Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989
15
Víxlarar í helgidómnum
eftir Þorbjörn
Broddason
Grein Margrétar Sigurðardóttur
í Morgunblaðinu þriðjudaginn 20.
júní sl. er fyrsta tilraun sem mér
er kunnugt um til að bera blak af
stjómendum Tjarnarskóla í
Reykjavík vegna mjög alvarlegra
mistaka sem þeim urðu á við skóla-
slit nú í vor. Ekki má láta þessari
grein Margrétar ósvarað með öllu
jafnvel þótt skoðanasystkini hennar
hljóti að vera fámennur hópur.
Margrét vísar í upphafi greinar
sinnar til „neyðarúrræðis er stjórn-
endur Tjarnarskóla urðu að viðhafa
við skólaslit.“ Síðar í greininni ræð-
ir hún um „óréttmæta ásökun“
vegna sama atburðar. Margrét lítur
því augljóslega svo á að það geti
verið rétt og nauðsynlegt að koma
fram við bam á þann hátt sem
stjómendur Tjamarskóla gerðu og
rakið hefur verið í ijölmiðlum.
Margrét er haldin þeirri mein-
loku, sem illu heilli hefur einnig
gripið skólastjómenduma, að hinn
óskilvísi faðir sé ábyrgur fyrir fram-
komu skólans við bamið. Þama
afhjúpa þær hörmulegan misskiln-
ing sem verður að leiðrétta. Tjam-
Skálholtskirkja
Sumartónleik-
ar í Skálholti
hefjast 1. júlí
SUMARTÓNLEIKAR í Skál-
holtskirkju hefjast laugardaginn
I. júlí og munu standa, yfir fímm
helgar í júlí og ágúst. Sumartón-
leikar hafa verið haldnir í Skál-
holti óslitið frá árinu 1975 og
hefúr frá upphafi verið lögð
áhersla á að flytja annars vegar
íslenska samtímatónlist og hins
vegar barokktónlist; einkum tón-
list Jóhanns Sebastians Bach.
Á sumartónleikunum munu ijöl-
margir einleikarar og söngvarar
koma fram, flestir íslenskir. Einnig
mun barokksveit Sumartónleikanna
koma fram í Qórða sinn helgina 29.
og 30. júlí og flytja verk frá 18. öld
á upprunaleg hljóðfæri. Þá mun
sönghópurinn Hljómeyki fmmflylja
messu eftir Hjálmar H. Ragnarsson
um verslunarmannahelgina, 5. til
7. ágúst.
Laugardaginn 1. júlí munu
Manuela Wiesler og Pétur Jónasson
leika á flautu og gítar í Skálholts-
kirlqu. Klukkan 15.00 em á dag-
skrá verk eftir Jóhann Sebastian
Bach en klukka 17.00 verða leikin
nútímatónverk. Sunnudaginn 2. júlí
kl. 15.00 munu þau Pétur og Manu-
ela leika úrval úr efnisskrá laugar-
dagsins og einnig verða þættir úr
tónleikaskránni leiknir við messu
kl. 17.00.
Aðgangur að Sumartónleikunum
í Skálholtskirkju er ókeypis. Á
sunnudögum em áætlunarferðir frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík
að Skálholti. Brottför er klukkan
II. 30 en farið til baka klukkan
17.30.
„Þess vegna er það sem
vel er gert í þessum
skóla til álitsauka fyrir
forystu skólamála í
landinu og borginni, en
það sem miður fer varp-
ar skugga á allt skóla-
kerfi okkar o g við ber-
um öll áþví nokkra
ábyrgð.“
arskóli er gmnnskóli og starfar
samkvæmt gmnnskólalögum. Hann
er kostaður að vemlegum hluta af
almannafé, jafnvel þótt hann sé
kallaður einkaskóli, og mun það
óumdeilt að aukakostnaður skatt-
greiðenda vegna hans nemi nokkr-
um milljónum króna á ári.
