Morgunblaðið - 22.06.1989, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.06.1989, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989 DINÓ hjól. Falleg,örugg og á góöu verði. Dinó — þaö sem foreldrar velja fyrir bömin sín. — SENDUM í PÓSTKRÖFU Bretland: Almenningssaingöngur lamaðar um allt land Lundúnum. Reuter. SAMGONGUR voru með versta móti á Bretlandi í gær, en þá stöðvuð- ust lestarsamgöngur um land allt og almenningsfarartæki í Lundún- um hreyfðust ekki úr stað. Starfsmenn breska járnbrautarkerfisins — British Rail — fóru í sólarhringslang verkfall til þess að knýja á um launahækkanir. Ástandið batnaði ekki þegar starfsmenn almenn- ingssamgangna í Lundúnum — London Transport Authority — fóru í samúðarverkfall. Það er sjöunda skyndiverkfall þeirra á misserinu. Starfsmenn jámbrautanna fóm í verkfall sitt til þess að mótmæla tilboði British Rail um 7% launa- hækkun, en þeir krefjast helmingi meiri hækkunar til þess að kaup- hækkunin vegi upp á móti verð- bólgu, sem á undanfömum mánuð- um hefur aukist og nemur nú 8,3% ári. Samgöngur í öllum helstu borg- um fóm úr skorðum og á öllum þjóðvegum mynduðust gífurlegir „Hún, [byltingin], hefur tortímt flestum sem henni vom fylgjandi, hún hefur tortímt verkalýðsfélögum og kvennasamtökum. Hún tortímdi sósíalistum og þeir einu sem lifa hana af em forgöngumenn henn- ar,“ sagði Rushdie í samtali við breska dagblaðið The Mail. Rush- die hefur notið lögregluvemdar frá því að Khomeini, fyrrnm leiðtogi Irans, sem lést fyrir tveimur vikum, lýsti því yfir að bók hans væri móðgun við múhameðstrúarmenn og skipaði fylgjendum sínum að myrða höfundinn. Rushdie gaf í skyn þegar blaða- maður The Mail ræddi við hann að að of mikið hefði verið gert úr líflátshótunum í hans garð. Blaða- manninum sagðist hins vegar svo umferðarhnútar. Lundúnir fóm verst út úr verk- föllunum, en þar lömuðust bæði strætisvagnasamgöngur og neðan- jarðarlestakerfið. Þetta er í fyrsta sinn frá allsheijarverkfallinu árið 1926, sem allar almenningssam- göngur í Lundúnum stöðvast. Margir reyndu að komast inn til Lundúna á eigin bifreiðum og lögðu snemma í hann. Allt kom þó fyrir ekki og einu merkjanlegu áhrifin frá að Rushdie hefði „lamast af ótta“ þegar bflslys varð skammt frá fundarstað þeirra í miðborg Lon- don. Múhameðstrúarmenn fögnuðu á mánudag fyrir utan húsakynni hæstaréttar í London þegar þeir unnu áfangasigur í baráttu þeirra fyrir því að leiða Rushdie og for- svarsmenn útgáfufélagsins Viking Press, sem gaf út bók hans, Söngva Satans, fyrir breska dómstóla. Eftir tveggja tíma vitnaleiðslur veitti hæstarréttardómari Abdal Choud- hary, leiðtoga samtaka múhameðs- trúarmanna í Bretlandi heimild, til að áfrýja ákvörðun bresks dómara að breska meiðyrðalöggjöfin nái aðeins til kristinna manna. voru þau, að asatímin hófst tveimur tímum fyrr en venjulega. Um sjö- leytið um morguninn voru allar hraðbrautir að höfuðborginni stíflaðar. í miðborginni voru reiðhjól og hjólaskautar algengari sjón en harðir hattar og regnhlífar. Að sögn talsmanna British Rail virtist sem þátttaka í verkfallinu væri