizt í vasa hans. Á sínum tíma var líklegásta skýr- ingin á þessum ruglingi talin sú að hernámsveldin fjögur hafí ekki getað komið sér saman um sameiginlega tilkynningu um atburðarásina. Rúss- ar munu hafa viljað forðast að sagt yrði frá því að Hess hefði ráðið sér bana til að koma í veg fyrir að hann yrði píslarvottur hægriöfgamanna. Blettir á hálsinum Þar sem Spandau er á brezka hernámssvæðinu í Berlín höfðu Bret- ar veg og vanda af hinni opinberu krufningu á líki Hess og læknir frá háskólanum í London, James Camer- on, sá um hana. Onnur krufning fór fram fjórum dögum síðar að ósk Wolf-Rúdigers Hess, og kunnur, vestur-þýzkur meinafræðingur, próf. Wolfgang Spann, annaðist hana. Spann taldi sig sjá lóðrétta bletti aftan á hálsi Hess og kvað þá hinn raunverulegi Hess var klæddur þegar hann fór í flugferð sína frá Ágsborg. Thomas telur að þögn fangans í stríðsglæparéttarhöldun- um hafi verið einkennileg, en segir kenningu sína skýra af hverju hann reyndi ekki að bera hönd fyrir höfuð sér og hvers vegna hann tók sjaldan þátt í samræðum Albert Speer og annarra fanga í Spandau á árunum fyrir 1963, þegar hann varð einn eftir í fangelsinu. í þau fáu skipti, sem hann hitti samfanga sína, hafði hann ekkert til málanna að leggja. Hann þóttist þjást af minnisleysi og neitaði að ræða fortíð sína — en raunar var honum stranglega bann- að það. Frú Ilse Hess sagði Hugh Thomas 1978 að hún hefði aldrei efazt um að fanginn í Spandau væri eigin- maður hennar. Kostnaðurinn við að gæta Hess í Spandau var sagður nema 100 pundum á mínútu. „Samsæri gegn Churchill“ Sonur Hess, Wolf-Rúdiger, barð- virðast tengsl hafa verið milli ráðabruggs Himmlers um að taka við af Hitler og semja sérfrið við Englendinga fyrir innrásina í Sovétríkin og meints samsæris gegn Churchill. „Tvífarinn", sem hann segir að hafi verið sendur til Skot- lands í stað „hins raunverulega Hess“, hafi verið eins konar tengilið- ur samsærismanna í Englandi og Þýzkalandi. „Þeir hafa lengi skýlt sér á bak við neitunarvaldið með góðum árangri,“ sagði Thomas um brezka ráðamenn. „Ástæðan . . . er einfald- lega sú að þeir vilja hlífa mannorði háttsettra manna í stjómkerfínu." Lítið hefur verið um viðbrögð við þessum og öðrum furðulegum stað- hæfingum Hughs Thomas í Bret- landi og lítið hefur verið fjallað um þær í brezkum blöðum. Morð eða sjálfsmorð? Samkvæmt tilkynningu brezkra heryfírvalda í Berlín um dauða Hess í Spandau í ágúst 1987 hengdi hann sig í rafmagnssnúru, sem var fest í rimla í glugga eða gluggalæsingu í sýna að hann hefði verið kyrktur og sagði að ólíklegt væri að hann hefði hengt sig. „Það heyrir til algerra undantekn- inga að menn kyrki sig,“ sagði Spann í Newsnight, „því að um leið og kraftamir eru farnir að þverra og þeir missa meðvitund sleppa þeir takinu. Þetta hefði verið nánast ógerningur með snúru, því að hún rennur til og losnar . .. Ef til vill kom hönd einhvers þriðja manns við sögu.