Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 28
28
m I Í/tH . .'.IL ílAOlJTMi/.I3 sis
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2
UEK!
;j o /
1989
Félagslíf Islendinga í Kaup-
mannahöfn með blóma
Jónshúsi.
SÍÐASTA fréttabréf úr Jónshúsi hefst líkt og hið fyrsta fyrir 6 árum
og greinir frá unaðslegu vori. Eftir grænan vetur og hitabylgju
síðustu viku er gróður kominn þremur vikum lengra en vant er.
Sírenu- og kastaníutrén standa i fúllum skrúða og blómadýrðin í
Tivolígarðinum er ólýsanleg. Brátt skal haldið heim i islenzka sveit
eftir mikinn anna- og starfstíma í útlandinu. Það eru forréttindi
og fáum starfsstéttum mögulegt nú til dags að setjast að í sveit-
inni. Skulu nú lesendur kvaddir að sinni.
Færeyskur gesta-
leikur í Þjóðleikhúsinu
Félagslíf hefur staðið með mikl-
um blóma í íslendinganýlendunni í
’vetur, þó að fátt eitt sé hér nefnt.
Nýmæli hjá Námsmannafélaginu
var hæfileikakvöld og uppgötvaðist
m.a. prýðilegur hagyrðingur meðal
hins skemmtilega og bjartsýna
námsfólks. — Bókasafn íslendinga
gekkst fyrir bókmenntakvöldi þar
sem Sigrún Ragnarsdóttir og Pjet-
ur Hafstein Lárusson lásu úr verk-
um sínum. — Á kvöldvöku íslend-
ingafélagsins skemmtu landar frá
Lundi með frábærri þorrablótsrevíu
í samantekt Jóns Guðmundssonar
og Geirs Björnssonar. Ágætir aðal-
leikarar voru Halldór Þórarinsson,
Björn Karlsson og Helga Harðar-
dóttir. — Á sumardaginn fyrsta var
fjölskylduskemmtun, þar sem
sunnudagaskólabörnin frá stúd-
entagörðunum Kagsaa og Solbakk-
en komu fram ásamt börnum úr
íslenzkuskólanum í Kaupmanna-
höfn. — Ragnhildur Vigfúsdóttir,
sagnfræðingur, sem nú lýkur senn
dvöl sinni í fræðimannaíbúðinni í
Jónshúsi, flutti á konukvöldi erindi
um rannsoknir sínar, en hún leitar
heimilda um íslenzkar konur, sem
fluttu ólofaðar frá íslandi fyrir
1950, og eru hér fjölmargar. A
konukvöldi í maí var kveðjuhóf fyr-
ir Guðrúnar tvær, Eiríksdóttur eft-
ir 40 ára dvöl og margháttuð fé-
lagsstörf og Ásgeirsdóttur eftir 6
ára veru og sjálfboðavinnu í Jóns-
húsi.
Um hvítasunnuna var íslenzk
ferming í Rosengaardskirkjunni í
Malmö og vegleg veizla í safnaðar-
heimilinu á eftir, svo sem vani er
hjá Islendingafélaginu í Malmö og
nágrenni. Þar voru íslenzku prests-
hjónin í Kaupmannahöfn kvödd
með ræðum og gjöfum. Síðasta
sunnudag í maí var ferming i Skt.
Pálskirkjunni hér í grennd og var
það um leið kveðjumessa séra
Ágústs Sigurðssonar sendiráðs-
prests og dagur eldra fólksins með
samkomu í félagsheimilinu á eftir.
