Morgunblaðið - 22.06.1989, Side 33

Morgunblaðið - 22.06.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989 33 Eyjólfur M. Guðmundsson Skotið á fugla á Vogatjörn SKOTIÐ var á fugla á Vogatjörn sem er innan byggðar í Vog- um þriðjudaginn 13. júní. Dauð kría fannst á tjörninni og svart- bakur í sárum. Tilkynnt var um atburðinn til lögreglu um klukk- an hálf sjö um kvöldið og þegar lögregla kom á staðinn voru skotmennirnir farnir af staðnum, en þá var búið að aflífa svart- bakinn. Við tjarnarbakkann fundust tvö skot úr haglabyssu. Þórir Maronsson yfirlögregluþjónn segir lögregluna fá kvartan- ir um skotmenn en þeir næðust sjaldan. Þeir væru stutta stund að skjóta og oftast famir þegar lögreglan kæmi á staðinn. - EG Mývatnssveit: Þjóðhátíð í blíðviðri Björk, Mývatnssveit. MYVETNINGAR héldu þjóðhá- tiðarsamkomu i Höfða 17. júní. Hófst hún klukkan 14 með skrúð- göngu frá hliðinu á samkomu- svæðið. Sveitarstjórinn, Jón Pét- ur Lindal, setti samkomuna. Aðalsteinn ísfjörð frá Húsavík lék nokkur lög á harmonikku. Holmfríður Pétursdóttur flutti hát- íðarræðu. Viðar Alfreðsson, skóia- stjóri tónlistarskólans, lék á horn. Þórunn Ragnarsdóttir fór með ávarp fjallkonunnar. Kór Reykja- hlíðarkirkju söng nokkur lög undir stjóm Jóns Árna Sigfússonar. Síðan var ýmislegt sér til gamans gert, farið í' leiki og fleira. Veðrið var eins og best verður á kosið, logn, glampandi sólskin og hitinn um 20 stig. Höfðinn skartaði sínu fegursta. Kristján Frá kvótafundi á ísafirði ÞANN 3. júní sl. var haldinn á Isafirði almennur fúndur um hags- muni Vestfirðinga af veiðum og vinnslu sjávarafla og þá skerðingu á aflamöguleikum sem menn búa við vegna óréttlátra aðgerða stjórnvalda í kvótasetningu. Á fúndinn barst svohþ'óðandi skeyti: Fundur um kvótakerfi á ísafirði. Skipstjóra- og stýrimannafélagið Bylgjan, ísafirði. c/o Reynir Traustason, Flateyri. Skoðið fundargerðir og bókanir í samstarfsnefnd um fiskveiðistefnu 87 og 88. Kannið hvers vegna Hall- dór Ásgrímsson, Ámi Kolbeinsson, sjávarútvegsráðuneytið, Kristján Ragnarsson LÍÚ og forystumenn sjó- mannasamtakanna töldu fráleitt þá að kvóti yrði settur á grálúðuveiðar eins og ég benti á. Ég tók einmitt dæmi um mikla skerðingu fyrir Vest- firði og fleiri. En gleymið ekki að þetta er orðið að veruleika. Og til dæmis fyrir Venus hf. Er skerðingin rúm 1000 tonn af grálúðu í ár plús 10% af þorski. Fyrir heimili þessara manna skerðast tekjur um 32-34%. Hvar er grátkórinn nú? Baráttukveðjur til fundarins um að koma þessari hafstefnu sjávarút- vegsráðherra og Kristjáns Ragnars- sonar í LÍÚ frá. Ragnheiður Olafsdóttir, Alftanesi. Við sem vorum fundarstjórar á fundinum vorum sammála um að lesa skeytið ekki upp. Efni og fram- setning á þann veg að gæti orkað tvímælis og hægt að færa til verri vegar og því ekki innlegg í fundinn. Aftur á móti var okkur fullkomlega ljós sá góði hugur til okkar Vest- firðinga sem að baki lá hjá Ragn- heiði og kunnum henni bestu þakkir fyrir samstöðu og samhug. Ekki var ætlun okkar fundarstjór- anna að sniðganga eða banna skoð- anir eins eða neins, að lesa ekki skey- tið var einungis ákvörðun okkar mið- að við aðstæður og skilning á efn- inu. Ef okkur hefur þama orðið á einhver mistök eða í öðm sem laut að stjórn fundarins þá biðjumst við velvirðingar á því. Okkur þykir rétt allra aðila vegna að biðja fjölmiðla að koma þessu á framfæri. Fundur þessi var mjög vel sóttur og þótti takast í alla staði vel. Mál voru þar rædd af alvöruþunga og heitið á menn að duga nú í vamar- stríði vestfirskra byggða, því ef lífsbjörgin úr hafinu er frá okkur tekin er brostinn allur möguleiki til búsetu á Vestfjörðum. Samþykkt var á fundinum að láta gera úttekt á áhrifum kvótakerfisins á veiðiheimildir Vestfirðinga og gmndvalla áframhaldandi aðgerðir á þeim niðurstöðum. Vinna þessi er þegar hafin. Með bestu kveðjum, Ulugi Gunnarsson, Pétur Sigurðsson. Karlmannaföt kr. 3.995,- til 9.990,- Terylenebuxur kr. 1.195,- til 1.995,- Gallabuxur kr. 1.195,-, 1.230,- og 1.295,- Flauelsbuxur kr. 1.110,- og 1.900,- Sumarblússur kr. 2.770,- og 2.390,- Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt. Andrés, Skólavörðustíg 22, sími 18250. [ELFA I h o< F 1 ÍBHb' áfar úr stáli, kopar 3 í 5 litum Einar Farestveit&Co.hf. BORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI ÚTLITSGALLAÐIR • OG FRYSTI- SKAPAR A LÆKKUÐU VERÐI Þessa dagana gefst tækifæri á að kaupa á góðu verði lítið útlitsgallaðar vörur frá Iberna og Calex. Um er að ræða kæliskápa, frystiskápa og sambyggða skápa með frysti og kæli. Einnig ísvélar. • ísskápar frá 19.400 krónum. • Skápar af ýmsum stærðum, jafnt fyrir heimili, fyrirtæki og sumarbústaði. HLJOMBÆR HVERFISGÖTU 103 SlMI 25999

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.