Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989
35
Success
■flFfi
Fyrir 4 - suóutími 8 mín.
Heildsölubirgðin
K.ARI. K. KARLSSON&C.C).
Skúlatúni 4, Reykjavík, sími 6"2 32 32
konu, en hún var alltaf á sínum stað,
hógvær og hljóðlát og vann sín verk
af samviskusemi. Upp úr sl. áramót-
um kom hún síðan til að starfa í
snyrtivörudeild og þar kynntist ég
henni fyrst náið. Hún hafði ekki ver-
ið þar lengi þegar ég gerði mér ljóst
að þarna var kominn frábær starfs-
kraftur. Hún hafði einstaka hæfileika
til að hafa allt í röð og reglu þar sem
hún gekk um, sama hvort var á lag-
er eða í búð, var hún einstaklega
fljót að átta sig á hlutunum, ekkert
þurfti að segja henni nema einu
sinni. Svo hafði hún líka þessa ljúfu
framkomu, hlýleg, háttvís og hjálp-
fús og allir virtust fara ánægðir frá
hennar borði. Slíkir starfskraftar, eru
afar fágætir.
Fyrir samstarfið allt er mér ljúft
og skylt að þakka.
Það er erfitt að sætta sig við þá
staðreynd, að Elín sé ekki lengur á
meðal okkar, en undanfarna daga
hafa orðin „yfir litlu varstu trúr yfir
mikið mun ég setja þig“, komið oft
í huga minn. Við verðum að trúa að
hún hafi verið kölluð til æðri starfa.
Elsku Sigrún, Sverrir og Orri, Guð
gefi ykkur styrk til að lifa lífinu
áfram, í hennar anda, litlu börnin
ykkar þurfa svo mjög á því að halda.
Ykkur öllum, svo og bræðrum
hennar, tengdaforeldrum og vensla-
fólki öllu, votta ég mína dýpstu sam-
úð.
Blessuð sé minning Elínar Sverris-
dóttur, megi hún hvíla í friði.
Kristbjörg Guðbrandsdóttir
Sauðárkróki
í dag, 24. júní, verður jarðsungin
frá Sauðárkrókskirkju elskuleg
frænka mín og vinkona, Elín Sverris-
dóttir. Þegar ég sest niður til þess
að skrifa þessar línur hrannast minn-
ingarnar upp, og þær sem koma efst
í huga minn eru allar fallegar og
góðar því Ella, eins og hún var alltaf
kölluð, var einstaklega glaðleg og
ljúf í viðmóti. Elia var mjög barngóð
og átti Kidda dóttir mín margar
skemmtilegar stundir með henni og
fjölskyldu hennar, sem oft eru riijað-
ar upp. Tómlegt held ég að verði að
koma á Krókinn án þess að hitta
Ellu. Ekki hefði mér dottið í hug
Elín Sverrisdóttir,
Sauðárkróki - Minning
fyrir aðeins þremur mánuðum síðan
er við hittum hana hressa og káta
að það yrði okkar síðasti fundur, en
enginn veit hvað framtíðin ber í
skauti sér.
Ella fæddist 6. ágúst 1963 á Sauð-
árkróki og ó?t þar upp hjá foreldrum
sínum og bróður, Svavari Halldóri,
en hann lést 8. janúar 1978, þá að-
eins 16 ára gamall, og var það mik-
ið áfall fyrir hana og eins er Ómar
hálfbróðir hennar lést skyndilega í
janúar 1985, en sagt er að tíminn
lækni öll sár.
Ung hitti Ella eftirlifandi eigin-
mann sinn, Einar Örn, eða Orra eins
og hann er kallaður. Þau giftust 30.
maí 1982 á fertugsafmæli Sigrúnar
móður Ellu. Þau hófu sambúð á
Hofsósi og eignuðust 2 börn, Halld-
óru Rögnu f. 1980 og Gísla Arnar
f. 1983. Fjölskyldan fluttisttil Sauð-,
árkróks og bjó þar er Ella lést. 11.
júní veiktist Ella skyndilega og var
flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri þar sem hún lést á þjóðhátíðar-
degi íslendinga og brúðkaupsdegi
foreldra sinna, þann 17. júní. Við sem
eftir lifum eigum erfitt með að sætta
okkur við þegar ung kona í blóma
lífsins er kölluð burtu frá ungum
börnum sínum og eiginmanni, en ein-
hver hlýtur tilgangurinn að vera og
er það trú mín að Ella hafi verið
köliuð til æðri starfa, því sagt er að
þeir deyi ungir sem guðirnir elska.
Kæri Orri, Halldóra og Gísli, Sigr-
ún, Sverrir og aðrir aðstandendur,
góður Guð styrki ykkur í þessari
miklu sorg.
Svava Hjaltadóttir
Fædd 6. ágúst 1963
Dáin 17. júní 1989
í dag er jarðsungin frá Sauðár-
krókskirkju Elín Sverrisdóttir. Hún
var dóttir hjónanna Sigrúnar Hall-
dórsdóttur og Svérris Svavarssonar.
