Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.06.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989 Thatcher skorar á de Klerk að láta Mandela lausan London. Reuter. MARGARET Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, hitti F. W. de Klerk, forsetaefhi Suður- Afríku, að máli í London í gær og ítrekaði við hann þá skoðun sína að stjórnin í Pretoríu bæri að láta Nelson Mandela, blökku- mannaleiðtoga, Iausan úr haldi. Hefur hún sett það sem skilyrði fyrir heimsókn til Suður-Afríku að Mandela verði látinn laus. Að sögn breskra embættismanna kom fram á fundinum að aukinn vilji væri fyrir hendi meðal suður- afrískra áhrifamanna að leysa vandamál í sambúð hvítra manna og litra með samningum. De Klerk er leiðtogi stjómarflokksins, Þjóð- arflokksins, og þykir umbótasinn- aður. I Evrópuferð sinni heimsækir de Klerk íjögur ríki Evrópubandalags- ins (EB), m.a. til þess að kynna EB-leiðtogum umbótaáætlanir Pretoríu-stjórnarinnar og hvetja þá til að grípa ekki til þvingunarað- Reuter Moskvu. Reuter. ALI Rafsanjani, forseti íranska þingsins, hvatti í gær til aukinna samskipta milli_ múslima i Sov- étríkjunum og íran við messu í stærstu mosku Sovétlýðveldisins Azerbajdzhans. Þá sagði hann að Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétrílganna, væri einn af mikil- fenglegustu þjóðarleiðtogum heims. Rafsanjani sagði, á síðasta degi opinberrar heimsóknar sinnar, að för sín til Sovétríkjanna væri afar mikilvæg og að aldrei fyrr hefði slík heimsókn átt sér stað. í gær undirrituðu Rafsanjani, sem líklegt er að verði kjörinn næsti COMBI CAMP sýning um helgina. Höfum opið frá kl. 14-17 laugardag og sunnudag. COMBI CAMP er ein fljótlegasta lausn á tjöldun er býðst. Tekur aðeins 15 sekúndur COMBI CAMP hefur trégólf í svefn- og í verurými, sem dregur úr jarðkulda og raka. gerða gegn Suður-Afríku. Ræddi hann við Helmut Kohl, kansiara Vestur-Þýskalands, í fyrradag og frá Bretlandi heldur hann til Italíu og Portúgals. Þrír andstæðingar aðskilnaðar- stefnu stjórnarinnar í Suður-Afríku vom handteknir fyrir að kasta málningardósum að jagúar-bifreið de Klerks er hann kom til viðræðna við Thatcher í embættisbústað hennar við Downing-stræti í gær- morgun. Slettist hvít málning á bif- reiðina en de Klerk sakaði ekki. Andstæðingar aðskilnaðarstefn- unnar höfðu sig mikið í frammi í London, m.a. við sendiráð Suður- Afríku, vegna heimsóknar de Klerks. Jose Eduardo dos Santos, forseti Angóla (t.h.) og Jonas Savimbi, leiðtogi UNITA-skæruliða (t.v) eftir söguleganfund 18 afrískra þjóð- arleiðtoga í Gbadolite í Zaire á fimmtudag. Á milli þeirra er Ibra- him Babangida, forseti Nígeríu. Miklar líkur taldar á þióðarsátt í Angóla Luanda, Jóhannesarborg. Reuter, Daily Telegraph. Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands (t.v.), tekur á móti F. W. de Klerk, forsetaefhi Suður-Afríku, og konu hans, Marike, í embættisbústað sínum í London í gær. Rafsanjani í Azerbajdzhan: Hvatti til meiri samskiptavið sovéska múslimi forseti írans, og Gorbatsjov sam- komulag um efnahagslega og hem- aðarlega samvinnu landanna. Talsmaður múhameðstrúar- manna í Baku, höfuðborg Azerbajdzhans, sagði að múslimar fögnuðu innilega batnandi sam- skiptum Sovétríkjanna og írans. Azerar, sem eru um sjö miljónir, játa múhameðstrú en alls búa á milli 30 og 40 miljónir múslima í Sovétríkjunum. í íran eru um fimm miljónir Azera búsettir. Að undanfömu hafa fjölmargar moskur verið reistar í Azerbajdzhan í kjölfar aukins trúfrelsis í Sov- étríkjunum. JONAS Savimbi, leiðtogi UN- ITA-skæruliða í Angóla, og Jose Eduardo