Morgunblaðið - 22.06.1989, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.06.1989, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989 „Mér leist ekkert á þetta framan af ‘ - segir Gísli Árnason, sem bjargaði sjö ára stúlku frá drukknun „MÉR LEIST nú ekkert á þetta framan af, ég var búinn að blása líklega 15 til 20 sinnum í hana þegar ég sá að hún fór að bera sig til við að anda,“ sagði Gísli Amason, lögreglumaður frá Isafírði. Hann bjargaði sjö ára stúlku, Lilju Rún Ágústsdóttur, frá dmkknun í sundlauginni á Akranesi í fyrradag. Lilja Rún var flutt á sjúkra; húsið á Akranesi og þaðan á Barnaspítala Hringsins í Reykjavík. I gærkvöldi var orðið ljóst að hún næði sér til fiills, að sögn móður hennar. „Það var þannig að böm í laug- inni kölluðu að stúlka lægi á botnin- um. Ég stóð þá strax upp og sá að þetta reyndist rétt, það já þarna einhver í miðri lauginni. Ég henti mér út í og náði baminu upp,“ sagði Gísli. I sömu svifum og Lilja Rún byij- aði að anda aftur kom sjúkrabíll á staðinn. Stúlkan var enn meðvit- undarlaus þegar hún var flutt á brott. Stefanía Emma Agnarsdóttir, móðir Lilju, segir að fjölskyldan hafí skroppið í sund úr sumarbú- stað í nágrenninu, en þau em úr Reykjavík. „Ég var að synda og bömin sátu í gmnnu lauginni. Allt í einu leit ég við og sá að hún var þar ekki. Um leið sá ég að maður- inn var kominn með hana upp, máttlausa.“ Stefanía taldi líklegast að Lilja Rún hafi verið komin of langt í átt að dýpri enda laugarinn- ar og ekki náð til botns, með þess- um afleiðingum. Stefanía segir að fyrsta sólar- hringinn hafi ekki verið ljóst hvort Lilja Rún hlyti varanlegan skaða af óhappinu. „Það vissi enginn hve lengi hún var búin að liggja þama. Núna er hún öll að koma til og er eins og hún á að sér að vera,“ sagði Stefanía Agnarsdóttir í gærkvöldi. £■' / j • sp? Morgunblaðið/Bjami Lilja Rún með móður sínni, Stefaníu, og systkinum, Onnu Karen og Davíð Má. Fasteignamat allra fasteigna 530 milljarðar FASTEIGNAMAT allra fast- eigna á landinu var tæplega 530 milljarðar króna um síðustu ára- mót. Það hafði hækkað að jafhaði um 28,4% frá árinu á undan. Fasteignamat er hlutfallslega mun hærra á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Alls er rúmmál mannvirkja um 78,6 milljónir rúm- metra, samkvæmt fasteignaskrá sem tók gildi 1. desember. Þar af em um 26 milljónir rúmmetra í Reykjavík, eða um 33%. Fasteignamat þessara mannvirkja var um 245 milljarðar eða rúmlega 46% af heildinni. Mannvirki á Reykjanesi vom rúm- lega 15 milljónir rúmmetra að stærð eða rúmlega 19% af heild. Fasteigna- matið var 128 milljarðar króna, eða um 24% af heildinni. Samanlagt em mannvirki í Reykjavík og á Reykjanesi 41 milljón rúmmetra að stærð, eða 52% af heild- inni. Samanlagt fasteignamat er 372 milljarðar króna eða yfir 70% af heild. Matseiningar á öllu landinu em tæplega 203 þúsund en samanlagður fyöldi þeirra í Reykjavík og á Reylqa- nesi er um 90 þúsund eða rúmlega 44%. Mótmæli á Keflavíkurflugvelli Keflavík. Um 60 manns mótmæltu æfingum bandarísks varaliðs utan vamargirðingar við Keflavikurflugvöll í gærkvöldi. Aðgerðimar hófust við Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en þaðan gekk fólkið að tollhliði við afgreiðslu Flugleiða með mótmælaborða og íslenska fánann. Síðan hélt fólkið að „Rockville-stöðinni“ skammt frá Sand- gerði og skipti sér í tvo hópa. Er kom að girðingunni við stöðina klifruðu nokkrir mótmælenda yfir girðinguna og kom þá til rysk- inga við lögreglumenn. