Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 37

Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989 > .. ■...... . . i -.. ■ . i . <■>■>... 37 Vigfúsínu Bjamadóttur, og eftir að fósturforeldrarnir féllu frá, héldu þau Vigfús og Vigfúsína heimili saman í Garðbæ á Eyrarbakka allar götur síðan, þangað til fyrir tveimur árum, að þau færðu sig yfir í Sól- velli, nýlegt dvalarheimili aldraðra á Bakkanum. Vigfús gekk í Bamaskólann á Eyrarbakka, en þar kenndu þá ýmsir merkir skólamenn undir handleiðslu Péturs Guðmundssonar, skólastjóra. Meðal þeirra var Aðal- steinn Sigmundsson, sem stofnaði Ungmennafélag Eyrarbakka árið 1925. Vigfús starfaði í stjóm þess og sama átti við um stúkuna Eyrar- rós og verkamannafélagið Bámna, að Vigfús átti sæti í stjómum þess- ara félaga og stundum sem formað- ur. Þá hafði á Bakkanum verið öflugt félags- og menningarlíf, þar sem sönglíf, leiklist og tónlist blómgaðist, og eiga nokkrar list- greinar í landinu mæta fulltrúa, sem þá ólust þar upp. í þessum jarðvegi mótaðist Vigfús Jónsson. En tímarnir breyttust. Nýir sam- gönguhættir og breyttur verzlunar- máti kipptu fótunum undan hinum fyrri stoðum atvinnulífsins. Sigling- ar lögðust frá og færðust til Reykjavíkur, og verzlunarmjðstöð Árnesinga byggðist upp við Ölfus- árbrú. Ibúatala hreppsins, sem hafði verið yfir 950 rétt fyrir árið 1920, lækkaði á tiltölulega fáum ámm niður í það, sem síðan hefur haldizt, rúmlega 500. Margir höfðu séð fram á, hvað verða vildi og fluttust suður. En ekki Vigfús. Hann hélt kyrru fyrir og tókst á hendur það hlutverk að byggja upp og leita nýrra leiða. Hann lauk námi í vélsmíði árið 1926 og í trésmíði 1930. Hann stofnaði ásamt fleirum Trésmiðju Eyrarbakka hf. árið 1930, sem var fyrsta vélvædda trésmiðjan austan- ijalls, og var framkvæmdastjóri hennar í 15 ár. Á árinu 1943 beitti hann sér fýrir stofnun Hraðfrysti- stöðvar Eyrarbakka hf. til þess að heija á ný útgerð og fískvinnslu, sem nær alveg hafði lagzt niður á stríðsámnum. Var hann fram- kvæmdastjóri hennar allt til ársins 1970. Árið 1940 tók Vigfús sæti í hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps sem varamaður og tveimur árum síðar sem aðalfulltrúi. Oddviti varð hann árið 1946 og frá þeim tíma starfsmaður hreppsins, um leið og hann stjórnaði Hraðfrystistöð Eyr- arbakka. Varð hreppsskrifstofan og skrifstofa frystihússins nú hin sama. I því nýja og tvöfalda starfi beitti Vigfús sér fyrir ýmsum nýmælum í atvinnulífi staðarins. Hann lét kanna markað erlendis fyrir humar og lét Eyrarbakkabáta hefja hum- arveiðar á árinu 1954 og var því meðal upphafsmanna hérlendis að þeim veiðum. Hann fékk efnafræð- ing til þess að kanna vinnslu og nýtingu á þangmjöli, og í þijú til fjögur ár var með góðum árangri skorið klóþang í fjörunni og það unnið í mjöl í fiskimjölsverksmiðju, sem Eyrbekkingar og Stokks- eyringar höfðu sameiginlega reist árið 1952 og stendur milli þorp- anna. Enn eitt dæmið var Plastiðja Eyrarbakka, sem Vigfús beitti sér fyrir, að sett væri á stofn á staðn- um. Var henni lagt til húsnæði í eigu hreppsins. Plastiðjan tók til starfa árið 1957 og veitti 20—30 manns atvinnu. Af öðrum framfaramálum, sem Vigfús beitti sér fýrir, voru m.a. kaup hreppsins á jörðum, sem byggðin stendur á, leit að neyzlu- vatni og lausn á þeim vanda, sem fólginn var í öflun neyzluvatns. Og síðast en ekki sízt lá það rannsókn- arefni þungt á Vigfúsi og fleirum, hvemig bæta mætti