Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989
Skrifstofiir Hagvirkis hf. innsiglaðar vegna meintra söluskattsvanskila:
Skuldum ekki krónu í söluskatt
- segir Jóhann G. Bergþórsson forstjóri
INNHEIMTUMENN fógeta innsigluðu skrifstofiir Hagvirkis hf. i
Hafharfírði kl. 7 í gærmorgun vegna meintra vanskila á söluskatti.
Innkaupastjóri fyrirtækisins var mættur í vinnu kl. 6, en honum var
vísað út af skrifstofunum og þeim lokað. Skuldin, sem fjármálaráðu-
neytið vill innheimta af fyrirtækinu, er vegna framkvæmda þéss við
virkjanir og vegi á árunum 1981-1985. Jóhann G. Bergþórsson, for-
sfjóri Hagvirkis, segir að sú vinna hafi lögum samkvæmt verið undan-
þegin skatti. Krafa skattstjóra hafi verið kærð, og sé enn til með-
ferðar. Þess vegna þyki honum innheimtuaðgerðirnar harðar.
Jóhann segist hafa náð tali af
Ólafi Ragnari Grímssyni fjármála-
ráðherra kl. 8 í gærmorgun, þar
sem hann var í skoðunarferð í
Hvalvík, fyrirtæki sem Hagvirki á
hlut í. „Hann sagði að það yrði
beitt fyllstu hörku og farið eftir
lögum. Ég hélt að það væru til
mannréttindalög líka. Það má líkja
þessu við atburðina á Torgi hins
himneska friðar, menn eru skotnir
fyrst og síðan athugað hvort þeir
séu saklausir," sagði Jóhann.
Forsögu málsins segir Jóhann
vera þá, að árið 1980 hafi lögfræð-
ingar og löggiltir endurskoðendur
Hagvirkis komizt að þeirri niður-
stöðu að vegaframkvæmdir og gerð
virkjunarmannvirkja væru undan-
þegin söluskatti samkvæmt sölu-
skattslögunum frá 1960. Þar er
kveðið á um að vinna við hús-
byggingar og aðra mannvirkjagerð
sé undanþegin söluskatti, þó aðeins
sú vinna, sem fram fari á bygging-
arstaðnum. Hagvirki hafi síðan boð-
ið í virkjunar- og vegavinnu á árun-
um 1981-1985, og við tilboðsgerð
hafi ekki verið lagður söluskattur
á vélavinnu af þessum sökum. „Það
stendur almennt í tilboðsskránum
að tilboð eigi að innifela öll gjöld
samkvæmt lögum. Á þessu tímabili
var tekið saman að með þessu hefð-
um við sparað ríkinu, Landsvirkjun
og fleirum 493 milljónir á þeirra
tíma verðlagi, miðað við næst-
lægstu tilboð," sagði Jóhann.
„Hefðum við lagt skattinn á, hefði
Vegagerðin eða Landsvirkjun, sem
bæði eru ríkisfyrirtæki, borgað
hann og féð verið afhent ríkinu, sem
hefði bara verið milliflutningur á
peningum." Hann sagði að árið
1987 hefði síðan komið frá skatt-
stjóranum á Suðurlandi (þar sem
fyrirtækið var skráð á þeim tíma)
áætlun fyrir þessa vinnu fyrirtækis-
ins og söluskattur upp á 36 milljón-
ir verið lagður á. Við það hefðu svo
bætzt 25% viðurlög, og upphæðin
alls verið um 44 milljónir. Dráttar-
vextir á kröfuna nú væru orðnir
um 109 milljónir og heildarkrafa
fjármálaráðuneytisins því 153 millj-
ónir króna. „Það er upphæð, sem
við reiðum ekki fram með ávísun í
einu vetfangi," sagði Jóhann.
Hann sagði að fyrirtækið hefði
kært þessa kröfu til ríkisskatt-
stjóra. Jafnframt hefði sýslumaður-
inn í Rangárvallasýslu hafið inn-
heimtuaðgerðir með tilstyrk fógeta
í Hafnarfirði. Þær hefðu verið
kærðar einnig, og málið væri til
meðferðar í bæjarþingi Hafnar-
íjarðar. Nýlega hefði málið farið frá
ríkisskattstjóra til ríkisskattanefnd-
ar, sem hefði það nú einnig til
meðferðar.
