Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989 27 Kjartan Þorsteinsson Olafsvík — Minning’ Fæddur 16. október 1913 Dáinn 18. júní 1989 í dag, laugardaginn 24. júní, verð- ur jarðsettur frá Ólafsvíkurkirkju Kjartan Þorsteinsson, vélgæslumað- ur, Ólafsbraut 44 hér í bæ. Kjartan andaðist að heimili sínu aðfaranótt 18. júní sl. á sjötugasta og sjötta aldursári. Enda þótt heilsu hans hafi farið heldur hrakandi síðastliðið ár vann hann fullan vinnudag við vélgæslu- störf hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur, sem hann hefur nú starfað óslitið hjá í 43 ár. Kom hann heim af vinnu- vakt aðeins fjórum klukkustundum áður en hann andaðist. Með Kjartani er fallinn í valinn góður og gagnmerkur maður hér í Ölafsvík þar sem óslitinn starfsvett- vangur hans hefur staðið í rúm 60 ár. Fyrstu 20 árin var hann sjómað- ur en eins og áður sagði hefur hann starfað óslitið hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur frá árinu 1946 sem vél- gæslumaður. Jafnlangur starfsvett- vangur hjá sama vinnuveitanda seg- ir meira um hann sem starfsmann en mörg orð. Hin dagfarsprúða framkoma hans og jafnlyndi á vinnu- stað gerðu það að verkum að hann var alltaf vinsæll og vel látinn, bæði af vinnufélögum og stjórnendum fyrirtækisins. Á jafnlöngum starfsferli á sama vinnustað eru vinnufélagarnir orðnir margir og stór hluti þeirra horfinn yfir móðuna miklu. En allir þeir sem nú starfa hjá Hraðfrystihúsi Ól- afsvíkúr kveðja hér vel látinn og traustan vinnufélaga. Kjartan Þorsteinsson fæddist 16. október árið 1913 í Hlíðarkoti í Fróð- árhreppi. Hann var yngstur 10 systkina. Foreldrar hans voru hjónin Kristjana Jónatansdóttir og Þor- steinn Þórðarson. Hann fluttist með foreldrum sínum til Ólafsvíkur 9 ára að aldri og bjó síðan hér og starfaði í Ólafsvík. Að honum látnum eru 3'systkina hans á lífi, systurnar Hugborg og Hallfríður hér í Ólafsvík og bróðirinn Gunnar, búsettur í Reykjavik en þar dvelur hann nú á sjúkrahúsi. Hallf- ríður býr hér að Sandholti 14 en Hugborg dvelur á dvalarheimilinu Jaðri hér í Ólafsvík. Árið 1932 hóf Kjartan sambúð með Ingibjörgu Ólafsdóttur úr Ól- afsvík. Ingibjörg var þá ekkja með 3 ung börn sem Kjartan gekk í föð- ur stað. Þau Ingibjörg og Kjartan eignuðust síðan 4 börn. Þau eru: Haraldur, búsettur hér í Ólafsvík, Theódóra, sem lést árið 1960, þá ung húsmóðir tæpra 25 ára, Gunn- ieifur, búsettur í Reykjavík og Pét- ur, einnig búsettur í Reykjavík. Þau Ingibjörg og Kjartan slitu samvist- um_ 1956. Árið 1957 hóf Kjartan sambúð með Huldu Sigurðardóttur og gengu þau í hjónaband í desember 1959. Hulda lifir nú mann sinn. Þau Hulda og Kjartan tóku fljót- iega í fóstur unga stúlku, Ástrósu Gunnarsdóttur og reyndust henni sem bestu foreldrar svo sem, vænta mátti. Á heimili þeirra hefur einnig dvalist löngum stundum Hafsteinn Kristinsson frá unga aldri. Sá sem þessar línur ritar minnist Kjartans frá barnsaldri, þá sem ungs og hraustlegs sjómanns, síðar sem skipsfélaga eldri bræðra minna sem létust í sjóslysi fáum árum síðar. Frá upphafi bar hann með sér einkenni karlmennsku og traust- leika. Þessi einkenni ásamt unglegu útliti fylgdu honum alla tíð. Leiðir okkar sem starfsfélaga í sama starfi lágu saman á vinnustað fyrir um 20 árum síðan. Áður höfðum við unnið sams konar störf í aðskildum fyrirtækjpm hlið við hlið. En á starfsvettvangi V erkalýðsfélagsins Jökuls höfum við starfað samtímis í rúm 40 ár. Kjartan gekk ungur til liðs við hinn róttækari arm verkalýðshreyf- ingarinnar en eins og menn muna voru deilur og átök daglegir við- burðir á þeim vettvangi á fjórða og fimmta áratugnum. Sósíalistar og jafnaðarmenn voru sjaldnast sam- mála, hvorki um menn eða málefni. En mörg ár eru nú síðan liðin að okkur varð ljóst að félagslegur og skoðanalegur farvegur okkar bæði innan og utan verkalýðshreyfingar- innar