hafnaraðstöð- una fyrir strönd þorpsins svo, að unnt væri að gera út frá Eyrar- bakka með þeim bátakosti, sem bezt hentaði á hverjum tíma. Hann gerði sér glögga grein fyrir aðstæð- um og þeim tæknilegu erfiðleikum, sem á því vom að gera góða höfn heima fyrir. Eygði hann þar þá frambúðarlausn, sem náði fram að ganga og fólgin var í gerð brúar á Olfusá hjá Óseyramesi. Vann hann þeirri hugmynd óspart fylgi m.a. GuðleifHallgríms- dóttir — Minning Fædd 15. apríl 1926 Dáin 24. mai 1989 2. júní síðastliðinn var Guðleif Hallgrímsdóttir frænka mín til moldar borin. Guðleif eða Gulla eins og hún var oftast kölluð var fædd og uppalin í Reylqavík. Hún ólst upp hjá foreldmm sínum í myndar- legum systkinahópi. Foreldrar hennar vom hjónin Hallgrímur Bjamason og Valgerður Stefáns- dóttir, bæði komin af sunnlensku dugnaðarbændafólki og setti sá arfur svip sinn á hana. Hún var sterkur persónuleiki, sem óhætt var að treysta, samfara hlýju viðmóti sem einkenndi hana í daglegu lífi. Öll hin löngu veikindi bar hún æðm- laust og lét aldrei bugast svo mað- ur vissi. Enga konu hef ég fyrirhitt sem var eins og sköpuð til að vera húsmóðir. Hún hefði aldrei hrifist með þeirri þróun sem nú tíðkast að húsmóðirin fari út á vinnumark- aðinn. Hennar vettvangur var heim- ilið. Og óneitanlega missir það heimili mikið, þar sem engar nær- famar húsmóður hendur fara um hvem hlut, hlýja og notalegheit em þá horfin. En auðvitað em tvær hliðar á hveiju málefni. Varla er hægt að minnast svo Gullu frænku að maður hennar komi ekki í hug manns líka, Hafliði Jónsson fyrrver- andi garðyrlqustjóri. Öll hin löngu og erfiðu sjúkdómsár stóð hann við hlið hennar. Með bros á vör tók hann á móti okkur, sem í heimsókn komum, og með bros á vör talaði hann til konu sinnar og okkar sem við sjúkrabeð hennar sátum. Fyrir svona mann er gott að líta til baka í sátt við sinn betri mann. Heim- sóknimar í Holtagerði 37, sem mér finnst núna að hafi verið alltof fá- ar, vom alltaf skemmtilegar. Eigin- lega var ekkert að á þessu heimili. Þannig var andinn sem þama sveif yfír öllu mér alveg ógleymanlegur. Og nú er Gulla blessunin búin að kveðja, horfin okkur sem eftir lifum í þessu óskiljanlega jarðlífí og við horfum raunar alltaf á full undmnar. En minning um góða konu lifir í hugum okkar. í rauninni er það hið eina verð- mæti sem lífið gefur okkur og ekki verður frá okkur tekið. Böm þeirra hjóna, Guðleifar og Hafliða, em 5 synir, allir mannvænlegir menn. Ég sá þá standa hlið við hlið við gröf móður sinnar, prúða og æðmlausa. Bám þeir glöggt svipmót ættar sinnar. Nöfn þeirra era Hallgrímur Valur, Jón Gunnar, Indriði Már, Atli Geir og Stefán Daði. Bjarnheiður Ingimundardóttir frá Litla Hvammi. með fundahöldum með þingmönn- um. Var það honum mikið gleðiefni að fylgjast með framkvæmdum við brúarsmíðina og að vera við opnun hennar á sl. hausti. Vigfús sat í hreppsnefnd Eyrar- bakkahrepps óslitið til ársins 1978, einatt sem oddviti og kjörinn með hreinan meirihluta hreppsnefndar með sér. Að meðtöldum þeim tveim- ur áram, er hann starfaði sem vara- maður í hreppsnefnd, höfðu störf hans að hreppsmálum varað í rétta fjóra áratugi, er hann lét af forustu- störfum í þágu hreppsins. Einnig sat hann í sýslunefnd Árnessýslu 1950—1970, eða í tvo áratugi, og valdist af hálfu sýslunefndar um skeið sem stjórnarformaður Sjúkra- húss Árnessýslu og í stjórn Elli- heimilis Árnessýslu. Hann var fyrsti stjórnarformaður