Morgunblaðið - 24.06.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24.. JUNI 1989
31
Laugarvatrii
Valhöll
kl. 08:00
Mosfellu ^Skálholt
Skriðufell •«t‘i
Nesjavellir ‘talh,
Búrfell
lelfoss
■Óseyrarbrú
Sumarferð Varðar 1. júlí verður farin um Suðurland.
Morgunblaðið/GÓI
Gunnars- yar5arferð
í Þjórsárdal
1. júlí 1989
Sumarferð Varðar í Þjórsárdal:
Miimt á mikilvægi skóg-
ræktar og landgræðslu
Hjálparfoss í Þjórsárdal. Ljðsmynd/JÖÞ
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður
í Reykjavík efinir til árlegrar
sumarferðar sinnar laugardag-
inn 1. júlí. Lagt verður af stað
klukkan 8 um morguninn frá
Valhöll við Háaleitisbraut og er
ferðinni heitið í Þjórsárdal. Víða
verður komið við, meðal annars
í Skálholti, Skriðufellsskógi og
Gunnarsholti. Aðalfararstjóri í
ferðinni er Höskuldur Jónsson,
forseti Ferðafélags íslands.
Farið verður austur nýja veginn
til Nesjavalla, um Grafning að
Sogsbrú, upp Grimsnesið og að
Skálholti, þar sem drukkið verður
kaffi. Þar mun sr. Guðmundur Óla-
son lýsa staðnum og formaður
Varðar, Jónas Bjarnason, flytja
ávarp. Frá Skálholti verður ferðinni
haldið áfram yfir Iðubrú upp í Þjórs-
árdal og verður hádegisverður
snæddur í Skriðufellsskógi. Þar
mun Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins og alþingis-
maður fyrir Suðurland flytja ávarp,
Böðvar Guðmundsson, skógarvörð-
ur, segja frá skógræktarstarfi í
Þjórsárdal og Höskuldur Jónsson
kynna helstu kennileiti. Einnig er
fyrirhugað að planta þar 60 tijá-
plöntum í tilefni af 60 ára afmæli
Sj álf stæðisflokksins.
Eftir að áð hefur verið í Þjórsár-
dal verður haldið niður Land og að
Gunnarsholti, þar sem Sveinn Run-
ólfsson, landgræðslustjóri, mun
gera grein fyrir starfsemi Land-
græðslu ríkisins. Þaðan verður
haldið til Reykjavíkur um hina nýju
Óseyrarbrú.
Þetta er í þriðja sinn sem Hösk-
uldur Jónsson er aðalfararstjóri í
sumarferð Varðar. Árið 1987 stýrði
hann ferð félagsins um Snæfellsnes
en í fyrra var farið inn í Þórsmörk.
Hann segir að þrennt hafi einkum
ráðið vali þeirrar leiðar, sem farin
verður að þessu sinni. í fyrsta lagi
verði farið fram hjá þýðingarmestu
orkulindum Reykvíkinga, í annan
stað að skógum framtiðarinnar að
Mosfelli og að Skriðufelli og í þriðja
lagi yrði kömið við í Gunnarsholti,
aðsetri Landgræðslunnar.
í máli Höskuldar kom fram, að
farið verður fram hjá orkuveri Hita-
veitu Reykjavíkur að Nesjavöllum,
Sogsvirkjunum og síðar Búrfells-
virkjun. Þannig sé ætlunin að minna
á frumkvæði Reykjavíkurborgar í
virkjun gufu- og vatnsafls. Einnig
væri ætlunin að minna á fegurð
landsins í ferðinni, svo og mikil-
vægi skógræktar og landgræðslu.
Ekið yrði fram hjá Mosfelli, þar sem
áformað væri að gróðursetja ösp í
miklum mæli. Þar gæti í framtíð-
inni orðið mesti asparskógur á
landinu. í Þjórsárdal gæti svo að
líta baráttu milli gróðurs og hinna
eyðandi náttúruafla. Þar yrði meðal
annars farið að Hjálparfossi. Úr
Þjórsárdal yrði svo farið um Land,
sem hefði fyrir fáum áratugum ver-
ið að breytast í auðn vegna sand-
foks, en væri nú grösug sveit. Að
síðustu yrði svo komið við í Gunn-
arsholti, aðsetri Landgræðslunnar.
Þar hefði stórvirki verið unnið og
sýndi það, að landsmenn þyrftu
ekki alltaf að vera.í vörn gagnvart
gróðureyðingunni.
Höskuldur Jónsson sagði eðlilegt
að á afmælisári Sjálfstæðisflokks-
inS væri sumarferð Varðar tengd
þessum málum, enda legði flokkur-
inn nú áherslu á bætta sambúð við
landið, umhverfisvernd og land-
græðslu. Þar að auki væri ferðin
þáttur í því að kynna landið, nátt-
úru þess og sögu.
Mýrarhreppur:
Námsvísir Núps-
skóla er kominn út
Núpi.
NÝR námsvísir fyrir Héraðsskól-
ann að Núpi næsta skólaár er
kominn út.
í námsvísinum kemur fram náms-
framboð skólans næsta skólaár auk
áætlana um námsframvindu og inni-
haldslýsinga námsbrauta og kennslu-
greina.
Skólinn býður nú nám í 9. bekk
og á tveggja ára framhaldsbrautum,
sem eru heilsugæslubraut, viðskipta-
braut, þjálfunarbraut og fomám sem
stendur einn vetur. Námið er eftir
áfangakerfi framhaldsskólanna og
stefnt að samvinnu við tilvonandi
fjölbrautarkerfi á Isafirði.
Skólinn þjónar nú nær eingöngu
vestfirskum unglingum og fer nem-
endafjöldi vaxandi eftir að hafist var
handa 1987 um endurbætur á skól-
anum. Umsóknarfrestur um skóla-
vist á Núpi næsta vetur er til 15. júní.
