Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22: JÚNÍ 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
AÖ segja nei
Ég gleymi aldrei þætti með
Hermanni Gunnarssyni sem
var fluttur í útvarpinu fyrir
u.þ.b. tveimur árum. Her-
mann var að gera at í fólki og
í þetta sinn hringdi hann í
konu úti í bæ og spurði hvort
hann mætti tjalda í garðinum
hjá henni um heigina. Það
væri skátamót framundan og
því þyrfti hann að fá gott tún
fyrir tjald sem nokkrir strákar
ætluðu að dvelja í.
Tjald í garöinn?
Það var auðheyrt að konunni
leist ekki á að veita leyfið, sem
vonlegt var, því hver vili fá
ókunnugt fólk í garðinn til sín
yfir helgi? Það sem hins vegar
var athyglisvert var að hún
gat ekki sagt nei. f staðinn
sagði hún að því miður væri
það varla hægt, því hún yrði
ekki í bænum um helgina.
Hermann sagði að það væri
allt í lagi því ekkert þyrfti þá
að ónáða fólkið í húsinu. Þá
sagði konan að hún hefði
áhyggjur af grasinu. Her-
mann gaf sig ekki og hélt
áfram að nuða og konan kom
með hveija afsökunina á fæt-,
ur annarri. Undir lokið var
samtalið á milli þeirra farið
að verða pínlegt. Greinilegt
var að konan kvaldist, að hún
vildi ekki gefa leyfi til að
ókunnugt fólk tjaldaði í garð-
inum hjá henni en jafnfram
var greinilegt að hún kunni
ekki að segja nei.
Blákalt nei
Auðvitað hefði konan átt að
segja blákalt nei. Ef Hermann
hefði spurt af hverju hún
segði nei, hefði hún ekki þurft
að svara frekar en hún vildi.
Hún átti garðinn og réð því
hvað væri gert við hann.
Erfitt nei
Ég geri mér þetta að umtals-
efni hér því svo virðist sem
mörg okkar eigi erfitt með
að segja nei. Ef komið er með
uppástungu sem okkur likar
kannski ekki, er svarið,
kannski, við sjáum til, eða
jafnvel já, ég skal gera þetta.
Hálar brautir
Þegar við svörum já en viljum
í raun segja nei, erum við á
leið inn á hálar brautir. Ef
við segjum nei strax, er málið
afgreitt og enginn verður
reiður, því það er jú hveijum
manni fijálst að ákveða hvað
hann gerir. Ef við á hinn bóg-
inn segjum kannski en ætlum
að segja nei, erum við að
draga aðra á asnaeyrum og
gefa öðrum kost á að ásaka
okkur um svik. Við erum að
þvæla mál og koma okkur í
klandur sem aldrei hefði þurft
að vera ef við hefðum tekið
af skarið strax. Á hinn bóginn
geta komið upp þær aðstæður
að við þurfum að segja
kannski eða ég ætla að sjá
til o.s.frv., en þá er mikilvægt
að það komi skýrt fram að
einungis sé um möguleika að
ræða.
Glaölegt nei
í mannlegum samskiptum eru
það alltaf a.m.k. tveir aðilar
sem eigast við. Hin hliðin er
að varast að þrýsta á að fá
já, ef við heyrum að viðmæl-
andi okkar er tregur. Ef við
gerum slíkt erum við að kalla
á vonbrigði, því maður sem
er þvingaður til að játa gerir
það ekki með glöðu geði og
notár fyrsta tækifæri sem
gefst til að skipta um skoðun.
Þegar á heildina er litið, er
best að terpja sér hreinskilni
og reyna að gefa skýr skila-
boð, segja nei strax ef slíkt
er mögulegt og segja neiið
með sama tón og við segjum
já, eða glaðlegt nei. Það á í
raun að vera auðvelt, því við
höfum rétt á skoðunum.
GRETTIR
BRENDA STARR
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sveitin sem verður fulltrúi
Bandaríkjanna á HM í Ástralíu
í haust er skipuð reyndum at-
vinnumönnum, sem allir hafa
unnið heimsmeistarakeppni.
Þeir eru: Chip Martel, Lew
Stansby, Hugh Ross, Peter
Pender, Mike Lawrence og Kit
Woolsey. í úrslitaleik um lands-
liðsréttinn fann Martel glæsilega
vöm í eftirfarandi spili:
Austur gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ G104
▼ 843
♦ 97
♦ K10652
Vestur
♦ KD985
¥K6
♦ ÁD10832
♦
Suður
♦ Á
▼ ÁD753
♦ K6
♦ ÁD973
Austur
♦ 7632
▼ G109
♦ G54
♦ G84
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass 1 hjarta
2 tíglar 2 työrtu Pass 4 hjörtu
4 spaðar Pass Pass 5 lauf
Dobl Pass Pass Pass
Útspil: spaðakóngur
Martel var í vestur, en félagi
hans Stansby í austur. Sagn-
hafi, Howard Weinstein, þóttist
vita að Martel ætti hjartakóng-
inn fyrir, og spilað því hjarta
upp á ás eftir að hafa tekið þrisv-
ar tromp.
Hann var þar á réttri leið, því
hann fríar litinn með því að spila
litlu næst og vestur getur aðeins
tekið einn slag á tígulás.
En Martel vissi nákvæmlega
hvað var á seyði og lét kónginn
einfaldlega detta undir ásinn.
Þannig tryggði hann makker
sínum innkomu á hjarta, svo
tígulslagir varnarinnar urðu
tveir.
FERDINAND
SMAFOLK
Hvað heldur að þurfi til
að ná yfir gryfjuna og upp
á grasið?
Þrjú tré, Qögur járn og
hrífu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi bráðskemmtilega skák
var tefld á alþjóðlegu móti í Búda-
pest í vor. Einn kunnasti stór-
meistari Ungverja, Joszef Pinter,
hefur hvítt, en landi hans, alþjóð-
legi meistarinn Tibor Karolyi, hef-
ur svart. Hollensk vöm. 1. d4 —
f5 2. g3 - Rf6 3. Bg2 - g6 4.
c4 - Bg7 5. Rc3 - 0-0 6. Rf3 -
d6 7. 0-0 - De8 8. b3 - e5 9.
dxe5 - dxe5 10. e4! — Rc6 11.
Rd6 - Dd7 12. Ba3 - He8 13.
exf5 — e4 14. Rg5 — gxf5 15.
Rxf6+ - Bxf6 16. Dh5! (Það er
skiptamunar virði að losna við
bezta vamarmann svarts) 16. —
Bxal 17. Hxal Hd8 18. Bb2 -
De7 19. Hel - Rd4
20. Bxe4! — fxe4 21. Hxe4 —
Rf3+ 22. Kg2 — Bh3+ og svartur
gafst upp um leið, sem er fremur
einkennileg tímasetning, því
hvítur verður að leika 23. Kxf3
til að eiga sigurinn vísan.