togaraútgerðar- félagsins Árborgar á áranum 1975-1978. Eyrarbakkahreppur var meðal stofnenda Sambands íslenzkra sveitarfélaga. Vigfús sat öll lands- þing þess, meðan hann vann að hreppsmálum, og átti sæti í stjóm sambandsins á áranum 1963— 1970. Af hálfu sambandsins átti hann og sæti í stjórn Hafnasam- bands sveitarfélaga árin 1969— 1971. Vigfús átti aðild að stofnun Iðn- aðarmannafélags Ámessýslu og var formaður þess í nokkur ár. Þá var hann virkur í' félagsstörfum Al- þýðuflokksins, sat flokksþing og skipaði sæti í framkvæmdastjóm. Hann skipaði oft eitt af efstu sætum á framboðslistum flokksins í Ámes- sýslu og í Suðurlandskjördæmi. Þótt árin færðust yfir, hélt Vig- fús úthaldi sínu í atvinnurekstri. Hann stofnaði á efri árum til eigin fiskverkunar í fyrirtækinu Einars- höfn, og hann var orðinn hálfátt- ræður, er hann hætti eignaraðild að fískibáti, þeim ijórða sem hann hafði átt hlut i um dagana. Stundum er svo til orða tekið um athafnamenn í fámennum þorpum, að þeir „eigi“ staðinn. Á Eyrar- bakka var þessu öfugt farið í tíð Vigfúsar Jónssonar. Eyrarbakki átti Vigfús. Hann helgaði starfs- krafta sína alla málefnum sam- félagsins á Bakkanum og lagði sig fram í þjónustu við byggðarlagið, ekki aðeins í þess þágu sem heildar eins og á sviði hreppsmála. heldur var hann líka sí og æ að starfí í þágu einstaklinganna. Á tímabili átti hann oft erindi til Reykjavíkur, og þá bar ósjaldan við, að með honum í bílnum væru einn eða fleiri farþegar, sem þurftu að fara til læknis eða að heimsækja fólk á sjúkrahús og „notuðu ferðina". Þannig var hann. Og ekkert slíkt talið eftir. Vigfús var að mörgu leyti sér- stæður maður. Þrátt fyrir erfiðleika í atvinnurekstri, virtist ávallt hvíla yfír honum sérstök ró. Með honum var gott að sitja einum ásamt Vig- fúsínu heima í Garðbæ jafnvel án þess að nokkuð orð væri sagt í dágóða stund. Hann var fagurkeri, átti gnótt bóka, sem hann merkti vel og raðaði skipulega. Hann tók sér fyrir hendur að smíða líkan af gömlu verzlunarhúsunum á Eyrar- bakka, og stendur það nú varðveitt undir hlíf, þar sem verzlunarhúsin vora. Hann mótaði sjómann í fullri stærð, „kallinn", er sumir nefna, og var afhjúpaður sem minnisvarði um drakknaða sjómenn á sjó- mannadaginn 1984. Listfengi hans naut sín einnig, er hann endur- byggði Eyrarbakkakirkju að hluta til, þegar þörf var á viðgerð. Þá söng hann í kirkjukórnum. Öðra hveiju fór Vigfús í ferðalög ýmist innanlands eða utan, og leyndi sér þá ekki löngun hans til fróðleiks. Á.m.k. einu sinni skráði hann ferðasögu og lét í té vinum og kunningjum. Þá tók hann saman yfírlit um sjóslys við Eyrarbakka. skráði drög að sögu brúarmálsins, þ.e. sögu baráttunnar fyrir Óseyrar- brú. Og það þótti honum verst við efri árin, að sjónin skyldi deprast, því hann átti þá erfítt með að lesa og skrifa, en af hvora tveggja hafði hann hið mesta yndi. En gott er að minnast þess, að síðustu æviár Vigfúsar vora honum góð. Hann gat notið þess að líta yfir farinn veg og sjá marga af draumum sínum rætast og þann stærstan, að Eyrarbakki hefur dafnað og er nú orðinn meðal bú- sældarlegri staða á landinu. Að þeirri þróun átti Vigfús Jónsson dijúgan hlut. Unnar Stefánsson BÍLLINN Á ÍSLANDI Glæsilegustu bílar landsins í Laugardalshöllinni dagana 21.-25. júní Sýningin er opin í dag og á morgun frá 10-23. - SÍÐASTA SÝNINGARHELGI - Missið ekki af stærstu bílasýningu ársins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.