Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 33
A 'f'.T f • ’ ’/T| ■ : > ' ■ : :v\ í 'c i:: v , MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JUNI 1989 •33 Jón Andersen vélstjóri - Minning Jón fæddist á Siglufirði 19. júlí 1910. Foreldrar hans voru hjónin Georg Andersen vélsmiður og Kristín Kristinsdóttir. Georg var danskur vélsmiður sem var sendur til íslands til þess að kenna vél- stjórum við Eyjafjörð meðferð bátavéla árið 1906. Georg ílengdist á íslandi og giftist Kristínu Krist- insdóttur frá Lögmannshlíð í Eyja- firði árið 1910. Þau eignuðust fimm börn og var Jón þeirra elst- ur. Georg og Kristín slitu sam- vistum, en Georg giftist aftur Margréti Jónsdóttur frá Önundar- firði árið 1939, eignuðust þau sex börn. Jón ólst upp á Siglufirði, hann vann mikið með föður sínum og lærði m.a. af honum meðferð véla. Þegar Jón var 19 ára varð hann fyrir því óláni að slysaskot fór í aðra hendi hans þannig að hann missti hana, Var hann þá við sjóróðra með föður sínum sem átti bát. Jón giftist Guðrúnu Maríu Guð- mundsdóttur ættaðri frá ísafirði og bjuggu þau á Siglufirði, þar sem Jón vann við vélgæslu m.a. í frysti- húsi Ásgeirs Péturssonar undir bökkunum sem kallað var. Jón og Guðrún eignuðust tvo börn, Ágústu Kristinu fædda 13. október 1936 sem er búsett í Kópavogi og Emil Inga sem fæddist 13. apríl 1944, en hann misstu þau aðeins 4 mánaða gamlan. Guðrún átti dóttur fyrir hjónabandið, Herborgu Huldu Símonardóttur, sem fæddist 21. júní 1932. Gekk Jón henni í föðurstað þar til hún fór að vinna fyrir sér og flutti til Reykjavíkur 15 ára gömul. Jón missti Guðrúnu 5. október 1944. Árið 1946 fer Jón að Skeiðs- fossvirkjun og ætlaði að vera þar stuttan tíma. Þessi tími varð í raun 32 ár. Árið eftir gengur Jón að ráðuneytinu. Ég minnist á þetta vegna þess að ég held að ráðuneyt- ismenn geri sér litla sem enga grein fyrir þeirri auðmýkingu og niður- lægingu, sem á sér stað þegar starfsfólk er rekið út úr fyrirtækjum sínum og eigendur stimplaðir van- skilamenn og söluskattsþjófar. Þannig hefur málið verið kynnt frá hendi ráðuneytisins og fjármálaráð- herra. Það er jafnframt ljóst af hrokafullum ummælum fjármála- ráðherra að hann lítur á kaupmenn sem svindlara og viðskipti sem brask. Eftir höfðinu dansa limirnir og starfsmönnum tollstjóra og fjár- málaráðuneytis er því nokkur vor- kunn. Eftir að Steinum hf. og öðrum myndbandaútgáfufyrirtækjum hafði verið lokað sl. mánudag ákvað ég að stíga fram fyrir skjöldu og mótmæla því óréttlæti og offorsi sem fylgdu aðgerðum fjármála- ráðuneytisins. Ég er stoltur af mínu fyrirtæki, starfsfólki og þeirri starf- semi sem við stöndum fyrir og ég veit að hið sama gildir um aðra útgefendur myndbanda á íslandi. Við teljum okkur ekki skulda ríkis- sjóði eina krónu og gildir einu hvað skattstjóri, tollstjóri eða ijármála- ráðuneytið segja. Komi hins vegar til að lögboðið dómsvald dæmi okk- ur til greiðslu á hinum afturvirku álögum, munum við að sjálfsögðu sættast á slíkan úrskurð. Hins veg- ar munum við aldrei sætta okkur við valdníðslu af því tagi sem við höfum orðið