Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989 45 Þessir hringdu ... Ósanngjörn hækkun Eldri kona hringdi: „Ég vil mótmæla þeim hækk- unum sem orðið hafa á gjaldskrá síma. Nú hafa skrefagjöldin hækkað og getur eldra fólk ekki notað símann neitt vegna þess hve símtöl eru orðin dýr. Hjá mörgum eru þetta einu samskiptin sem möguleg eru því margt gamalt fólk og öryrkjar eiga erfitt með að komast út úr húsi. Þessi hækk- un er ósanngjörn kemur verst við þá sem síst skyldi." Óviðeigandi mótmæli Haukur Friðríksson hringdi: „Ég er ekki hrifin af þeim að- gerðum Heimavarnarliðsins að fara inn á svæði Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli eins og kom fram í fréttum sjónvapsins sl. miðvikudagskvöld. Það var frem- ur óskemmtilegt að horfa uppá hvernig fólkið lét.“ Framkoma til fyrirmyndar Ömmurnar tvær höfðu sam- band: „Fyrir skömmu tókum við leið 11 í Breiðholt. Þegar við komum inn í vagninn byijuðum við á því að biðja tvo unglinga að standa upp fyrir okkur en þeir neituðu. Við örkuðum því aftur eftir vagn- inum og þar stóðu upp fyrir okkur tveir ungir menn frá Húnavatns- sýslu. Við viljum þakka þeim fyr- ir kurteisina." Burt með Z Gunnar hringdi: „Mér finnst kjánalegt að blaðið sem ég er áskrifandi að skuli ekki • hafa í heiðri íslenskar stafsetning- arreglur. í Staksteinum Morgun- blaðsins var fyrir nokkru fjallað um tímaritið Fijálsa verslun og er birt mynd af forsíðu blaðsins. í umfjölluninni er nafn blaðsins skrifað „Fijáls verzlun“ þó að z sé ekki lengur notuð í íslensku máli samkvæmt stafsetningar- reglum." Fréttamat Stella Kristjánsdóttir hringdi: „Mér finnst fréttamat sjón- varpsstöðvanna dálítið brenglað á stundum. Þegar til ófriðsamlegra mótmæla kemur þá taka fjöl- miðlar við sér og eru mættir á staðinn. Það var hins vegar ekk- ert sýnt frá mótmælunum fyrir framan bandaríska sendiráðið sem fóru friðsamlega fram. Ég vil hvetja alla til að mótmæla veru hersins en gera það á friðsamleg- an hátt.“ Óþörf launahækkun Sigurður Jónsson hringdi: „Mér finnst að þeir menn sem eru í kjaradómi hefðu átt að segja hingað og ekki lengra og neita ráðherrum og þingmönnum um launahækkun. Það er algjör óþarfi að hækka laun þessa fólks sem er á margföldum launum. Þá langar mig til að fjalla um annað óskylt málefni sem er ófremdar- ástandið á gatnamótum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar. Þegar beygt er vestur Miklubraut þá fara alltaf fímm eða sex bílar yfir á rauðu ljósi, annað er óhjá- kvæmilegt ef menn vilja komast leiðar sinnar. Þarna vantar beygjuljós og verður því vonandi komið upp hið fyrsta.“ Kvenúr Stórt gullhúðað kvenúr tapaðist fyrir nokkru á leið frá Hlemmi að æfingadeild Kennaraháskól- ans. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 32915. Kettling'ar Fjórir kettlingar 10 vikna, svartir og hvítir, fást gefins. Upplýsingar í síma 687673. Þijá fallega kettlinga, 10 vikna gamla, vantar tilfmnanlega heim- ili. Upplýsingar í síma 43320. Kettlingur fæst gefins. Upplýs- ingar í síma 75298. íslensk framleiðsla: Matarskattur og há álagning Til Velvakanda. Við finnum það íslenskir launþeg- ar, á meðallaunum, hve óheyrilega dýr matvaran er orðin. Þessi fasti liður á hveiju heimili er alltaf að hækka og þess vegna sperrir maður nú eyrun og reynir að átta sig á af hvetju þetta er svona. Hefur manni virst að matarskatt- urinn illræmdi ásamt hárri álagningu kaupmanna ráði þarna mestu um og því var það að athygli mína vöktu ummæli forstjóra stórmarkaðar nokkurs, í sjónvarpi nú á dögunum, þar sem hann sagðist geta flutt inn kartöflur og þá dygði sér sáralítil álagning eða 5-10 kr. á kíló og virt- ist manni að það sama mætti gilda um annan innflutning s.s. kjúklinga, egg o.fl. Þetta fannst mér furðuleg yfirlýsing því ég veit að stórmarkað- irnir telja sig þurfa margfalt hærri álagningu þegar þeir selja ísl. fram- leiðslu. Má siðleysi stórmarkaðanna vera mikið þegar þeir pina niður verð á ísl. framleiðslu — fá hana uppá