Morgunblaðið - 22.06.1989, Qupperneq 27
eecr rut, .ss H’JOAOimrMrí aia^tanuasoM.
- - - .....MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 22, JUNÍ 198»
Afinælíshefd Sagna
SAGNIR, tímarit um söguleg
efni, er komið út í tiunda sinn.
Þetta afmælisrit er um 300 blaðs-
íður og ritstjóri er Theodóra Þ.
Kristinsdóttir
í tilefni 10 ára afmælis Sagna
er birt flokkuð skrá yfir efni blaðs-
ins frá upphafi. Annað efni þessa
afmælisheftis Sagna er eftirfar-
andi:„Mér verður hússins dæmi.
Húsafriðun á íslandi — Viðhorf til
menningararfsins“ nefnist grein
eftir Þóru Kristjánsdóttur. Síðan
er listi um hús á fornleifaskrá í
umsjá Þjóðminjasafns og skrá yfir
friðuð hús. „Mygluskán og hálf-
blautur ruddi. Hvernig geymdu
menn hey til forna?“ heitir grein
eftir Orra Vésteinsson og „Einhver
smitvaldur eða pestarbrunnur...“
er grein eftir Sigríði Þorgrímsdóttur
um „íslenskt galdrafár á 17. öld.
Ábyrgð samfélagsins eða fárra ein-
staklinga."
„Jón Eiríksson 1728-1787.“
Minnst tvöhundruðustu ártíðar Jóns
Eiríkssonar, eins lærðasta upplýs-
ingarmanns íslandssögunnar nefn-
ist grein eftir Sveinbjörn Rafnsson
og greinin „Upplýsing gegn hjá-
trú.“ Viðhorf og mat upplýsingar-
manna á hjátrú íslendinga er eftir
Hilmar Garðarsson.
Gunnar Halldórssön skrifar
greinina „Lútherskur rétttrúnaður
og lögmál haliæranna." Um gagn-
virk áhrif rétttrúnaðar og viðhorfa
til náttúrunnar í gamla samfélag-
inu. og greinin „Um blessaðan lífs-
ávöxt á 17. og 18. öld.“ Viðhorf til
barnauppeldis og aga er eftir Ing-
unni Þóru Magnúsdóttur.
„Óttalegur barningur til að byija
með.“ er viðtal við Eggert Þór Bern-
harðsson um fyrstu ár Sagna eftir
Sigrúnu Valgeirsdóttur og greinin
„ Konan: „Góð guðsgjöf til síns
brúks.“ Andstaða karla gegn jafn-
rétti kynjanna 1880-1915“ er eftir
Ernu Huldu Halldórsdóttur.
„Fábjánar og afburðamenn.“
Rætur mannbótastefnunnar og
umræður um hana á íslandi á fyrri
hluta 20. aldar er eftir Egil Ólafs-
son og Hulda S. Sigtryggsdóttir er
höfundur greinar, sem heitir
„Gaddavírsgirðingar." Viðhorf og
umræður um gaddavír á árunum
1901-1913.
„íslensk nýlendustefna." heitir
grein Jóns Ólafs ísbergs um vilja
Islendinga til að eignast Grænland
og úrvinnsla úr fjórum nemendarit-
gerðum í fjölskyldusögu eftir Gísla
Gunnarsson ber heitið: „Hvað varð
um ómagabörnin, sem skýrt var frá
í manntalinu 1801?“
„Ungbörn þjáð af þorsta.“ er
athugasemd um ungbarnadauða og
viðu^væri eftir Helga Skúla Kjart-
ansson og ber undirfýrirsögnina:
Hvað var svona óhollt við að gefa
ungbömum kúamjólk? „Varðveisla
heimilda á ríkisútvarpinu." fjallar
um varðveislu, skráningu og flokk-
un sagnfræðilegra heimilda á
Ríkisútvarpinu og er eftir Magnús
Hauksson.
