Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 19

Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JUNI 1989 19 AF INNLENDUM VETTVANGI ÞÓRHALLUR JÓSEFSSON Leikið með bensíngjaldið Verðlækkun á heimsmarkaði tekin út fyrir- fram og stýrt á aðra bensíntegundina RÍKISSTJÓRNIN ákvað í byrjun þessarar viku að lækka verð á blýlausu bensíni um tvær krónur lítrann. Ja&iframt var ákveðið að hafa óbreytt verð á blýbensíni og Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra sagðist telja eðlilegt að halda flögurra króna verðmun á þessum tegundum. Blýlaust bensín lækkaði í gær, 22. júní, og kostar nú 50 krónur lítrinn. í ákvörðun ríkisstjórnarinnar felst, að opinber gjöld eru lækkuð um 1,90 krónur, 10 aurar úr lækkun- inni koma frá öðrum þáttum í verðinu. Þegar þessi ákvörðun var kynnt, lýstu ráðherrar því yfir, að með þessu væri tekið forskot á lækkun heimsmarkaðsverðs á bensíni, sem hefði fyrr eða síðar skilað sér til neytenda. Ennfremur sögðu þeir, að þegar innkaups- verð lækkar, muni bensíngjaldið verða hækkað á ný. Lækkuninni var sem sagt flýtt um einhverja daga eða vikur. Ákvörðun ríkis- sijórnarinnar um að lækka blýlausa bensínið þýðir, að fjögurra manna íjölskylda, sem notar hlutfallslega jafii mikið bensín og vísitöluQölskyldan og notar blýlaust bensín, sparar 4.413,80 krón- ur á ári, eða 362,82 krónur á mánuði, miðað við að bensíngjaldið hækki ekki á ný. Noti þessi flölskylda hins vegar blýbensín er spamaðurinn enginn. I þessari ákvörðun felst sem sagt, eins og Jón Sigurðsson tók fram, neyslustýring á forsendum umhverfís- vemdarsjónarmiða. Þegar síðasti farmur kom til landsins af blýlausu bensíni, var hann keyptur á rúmlega 250 doll- ara tonnið. Það var skömmu áður en heimsmarkaðsverð náði há- marki, sem var 271 dollar tonnið, í lok apríl. 12. júní var heimsmark- aðsverð komið niður í 206 dollara og nú er það um 190 dollarar. Verð á blýbensíni er lítið eitt hærra, um 197 dollarar. Nýlega er kominn til landsins farmur af því og kostaði um 220 dollara. Samkvæmt upplýsingum frá einu olíufélaganna er ekki gert ráð fyrir miklum verðbreytingum á næstunni. Skipting verðsins á blýlausu. bensíni var þannig, fyrir verð- lækkunina, að cif verð var 10,45 krónur lítrinn, opinber gjöld, þar með talið bensíngjald, 34,18 krón- ur, flutnings- og dreifingarköstn- aður 6,17 krónur, flutningsjöfn- unargjald innanlands 82 aurar og tillag í innkaupajöfnunarsjóð 38 aurar. Bensíngjaldið var 17,95 krónur og var lækkað um 1,52. Með söluskatti er sú lækkun 1,90, þannig að 10 aurar af verðlækk- uninni eru teknir af öðrum þátt- um. Tímabundin lækkun Á blaðamannafundi, þar sem bensínverðlækkunin var kynnt ásamt fleiru, sögðu ráðherrarnir að lækkun bensíngjaldsins væri tímabundin. Þegar næstu bensín- farmar koma til landsins verða þeir á lægra verði en bensínið sem nú er selt. Þegar verðið verður ákveðið næst, á að halda því eins og það er nú, eftir því sem næst verður komist. Fróðlegt er að skoða, hvernig þróunin yrði, ef ríkisstjórnin hefði ákveðið að breyta í engu forsend- um bensínverðsins og blýlausa bensínið væri enn á 52 krónur lítrinn. Skammt er að bíða næstu verðákvörðunar, birgðir í landinu endast ekki nema rétt fram í næsta mánuð og bensínfarmur þarf að vera kominn um mánaða- mótin. Það þýðir að hann er keyptur á um 190 dollarar tonnið. 52 króna bensínverðið er miðað við 229 dollara meðalverð birgða í landinu. Meðalverð birgða verður um eða undir 200 dollurum, við næstu verðákvörðun, sem vænt- anleg er nálægt mánaðamótum. Þess vegna hefði bensínverðið lækkað, ef ríkisstjórnin hefði ekki ákveðið annað. Samkvæmt upp- lýsingum frá Verðlagsstofnun má gera ráð fyrir að það hefði farið í 51 krónu. Sama á við um 98 oktana blýbensín, það ætti að óbreyttum forsendum að lækka um 1,00 til 1,50 krónur. Millifærsla að Með ákvörðun sinni um lækka blýlausa bensínið nú um tvær krónur, var ríkisstjórnin að taka forskot á þessar lækkanir, taka þær út fyrirfram. En, ríkis- stjórnin gerði meira. Hún tók út lækkun blýbensíns og flutti yfir á blýlaust bensín. Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið, að ekki væri hægt að full- yrða að bensínverðinu verði haldið í þessari krónutölu, það er 50 krónum og 54. Hins vegar sagði hann að bensíngjaldið verði hækk- að á ný til móts við lækkandi inn- kaupsverð, meðal annars til þess að hægt verði að standa við út- gjöld til vegamála samkvæmt fjárlögum. Hvað sparast? Vísitölufjölskyldan, 3,48 ein- staklingar, notar 1.920 lítra af bensíni á ári. Fjögurra manna fjöl- skylda, sem notar hlutfallslega jafn mikið þarf að kaupa 2.206,9 lítra. Þegar rætt er um að fjögurra manna fjölskylda spari 4.413,80 krónur á ári með þessari bensin- verðlækkun, þá er miðað við að bensíngjaldið hækki ekki á ný. Þess vegna hverfur sparnaðurinn jafn skjótt og bensíngjaldið hækk- ar aftur. Möguleiki er að verð- lækkun á heimsmarkaði sé það mikil, að bensíngjaldið þurfi að hækka nokkuð umfram það sem það var lækkað á fimmtudag til þess að halda verðinu óbreyttu í 50 og 54 krónum. Þá mun ríkis- stjórnin væntanlega gera það upp við sig hvort hún vill fá sama bensíngjald og áður og lækka út- söluverðið, eða halda útsöluverð- inu óbreyttu og fá í ríkissjóð enn hærri gjöld. Viðskiptaráðherra hqþir oft lýst því yfir, að neytendur eigi að fá að njóta hagstæðra innkaupa frá útlöndum og meðal annars á þeirri forsendu veitti hann um- deild leyfi til að flytja inn smjörlíki. Þess vegna er freistandi að álykta sem svo, að hefði ríkis- stjórnin í engu breytt forsendum bensínverðs, þá hefðu neytendur fengið að njóta lækkandi heims- markaðsverðs við næstu verð- ákvörðun. Þess vegna er einnig hugsanlegt að neytendur fái að njóta verðlækkunarinnar, ef hún gerir meira en að vega upp þá lækkun sem tekin var út fyrir- fram. Eftir stendur að notendur blý- lauss 92 oktana bensíns fá fyrir- fram lækkun í einhvem tíma. Notendur 98 oktana blýbensíns fá enga lækkun, að sinni að minnsta kosti. Búast má við nýrri verðákvörðun um eða upp úr næstu mánaðamótum. Sam- X r - ^ r B i 0 pOPI^ IN 1 L J Fjölskyldubíllinn notar 2.206,9 I af blýlausu bensíni á ári. Fyrir lækkun var verð lítrans 52 kr. Bensínkostnaður á ári var Því: 114.758,80 kr. Eftir lækkun um 2 kr. í 50 kr. verður árskostn- aðurinn: no.345,00 kr. Mismunurinn er: 4.413,80 kr. Miðað viö óbreylt benslnbjald Sem er _ __ á mánuöi. OO7,o0 kr. Miðaö er viö fjögra manna fjölskyldu með sama rreyslumynstur og visi- tölufjölskyldan (4/3,78) ' Bensínsalan í maí 98 oktan 57% Mbl. GÓI 43% 92 oktan kvæmt orðum ráðherranna verður bensíngjaldið þá hækkað á ný. Hækki það um tvær krónur, í heild fyrir báðar tegundir bensíns, þá er sparnaður neytandans horf- inn, en hann hefur þó fengið að njóta hans í um það bil tvær vik- ur og haft út úr því rúmar 180 krónur miðað við meðaltalsfjöl- skylduna. Hækki bensíngjaldið meira en sem nemur þessum tveimur krónum í verðinu, þá er neytandinn farinn að greiða sparnaðinn til baka, jafnvel meira en 180 krónurnar. Þetta hefur ríkisstjórnin vitaskuld í hendi sér að ákveða. Þeir sem þessa dagana njóta verðlækkunarinnar, eru notendur blýlauss bensíns. Ætla má, að einhveijir notendur blýbensíns muni skipta yftr vegna verðmun- arins. í aprílmánuði síðastliðnum, skiptist heildarbensínsala þannig á landinu, að 58% var 98 oktana blýbensín og 42% var 92 oktana blýlaust. í maí höfðu hlutföllin breyst lítillega, 57% sölunnar var blýbensín og 43% blýlaust. Flestir nýir og nýlegir bílar mega nota blýlaust bensín, en okkar