Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989
47
ÍPRÚmR
FOLK
■ TOTTENHAM hefur gengið
endanlega fra'samningi við Barce-
lona um kaup á enska landsliðs-
framhetjanum Gary Lineker.
Kaupverðið er 2,325 milljónir doll-
ara (1,5 milljón sterlingspund).
Samningurinn er til fjögurra ára.
Að sögn Linekers hafði hann sam-
band við Tottenham að eigin frum-
kvæði. Hann viðurkenndi að það
hefði ráðið miklu um þá ákvörðun,
að Terry Venebles héldi nú um
stjórnvölinn hjá félaginu. Það var
einmitt Venebles, sem keypti Line-
ker til Barcelona frá Everton
1986.^
■ ÍTALSKIR embættismenn
harðneituðu fréttum brezkra blaða
þess efnis, að HM á Ítalíu yrði
nokkurs konar „opið hús“ fyrir
enskar knattspymubullur. Þeir
sögðu, að haft yrði strangt eftirlit
til að koma í veg fyrir að nafntogað-
ir óeirðaseggir fengju miða á leik-
ina. Yrði þetta verk unnið í sam-
ráði við enska knattspyrnusam-
bandið.
■ BRASILÍSKA landsliðið í
knattspymu reið ekki feitum hesti
frá viðureignum sínum í Evrópu á
dögunum. Liðið tapaði þremur land-
sleikjum og marði loks markalaust
jafntefli við Evrópumeistarana
AC Mílanó. Þjálfari Brasilíu-
rnanna, Sebastio Lazaroni, hefur
verið gagnrýndur vegna slælegrar
frammistöðu liðsins en á hitt verður
að benda, að marga lykilmenn hef-
ur vantað í liðið í undanförnum
leikjum.
■ ÍTALSKA stórliðið Napoli
var í gær sektað um 100.000 sviss-
neska franka (3,5 milljónir
íslenskra króna) vegna óláta sem
áhangendur liðsins efndu til á úr-
slitaleik Evrópubikarkeppninnar
í síðasta mánuði. Napoli sigraði þá
vestur-þýska liðið Stuttgart.
Um helgina
Knattspyma
Laugardag kl. 14.00
1. deild kvenna:
KR-völlur................KR—KA
2. deild karla:
Einheiji—Selfoss
ÍBV—Tindastóll
3. deild karla:
Grótta—Leiknir R.
B.Í.—Hveragerði
Afturelding—Þróttur R
Kormákur—Huginn
Reynir Á—Austri E
4. deild karla:
Skotfélag R—Njarðvík
Emir—Pjölnir
Haukar—Geislinn
5. M.—HSÞ-b
Efling—U.M.F. Neisti
Æskan—Hvöt
Sindri—Leiknir F
Sunnduagur kl. 20.00
1. deild karla:
Valur—Fyikir
ÍBK-lA
FH-KR
KA—Víkingur
4. deild karla kl. 14.00:
Fyrirtak—Augnablik
Mánudagur kl. 20.00:
1. deild karla:
Fram—Þór
2. deild karla:
Víðir—Völsungur
Breiðablik—Stjarnan
KR-dagurinn
KR-dagurinn 1989 verður hald-
inn á morgun, sunnudaginn 25.
júní á svæði félagsins við Frosta-
skjól. Knattspymufélag Reykjavík-
ur, KR, á 90 ára afmæli um þessar
mundir og verður KR-dagurinn
helgaður þeim tímamótum. Efnt
verður til keppni eða sýninga í flest-
um þeim íþróttagreinum, sem í er
keppt í nafni félagsins. Keppni hefst
kl. 13.
Auk þess verður boðið upp á veit-
ingar og skemmtiefni og nýtt lyft-
ingahús félagsins sýnt.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KVENNA
Valssigur
ítopp-
slagnum
Kristrún með þrennu gegn Stjörnunni
ÍSLANDSMEISTARAR Vals
unnu mikilvægan sigur á ÍA f
gærkvöldi. Leikurinn endaði
3:0, en Valur leiddi í leikhléi
með einu marki. Valsstúlkur
eru því enn taplausar í deild-
inni, en ÍAtapaði sínum fyrsta
leik íþessari viðureign. Þá
unnu Breiðabliksstúlkur mikil-
vægan sigur á Stjörnunni, 4:1.
Staðan í leikhléi var 2:0.