Árni Björnsson, fv. formaður sókn-
arnefndar, flutti ávarp við hina
geysifjölmennu guðsþjónustu, en
Ragnhildur Vigfúsdóttir talaði á
samkomunni. Kirkjukór og sóknar-
nefnd íslenzka safnaðarins í Höfn
hafa starfað af miklum myndar-
skap, en ör mannaskipti verða,
vegna þess hve Buseta Islendinga
hér er mislöng. í kórnum eru að
jafnaði 25 félagar, flestir náms-
menn, og hefur María Anna Garð-
arsdóttir, organisti, stjórnað kórn-
um í vetur ásamt Þorleiki Jóhann-
essyni, en María er nú á förum
heim. Sóknarnefnd skipa: Björn
H. Jónasson, formaður, Ragnhildur
Ólafsdóttir, ritari, og Margrét Eg-
gertsdóttir, gjaldkeri. Mun nefndin
fjalla um umsóknir, sem borizt
hafa um starf prests íslenzka safn-
aðarins, en næsti prestur mun taka
við um miðjan júlí.
- G.L. Ásg.
FÆREYSKUR gestaleikur verður
á Qölum Þjóðleikhússins um helg-
ina. Hér er á ferðinni leikritið
Framá (Áfram) eftir Sig\’ar Olsson
og Fred Hjelm í Leikstjórn Sigr-
únar Valbergsdóttur. Annar Is-
Iendingur, Messíana Tómasóttir,
teiknaði leikmynd og búninga.
Framá var frumsýnt af Havnar
Sjónleikarfélagi í Sjónleikarhúsinu í
Þórshöfn í apríl sl. í tilefni 50 ára
afmælis íþróttasambands Færeyja.
Við undirbúning sýningarinnar átti
sér stað óvenjuleg samvinna á milli
íþróttahreyfingar og leiklistar í Fær-
eyjum. 21 karlleikari tekur þátt í
leiknum.
Leikurinn gerist í búningsherbergi
knattspymuliðs, rétt fyrir leik, í hálf-
leik og eftir leik. Þetta er úrslitaleik-
ur í annarri deild og baráttan stend-
ur um hvort liðið flyst niður í þriðju
deild. Leikritið lýsir baráttu leik-
. manna Framá, við keppinautinn og
innbyrðis. í fréttatilkynningu frá
Þjóðleikhúsinu segir að líta megi á
leikinn sem dæmisögu sem leiði hug-
ann að valdabaráttu í þjóðfélaginu.
Gestaleikurinn verður aðeins sýnd-
ur tvisvar, á laugardags- og sunnu-
dagskvöld.
Frá sýningu Havnar Sjónleikarfélagsins á Framá.
36. helgar-
skákmótið
á Djúpavogi
TÍMARITIÐ Skák gengst fyrir
sínu 36. helgarskákmóti á Djúpa-
vogi 23.-25. júní nk. í samviiínu
við Búlandshrepp og taflfélag
staðarins.
Mótið fer fram í tilefni 400 ára
afmælis staðarins. Teflt verður að
hefðbundnum hætti. Fyrst tvær
stuttar skákir, síðan fímm umferðir
þar sem hver keppandi hefur eina
og hálfa klukkustund fyrir fyrstu 30
leikina en síðan er bætt við 30 mínút-
um á mann til þess að ljúka skák-
inni. Þannig eru 3 umferðir á föstu-
dag og hefst mótið kiukkan 18. Á
laugardag og sunnudag hefst fyrri
umferðin klukkan 10. Mótinu lýkur
, svo með samsæti og verðlaunaaf-
hendingu. Glæsileg verðlaun eru í
boði: 1. verðlaun krónur 50.000. 2.
verðlaun krónur 25.000. 3. verðlaun
krónur 15.000. 4. verðlaun krónur
10.000.
Þá verða unglinga-, kvenna- og
öldungaverðlaun auk bókaverðlauna.
Að venju verða sérstök verðlaun fyr-
ir bestan árangur í hrinunni sem
hefst með þessu móti og stendur í
fimm mót. Þar er keppt um 60.000
krónur. Til að vinna þá upphæð þarf
keppandi að hafa verið með í öllum
mótunum 5.
(Úr fréttatilkynningu)
Nýr sendi-
herra á Víet-
namfundi
NÝSKIPAÐUR sendiherra Víet-
nam á Norðurlöndum, Nguhyen
Dinh Phuong, er staddur hér á
landi.
Síðdegis á fimmtudag afhendir
hann forseta íslands trúnaðarbréf,
þá heimsækir hann Hafrannsókna-
stofnun, Þingvelli og fleiri staði.