- Kári
ATVIN N %MAUGl YSINGAR
Garðabær
Blaðberi óskast í afleysingar á Flatir.
Upplýsingar í síma 656146.
fHwgmtÞlfiMfe
Blaðberar
- Siglufjörður
Blaðberar óskast á Suðurgötu frá 1. júlí i
sumarafleysingar.
Upplýsingar gefur Matthías í síma 96-71489.
JMwguiiÚftfrifr
smá auglýsingar
t*JÓNUSTA
National ofnaviðgerðir
og þjónusta.
National gaseldavélar meö grilli
tyrirliggjandi.
RAFBORG SF.,
Rauðarárstig 1, s. 622130.
Wéiagsúf
□ EDDA 59892466
Jónsmessuf.
stuðlaberg. Ekið inn fyrir Þor-
móðsdal og gengið inn i*Seljadal
að Hrafnagili. Skoðað verður
fallegt stuðlaberg í malarnámu,
sem nýlega hefur komið f Ijós.
Gengið verður að Nesseli, fram-
hjá Bjarnarvatni aö Katlagili.
Verð 800,- kr., frítt f. börn m/full-
orðnum. Skemmtileg gönguferð.
Allir sunnudagar eru göngu-
dagar hjá Útivist. Ath. að Heng-
ils- og Innstadalsferð er frestað
vegna aðstæðna.
Miðvikudagur 28. júnf kl. 20:
Viðey - Vesturey. Hekiuferð
þann 1. júlí.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
Ný byggingavöruversl-
un í vesturbænum opnuð
NÝLEGA var opnuð ný bygging-
arvöruverslun í vesturbæ
Reykjavíkur, Byggingarmarkað-
ur vesturbæjar. Verslunin er þar
sem JL-byggingarvörur voru áð-
ur til húsa, við Hringbraut 120.
Fjögur fyrirtæki hafa tekið hús-
næðið á leigu og bjóða allar bygg-
ingarvörur; málningu, verkfæri,
innréttingar, parket, klæðningar,
teppi, dúka, flísar, hreinlætistæki,
pípulagnaefni, rör og fittings.
Fyrirtækin reka hvert sína deild
sem sjálfstæða rekstrareiningu og
hafa öll starfað um árabil í innflutn-
ingi á byggingarvörum og innrétt-
ingum. Þau eru: Þrift hf. með máln-
ingu og byggingarvörur, Ó.M. þjón-
ustan hf., teppa- og dúkadeild,
Vatnstæki hf., flísar, hreinlætistæki
og pípulagnaefni, og Tréverk með
innréttingar, parket og klæðningar.
Byggingarmarkaður vesturbæjar
Frá vinstri: Sigurður Fannar Guðnason hjá Tréverki, Ingþór Ólafs-
son frá Vatnstækjum, Eysteinn Árnason hjá Ó.M. þjónustunni, Þórar-
inn Guðnason frá Þrift hf. og Tómas Enok Thomsen hjá Vatnstækjum.
leggur áherslu á gott vöruval og opinn mánudaga til föstudaga frá
góða þjónustu við viðskiptavini. kl. 8-6 og frá 10-16 á laugardögum
Byggingarmarkaður vesturbæjarer árið um kring.
Auðfarekku 2.200 Kúpavogur
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Samkoma á morgun kl. 14.00.
Ath. breyttan samkomutíma.
Hvrtasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn bænasamkoma í kvöld
kl. 20.30.
ÉSAMBAND (SLENZKRA
____' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samkoma sunnudagskvöld kl.
20.30 á Amtmannsstig 2B. Upp-
hafsorð: Sigurlína Siguröardóttir.
Ræðumaður: Fransis Stefanos,
forseti luthersku kirkjunnar i
Eþíópíu. Söngur: Magnús Bald-
vinsson. Allir velkomir.
Samband íslenskra
kristniboðsfélaga.
l&lj Útivist
Sunnudagur 25. júní:
Kl. 8.00 Þórsmörk - Goðaland.
Stansað 3-4 klst. í Mörkinni.
Verð 1.500,- kr.
Kl. 13.00 Seljadalur - Helgadalur.
Ný gönguleið:
Seljadalur - Helgadalur -
FERDAFÉLAG
ÍSLAHDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR117» og 19531
Dagsferðir Ferðafélags-
ins sunnudaginn 25. júni
Kl. 8.00 - Þórsmörk. Dvalið 3-4
klst. Verð kr. 2000,-.
Kl. 10.00 - Móskarðshnúkar -
Trana - Eyjadalur. Móskarðs-
hnúkar eru liparíthnúkar austur
af Esju mjög Ijósir tilsýndar og
skera sig þannig úr fjöllunum í
kring. Trana (743 m) er tindur
norður af Móskarðshnúkum.
Verð kr. 1000,-.
Kl. 13.00 - Eyjadalur - Meðal-
feilsvatn. Ekið að Sandi (austan
Meðalfellsvatns) og gengin
hringferð um Eyjadal.
Verð kr. 1000,-.
Miðvikudagur 28. júní:
Kl. 8.00 - Þórsmörk. Við veitum
afslátt af gistigjaldi fyrir sumar-
leyfisgesti i Þórsmörk. Ódýrasta
sumarleyfið er dvöl i Þórsmörk
hjá Ferðafélagi íslands.
Kl. 20.00 - Síðasta kvöldferðin
í Heiðmörk. Fararstjóri: Sveinn
Ólafsson. Ókeypis ferð.
Brottför í ferðirnar er frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmeg-
in. Farmiðar við bíl.
Fritt fyrir börn að 16 ára aldri.
Ferðafélag ísiands.