Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1089 39 Efiiilegur flautuleikari í New York. FLAUTULEIKUR Áshildi vel tekið í New York M Ashildur Haraldsdóttir flautuleikari hélt ekki alls fyrir löngu sfna fyrstu einleiks- tónleika í Cami Hall í New York. Á efnisskránni var ein- ungis nýleg tónlist eftir íslensk og amerísk tónskáld, þar af þijú verk sérstaklega samin fyrir Áshildi. í umsögn um tónleikana sagði John Rockwell, aðaltón- listargagnrýnandi stórblaðsins New York Times, meðal ann- ars: „Áshildur Haraldsdóttir er íslenskur flautuleikari sem hef- ur mikla tónlistarhæfileika, töfrandi sviðsframkomu og héitir auk þess þessu yndislega hljómfagra nafni... Efnisskrá- in var metnaðarfull þó ekki ættu öll tónverkin skilið _að Áshildur léki þau. Best á tón- leikunum voru verk tveggja íslensku tónskálda, „Eco del Passato“ eftir Hauk Tómasson og „Xanties" eftir Atla Heimi Sveinsson. Bæði verkin tókust á við tæknileg litbrigði sem Áshildur leysti af hendi með miklum glæsibrag." Áshildur Haraidsdóttir lauk á síðastliðnu vori Masters-prófi frá Juilliard-skólanum í New York og var fulltrúi íslendinga á Tvíæringi norrænna einleik- ara sem haldinn var í Reykjavík síðastliðið haust. í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖOINNI, KASTRUFFLUQVELLI OG Á RÁOHÚSTORGI FURÐUR Sekkjapíputónleikar á Spilli Eitt sólríkt júníkvöld lögðu tveir Súgfirðingar af stað í fjall- göngu. Leiðin lá upp fjallið Spilli, sem stendur uppaf Suðureyri. Það væri nú ekki í frásögur færandi nema að á leiðinni upp fjallið urðu þeir félag- ar fyrir einstöku atviki, sem fáir fjall- göngumenn hefðu átt von á. Ferðin var hugsuð sem náttúruskoðunarferð og var ætlunin að taka fáeinar ljós- myndir. Eftir hálftíma göngu heyrðu þeir einkennilegt hljóð koma ofan úr fjall- inu. Fyrsta tilgátan var sú, að hljóð- ið kæmi hugsanlega frá nærliggjandi símalínum. En þegar ofar dró fór að heyrast hugljúft undirspil og þá litu þeir vinirnir á hvorn annan og urðu mikið undrandi. Tiigátan um símalín- umar varð að engu og skyndilega þagnaði lagið og allt varð hljótt í fjallinu, nema lækjarniðurinn í fjarska. Þá var sú ákvörðun tekin að ganga af leið til að grennslast nánar um hljóðið. Eftir dálitla göngu sáu þeir mann koma gangandi niður í áttina að þeim og var hann með eitthvað í höndunum. Maðurinn heilsaði á íslensku og eftir kurteislega kynn- ingu, kom í ljós að þama var á ferð- inni þýskur háskólanemi Stefan Marcus að nafni. Hann sýndi félög- unum leyndarmálið, sem var þessi forláta „sekkjarpípa". En hvers vegna var hann að leika á pípuna uppí íjalli? „Jú, hljómgæðin.em best við þessi skilyrði,“ sagði Stefan, „tónlistin verður fullkomin þegar leikið er undir bemm himni". Og áfram var spurt um t.d. vem hans á íslandi. Hann sagðist búinn að vera á íslandi í nokkur ár við nám í Háskólanum og líkaði bara vel. í sumar ætlar hann að vinna í fiski hjá Freyju á Suðureyri. í lokin vildu fjallgöngumennirnir fá smá sýnishorn frá þessu skosk- ættaða hljóðfæri sem þeir höfðu aldr- ei séð fyrr eða heyrt í svona í beinni útsendingu. Það var ekkert nema sjálfsagt og hóf maðurinn að þenja sekkinn og blés í pípuna og fljótlega fylltu tónarnir loftið. Vinirnir sátu skammt frá, báðir dáleiddir með gæsahúð og heilluðust af undirspil- inu, sem var engu líkt. Eftir lagið fékkst það uppúr Stefan að hann væri búinn að leika á sekkjapípu í 10 ár og að hann væri eini sekkjapípuleikarinn á íslandi. Með bros á vör kvöddu þeir manninn og héldu áfram ferð sinni og hugsuðu „hvað skyldum við rekast á næst“? Þá kvað við heldur kunnuglegra hljóð. Rjúpukarri kom ropandi og lét sig svífa niður hlíðina og tyllti sér á stein stutt frá. Myndavélin var tekin upp og fuglinn festur á filmu eins og fyrri gesturinn. Fleiri karrar sáust í sömu ferð, allir snjóhvítir með fag- urrauða kamba og ropuðu í sífellu. Sólin varpaði síðustu geislunum á fjallatoppana og kominn tími til að haida niður. Ánægðir í bragði snem þeir við og héldu heim á leið úr fjalla- ferð sem lengi verður í minnum höfð. - R. Schmidt Hér er Stefan Marcus að leika fyrir Qallgöngumennina tvo á sekkjarpípuna í fjallinu Spilli í Súgandafírði. Morgunblaðið/Róbert Schmidt RETTU SUMARGRÆ JURNAR Sölusýning í Sliipholti 33, viö hlidina á Tónabíói Opið virka daga frá kl. 11 til 18 og um helgar 13 til 18 alpen kreuzer TJALDVAGNAR Vinsælustu tjaldvagnarnir í Evrópu, enda sterkir, ríkulega útbúnir og á 13“ dekkjum. í þeim er m.a. stálvaskur, 3ja hellna gaselda- vél, eldhúsborð og skápar, matborð, hnífa- paraskúffa, læst öryggishólf, gluggatjöld, rúmgott farangursrými, varadekk, fortjald, sóltjald. Mjög meðfærilegir og tjöldun tekur á um 5 mínútur. 4 stærðir. Verð frá kr. 214.000,- til kr. 278.600,- ilti! IIA HJÓLHÝSI Sterk og vel einangruð 12 feta hjólhýsi. Raf- kerfi 12 og 220 volt. Eldhús, eldavél og renn- andi vatn. Mikið skápapláss. Gluggar úr tvö- foldu, lituðu akrylgleri. Neyðarhjálpar- og stöðuhemlar. VinduQöðrun. 13“ dekk. Svefnpláss fyrir 4-5. Verð kr. 324.000,- og kr. 372.900,- með ísskáp og hitakerfi. Fáanleg með fortjaldi. 'V KOOLATRON® KÆLIBOX Frá stærsta framleiðanda heims á kælibox- um, ætluðum til innstungu í vindlingakveik- jara og með straumbreyti fyrir 220 volt. Straumnotkun frá aðeins 2,5 amperum. Nauðsynleg á ferðalögum fyrir matinn og ölið. Rúmmál 7 til 34 lítrar. Breytt með einu handtaki í hitabox. Verð frá aðeins kr. 7.480,- Takmarkaðar birgðir. Sendum í póstkröfu. BERGLAND ■Jp Sölusýning í Skipholti 33, sími 678990 Skrifstofa í Skipholti 25, sími 627890 Ofangreint verð er miðað við tollgengi júnímánaðar 1989.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.