krít — leggja síðan á hana 30-35% og nota svo svigrúmið sem þeir fá út á þetta til þess að flytja inn erlendar, niðurgreiddar samkeppnisvörur og borga kontant. Þetta finnst mér vera kjaftshögg á innlenda framleiðendur. Þrennt þarf að haldast í hendur ef vel á að fara þ.e. íslensk framleiðsla, íslenskir kaupmenn og íslenskir neyt- endur, með því eflum við þjóðarhag og bægjum frá atvinnuleysinu. Ævintýranámskeið haldið fyrir fatlaða AKVEÐIÐ er að halda Qögur Qögurra manna ævintýranámskeið á vegum skáta, Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags tslands á tímabilinu 26. júní til 9. júlí. Hvert námskeið er í sex daga frá mánudegi til laugardags. Þátttak- endur hittastí Skátahúsinu við Snorrabraut 60, alla morgna klukk- an 10 og eru saman við leik og störf fram til klukkan 16. Athygli skal vakin á því að húsið opnar klukkan 8.30 og því er lokað klukkan 18, þannig að þátttakendur geta komið fyrr og farið síðar ef það hentar betur. A ævintýranámskeiðunum gefst kostur á að kynnast ýmsum þáttum skátastarfs, auk leikja, úti- vistar og ýmis konar fræðslu. Leiðbeinendur á námskeiðunum eru allir reyndir skátaforingar og hafa reynslu í starfi með börnum og unglingum, fötluðum sem ófötl- uðum. Allar nánari upplýsingar og mót- taka staðfestingargjalda fer fram á skrifstofu Útilífsskólans í Skáta- húsinu, Snorrabraut 60. Fjölmenni við útfor Pét- urs Gauta firá Gautlöndum ^ Mývatnssveit. ÚTFÖR Péturs Gauta Péturssonar, Gautlöndum, var gerð frá Skútu- staðakirkju síðastliðinn þriðjudag að viðstöddu miklu fjölmenni. Sóknarpresturinn sr. Orn Friðriksson flutti útfararræðu og jarð- söng. Erlingur Sigurðarson frá Grænavatni talaði einnig í kirkj- unni. Kirkjukórinn söng en organisti var Kristín Jónasdóttir. Pétur fæddist á Gautlöndum 6. september 1914. Foreldrar hans voru Pétur Jónsson og Sólveig Pét- ursdóttir. Pétur Gauti lést af slys- förum 10. júní sl. Eiginkona hans Gíslíana Bjarnadóttir frá Breiða- gerði í Skagafirði lifir mann sinn. Þau eignuðust fjögur böm sem öll em á lífi. Pétur hafði ætíð mikinn áhuga á íþróttum sérstaklega íslenskri glímu. Þá stundaði hann hesta- mennsku af lífi og sál. Fróður var - hann um margt og tók oft til máls á fundum og mannamótum . Hans verður ávallt minnst sem góðs drengs. Kristján. Innilegar þakkir fyrir góðar gjafir, blóm og kveðjur á sjötugsafmœli mínu þann 16. júní sl. Guð blessi ykkur öll. Ágústa M. Frederiksen. aa Vörulyftaradekk BUNABARDEILD SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900 LÆRIÐ A KYPUR DIDACTAINTERNATIONAL COLLEGE ★ Flugfreyjunám - með Cyprus Airways ★ Nám í ferðaþjónustu í flugi - sem leiðir til IATA réttinda Sendið úrklippuna í umslagi merktu: „K - 8307“ á auglýsingadeild Mbl. Haft verður samband og nánari upplýsingar gefnar. Nafn:................................. Heimilisfang: ........................ Sími:................................. Ég skora því á káupmenn að lækka álagninguna á innlendri fram- leiðslu og ef stjórnvöld vildu svo létta af okkur matarskattinum þá yrði þetta hin þokkalegasta kauphækkun sem öllum kæmi til góða ekki síst þeim lægstlaunuðu. Þeir sem koma til Danmerkur taka sjálfsagt eftir því að víða fæst ekki annar cola drykkur en Jolly cola. Astæðan er augljós — Jolly cola er dönsk framleiðsla dönsk colablanda. Danir eru ekki svona heimsfrægir kaupmenn bara af því þeir kunna að selja, nei, þeir skilja líka hve mikil- vægt það er að kaupa eigin fram- leiðslu. Er þetta umhugsunarefni fyrir okkur íslendinga. íslen ikur neytandi H' H H H H H H H H H H H HOTEL MANAGEMENT TOURISM - IATA/UFTAA SCHOOL in SWITZERLAND Námskeið sem fara fram á ensku. Prófskírteini í lok námskeiðs. 9 mánaðatil 2 ára námskeið. hostr 30 ára velgengni. Skrifið og fáið nánari HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL upplýsingar: 1854ÐLEYSIN, SWITZERLAND Tel. 025/34 18 14 Telex 456 347 hos ch Telefax 025/34 18 21 HHHHHHHHHHHHHHHH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.