Á stund sem þessari leita ótal
spurningar fram í hugann — af
hveiju, hvers vegna — en það er lítið
um svör.
Þessi ijúfa og geðþekka stúlka,
sem rétt var að byrja lífið, og átti
svo mikið eftir.
Það er erfítt að hugsa sér litla
hópinn án hennar, og eiga ekki eftir
að heyra röddina hennar þegar kom-
ið er í heimsókn á Kárastíginn: „Er
ekki einhver heima?“ Já, „tilvera
okkar er undarlegt ferðalag".
Eftir langan og erfiðan vetur
fengu þau loksins eigin íbúð og
ógleymanlegt er hversu glöð og sæl
þau voru þá, en vikurnar þar urðu
aðeins fjórar. Eiginmaður Eilu, eins
og hún var kölluð, er Einar Örn Ein-
arsson og áttu þau tvö börn.
Elsku Orri, Halldóra og Gísli, einn-
ig þið, Sigrún og Sverrir, þið sem
svo margt hafið þurft að reyna, en
alltaf verið svo sterk, megi Guð
blessa ykkur og styrkja.
Nú blikar tár á björtura vanga,
byrgðum í sorgar skýja hjúp.
Ó, ljúfi faðir, láttu ei stranga
leiðina verða um þetta djúp.
Ó, láttu ekki ljósið dvína,
leggðu þau yfir hendi þína.
Erna, Einar og Sigurlaug
Á björtu vorkvöldi, þegar allur
gróður er að vakna eftir kaldan vet-
ur, er ung kona, ung móðir, hrifin
burtu svo að segja í einu vetfangi.
Okkur sem eftir stöndum finnst allt
verða dimmt og kalt, þrátt fyrir lita-
dýrð vorsins.
Við spyijum, eins og svo oft áður
hefur verið spurt, af hveiju hún, hún
sem var rétt að hefja sína lífsgöngu,
hún sem hafði svo mikið að lifa fyrir?
Elín Sverrisdóttir var fædd og
uppalin á Sauðárkróki, annað barn
hjónanna Sigrúnar Halldórsdóttur og
Sverris Svavarssonar. Son áttu þau
eldri, Halldór, en hann lést aðeins
15 ára gamall. Þijá hálfbræður átti
Elín frá fyrra hjónabandi föður síns,
Jóhann búsettan í Reykjavík, Ómar
sem er látinn og Magnús búsettan á
Sauðárkróki. Með þeim Magnúsi og
Elínu og fjölskyldum þeirra var afar
kært.
Kornung kynntist hún Orra, Ein-
ari Orra Einarssyni, vélvirkja, indæl-
um dreng frá Hofsósi. Elín var að-
eins 16 ára þegar þeim fæddist dótt-
irin Halldóra Ragna, þremur árum
síðar fæddist sonurinn Gísli Amar.
Þau hófu búskap á Hofsósi á
æskustöðvum Orra og áttu þar ham-
ingjurík ár með óskabörnin sín tvö
og höfðu, þó ung væru, komið sér
upp eigin húsnæði þar. Vegna
breyttra atvinnuhátta á Hofsósi
ákváðu þau fyrir tveimur árum, að
flytja til Sauðárkróks. Ekki þarf að
efa að sú ákvörðun muni hafa verið
foreldrum hennar til mikillar ánægju,
að geta nú haft dagleg samskipti við
einkadótturina og fjjölskyldu hennar.
Þau þurftu að sætta sig við lítil
húsakynni hér í fyrstu, en bjartsýni
og nægjusemi var alltaf í fyrirrúmi
og þau horfðu björtum augum til
framtíðar.
Fyrir aðeins einum mánuði, festu
þau kaup á góðri íbúð. Ég gleymi
ekki þeim degi, þegar Elín kom geisl-
andi glöð í vinnuna og sagði okkur
frá nýju íbúðinni. Það var gleðidagur.
Allan síðasta mánuð hafa þau
unnið að því að koma sér sem best
fyrir. Allt skyldi komið í lag áður
en sumarleyfið hæfist. Sumarleyfið
með langþráðu ferðalagi. Sú ferð
verður aldrei farin. Það var önnur
ferð sem beið konunnar ungu.
Á sl. hausti réðst Elín til starfa
hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, í mat-
vörudeild Skagfirðingabúðar, hjá
Gunnar heitnum Haraldssyni. Það
fór ekki mikið fyrir þessari ungu
Löng hrísgrjón með ristuðu
heilhveitiklíði, núðlum og
bragðgóðu grænmetí. Ljúf-
fengur fjölskylduréttur.
LAUGARDAG KL. 11-16, SUNNUDAG KL. 12-16
ALLT I ÚTILEGUNA
EYJARSLÓÐ 7 - SÍMI 621780
TJ OLD
Roadmaster tjaldvagnar - örfáir kynningarvagnar
eftir, stórt fortjald fylgir í kaupbæti