Valur náði forystunni í jöfnum
leik með marki Sigrúnar Ástu
Sverrisdóttur um miðjan fyrri hálf-
leik. Eftir það fékk Skagaliðið
ágætis tækifæri til þess að jafna,
en inn vildi boltinn ekki. M.a. átti
Margrét Ákadóttir tvívegis með
stuttu millibili hörkuskot fram hjá
Valsmarkinu eftir hornspyrnur.
ÍA sótti meira í byijun síðari
hálfleiks án þess þó að hættuleg
marktækifæri hlytust af. Smám
saman náðu Valsstúlkur tökum á
leiknum, og Guðrún Sæmundsdóttir
innsiglaði sanngjaman sigur liðsins
með tveimur fallegum mörkum.
Fyrra markið skoraði Guðrún
beint úr aukaspymu af löngu færi.
Glæsilegt mark, og ekki í fyrsta
skipti sem Guðrún fullnýtir auka-
spyrnur Valsliðsins. Seinna markið
var engu síðra. Magnea Magnús-
dóttir tók hornspyrnu sem Guðrún
framlengdi í markið með hörku-
skalla.
Stórsigur UBK
Kristrún Lilja Daðadóttir skoraði
þijú mörk í stórsigri Breiðabliks á
Stjörnunni. Kristrún skoraði fyrsta
mark leiksins og Sigrún Óttars-
dóttir kom UBK í 2:0 með
stórglæsilegu marki fyrir leikhlé.
Hmnd Grétarsdóttir minnkaði
muninn fyrir Sijörnuna i upphafi
síðari hálfleiks en Breiðabliksstúlk-
ur höfðu ekki sagt sitt síðasta orð,
og Kristrún innsiglaði ömggan sig-
ur liðsins með tveimur mörkum
undir lokin. Sigur Breiðabliks var
mjög ömggur og þær vom nálægt
því að bæta fímmta markinu við
þegar Sara Haraldsdóttir skaut þm-
muskoti í samskeytin á marki
Stjörnunnar í síðari hálfleik.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bryndís Valsdóttir Valskona á hér í baráttu við einn vamarmanna ÍA
viðureign liðanna í gærkvöldi. Valsstúlkur fóm með sigur af hólmi og sitja nú
einar á toppi deildarinnar.
KÖRFUKNATTLEIKUR / EVRÓPUKEPPNI
Koma Sovétmenn
fram hefndum?
Sovétmenn og,Júgóslavar fóm
létt með að tryggja sér sæti
í undanúrslitum Evrópukeppninn-
ar í körfuknattleik sem fram fer
í Júgóslavíu. Bæði liðin fóm gegn-
um undankeppnina án þess að
tapa leik.
Sovétmenn mættu Spánveijum
í síðasta leik undankeppninnar.
Spánveijar leiddu í hálfleik 55:47,
en Sovétmenn sigldu hægt og
rólega fram úr í síðari hálfleik og
LEIFTURSMENN hristu heldur
betur af sér slenið þegar þeir
mættu ÍR á Ólafsfjarðarvelli í
gærkveldi og sigruðu þá með
einu marki gegn engu. Fyrir
leikinn hafði Leiftur ekki unnið
leik og aðeins fengið tvö stig.
Leikurinn var hálfgerð einstefna
heimamanna að marki ÍR-inga,
en þrátt fyrir mörg marktækifæri
skomðu þeir ekki nema eitt mark.
unnu örugglega 108:96. Grikkir,
sem em núverandi Evrópumeist-
arar, mæta Sovétmönnum í und-
anúrslitum. Þar verður örugglega
um hörkuviðureign að ræða þar
sem Sovétmenn eiga harma að
hefna frá því að Grikkir unnu þá
í síðasta úrslitaleik Evrópukeppn-
innar fyrir tveimur árum.
Júgóslavar lentu í basli framan
af í sínum síðasta leik í undan-
keppninni. Mótheijamir, sem vom
Frakkar, sýndu frábæran leik og
Eina mark leiksins
FráHelga kom á 55. mínútu
Jónssyniá þegar Halldór Guð-
Ólafsfirði. mundsson fékk góða
stungusendingu inn
í vítateiginn, og þrátt fyrir að tveir
vamarmenn fylgdu honum fast á
hæla, tókst honum að senda knött-
inn í bláhomið.