vandamál her er, að all- margir nýir bílar eiga að nota háoktana bensín og ganga því treglega á 92 oktana bensíni. Bílgreinasambandið hefur ekki upplýsingar um hlutfallið, eða flölda þeirra bíla sem geta skipt yfir á blýlaust, þannig að ekki er hægt að segja hve margir geta notfært sér verðlækkunina nú. Hreinna loft? Ein helsta forsendan sem ráð- herramir gáfu fyrir því, að blý- bensín var ekki lækkað nú, er sú að verið sé með því að hreinsa andrúmsloftið. Viðskiptaráðherra sagði á fyrmefndum blaðamanna- fundi, að fjögurra króna verðmun- urinn væri æskilegur til að hvetja fólk til að nota fremur blýlaust bensín, af umhverfisverndará- stæðum. Hér er stigið ákveðið skref til neyslustýringar og er í takt við það sem gerist með þeim þjóðum sem lengst em komnar í umhverfisverndarmálum á þess- um sviðum, það er V-Þjóðveijum og Bandaríkjamönnum. V-Þjóð- veijar ganga reyndar svo langt, að þeir fella niður ýmsa skatta og gjöld af þeim bflum, sem skila hreinustum útblæstri. I Banda- ríkjunum hefur blýbensín nánast horfið af markaði fyrir blýlausu. Þess er þó að gæta, að í báðum þessum ríkjum fæst blýlaust bensín með hærri oktantölu en hér á landi, auk þess sem val er um fleiri oktantölur. Þá er annars að gæta, sem ekki er fyrir hendi hér, en er einna lengst á veg komið í fyrrnefndum löndum. Það er hreinsibúnaður fyrir útblástur bílanna. Blýlaust bensín skilar nefnilega lítt eða ekkert hreinni útblæstri, ef ekki er til staðar viðeigandi hreinsibún- aður á pústkerfinu. Blýmengunin hverfur vissulega að mestu, en önnur efni koma í staðinn og þau hreint ekki skaðlaus. Hreinsibún- aðurinn kostar sitt og bílar með þeim útbúnaði eru dýrari en væru þeir án hans, auk þess sem þeir eyða lítið eitt meira bensíni. Á fyrrnefndum blaðamannafundi var Jón Sigurðsson spurður hvort stjórnvöld hyggðust bregðast við þessu, til dæmis með því að hvetja fólk með einhvetju móti til að kaupa frekar bfla með hreinsibún- aði. Hann sagði að trúlega myndi væntanlegt umhverfisráðuneyti taka á þeim málum. Fyrstu skrefin til að hreinsa útblástur bílanna hafa verið stig- in, það er að blýlaust bensín fæst hér og að neyslunni er stýrt með verðlagningu. Hins vegar vantar enn lokaskrefið til að hægt verði að tala um árangur á þessu sviði: Hreinsibúnað í bílana. Verðlækkun á mjólk: Fjögnrra manna flöl- skylda sparar 188 krónur á mánuði FJÖGURRA manna fjölskylda, með sömu neysluveiyur og vísitölu- fjölskyldan, sparar 2.261,48 krónur á ári við lækkun mjólkur- verðs um ljórar krónur lítrann sem ríkisstjómin ákvað í byrjun vikunnar. Þetta samsvarar 188,46 krónum á mánuði. Verðlækkun- in er 5,96%. Vísitölufjölskyldan svokallaða er höfð til grundvallar við reikning framfærsluvísitölu. Þessi „fjöl- skylda“ er 3,48 einstaklingar. Samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar notar vísitölufjölskyld- an 491,87 lítra af nýmjólk og létt- mjólk á ári. Fjögurra manna fjöl- skylda sem notar hlutfallslega jafn mikla mjólk, kaupir því 565,37 lítra á ári. Fyrir lækkun kostaði mjólkin 67,10 krónur lítrinn. Á því verði kostar ársneysla fjögurra manna fjölskyldunnar 37.936,33 krónur. Eftir lækkun kostar mjólkin 63,10 aura, ársneysla sömu fjölskyldu 35.674,85. Mismunurinn, sem fjölskyldan sparar er 2.261,48 krónur á ári. Það eru 188,46 krón- ur á mánuði og 43,49 krónur á viku. Fjölskyldan notar 565,4 lítra af mjólk á ári. Fyrir lækkun var verö lítrans 67,1 Okr. Mjólkurkostnaöur áári varþví: 37.936,30 kr. Eftir lækkun um 4 kr. í 63,10 kr. verður árskostn- aöurinn: 35.674,80 kr. Mismunur- _ inn er: 2.261,40 kr. Sem er . 00 _0 ámánuði. lbö,5U kr. Miöað er viö fjögra manna fjölskyldu með sama neyslumynstur og vlsi- töluljðlskyldan (4/3,78).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.