var meira sameiginlegur en aðskilinn og þetta hefur, sem betur fer, orðið allflestum verkalýðssinn- um ljóst. Kjartan fylgdist mjög vel með gangi þjóðmála og hafði mikinn áhuga fyrir framförum og eflingu byggðarinnar hér og upplifði þá miklu að algjöru umsköpun sem átti sér stað hér í Ólafsvík á síðastliðinni hálfri öld og lagði hann sjálfur ekki svo lítinn skerf til þeirrar umsköpun- ar með langri og farsælli starfsævi við sjósókn og fiskframleiðslustörf. Nú þegar við sem störfum hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur kveðjum þennan góða og trausta vinnufélaga þökkum við honum alla vináttu og ekki síður það, að á hinum mörgu starfsárum minnumst við þess ekki að nokkru sinni hafi fallið styggðar- yrði í samstarfinu. Fyrir hans hönd erum við þakklát fyrir að hann skyldi fá að stíga svo að segja beint af síðustu vélgæsluvaktinni yfir hin miklu skil lífs og dauða eftir langa og farsæla starfsævi. Okkur er vel kunnugt um að þannig óskaði hann sjálfur að það gæti gerst. Við munum lengi geyma minning- una ujn hinn góða dreng og vinnufé- laga. Eftirlifandi eiginkonu, börnum og öðru vensiafólki sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Elinbergur Sveinsson Að eitt sinn skal hver deyja er fullvíst það eina sem við vitum með fuilri vissu að bíður okkar allra í þessum heimi. Hvað okkar bíður á morgun vitum við ekki, því allt annað er breyting- um háð og enginn veit hvenær kall- ið mikla kemur, kallið sem allir verða að hlýða hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þó svo að við höfum grun um að hveiju stefndi, þá kom andl- átsfrétt hans okkur á óvart. Kjartan var að vinna til miðnættis aðfara- nótt 18. júní og var hann látinn um morguninn. Kjartan var einn af þeim fyrstu sem gerðist vélstjóri á bátum í Ól- afsvík. Árið 1945 gerðist hann vél- gæslumaður í Hraðfrystihúsi Ól- afsvíkur og vann þar til dauðadags. Kjartan er fæddur í Hlíðarkoti í Fróðárhreppi en níu ára gamall flutti hann til Ölafsvíkur og bjó þar til dauðadags. 15 ára gamall byijaði Kjartan sjómennsku á árabátum. Upp úr 1943 fóru vélar að koma í bátana og fljótlega byijaði hann að eiga við þær. 1932 kynntist Kjartan móður minni, sem þá var ekkja með 3 börn. Tvö þeirra, Ásbjörn Péturs- son og Guðrúnu Pétursdóttur ólu þau upp. Þau slitu samvistum 1956. Börn Kjartans og Ingibjargar eru Theodóra Sigrún, fædd 13. ágúst 1935, dáin 10. janúar 1960, Gunn- leifur fæddur 29. janúar 1941, rann- sóknarlögreglumaður í Reykjavík, Haraldur Sævar fæddur 8. nóvember 1933, framkvæmdastjóri, Pétur fæddur 27. nóvember 1946, verk- stjóri. 1957 giftist Kjartan Ólafíu Huldu Sigurðardóttur. Fósturdóttir þeirra er Ástrós Gunnarsdóttir, fædd 4. desember 1959 og er hún búsett í Ólafsvík. Foreldrar Kjartans voru þau Kristjana G. Jónatansdóttir og Þor- steinn Þórðarson. Foreldrar Kjart- ans voru fyrst í Ólafsvík, fluttu síðan að Hlíðarkoti í Fróðárhreppi en fluttu svo aftur til Ólafsvíkur. Systk- ini Kjartans eru: Gunnar Leó, mál- arameistari, Reykjavík, Hugborg og Hallfríður, húsmæður í Ólafsvík, en hin eru látin. Þau voru: Þórður, skip- stjóri, Haraldur, sjómaður, Guðlaug- ur, verkstjóri, Sigrún og Sólveig Lilja, húsmæður, og hálfsystir hans, Svanfríður, sem Þorsteinn átti áður en hann giftist Kristjönu. Nú þegar við kveðjum vin okkar viljum við votta Huldu og bræðrum mínum djúpa samúð. Guðmundur G. Pétursson Kveðja frá verkalýðs- félaginu Jökli Við fráfall Kjartans Þorsteinsson- ar er horfinn af sjónarsviðinu einn elsti og traustasti félagsmaður vlf. Jökuls, Ólafsvík. Kjartan var einn af stofnfélögum þess árið 1937. Hann var hæglátur, yfirvegaður og úrræðagóður, komu þessir eiginleik- ar Kjartans sér vel fyrir félagið þar sem hann var nánast samfellt allt frá stofnun þess fram til dauðadags í stjórn, eða gegndi fyrir það margv- íslegum