„Meginatriðið er það, að við telj-
um okkur ekki skulda krónu í sölu-
skatt. Við höfum ekki lagt hann á
vinnu okkar, ekki innheimt hann
af öðrum og eigum ekki að skila
honum. Það byggir á lögunum frá
1960, og það hefur styrkt okkur
að frá fj ármálaráðuneytinu er ný-
komin greinargerð með virðisauka-
skattsfrumvarpinu, þar sem segir
beinlínis að framkvæmdir af þessu
tagi séu undanþegnar söluskatti á
vélar og vélavinnu," sagði Jóhann.
Hann sagði að sér þætti mjög
einkennilegt að á meðan málið
væri í meðferð fyrir dómstólum
væri rokið til og fyrirtækinu lokað.
„Við erum með 300 manns í vinnu
og fjölda verkefna út um allt land.
Á sama tíma er verið að tala um
að sérstakar fjárveitingar þurfi til
að auka vinnu vegna atvinnuleysis.
Okkur finnst líka að þótt það sé
einhver grein í söluskattslögum,
sem segir að það sé hægt að fara
í innheimtuaðgerðir á þennan hátt,
þá séu það almenn mannréttindi og
samkvæmt stjórnarskránni að
menn séu ekki sekir fyrr en þeir
hafi hlotið sektardóm," sagði Jó-
hann.
Jóhann sagði að verklegar fram-
kvæmdir fyrirtækisins hlytu að
stöðvast fljótlega ef skrifstofumar
yrðu áfram innsjglaðar. „Fólk vinn-
ur ekki nema fá útborgað. Allt okk-
ar bókhald, upplýsingar um reikn-
inga, ávísanahefti og a.llur okkar
rekstur er þama innilokaður. Það
er að vísu ekki útborgun fyrr en
næsta föstudag, og kannski tekst
að leysa málið í vikunni. Þeir geta
annars eflaust elt uppi þessa 100
bíla okkar og lokað yfir 30 vinnu-
stöðum okkar ef þeir vilja stöðva
fólk í að hafa vinnu,“ sagði Jóhann.
Hann sagði að fram að þessu hefði
Hagvirki mánaðarlega staðið skil á
þeim söluskatti, sem því bæri.
Jóhann G. Bergþórsson
„Þama er ríkið að fara út I að-
gerðir, sem við teljum að muni kosta
skaðabótamál af okkar hálfu.
Skaðabótamálið verður því stærra
sem þetta fer verr með okkur. Það
getur orðið stór biti fyrir ríkissjóð,
því að við emm handvissir um að
vinna þetta mál,“ sagði Jóhann.
Hann sagði að aðgerðir fjármála-
ráðuneytisins kæmu enn verr niður
á fyrirtækinu en ella vegna þess
að undanfarið hefði verið þungur
róður eftir erfiðan vetur og
greiðslustaðan ekki góð. Lokun
skrifstofunnar þýddi að ekki væri
hægt að innheimta útistandandi
skuldir eða greiða fjölmörgum und-
irverktökum. Fyrirtækið væri að
vinna verk fyrir Landsvirkjun,
Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ,
Hafnarfjarðarbæ, Innkaupastofnun
ríkisins og ijölda annarra aðila. „Ég
bíð eftir áliti lögfræðinga á þessu
máli. Mér er ekki Ijúft að borga
það, sem ég skulda ekki. Ég á nógu
erfitt með að greiða það, sem ég
skulda sannanlega, þótt ég fari
ekki að henda 150 milljónum í ríkið,
sem á ekkert hjá mér. Á meðan fá
þeir, sem eiga hjá iflér peninga,
ekki greitt. Ólafur Ragnar sagði
mér í morgun að það dygði ekkert
annað en beinhörð greiðsla í pening-
um,“ sagði Jóhann.
Biskupstungur:
Framkvæmdir hafhar
við Eíri-Reykjaviikjun
VEÐURHORFUR í DAG, 24. JÚNÍ
YFIRLIT í GÆR: Vestan- og suðvestangola eða kaldi um mestallt
land. Víðast var skýjað, en þurrt. Hiti á bilinu 7-13 stig, hlýjast á
Suðausturlandi.
