Morgunblaðið - 24.06.1989, Qupperneq 14
14
' MOÉGUNBLAÐÍÐ LAUGARUAÓUR r2'4: JÚNÍ 1989
EGILSSTAÐIR
Aruncus dioicus (A. vulgaris - A. silvestris)
Blóm vikunnar
Umsjón
Ágústa Björnsdóttir
128 þáttur
Aruncus þýðir geitarskegg en dio-
icus táknar að þetta se'tvíbýlis-
jurt þ.e. að sumar plöntur hafa
eingöngu kvenblóm og aðrar ein-
göngu karlblóm. Þarna er ekki
hægt að segja að um jafnrétti
kynjanna sé að ræða vegna þess
að karlplönturnar eru með fegurri
blómskúfa og þarf af leiðandi
jafnan valdar til ræktunar. Blómin
eru örlítil, hvít að lit og geysilega
mörg í allstórum samsettum skúf-
um. Blómafjöldinn í einum slíkum
biómskúf er talinn vera nálægt
10.000. Geitaskeggið blómstrar
um mitt sumar og blómin standa
lengi. Þetta er óvenjulega stór-
vaxin og tilkomumikil planta, sem
verður 1-2 metrar á hæð og ann-
að eins í þvermál. Blöðin eru mjög
stór, fallega fjaðurskipt og minna
mikið á reyniblöðku og musteris-
blóm, sem raunar eru náskyld
geitaskegginu. Blöðin eru dökk-
græn og gljáandi. Geitaskegg er
útbreitt um Norður-Evrópu,
Síberíu og vestantil í Norður-
Ameríku. Það vex venjulega í
skóglendi til fjalla, helst við lindir
og læki, enda þrífst það best í
rökum jarðvegi, nokkrum skugga
og skjóli. Það hefur stinna stöngla
og þarf engan stuðning. Það nýt-
ur sín best eitt sér en einnig fer
vel að planta því innan við tré eða
runna og skjólgirðingar. Aðeins
þarf að gæta þess að gefa því
gott'svigrúm svo blöðin geti breitt
úr sér til allra hliða. Þessi harð-
gerða og skemmtilega planta virð-
ist ekki mjög algeng í görðum sem
bendir til þess að erfitt muni vera
að fá hana í gróðrarstöðvum.
Geitaskeggi má fjölga með sán-
ingu og einnig skiptingu. Þó getur
verið talsvert erfitt að skipta
gömlum plöntum vegna þess að
jarðstöngullinn verður afar harður
svo jafnvel þarf að beita öxi eða
sög til þess að ná honum sundur.
Geitaskegg verður margra ára-
tuga gamalt og er talið geta náð
70-80 ára aldri.
Ævintýranámskeið fyrir fatlaða
Lofeamleg umsögn
um geisladisk SÍ
Páll Kr. Pálsson
UPPBYGGING IÐNAÐAR
f DREIFBÝLI
lönlánasjóður gengst nú fyrir fundum
um uppbyggingu iðnaöar í dreifbýli.
AÖ þessu sinni:
■ 29. júní á EGILSSTÖÐUM
Hótel Valaskjálf kl. 20.00.
■ Markmið fundanna er: ■HBBMHM
að kynna starfsemi Iðnlánasjóðs fyrir stjórn-
endum fyrirtækja og fulttrúum atvinnulffs f
dreifbýli,
að vekja áhuga stjórnenda fyrirtækja á
nýsköpun, sameiningu fyrirtækja og samstarfi
þeirra.
Lögð verður áhersla á þessa málaflokka:
Lánafyrirgreiðslu, vöruþróun, markaðsmál,
tækni, afkastagetu, söluaðferðir, dreifileiðir
og samstarf við önnur fyrirtæki.
Dagskrá:
1. Kynning á starfsemi Iðnlánasjóðs og þeirri
fyrirgreiðslu sem Iðnlánasjóður veitir fyrirtækj-
gjp.
Bragi Hannesson, bankastjóri.
2. Fyrirlestur um markaðsathuganir og mat á
markaðsþörf.
Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri.
3. Fyrirlestur um vöruþróun.
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri.
4. Fyrirlestur um samstarf og samruna fyrirtækja.
Pétur Reimarsson, framkvæmdastjóri.
5. Fyrirlestur um arðsemismat á
hugmyndum.
Jafet S. Ólafsson, útibússtjóri.
Gert er ráð fyrir að hver fyrirlestur taki 20-30
mínútur. Fundarstjóri verður Jón Magnússon,
formaður stjórnar Iðnlánasjóðs.