. í kvöld, fimmtudag, gengst Vin-
áttufélag íslands og Víetnam fyrir
opnum fundi um stöðu mála í Suð-
austur-Asíu. Þar mun Phuong
sendiherra greina frá þeim breyt-
ingum sem nú eiga sér stað í stjórn-
málum Víetnam og líkt hefur verið
við perestrojka.
Fundur er haldinn í Litlu-Brekku,
(bakvið Lækjarbrekku) og hefst
klukkan 20.30.
Andre Bachmann, lengst til
hægri, ásamt Carli Möller og
Gunnari Bernburg.
Vetrarbrautin:
Tríó Andra
Bachmanns
skenimiir
ANDRE Bachmann, Gunnar
Bernburg og Carl Möller leika
fyrir dansi í Vetrarbrautinni í
veitingastaðnum Þórscafé 23. og
24. þessa mánaðar og 30. júní
og 1. júlí.
Þeir félagar munu einnig
skemmta á sumarmóti AA-samtak-
anna í Galtalækjarskógi 8. júlí nk.
Iðnskólinn í
Reykjavík:
Vísa þarffrá
mörgum um-
sóknum
INGVAR Ásmundsson, skóla-
meistari Iðnskólans í Reykjavík,
segir að vísa þurfi frá umsóknum
nemenda um skólavist í mörgum
deilum skólans og það sé því
misvísandi sem segir í frétt í
Morgunblaðinu í gær að Iðnskól-
inn, einn framhaldsskóla í
Reykjavík, hafi ekki þurft að vísa
frá nemendum. Nú sé verið að
senda út bréf til umsækjenda.
Ingvar sagði að sex grunndeildir
væru í skólanum og vísa þyrfti frá
umsóknum um nám í fjórum þeirra
í einhveijum mæli. Þannig þyrfti
sennilega að vísa frá um 100 um-
sækjendum í nám í hársnyrtigrein-
um og talsverðum fjölda umsókna
um nám í fataiðnaðardeild. Þá
þyrfti einnig að vísa frá einhveijum
umsóknum um nám í rafiðnaðar-
og bókiðnaðardeild. í tveimur deild-
um, málmiðnaðar- og tréiðnaðar-
deild, væru umsóknir fleiri en áð-
ur, en hægt hefði verið að bæta
við nemendum. Hins vegar væri
aðsókn í fornám lítil og því væri
hægt að bæta við nemendum í það
og almennt nám. Þá væri einnig
trúlega hægt að bæta við nokkrum
nemendum á tölvubraut og í tækni-
teiknun.
Fjölbrautaskólinn
Breiðholti:
Nýnemar í
hverfinu fá
skólavist
VEGNA fréttar um umsóknir í
framhaldsskóla borgarinnar,
sem birtist í blaðinu í gær, er
rétt að árétta, að allir nýnemar
sem búa í Breiðholti og sótt hafa
um skólavist í Fjölbrautarskó-
lanum í Breiðholti næsta vetur,
fá skólavist.
Að sögn Kristínar Arnalds skóla-
meistara, var ekki hægt að taka
inn, vegna þrengsla, þá nemendur
búsetta í hverfinu, sem hafa stund-
að nám við aðra framhaldsskóla.
Atriði úr myndinni „Sveitarfor-
inginn“.
Regnboginn sýn-
ir „Sveitarfor-
ingjann“
REGNBOGINN hefúr tekið til
sýninga myndina „Sveitarforing-
inn“. Með aðalhlutverk fara Mic-
hael Dudikoff og Robert F. Ly-
ons. Leikstjóri er Aaron Norris.
Jeff Knight (Michael Dudikoff)
liðsforingi kemur til Víetnam með
foringjatign beint frá West Point.
Honum er heldur fálega tekið í
búðunum, þeir „gamalreyndu" eru
ekki sérlega hrifnir af þessum fínu
foringjaspjátrungum frá West
Point.
Atriði úr myndinni „Stjúpa mín
geimveran".