trúnaðarstörfum. Fyrir félag sitt sótti Kjartan fjöl- mörg þing og ráðstefnur hjá Al- þýðusambandi íslands og Verka- mannasambandi íslands, þá var hann í fjölda ára í stjórn úthlutunar- nefndar verkamannabústaða, og frá upphafi í úthlutunarnefnd atvinnu- leysisbóta. Kjartan setti sig vel inn í þau málefni sem efst voru á baugi hveiju sinni. Fyrir nokkrum dögum hugðist Kjartan sækja ráðstefnu á vegum ASÍ um félagslegar íbúða- byggingar, en þeirri ráðstefnu var frestað, þótti Kjartani það miður. Lýsir þetta því hugarfari Kjartans að fá að fræðast og fylgjast með þeirri þróun sem á sér stað í þeim málaflokkum sem hann starfaði við hveiju sinni fyrir félag sitt. Um frekari störf og ævi Kjartans munu mér eldri og fróðari menn trú- lega rita, en með fáum og fátækleg- um orðum vill sljóm vlf. Jökuls koma á framfæri þakklæti fyrir margví- sleg störf Kjartans í þágu félagsins og votta eftirlifandi eiginkonu og öðrum aðstandendum sína innileg- ustu samúð. Blessuð sé minning Kjartans Þorsteinssonar. F.h. stjórnar vlf. Jökuls, Kristján Guðmundsson Kveðja frá Kiwanis- félögum í Ólafsvík Við fráfall Kjartans Þorsteinsson- ar félaga okkar í Kiwanisklúbbnum Korra, langar okkur að minnast hans með fáum orðum. Kjartan var einn af stofnfélögum Kiwanisklúbbsins í Ólafsvík árið 1976. Góðir hæfileikar hans sem félagsmanns komu klúbbnum til góða við uppbyggingu starfsins. Það var Kjartan sem átti hugmyndina að nafninu á klúbbnum, sem var sótt til fjallsins Korra sem er að austanverðu á Fróðárheiðinni. Hann gegndi ýmsum embættum í starfi -C* klúbbsins sem komið hefur okkur félögum hans til mikilla góða. Einn af bestu eiginleikum Kjartans var glaðværðin, hann var síungur í anda og átti mjög gott með að starfa með öðrum, jafnt þeim yngstu sem elstu. Kjartan var ekki einn af þeim mönnum sem sífellt lét skoðun sína í ljós, hann var góður hlustandi og yfirvegaður í orðum og gjörðum. I rökræðum og ágreiningsmálum var yfirleitt settur punktur á eftir skoð- unum og úrlausnum Kjartans, slíkv_, var virðing félaganna fyrir hinum reynda og trausta félagsmálamanni. Kjartan var gerður að heiðurs- félaga í Kiwanisklúbbnum Korra árið 1987, þá 74 ára. Við Korra- félagar vorum stoltir af því að eiga hann sem heiðursfélaga í klúbbnum. Með þessum fáu orðum viljum við félagar Kjartans í Kiwanishreyfing- unni þakka honum samstarfið á liðn- um árum. Eftirlifandi eiginkonu og öðrum aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Félagar í Kiwanisklúbbnum Korra ÁRBÆJAR- OG Grafarvogs- sókn: Guðsþjónusta í Arbæjar- kirkju sunnudag kl. 14.00. Guðný Hallgrímsdóttir guðfræðinemi predikar. Orgelleikur Jón Mýrdal. Athugið breyttan messutíma. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSKIRKJA:Guðþjónusta kl. 14.00. Athugið breyttan mess- utíma. Sr. Arni Bergur Sigur- björnsson. BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14.00. Organisti Sigríður Jónsdóttir. Sr. Gísli Jón- asson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14.00. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson. DOMKIRKJAN: Sunnudagur 25. júní kl. 10.30: Biskup (slands Hr. Pétur Sigurgeirsson setur Ólaf Skúlason vígslubiskup inn í emb- ætti biskups íslands. Lesarar: Sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, sr. Auður Eir Vil- Guðspjall dagsins: Lúk. 5.: Jesús kennir af skipi. hjálmsdóttir og sr. Guðmundur Þorsteinsson dómprófastur. Alt- arisþjónustu með biskupunum annast sr. Jón Einarsson prófast- ur og sr. Hjalti Guðmundsson dómkirkjuprestur. Kór Bústaða- kirkju frumflytur tónverk eftir Jón Ásgeirsson tónskáld. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. LANDAKOTSSPÍTALI: Messa kl. 14.00. Organisti dr. Orthulf Prunner. Sr. Kristinn Ágúst Frið- finnsson. VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.00. Á Jónsmessuhátíð Viðey- ingafélagsins í dag laugardaginn 24. júní. Dómkórinn syngur. Org- anisti Marteinn H. Friðriksson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14.00. Athugið breyttan messutíma. Prestur sr. Hreinn Hjartarsson. Organisti Guðný Margrét Magnúsdóttir. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Guðsþjónusta kl. 14.00. Orgel- leikari Kristín Jónsdóttir. Sr. Cec- il Haraldsson. GRENSÁSKIRKJA:Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti Árni Arin- bjarnarson. Sr. Gylfi Jónsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14.00. Athugið breyttan messutíma. Sr. RAGNAR Fjalar Lárusson. Þýskur kór Paulus Kontori frá Haam syngur. Sunnu- dag kl. 16.00. Tónleikar í Hallgr- ímskirkju vegna innsetningar biskups. Þriðjudag: Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18.00. Prestarnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson. í safnaðarheimilinu Borgum verður samvera á veg- um samtakanna um sorg og sorgarviðbrögð nk. þriðjudag kl. 20.00-22.00. Allir velkomnir. LANGHOLTSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14.00. Athugið breyttan messutíma. Síðasta guðþjónusta sr. Sigurðar Hauks Guðjónsson- ar fyrir árs leyfi. Kór Langholts- kirkju syngur allur við athöfnina. Organisti Jón Stefánsson. Sókn- arnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Laugar- dagur 24. júní. Messa í Hátúni 10b. 9. hæð. kl. 11.00. Minni á guðsþjónustu í Áskirkju. Sóknar- prestur. NESKIRKJA: Helgistund kl. 11 í umsjón Ágústs Einarssonar stud. theol. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Miðvikudag: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta er í kirkjunni sunnudag kl. 20.00. Sr. Ingólfur Guðmundsson pred- ikar. Jónas Þórir og Friðbjörn G. Jónsson flytja tónlist. Organisti Jónas Þórir. Sóknarprestur. SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.00. Organ- isti Sighvatur Jónasson. Prestur Solveig Lára Guðmundsdóttir. DÓMKIRKJA Krist Konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30. Þessi messa er stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág- messa kl. 14. Rúmhelga daga er lágmessa kl. 18 nema á laugar- dögum þá kl. 14. Á laugardögum er ensk messa kl. 20. MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há- messa kl. 11. Rúmhelga daga er lágmessa kl. 18. KFUM & KFUK: Samkoma kl. 20.30 Amtmannsstíg 2B: ræðu- maður Fransis Stefanos forseti Lúthersku kirkjunnar í Eþíópíu. Einsöngur Magnús Baldvinsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fila- delfía: [ dag laugardag er almenn bænasamkoma kl. 20.30. Al- menn samkoma kl. 20.00. Ræðu- maður Sam Daniel Glad. HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn samkoma kl. 20.30. Mikill söngur og hljóðfæraleikur. NÝJA postulakirkjan: Messa Háaleitisbr. 58-60 kl. 11. GARÐAKIRKJA: Messa kl. 14. Fermd verður Ásta Lilja Magnús- dóttir Kóngsbakka 4 í Breiðholts- hverfi. Sr. Ingimar Ingimarsson á Þórshöfn annast guðsþjón- ustuna. Prófastur. KAPELLA St. Jósefssystra Garðabæ: Hámessa kl. 10. VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón- usta í Hrafnistu kl. 13.30. Kór Víðistaðakirkju syngur. Organisti Krisín Jóhannesdóttir. Sr. Guð- mundur Örn Ragnarsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta fellur niður vegna innsetningar biskups í embætti. Sr. Gunnþór Ingason. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði: Guðs- þjónusta kl. 14. Orgel- og kór- stjórn Smári Ólafsson. Síðasta guðsþjónusta fyrir sumarleyfi. Sr. Einar Eyjólfsson. KAPELLAN St. Jósefsspftala: Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa k| q KAPELLAN Hafnargötu 71 Keflavfk: Messur á sunnudögum kl. 14. SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa kl. 17. Organisti Jón Ólafur Sigurðs- son. Flautuleikur Kolbeinn Bjarnason. Sóknarprestur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.