VIÐ HVETJUM ALLA ÞÁ SEM MÁLIÐ VARÐAR TIL AÐ KOMA.
IÐNLÁNASJÓÐUR
ARMÚLA 7, 108 REYKJAVlK, SÍMI 680400
Föngulegur brúskur af geitaskeggi við Garðyrkjuskólann að
Reykjum sumarið 1988
GEITASKEGG
- JÖTUNJURT
ÁKVEÐIÐ er að halda fjögur Qög-
urra manna ævintýranámskeið á
vegum skáta, Landssamtakanna
Þroskahjálpar og Oryrkjabanda-
lags Islands á tímabilinu 26. júní
til 9. júlí.
Hvert námskeið er í sex daga frá
mánudegi til laugardags. Þátttak-
endur hittastí Skátahúsinu við
Snorrabraut 60, alla morgna klukkan
10 og eru saman við leik og störf
fram til klukkan 16.
Athygli skal vakin á því að húsið
opnar klukkan 8.30 og því er lokað
klukkan 18, þannig að þátttakendur
geta komið fyrr og farið síðar ef það
hentar betur.
Á ævintýranámskeiðunum gefst
kostur á að kynnast ýmsum þáttum
skátastarfs, auk leikja, útivistar og
ýmis konar fræðslu.
Leiðbeinendur á námskeiðunum
eru allir reyndir skátaforingar og
hafa reynslu í starfi með börnum og
unglingum, fötluðum sem ófötluðum.
Allar nánari upplýsingar og mót-
taka staðfestingargjalda fer fram á
skrifstofu Útilífsskólans í Skátahús-
inu, Snorrabraut 60.
„Leik Einars Jóhannessonar,
leiðandi klarinettleikara Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, sem lærði í
Royal College of Music, heyrum við
stundum í BBC en lítið er að finna
af leik hans á hljómplötum. Það er
því mjög þess virði að leita uppi
geisladisk hans með Mozart klarin-
ettkonsertinum, sem kemur í versl-
anir í júní, vegna hugmyndaríkrar
túlkunar hans, listrænnar yfírsýnar
og fínlegrar blöndunar litbrigða í
tóni.
Einari Jóhannessyni má lfkja við
Mitsuko Uchida klarinettsins.
Hendingasköpun hans er snjöli, hlý-
lega mótuð; styrkleikadvínun dreg-
in af óvenjulegri lengd og hreinleika
en síðan stokkið fimlega í fágaða
fingraleikni. Fyrsti þátturinn er hlýr
og frjáls Allegro aperto, annar þátt-
urinn, Adagio, er leikinn nánast
eins hægt og nokkur getur vogað
sér. Sinfóníuhljómsveit Islands veit-
ir góðan stuðning undir stjórn
Jean-Pierre Jacquillat með
skemmtilegri beitingu tréblásturs-
hljóðfæranna.
Hljóðritunin fór fram skömmu
fyrir lát Jacquillats, aðalhljómsveit-
arstjóra hljómsveitarinnar, en hann
lést í bflslysi árið 1986. í stað ann-
ars einleiksverks fyrir klarinett,
sem fyrirhugað var að fylgdi með
á hljómdiskinum, er eldri hljóðritun,
Ieiftrandi túlkun á sinfóníu í d-moll
eftir César Franck.“
(Fréttatilkynning)
Bragi Hannesson
Jón Magnússon
NÝLEGA gáfú Skífan og Sin-
fóníuhljómsveit íslands út geisla-
disk í sameiningu með leik hljóm-
sveitarinnar undir stjórn Jean-
Pierre Jacquillat þar sem leikin
eru klarinett-konsert í A-dúr eft-
ir W.A. Mozart, einleikari Einar
Jóhannesson, og sinfónía í d-moll
eftir César Franck. í dagblaðinu
The Times í London birtist 27.
maí sl. umsögn tónlistargagnrýn-
anda blaðsins um geisladiskinn.
Þar segir m.a.:
★ STÆRKI OG RÚMBETRI ★ STÆRRI HJÓL
★ HÆRRA UNDIR LÆGSTA FDNKT ★ FALLEGRIINNRÉTTING
★ NÝTT ÚTUT ★ NÝJAR LÍNUR ★ STÆRRI VÉL
Jafet S. Ólafsson
f
TIL AFGREIÐSLU STRAX
Ingwar
Helgason M
Snvarhöföa 2, sími 674000
Þráinn Þorvaldsson
gs;; ■
fe’-‘i ■ .
Pétur Reimarsson