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli var með talsverðan viðbúnað og fékk til liðs við sig tollverði og lögreglu- menn úr Keflavík. -BB Verkalýðsfélög á Suðurnesjum: Söluskattsmál Þýzk-íslenska: Deilt um greiðslur í sjúkra- og orlofesjóði Verkalýðsfélögin í Garði, Grindavík og Sandgerði annars vegar, og í Keflavík hins vegar, deila nú um skiptingu greiðslna í sjúkra- og orlofssjóði félaganna. Um er að ræða gjöld sem félögunum em greidd af vinnu félagsmanna og utanfélagsmanna sem vinna á Keflavíkurflug- velli, sameiginlegu vinnusvæði allra félaganna. Fyrstnefiidu félögin telja sig vera hlunnfarin af Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og vísa þar til samkomulags frá 1969 um skiptingu greiðslnanna. Guðmundur Finnsson framkvæmdastjóri Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur segir málið vera á misskilningi byggt og að forsendur sam- komulagsins séu breyttar, auk þess sem það hafi aldrei verið staðfest í stjórnum félaganna. Ágreiningurinn snýst um skipt- ingu greiðslna, sem nema 1,25% af brúttólaunum allra þeirra sem vinna á Keflavíkurflugvelli. Baldur Matt- híasson formaður Verkalýðsfélags- ins í Sandgerði segir að svo virðist sem mistök hafi orðið við skipting- Alagður skattur greiddur í fógetarétti og innsigli rofið una á árunum 1980 til 1985 og hafi ekki verið leiðrétt síðan. Félögin í Sandgerði og Garði fái ekki sinn hlut og félagið í Grindavík að því er virðist enn minna af sínum hluta. Jóhannes Gunnarsson formaður Verkalýðsfélagsins í Garði segir að samkomulagið frá 1969 gangi út á það að félögin á svæðinu fái þessi gjöld fyrir sína félagsmenn og að auki fyrir alla utanfélagsmenn sem vinna á Keflavíkurflugvelli í hlut- falli við fjölda félagsmanna sinna. Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur var falið að innheimta þessi gjöld og undanfarin ár hefur Sparisjóður Keflavíkur séð um fram- kvæmd þess. Jóhannes segir að nú fái félagið í Garði einungis greiðslur fyrir 7% eigin félagsmanna. „Þetta er auðvitað nokkuö sem á ekki að geta gerst,“ segir Jóhannes. Hann segjr að viðræður við Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur hafi ekki leitt til neinnar niðurstöðu, þó hafi framkvæmdastjóri félagsins viður- kennt að það fengi of mikið í sinn hlut, en þrátt fyrir það hafi engin skýr svör borist við fyrirspumum. Félögin í Garði, Grindavík og Sandgerði hafa nú fengið lögmann sinn til að fara með málið. Lögfræð- ingur ASÍ, Lára V. Júlíusdóttir, vinn- ur einnig að lausn málsins og hefur rætt við aðila og boðað til sáttafund- ar á morgun, föstudag. Hún kvaðst í gærkvöldi vera bjartsýn á að hægt verði að leysa það í sátt. Guðmundur Finnsson, fram- kvæmdastjóri Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur, segist ekki vilja tjá sig um málið fyrr en sátta- fundur hefur verið haldinn á morg- un. Þó sagði hann að samkomulagið frá 1969 væri byggt á forsendum sem ekki eru lengur fyrir hendi, auk þess sem það hefði verið gert af þáverandi formönnum félaganna og aldrei verið lagt fyrir stjómarfundi þeirra. Hann kvaðst telja að um misskilning væri að ræða sem yrði leiðréttur. Agreiíiingnr til meðferðar í bæjarþingi ÞÝZK-íslenzka greiddi tollstjóra í gær um 8,3 milljónir króna í sölu- skatt og var innsigli sem sett hafði verið á húsakynni fyrirtækisins vegna álagðs söluskatts rofið. Lögmaður Þýzk-íslenska, Jón Steinar Gunnlaugsson, innti greiðsluna af hendi í fógetarétti eftir að fógeti, Valtýr Sigurðsson, hafði hafiiað kröfij hans um að taka til bráða- birgða, meðan fiallað væri um ágreining fyrirtækisins og tollstjóra fyrir réttinum, þá ákvörðun að tékki frá banka fyrir heildarskuld fyrir- tækisins, standi sem trygging fyrir áætlaðri söluskattsskuld og áfóllnum vöxtum og kostnaði. Fógeti taldi sig ekki haía lagalega heimild til að verða við kröfii um bráðabirgðaumráð gegn tryggingu þar sem aðeins sé deilt um lagaskilyrði gerðar en málið sé upplýst. Rafveitu