dos Santos, forseti landsins, hafa samið um vopnahlé í borgarastríði, sem staðið hefiir í 14 ár, og tekur það gildi í dag. Margt er þó enn á reiki um sam- komulagið, sem náðist á söguleg- um fundi 18 afrískra þjóðarleið- toga í Gbadolite í Zaire á fimmtu- dag. Vestrænir sljórnarerindrek- ar í Luanda sögðu að leiðtogam- ir hefðu báðir skuldbundið sig til þess að að beita sér fyrir þjóðar- sátt í Angóla og erfitt yrði fyrir þá að víkja sér undan þeirri skuldbindingu. Dos Santos sagði er hann kom til Luanda í gær að samkomulagið væri fyrsta skrefið í átt til varan- legs friðar í Angóla. Margt er þó á reiki um samkomulagið og greinir menn til að mynda á um hvort i því felist að Savimbi eigi að fara í útlegð til bráðabirgða eftir að hafa viðurkennt dos Santos sem lögmæt- an forseta landsins. Kenneth Kaunda, forseti Zambíu, hélt því fram að svo væri, en Mobuto Sese Seko, forseti Zaire,. sem hafði milli- göngu um samkomulagið, vísaði því á bug. Stjórnarerindrekar sögðu að Dos Santos og flokkur hans, Þjóð- frelsisfylking Angóla, MPLA, skuldbyndu sig til þess að beita sér fyrir þjóðarsátt og veita öllum UNITÁ-skæruliðum sakaruppgjöf. UNITA myndi einnig deila völdun- um með MPLA innan stjómkerfis- ins og hersins. Mobuto vísaði á bug fregnum um að í samkomulaginu fælist að Savimbi yrði ráðherra í stjórn landsins. Savimbi og Dos Santos höfðu aldrei ræðst við frá því stríðið í Angóla hófst árið 1975 og þótti það því söguleg stund er þeir tókust í hendur á fundinum í Gbadolite. „Báðir sýndu mikið hugrekki að gera þetta, einkum þó forseti Ang- óla,“ sagði vestrænn stjómarerind- reki í Luanda. Nokkmm dögum áður höfðu fjölmiðlar í Angóla kall- að leiðtoga UNITA-hreyfingarinnar „Júdas“ Savimbi vegna tengsla hans við Suður-Afríkumenn í stríðinu. Margir Luanda-búar áttu bágt með að trúa því í fyrstu að dos Santos hefði heilsað Savimbi með handabandi, en flestir þeirra viðurkenndu þó að lokum að það hefði verið óhjákvæmilegt. Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, sagði að dos Santos hefði látið svo um- mælt eftir að leiðtogi UNITA hefði fallist á vopnahlé að Savimbi væri „föðurlandsvinur“. UNITA (Samtök fyrir algjöru sjálfstæði Angóla) hefur náð stærstum hluta Suðaustur-Angóla á sitt vald og nýtur stuðnings Bandaríkjastjómar. Sovétmenn hafa stutt stjóm MPLA, sem að- hyllist marxisma, og er talið að stór- veldin hafi lagt hart að báðum hreyfingunum að binda enda á borgarastríðið. Tugþúsundir manna hafa fallið í stríðinu og hefur það einnig valdið miklum efnahags- þrengingum í Angóla. Leiðtogar sunnanverðrar Afríku fögnuðu í gær samkomulaginu í Gbadolita og sögðu það mikilvægt skref í átt til friðar í þessum stríðshijáða hluta álfunnar. Stjóm- völd í Suður-Afríku, sem hafa stutt .UNITA, fögnuðu því einnig og sögðu að miklar líkur væru á þjóð- arsátt í Angóla. Flugslysið í Perú: 60 manns fórust alls Líma, Perú. Reuter. 60 MANNS létust þegar herflug- vél fórst í Perú á miðvikudag- inn, en áður var talið að um 40 manns hefðu verið um borð. Vélin var að flytja timbur og farþega frá afskekktum svæðum til borgarinnar Líma þegar hún rakst á fjallshlíð og brotnaði í tvennt. Talið er að orsök slyssins sé sú, að vélin hafi verið ofhlaðin þegar hún lagði af stað frá bænum San Ramon stuttu fyrir slysið en ekki er vitað hvort veðrið gæti átt þarna líka hlut að máli en rigning og slæmt skyggni var á miðvik- daginn. Þegar björgunarmenn komu að flakinu á fimmtudag vom allir um borð látnir. BEN LAGMULA 7 COMBICAMP Family Verð kr. 208.475,- staðgreitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.