Stjörnubíó sýnir
„Sljúpa mín
geimveran“
STJÖRNUBÍÓ hefúr hafið sýn-
ingar á myndinni „Stjúpa mín
geimveran". Með aðalhlutverk
fara Kim Basinger og Dan Ak-
royd. Leiksljóri er Richard Benj-
amin.
Myndin segir frá litríkum
vísindamanni sem dreymir um að
komast í snertingu við líf á ann-
arri plánetu.
Honum verður að ósk sinni svo
um munar, með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum, þegar honum tekst að
senda merki til alls óþekktrar man-
naðrar plánetu.
Alslemma í
Hraftiagili
ÞRIÐJA Alslemmumótið í brids
verður haldið i Hrafnagilsskóla
í Eyjafirði um næstu helgi. Hefst
spilamennska klukkan 13 laug-
ardaginn 24. júní.
Þátttakendur geta skráð sig í
mótsbytjun. Veitt verða verðlaun
fyrir þtjú til fimm efstu sætin í
mótinu eftir þátttöku og að auki
verða veitt silfurstig Bridgesam-
bands Islands fyrir efstu sætin.
Fyrir þá sem óska verður aðstoð-
að við fiutning frá flugvelli á Akur-
eyri til Hrafnagils sem og ferðir
til Akureyrar. Flugleiðir veita af-
slátt af fargjöldum vegna mótsins.
Leiðrétting
í Morgunblaðinu þann 13. júni
síðastliðinn var skýrt frá hófi
Skandinavísk-ameríska félags-
ins í New York.
1 texta með mynd, sem fylgdi
fréttinni, var Fríða Ólafsdóttir sögð
vera fatahönnuður. Hið rétta er,
að Fríða er innanhússarkitekt. Beð-
ist er velvirðingar á þessum mistök-
um.
Niðjamót Lækj-
arbotnaættar
HJÓNIN Katrín Brynjólfsdóttir
Ijósmóðir og Sæmundur Guð-
brandsson hreppstjóri bjuggu á
Lækjarbotnum í Landsveit
1840-1887 eða í 47 ár. Þau eign-
uðust 16 börn og af þeim kom-
ust 9 til fúllorðinsára. Frá þess-
um hjónum er því kominn stór
ættbogi eða um 7-800 afkomend-
ur.
Ættarmót Lækjarbotnaættar
verður haldið laugardaginn 24. júní
að Brúarlandi í Landsveit og hefst
það klukkan 16. Komið verður upp
stóru grilli, en hver ijölskylda kem-
ur með sinn mat á grillið. Selt verð-
ur meðlæti (bakaðar kartöflur,
kryddsmjör og fl.) svo og gos og
verður ágóðanum varið til þess að
kaupa tijáplöntur.
Fjölmargir niðjar af Lækjar-
botnaætt búa enn í Landsveit en
margir búa á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Næg tjaldstæði eru á
staðnum.
(Úr fréttatilkynningTi)
Fjórmenningamir í Mezzoforte,
þeir Eyþór Gunnarsson, Jóhann
Ásmundsson, Gunnlaugur Briem
og Friðrik Karlsson.
Mezzoforte í
Tunglinu
Hljómsveitin Mezzoforte kem-
ur fram í Tunglinu við Lækjar-
götu í kvöld, fimmtudagskvöldið
22. júní.
Breski saxófónleikarinn David
0. Higgins, sem leikið hefur með
hljómsveitinni á tónleikum hennar,
kemur hingað til lands sérstaklega
til að spila með fjórmenningunum
í Mezzoforte.
Hljómsveitin Mezzoforte sendi
nýlega frá sér plötuna „Playing for
time“. Til að fylgja plötunni eftir
var farið í hljómleikaferð um
Skandinavíu og einnig spilaði
hljómsveitin í Sviss og Vestur-
Þýskalandi. Þessa dagana eru fjór-
menningarnir hérheima að undir-
búa aðra ferð sem haldið verður í
næsta haust, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Steinari.
(Fréttatilkynning)