Eitt umdeilt atvik átti sér stað
um miðbik seinni hálfleiks, þegar
Leiftursmenn vildu meina að einn
heimamanna hefði handleikið
afleiðingin varð jöfnog spennandi
viðureign. Það var ekki fyrr en
að aðalstjama Júgóslava, Real
Madrid leikmaðurinn Drazen
Petrovic kom inn á í síðari hálf-
leik, að hlutirnir fóm að ganga
fyrir heimaliðið. Þjálfari Júgó-
slava hafði hugsað sér að hvíla
Petrovic fyrir undanúrslitin, en
viðurkenndi að án hans
gengi spilið ekki upp. Júgóslavar
sigmðu 106:89 (41:48) og leika
gegn Italíu í undanúrslitum.
knöttinn en dómarinn dæmdi ein-
ungis horn.
Það var fyrst eftir að markið
hafði verið skorað að ÍR-ingar
sýndu hvað í þeim bjó og þá fyrst
tóku þeir til við að sælqa og Tryggvi
Gunnarsson átti þá gott skot að
marki, en boltinn smaug framhjá
stönginni.
Sigur Leifturs í leiknum var
sanngjam og nauðsynlegur liðinu
til að eiga möguleika á að blanda
sér í baráttuna.
íþróttir í
sjónvarpi
íþróttaunnendur fá glaðning á
sunnudagskvöld kl. 22. Þá mun ríkis-
sjónvarpið sýna úrslitaleikinn í Evr-
ópukeppni landsliða í körfuknattleik,
sem fer fram fyrr um kvöldið. Allt
bendir til að það verði Sovétmenn
og Júgóslavar sem keppa til úrslita.
■Glaðningurinn heldur síðan áfram
á fimmtudaginn kemur. Þá verður
sýnt beint frá heimsleikunum í fijáls-
[þróttum í Helsinki. Einar Vilhjálms-
son og Vésteinn hafsteinsson keppa
þar. Keppnin verður frá kl. 15.30 til
18.30. Þetta er í annað sinn sem
sjónvarpið sýnir beint frá frjálsum
íþróttum, fyrir utan Ólympíuleika.
ÚRSLIT
1. deild kvenna:
Valur—ÍA.........................3:o
Guðrún Sæmundsdóttir 2, Sigrún Ásta
Sverrisdóttir.
Breiðablik—Stjarnan..............4:1
Kristrún Lilja Daðadóttir 3, Sigrún Óttars-
dóttir — Hrund Grétarsdóttir.
2. deild karla:
Leiftur—ÍR.......................1:0
Halldór Guðmundsson.
3. dcild karla:
Víkveiji—ÍK......................0:1
— Júlíus Þorfinnsson. .
Reynir S—Grindavík...............1:5
Vaídimar Júlíusson — Páll Bjömsson 3,
Aðalstcinn Ingólfsson, Ólafur Ingólfsson.
Dalvík—Magni.....................3:1
Ragnar Rögnvaldsson 2, Sigfús Kárason —
Sverrir Heimisson.
K.S.—ValurRf.....................7:0
Hafþór Kolbeinsson 4, Hlynur Eiríksson 2,
Óli Agnarsson.
4. deild karla:
Víkingur ÓI—Skallagrímur.........0:4
Sigurður Már Harðarson 2, Valdimar Sig-
urðsson, Þórhallur Jónsson.
Baldur—Hafnir....................2:4
Yngvi Karl Jónsson, Ámi Sæmundsson —
Gunnar Bjömsson, Jóhann Bergmannsson,
Guðmundur Þórðarson, Ásgeir Þórðarson.
Léttir—Árvakur...................3:5
Erlendur Davíðsson 2, Magnús Sæmunds-
son — Friðrik Þorbjömsson 2, Sigurður
Pétursson 2, Magnús Jónsson.
UMSE-b—T.B.A................... 1:3
Garðar Jónsson — Sigurpáll Ámi Aðal-
steinsson 2, Pétur Bjamason.
KSH—Höttur........................2:5
Jónas Ólafsson, Albert Jensson — (Sima-
sambandslaust var við Egilsstaði í gær-
kvöldi og náðist því ekki í upplýsingar um
markaskorara Hattar).
BORÐTENNIS / UNGLINGALANDSLIÐIÐ
Fjórtán til Skotlands og Englands
Unglingalandsliðið í borðtenn- Stjörnunni, tveir frá Víkingi og Síðan verður haldið til Birming-
is fer í dag til æfinga og einn frá KR. ham í Englandi og tekið þátt í
keppni í Skotlandi og Wales. Liðið verður í æfingabúðum í breska skólameistaramótinu.
Fjórtán keppendur fara - sex frá Skotlandi í fimm daga, þar sem Þetta er í þriðja sinn sem íslensku
Magna á Grenivík, fimm frá það æfir með skoska landsliðinu. unglingalandslið tekur þátt.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Fyrsti sigur Leiftursmanna