“ I skýrslunni um hina opinbem krufningu var ekki minnzt á bletti á hálsi Hess og engar ljósmyndir teknar. Spann tók hins vegar ljósr myndir af blettunum og lýsti þeim í skýrslunni um krufningu sína. Eftir þáttinn í BBC gagnrýndi kunnur, brezkur réttarlæknisfræð- ingur, próf. David Bowen, hina opin- bem kmfningu í samtali við The Guardian. Hann sagði að blettimir á hálsi Hess væm „allt öðm vísi en ummerki eftir hengingu“. Bowen sagði að verið gæti að Hess hefði látizt vegna „mjög ódæmigerðrar hengingar", til dæmis vegna þess að hann hefði dottið af stól. I skýrslu Camerons væri hins vegar minnzt á mar, sem menn fengju varla eftir fall úr lítilli hæð. „Vera má að um mjög óvenjulegt sjálfsmorð, kyrkingu, hafi verið að ræða,“ sagði Bowen. „Einnig getur verið að þetta hafí verið verk utanað- komandi aðila [vitorðsmanns].“ Hann sagði að Cameron hefði ekki gert út um málið með skýrslu sinni. Málið kannað Hugh Thomas hafði gert grein fyrir flestu því sem kom fram í Newsnight í A Tale of Two Murders í fyrra. Hann birti m.a. myndir Spanns af líkinu og sagði í tilefni af því að bókin kom út: „Enginn sem sér þær getur sagt að þetta hafí ekki verið morð... Blettirnir á líkinu eru ekki ör, sem búast mátti við að finna á manni, sem særðist eins og Hess í fyrra stríði . .. Við báðar krufningamar sáust greinilega merki þess að morð hafði verið fram- ið. Enginn hefur talað um sjálfsmorð nema yfirmaður brezka setuliðsins í Berlín.“ Um leið sakaði Thomas brezku stjómina um yfirhylmingu. Starfsmenn Scotland Yard ræddu við Hugh Thomas um bók hans og í vetur ákvað ákæruvaldið í Bret- landi að kanna þann möguleika að Hess hefði verið myrtur. Lögfræð- ingum brezka ríkissaksóknarans var falið að kanna ásakanir hans og háttsettum manni hjá Scotland Yard, Howard Jones, var afhent skýrsla próf. Spanns og falið að kynna sér morðkenninguna. Hins vegar var þvf neitað að form- leg rannsókn færi fram. „Við emm aðeins að kynna okkur bókina og ásakanimar,“ sagði talsmaður brezku stjórnarinnar. Hann bætti því við að lögreglan kynni að verða beðin um að rannsaka ásakanirnar, ef þær væm á rökum reistar. Éftir sjónvarpsþáttinn hafði The Guardian eftir „kunnugum heimild- armönnum" að stjómin héldi mikil- vægum upplýsingum um kringum- stæður dauða Hess leyndum fyrir lögreglunni. Blaðið sagði að stjómin hefði meðal annars neitað að af- henda skýrslu rannsóknardeildar hersins um dauða Hess. Þar er með- al annars að finna greinargerð, sem meinafræðingur hersins samdi eftir að Hugh Thomas gaf út fyrri bók sína 1979. Þar er trúlega m.a. fjall-. að um örin á Hess, sem séra Gabel segir að hafí fundizt eftir mikla leit. Heimildarmenn The Guardians sögðu að einnig hefði verið komið í veg fyrir að Howard Jones fengi að skoða skjöl brezka utanríkisráðu- neytisins um „friðarferð" Hess til Bretlands 1941. Alger leynd hefur hvílt yfír þeim gögnum alla tíð, en rannsókn á þeim gæti m.a. skorið úr um hvort flugmaðurinn, sem kom til Skotlands 1941, hafí verið Hess eða tvífari hans og hvert erindið hafí verið í raun og vem. Getum hefur verið leitt að því að skjölunum sé haldið leyndum af tillitssemi við hertogann af Windsor, sem var um skeið Játvarður konungur VIII og stóð í sambandi við nazista. Hvað sem hæft er í ásökunum Hughs Thomas virðist fátt benda til þess I að málið verði upplýst í bráð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.