að þola af hendi fjár- málaráðherra og ég vona fyrir þína hönd, söluskattsgreiðandi góður, að þú eigir ekki eftir að verða fyrir barðinu á slíku. Ef þessar „nýjungar" við inn- heimtu skatta, þar sem skattgreið- andi viðurkennir ekki skuld sína, er það sem koma skal, þarf hver einasti íslendingur að spyija sjálfan sig hver er næstur? Höfundur erforstjóri Steina hf. og formaður Samtaka myndbandaútgefanda á íslandi. eiga Stefaníu Jóhannsdóttur sem látin er fyrir nokkrum árum. Stefanía hafði misst mann sinn, Maron Einarsson. Áttu þau tvær dætur sem fylgdu mömmu sinni að Skeiðsfossvirkjun þar sem þær ólust upp og gekk Jón þeim í föður stað. Ennfremur dvaldi hjá þeim Maron Bjömsson, sonur Hönnu dóttur Stefaníu, þar til hann fór í gagnfræðaskóla. Eg kynntist Jóni og Stefaníu þegar ég hóf störf hjá Rafveitu Siglufjarðar. Er mér sérstaklega minnisstætt hvað þau höfðu já- kvæð viðhorf til þess að taka þátt í rekstri stöðvarinnar að því leyti að taka inn á mannmargt heimili sitt iðnaðarmenn og aðra sem senda þurfti til viðhalds og við- gerða. Fyrir það er mér ljúft að þakka á þessari stundu, en mér er kunn- ugt um að í hópi þessara manna eignuðust þau marga vini og kunn- ingja sem héldu við þau sambandi. Af þeirri ástæðu að Jón var ein- hentur gat hann ekki ekið bifreið, en mér er minnisstætt þegar þau hjónin fengu sér leigubíl og skruppu bæjarleið til að heimsækja kunningjana, þá var yfir þeim mik- ill heimsborgarabragur. Þrátt fýrir að Jón hafði aðeins aðra höndina vann hann sín störf við gæslu virkjunarinnar á þann veg að engu var líkara en hann gengi heill til skógar og aldrei heyrði ég hann kvarta undan því að höndina vantaði. Mér er í minni þegar ég sá hann fýrst veiða lax, þar fór saman út- sjónarsemi og lagtækni sem gaf góðan árangur. Jón var heiðursfélagi Stang- veiðifélags Siglfírðinga. Þegar Jón náði að lokum starfs- tíma árið 1979 vildu þau endilega flytjast til Siglufjarðar, festu kaup á Eyrargötu 9 og bjuggu sér eink- ar hlýlegt og notalegt heimili. Áttu þau þar saman góð ár sem vissu- lega máttu vera fleiri en eins og áður sagði missti Jón Stefaníu 7. desember 1985. Jón var nokkuð undir læknis- hendi undanfarin ár og dvaldi hann af og til á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Hann var þó heima hjá sér þegar kallið kom. Hann fékk hægt andlát í örmum Kristínar dóttur sinnar, þann 14. júní, en hún ætlaði að dvelja hjá honum um tíma. Útför hans verður gerð frá Si- glufjarðarkirkju Iaugardaginn 24. júní 1989. Ég vil að leiðarlokum þakka Jóni fyrir einstaklega þægilegt samstarf sem við áttum og trú- mennsku sem hann sýndi í starfi hjá Rafveitu Siglufjarðar um leið og við starfsmenn Rafveitunnar vottum öllum aðstandendum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð veri minning hans. Sverrir Sveinsson FARVÍS TfMARITUM FERÐAMÁL ÁSKRIFARSÍMI: 91-680699 FERÐAGETRAUN FARVÍS Skilafrestur í ferðagetraun síðasta tölublaðs er framlengdur til 1. júlí nk. FERÐ TIL HOLLANDS í VERÐLAUN FARVEGUR HF. ÖTGÁFUFYRIRTÆKI KVISTAIANDI 8, 108 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.