SPÁ: Austan- og suðaustanátt og skýjað um allt land. Rigning
sunnanlands en þurrt nyrðra. Hiti 7-13 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Norðaustanátt. Víða rigning eða súld á
Norður- og Austurlandi, en þurrt og víða bjart veður á Suöur- og
Vesturlandi. Hiti 7-14 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Norðanátt um land allt. Súld eða smáskúr-
ir við norður- og austurströndina, en annars þurrt. Víða léttskýjað
sunnanlands. Hiti 6-12 stig.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
•kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veSur
Akureyri 12 alskýjað
Reykjavík 9 skýjað
Bergen 15 skýjað
Helsinki 24 léttskýjað
Kaupmannah. 25 léttskýjað
Narssarssuaq 7 rigning
Nuuk 3 rigning
Ósló 22 léttskýjað
Stokkhólmur 26 léttskýjað
Þórshöfn 10 hálfskýjað
Algarve 29 heiðskírt
Amsterdam 19 léttskýjað
Barcelona 27 mistur
Berlín 27 léttskýjað
Chicago 24 mistur
Feneyjar 23 rigning
Frankfurt 21 skýjað
Glasgow 13 alskýjað
Hamborg 22 léttskýjað
Las Palmas 26 léttskýjað
London 22 léttskýjað
Los Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd 31 léttskýjað
Malaga 27 heiðskírt
Mallorca 28 léttskýjað
Montreal 23 léttskýjað
New York 21 þoka
Orlando 24 skýjað
París vantar
Róm þokumóða
Vín 21 hálfskýjað
Washington 24 þokumóða
Winnipeg vantar
FYRSTA skóflustungan að Efri-Reykjavirkjun í Biskupstungum var
tekin 21. júní. Virkjuð verður öflug borhola og vatn úr henni fyrst
í stað nýtt fyrir Hlíðamannaveitu í efri hluta Biskupstungna. Hlíða-
mannaveita var stofnuð 1. maí síðastliðinn og nær til 13 býla og
allmargra sumarbústaða.
Ár er liðið síðan borun lauk á
Efri-Reykjum. Rannsóknir á vatn-
inu leiddu í ljós að vatnið er vel
fallið til hitaveitunotkunar. í upp-
hafi var áformað að leggja tvo
veitustofna frá Efri-Reykjum, ann-
an með Hlíðum að Austurhlíð, hinn
um miðsveitina í Eystri-Tungu um
Tungufljótsbrú. Ekki náðist sam-
komulag um eystri stofninn þannig
að byijað verður á Hlíðamanna-
veitu. Hún nær til 13 býla og all-
margra sumarbústaða og hefur til
umráða 12,5 sekúndulítra af vatni.
í hagkvæmniathugun Verk-
fræðistofu Suðurlands á Hlíða-
mannaveitu segir að eftir tilkomu
hitaveitu megi reikna með að ra-
forkuþörf verði 20$ af núverandi
orkunotkun. Síðan segir í athugun-
inni:„Með tilkomu hitaveitunnar
má ljóst vera að möguleikar á nýt-
ingu eigna aukast mjög og verð-
mæti þeirra einnig. Á tímum
minnkandi framleiðslu í hefð-
bundnum landbúnaði er hér kom-
inn góður möguleiki á að renna
styrkari stoðum undir alla afkomu
og framtíð byggðarlagsins."
Efri-Reykjavirkjun og Hlíða-
mannaveita eru hannaðar af Verk-
fræðistofu Suðurlands. Öll stofn-
lögn veitunnar er úr úretanein-
angruðu stáli. Heildarkostnaður er
um 30 milljónir. Eigendur veitunn-
ar munu annast framkvæmdir og
leggja fram helming kostnaðarins
á þessu ári en afgangurinn er feng-
inn að láni. Hlíðamannaveita selur
vatn til lögbýla sem kaupa mismik-
ið en þau geta aftur selt vatn í
sitt land, til sumarbústaða eða
annarra. Verslunarmannafélag
Reykjavíkur hefur gert samning
um að fá heitt vatn í sumarbústaði
í landi Miðhúsa. Áætlað er að heita
vatnið kosti um 15 þúsund krónur
á ári í hvern sumarbústað.
Vatnsmassinn í holunni á Efri-
Reykjum er 145 stiga heitur. Vatn-
ið verður leitt í gegnum gufuskilju
og síðan um dælustöð sem áformað
er að knýja með gufutúrbínu. Á
umræðustigi er nú annar veitu-
stofn, frá Efri-Reykjum vestur í
Laugardal, allt að Miðdal. Mikil
hitaorka er þó ónýtt á Efri-Reykj-
um sem vonast er til að megi nýta
á næstu árum.
„Þessi hitaveitumöguleiki héma
er lykilatriði fyrir byggðina og
gefur henni möguleika á að standa
af sér samdrátt," sagði Björn Sig-
urðsson í Úthlíð formaður Hlíða-
mannaveitu. Með Bimi í stjóm
veitunnar eru Gunnar Ingvarsson
á Efri-Reykjum, Sighvatur Amórs-
son, Miðhúsum, Guðrún Guð-
mundsdóttir í Hlíðatúni, Páll Ólaf-
son Brekku og Magnús Kristinsson
Austurhlíð I.
— Sig. Jóns.