alger. British Rail mistókst á þriðjudag að fá verkfallsboðunina ógilta fyrir rétti á þeim forsendum að ekki hefði öllum starfsmönnum gefist kostur á að kjósa um hana. Eftir að hafa hlýtt á málarekstur vísaði dómarinn málinu frá og sagði að stefnendur hefðu gjarnan mátt koma með eins og eina skothelda sönnun fyrir máli sínu. Talið er að vekfallsins muni gæta nokkuð í dag enda liggja lestir víðs vegar um járnbrautakerfið þar sem þær voru skildar eftir á miðnætti í fyrrinótt og nokkum tíma mun taka að koma þeim á sína staði og hefja hefðbundna áætlun á ný. Síðast þegar til fréttist hafði Landsam- band jámbrautaverkamanna ekki tekið afstöðu til þess hvort verk- fallinu yrði haldið áfram einn sólar- hring til viðbótar, en heimildarmenn innan sambandsins töldu það ekki ólíklegt. George Bush Bandaríkin: Bylting Khomeinis leiðir illt eitt af sér - segir rithöfundurinn Salman Rushdie London. Reuter. SALMAN Rushdie, höfúndur Söngva Satans, sagði í sínu fyrsta við- tali frá því að hann neyddist til að fara huldu höfðu í kjölfar lífiáts- hótana múhameðstrúarmanna, að bylting Khomeinis erkiklerks væru runnin undan rótum hins illa. FLJÓTANDI ARIEL HREINT STÓRKOSTLEG NÝJUNG! ARIEL þvottalögur er fyrir allan þvott. Einstakir eiginleikar hans njóta sín sér- staklega vel viö lágt hitastig 40°C eöa minna, þar sem þvottaduft leysist iila upp við lágan hita. Þvottalögurinn samlagast vatninu strax og þvottatíminn nýtist aö fullu. Tauiö kemur tandurhreint úr vélinni. Þú sleppir forþvotti... Hellir ARIEL þvottaleginum í plastkúlu, sem fylgir 750 ml. brúsanum, og leggur kúluna ofan á þvottinn í vélinni. Ekkert fer til spillis, kúlan skaöar hvorki vélina né þvottinn. í mjög föst óhreinindi er gott að hella ARIEL beint á. TANDURHREINN ÞVOTTUR MEÐ FLJÓTANDIARIEL. Jafnvel viö mjög lágt hitastig. Fáanlegur í þrem stæröum. 0,75 Itr, 2 og 3 Itr. A er hellt í plastkúlu sem er stillt ofan á þvottinn. Fljótandi ARIÉL samlagast vatninu fljótt og vel. ... MJm ú BiB * ú 6 * ÍBlexJL/llll George Bush nýtur mikilla vinsælda Washington. Reuter. 73% Bandaríkjamanna eru á- nægð með frammistöðu George Bush í embætti Bandaríkjafor- seta, ef marka má nýja skoðana- könnun ABC-sjónvarpsins og dagblaðsins Washington Post. Ronald Reagan, fyrrum forseti, kom aðeins einu sinni jafii vel út í skoðanakönnunum á forseta- ferli sínum, en það var skömmu eftir að hann varð fyrir skotárás í mars árið 1981. Samkvæmt könnuninni er meiri- hluti allra helstu samfélagshópa í Bandaríkjunum ánægður með störf Bush. Til að mynda eru 51% blökku- manna sátt við þau. Að meðaltali hafa um 72% Bandaríkjamanna verið ánægð með Bush í könnunum frá því hann tók við embættinu 20. janúar á þessu ári. Til samanburðar voru að meðaltali um 66% Banda- ríkjamanna sátt við störf Reagans á jafn löngum tíma. 54% þeirra, sem þátt tóku í nýju skoðanakönnuninni, álitu að við- brögð Bush við atburðunum í Kína að undanförnu hefðu verið nægi- lega hörð. 30% töldu að viðbrögðin hefðu verið of veik, en aðeins 3% álitu að hann hefði brugðist of hart við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.