hótað rekstrarstöðvun Lögmaðurinn lagði fram bókun þar sem segir að greiðslan sé innt af hendi til að aflétta ólögmætri þvingun sem fyrirtækið hafi orðið að sæta við það að húsakynni þess hafi verið innsigluð af lögreglu. Það þoli ekki þá gríðarlegu tímabundnu röskun sem leiði af því að fyrirtækið sé lokað meðan fengin sé úrlausn hlutlauss dómara um lögmæti þving- unaraðgerða tollstjóra. Sé gerður fyrirvari um endurgreiðslu þegar í stað auk dráttarvaxta. Þá er tekið fram að fyrirtækið muni gera ríkis- sjóð ábyrgan fyrir öllu því tjóni sem það hafi orðið fyrir og muni verða fyrir vegna hinnar ólögmætu vald- beitingar. í samtali vð Morgunblaðið sagði Jón Steinar Gunnlaugsson að fulltrúi tollstjóra hefði mótmælt beiðni sinni um umráð yfir fasteigninni til bráða- birgða gegn tryggingu fyrir öllum kröfum og þar með hindrað að dóms- úrlausn fengist um lögmæti aðgerð- anna. Fyrirtækið hefði orðið að greiða þar sem það hefði ekki þolað lengri lokun. Því lægi nú fyrir að höfða bæjarþingsmál til að ná pen- ingunum til baka. Ágreiningur um söluskattsskuld Þýzk-íslenzka á rætur að rekja til skattrannsóknar sem gerð var á fyr- irtækinu 1986 og sneri annars vegar að söluskatti en hins vegar að öðrum opinberum gjöldum. Fyrirtækið kærði álagningu gjaldanna til Ríkis- skattanefndar sem vísaði málinu frá með úrskurði í aprílmánuði síðast- liðnum. Aðilar leggja hvor sinn skiln- ing í þann úrskurð. Jón Steinar seg- ir að í forsendum hans felist að að álagningunni hafi ekki verið staðið með lögmætum hætti en yfírvöld, tollstjóri vegna söluskattshlutans og ríkisskattstjóri vegna annarra gjalda, telja að í úrskurðinum felist að álagn- ingin standist. Fyrir fógetarétti er til meðferðar lögtakskrafa gjald- heimtunnar vegna opinberu gjald- anna og hefur lögmaðurinn mótmælt því að lögtakið nái fram að ganga. Á þriðjudag gerði hann kröfu byggða á úrskurði Ríkisskattanefndar þar sem krafist er synjunar lögtaksbeiðn- ar en einnig gerð sú krafa að borgar- fógeti, Páll Þorsteinsson, víki sæti vegna náinna tengsla við gjaldheimt- una en hann starfi nánast sem einka- dómari þeirrar stofnunar. Fógetinn hefur þá kröfu nú til úrskurðar en gjaldheimtustjóri fékk frest til 4. júlí til gagnaöflunar vegna efnishluta málsins. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði hef- ur veitt Rafveitu Hafnarfjarðar frest þar til á hádegi í dag til að greiða vangoldinn söluskatt að öðrum kosti verði rekstur fyrir- tækisins stöðvaður. Rafveitan og Hafnarfiarðarbær viðurkenna ekki að um skuld sé að ræða en ágreiningur aðilanna sem nær aft- ur til áranna 1983, 1984 og 1985 hefijr verið til umfjöllunar hjá Ríkisskattanefhd um nær tveggja ára skeið. Að sögn Guðmundar Áma Stef- ánssonar bæjarstjóra hefur rafveitan ekki krafið bæinn um gjald fyrir rafmagn til götulýsingar en í fjár- hagsáætlun bæjarins hefur verið veitt fé til rafveitunnar vegna þessa. Skattstjóri hefur gert athugasemdir við þetta verklag og lagt á söluskatt á grundvelli rannsóknar sinnar. Að meðtöldum áföllnum vöxtum nemur krafan nú um 12 milljónum króna. „Hafnfirðingar vilja gjaman gjalda keisaranum það sem keisarans er en við borgum ekki söluskatt af því sem er ekki selt. Rafveitan, fyrirtæki bæjarbúa, lætur í té götulýsingu án endurgjalds," sagði bæjarsfjórinn. Hann sagði gjaldskrána ákveðna af sveitarfélaginu og að með kröfu sinni væri skattstjóri upp á sitt einsdæmi að véfengja vald bæjarstjómar til að setja fyrirtækjum sínum gjaldskrá, sem í tilfelli rafveitunnar, hefðu ávallt hlotið staðfestingu iðnaðar- ráðuneytisins. Guðmundur Ámi Stefánsson sagð- ist hafa árangurslaust reynt að ná tali af fjármálaráðherra vegna máls- ins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.