I 75. gr. gmnnskólalaga segir
að menntamálaráðuneytið geti
löggilt einkaskóla „enda hlíti slíkir
skólar sama eftirliti og reglum og
aðrir gmnnskólar." í 59. gr. segir
„Er grunnskólanámi lýkur skal
nemandi fá skírteini, er votti að
hann hafi lokið skyldunámi sam-
kvæmt lögum.“
Ekki getur leikið mikill vafi á því
að vikið hafi verið frá anda og bók-
staf þessara laga þegar hótað var
að neita baminu um skólaskírteini
til að þvinga fram fullnustu skuld-
ar. Þegar þessari hótun var síðan
framfylgt í Dómkirkjunni hinn 31.
maí sl. vom lögin ekki einungis
forsmáð heldur bmtu stjórnendur
Tjamarskóla gegn siðbundnum
skyldum sínum sem erfitt er að
orða og festa á blað þótt reynt
hafi verið. Þannig segir í 2. gr.
grunnskólalaganna (markmiðs-
greininni) að starfshættir skólans
skuli „mótast af umburðarlyndi,
kristilegu siðgæði og lýðræðislegu
Þorbjörn Broddason
samstarfi." Skólinn á að „temja
nemendum víðsýni og efla skilning
þeirra á mannlegum kjömm og
umhverfi ... og skyldum einstakl-
ingsins við samfélagið." í Aðalnám-
skrá grannskóla frá 28. apríl sl.,
sem lengi var í smíðum og almenn-
ur einhugur virðist ríkja um, segir
á bls. 11: „Aðstæður bama og ungl-
inga em mjög misjafnar, uppeldi
þeirra og reynsla ólík. Nauðsynlegt
er að í skólastarfi sé tekið tillit til
þessa.“
Stjómendur Tjamarskóla áttu
engar sakir óuppgerðar við bamið
umrædda. Þeim hafði hins vegar
verið trúað og treyst fyrir velferð
þess, ekki einasta af foreldranum,
heldur yfirvöldum skólamála í
landinu. Þessum trúnaði gleymdu
þær vegna uppsafnaðrar gremju í
garð erfiðs skuldunauts.
Margrét Sigurðardóttir tilgreinir
dýrmæta kosti Ijarnarskóla. Þeir
njóta sín ekki vel þegar þeim er
teflt gegn atburðinum í Dómkirkj-
unni. Ef Margrét hefði viðurkennt
að viðskiptahættir stjómenda
Tjarnarskóla þörfnuðust endur-
skoðunar, hefði verið viðeigandi að
minnast á jákvæðu hliðamar. Hún
gerir það ekki, heldur leggur
beinlínis blessun sína yfir aðferðir
skólastjórnendanna. Fyrir vikið
verða meðmæli hennar með skólan-
um að verra öfugmæli en hann á
skilið.
Höfundur erfiiUtrúi ífræðsluráð.
Reykjavíkur.
;
:=■
:?
■
? c»<v ? oj# a 9 .Pf
*
MADDAMA, KERLING, FROKEN, FRU
VEISTU HVERT ÞÚ STEFNIR NÚ?
KVENNALISTAKONUR Á FERÐ
ALMENNIR FUNDIR, VINNUSTAÐAHEIMSÓKNIR,
ÚTIMARKAÐIR.
AUSTURLAND
VESTURLAND
Guðrún Agnarsdóttir og
Þórhildur Þorleifsdóttir
Danfríður Skarphéðinsdóttir og
Kristín Einarsdóttir
Kristín Halldórsdóttir og
Málmfríður Sigurðardóttir.
26. JÚNÍ, MÁNUDAGUR Höfn í Hornafirði. 26. JÚNÍ, MÁNUDAGUR Búðardalur. 26. JÚNÍ, MÁNUDAGUR Reykjahlíð.
27. JÚNÍ, ÞRIÐJUDAGUR Höfn í Hornafirði - Iðavellir. 27. JÚNÍ, ÞRIÐJUDAGUR Stykkishólmur - Grundarfjörður. 27. JÚNÍ, ÞRIÐJUDAGUR Ólafsfjörður - Hrísey - Dalvík.
28. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR Egilsstaðir. 28. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR Ólafsvík - Breiðablik. 28. JÚNÍ, MIÐVIKUDAGUR Grenivík - Húsavík - Þórshöfn.
29. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR Borgarnes - Logaland. 29. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR Raufarhöfn - Kópasker - Breiðamýri.
29. JÚNÍ, FIMMTUDAGUR Borgarfjörður eystri.
30. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR Scyðisfjörður. 30. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR Akrancs. 30. JÚNÍ, FÖSTUDAGUR Akureyri.
Konur mætast, konur kætast.
Sjá nánar í götuauglýsingum - Geymið auglýsinguna.
?
NORÐURLAND EYSTRA
£
í
9
9\
O**® O*-
PQ;v<?'g<Vov ? Tó,- o*