Halldór Bjarnason er höfundur
greinar, sem heitir: „Manntalið
1816 og útgáfa þess. Fjallað um
sérstöðu manntalsins 1816 og út-
gáfa þess skoðuð með hliðsjón af
fólkstalinu úr Reykjavíkursókn.“
I ritinu eru einnig umsögn um
9. árgang Sagna, skrár um myndir,
höfunda efnis og lokaritgerðir í
sagnfræði 1988—1989 og leiðrétt-
ing vegna Sagna 9. „Efnisflokkun
Sagna 6-10“ er eftir Magnús H.
Skarphéðinsson.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 21. júní.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 53,50 50,00 51,60 32,315 1.667.395
Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,040 810
Ýsa 83,00 72,00 74,27 9,600 713.038
Karfi 30,00 23,00 28,82 3,120 89.917
Ufsi 36,00 31,50 33,90 42,024 1.424.785
Steinbítur 50,00 45,00 49,63 0,416 20.648
Langa 37,00 32,00 34,97 0,634 22.173
Lúða 235,00 100,00 208,69 0,064 13.356
Koli 35,00 35,00 35,00 0,003 123
Keila 14,00 14,00 14,00 0,152 2.135
Sólkoli 60,00 60,00 60,00 0,247 14.877
Skötuselur 75,00 75,00 75,00 0,017 1.275
Samtals 44,80 88,636 3.970.532
Selt var Gjafari VE og fleiri bátum. I dag, fimmtudag, verður
boðinn upp bátafiskur.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur
Þorskur 56,00 30,00 47,83 14,455 691.334
Ýsa 87,00 15,00 71,48 18,197 1.300.764
Blandað 45,00 35,00 42,67 0,219 9.345
Karfi 30,00 28,50 29,30 43,645 1.278.954
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,125 1.875
Steinbítur 41,00 32,00 32,85 0,432 14.193
Blálanga 38,00 25,00 27,66 5,478 151.540
Lúða 200,00 60,00 125,69 0,347 43.615
Grálúða 47,50 46,00 46,82 68,303 3.198.187
Skarkoli 75,00 25,00 47,78 1,025 48.978
Samtals 44,27 152,227 6.738.786
Selt var úr Þorláki ÁR, Ottó N og ýmsum bátum. í dag, fimmtu-
dag, verður boðinn upp afli úr Viðey RE, Freyju RE, Þorláki AR
og bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur
Þorskur 56,00 45,00 54,94 7,865 432.087
Ýsa 87,00 25,00 83,48 2,249 187.754
Karfi 31,50 29,50 30,46 2,329 70.936
Ufsi 33,00 29,50 31,71 7,110 225.484
Steinbítur 36,50 15,00 36,22 1,067 38.645
Hnýsa 33,00 33,00 33,00 0,030 990
Langa 33,50 33,50 33,50 1,625 54.438
Lúða 195,00 185,00 191,01 0,173 33.045
Sólkoli 53,00 53,00 53,00 0,068 3.604
Skarkoli 50,00 19,00 31,41 2,800 87.960
Keila 12,00 12,00 12,00 0,075 900
Samtals 44,73 25,391 1.135.843
Selt var m.a. úr Þuríði Halldórsdóttur GK, Hrungri GK og Odd-
geiri ÞH. í dag, fimmtudag, verður boðinn upp blandaður afli
úr bátum.
Rúm fyrír þig
jt.
Grensásveg 3, sími 681144.
Vatnsrúm með fiberd. Svart - hvítt - beyki.
Verð með dýnu frá kr. 62.130,- stgr.
Toscana Moser 160x200. Efni: Eik.
Verð með náttborðum og dýnu frá kr. 193.158,- stgr.
Dúett 160x200. Efni: Maghony-eik.
Verð með náttborðum og dýnu frá kr. 99.944,- stgr.
Tangó 160x200. Efni: Eik - hvítt - svart.
Verð með náttborðum og dýnu frá kr. 106.533,- stgr.
Karen 160x200. Efni: Beyki - hvítt.
Verð með náttborðum og dýnu frá kr. 49.657,- stgr.