Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JUNI 1989 16 Járn- og málmsmíði eru undirstöðuatvinnugreinar Gunnlaugur Axelsson, forslgóri, og Aðalsteinn Jóhannsson, tækni- fræðingur. eftir Björgvin Frederiksen Fyrir rúmri hálfri öld, 12. mars 1937, skrifaði ég stutta blaðagrein um kennslu í járniðnaði þar sem ég vakti máls á því að betur mætti gera. Eins og vænta mátti þá fannst þáver- andi fræðurum ekki ástæða til að- finnslu og fékk ég nokkur ónot fyrir uppátækið en lét það ekki á mig fá en bytjaði skömmu síðar við lítil efni, sjálfstætt eins og það var kallað þá, í gamalli smiðju. En ég ungur maður gladdist yfir þeim framförum sem ég hafði séð í iðngreininni og gerði mér jafnframt Ijóst að íslendingar mundu sækja á brattann og efla þessa mikilsverðu undirstöðuat- vinnugrein en til þess þurfti að sjálf- sögðu betri menntun iðnaðarmanna. Ánægju mína lét ég í ljós í nefndri blaðagrein með þessum orðum: „Járn- og málmiðnaði hefur fleygt fram á síðari árum. Verksmiðjur hafa fjölgað vélum sínum, tekið upp ýmsar nýjungar og yfirleitt fylgst vel með öllum framförum sem til- heyra iðninni, eins og sjá má af því að íslendingar geta nú kunnáttu vegna framkvæmt allar skipa- og vélaviðgerðir í landinu." Svo mörg voru þau orð og síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar eins og sagt er. Á hálfri öld hefur átt sér stað stórfelld þróun, nánast iðnbylting, í öllum greinum íslensks iðnaðar og verkmenntar og enn sem fyrr eru járn- og málmiðnaður og þungaiðnaður greinarinnar skip- asmíðar undirstöðuatvinnugreinar. Fyrir nokkrum dögum hitti ég góðkunningja minn og skólabróður, við útskrifuðumst úr Iðnskólanum í Reykjavík úr járniðnaðardeild fyrir 55 árum. Hann er Aðalsteinn Jó- hannsson, tæknifræðingur, lengi kennari við Iðnskólann og var mörg ár í einkaatvinnurekstri. Aðalsteinn er mikill áhugamaður um iðnþróun og í þetta skiptið bar á góma hjá okkur samdráttur í skipasmíðum hérlendis og fleira um iðnað. Snemma næsta morgun hringir hann til mín og segir út af þessu sem við vorum að tala um í gær: „Ertu ekki til í að skreppa með mér til Vest- mannaeyja og skoða fyrirtækið Skipalyftuna hf.“ Ég segi að það þurfi nú einhvern aðdraganda og hann segist þá tala við Gunnlaug Axelsson forstjóra og panta farmiða hjá Flugleiðum og að við færum seinnipartinn því ég þyrfti ekkert að hafa með mér, ekki einu sinni sápu. Ég sló til, hafði ekki komið til Eyja eftir gos en nokkrum mánuðum fyrir gos var Iðnþing haldið í Vestmanna- eyjum og móttökur allar glæsilegar. Þá var ekið kringum Helgafell svo fagurlega smíðað og engan grunaði það né hlíðar þess um græsku. Við nutum þekktrar gestrisni vina Aðal- steins í Eyjum og skoðuðum þetta myndarlega járniðnaðarfyrirtæki, Skipalyftuna hf., sem er ákaflega vel staðsett, athafnasvæðið er á 40.000 fermetrum lands og hefur til afnota 120 metra viðlegukant, skipa- lyftan getur lyft skipum allt að 1.000 TDW, auk þess hafa þeir 16.000 rúmmetra plötu og vélaverkstæði búið hinum bestu tækjum og hafa í þjónustu sinni þaulvana tækni- og iðnaðarmenn, vegna þeirrar hagræð- ingar að gömlu þekktu vélsmiðjurn- ar, Magni hf. og vélsmiðjan Völundur hf., sameinuðust sem hluthafar í Skipalyftunni hf. Þama hefur sem sagt verið búið í haginn, eins vel og hægt er, til þess að geta framkvæmt allar viðgerðir og breytingar á fiski- flota þessarar miklu verstöðvar ásamt viðgerðum, uppsetningu og smíði véla og tækja í vinnslustöðvun- um í landi. Þeir hafa ekki reist sér hurðarás um öxl með því að fara út í skipasmíði. Fyrirtækið á þó í harðri samkeppni um verkefni þegar skip- asmíðastöðvamar hafa í mörg ár enga nýsmíði skipa og reyna því að lifa á viðgerðum og breytingum. Hér er aðeins minnst á eitt fyrirtæki á landsbyggðinni sem er til fyrirmynd- ar, en þau eru mörg víðsvegar um land sem berjast í bökkum og þurfa skilning yfirvalda og viðurkenningu á þjóðhagslegu mikilvægi. ÖIl eiga þessi jámiðnaðarfyrirtæki það sam- eiginlegt að vera byggð upp af bjart- sýnum, og dugmiklum athafnamönn- Björgvin Frederiksen „Öll eiga þessi járniðn- aðarfyrirtæki það sam- eiginlegt að vera byggð upp af bjartsýnum, og dugmiklum athafiia- mönnum sem hafa fórn- að starfskröftum og fjármunum af ótrúlegri seiglu miðað við þann skilningsskort sem virðist oftast ríkjandi hér í landi á mikilvægi skipasmíða.“ um sem hafa fórnað starfskröftum og íjármunum af ótrúlegri seiglu miðað við þann skilningsskort sem virðist oftast ríkjandi hér í landi á mikilvægi skipasmíða. Nokkur undanfarin ár hafa skipa- smíðar lagst niður eða hreinlega ver- ið bannaðar. Þetta skapar glundroða SUMARMARKAÐUR FJOLSKYIDUNNAR IAXAFENI 14(ÍNÚTIÐ) Opnum í dag kl. 10. Opiö virka daga frá kl. 1 2-19 og laugardaga frá kl. 10-16. Gífur- legt úrval af alls kyns fatnaði — sportvöru - tjöldum - blómum - sælgæti - o.fl. o.fl. o.fl. Hjá okkur situr fjölbreytnin í fyrirrúmi. Það er fjör í Faxafeni 14. FRABÆRAR VORUR A NIDURSPRENGD VERÐI!!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.