Morgunblaðið - 30.06.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.06.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1989 Frá mótsstað á Iðavöllum. Morgunblaðið/Bjöm Austfirskir hestamenn halda fiórðungsmót Egilsstöðum. Fjórðungsmót austfirskra hestamanna hófst á Iðavöllum við Egils- staði í gaer. Rúmlega 200 hestar víðsvegar af landinu taka þátt í keppni á mótínu. Auk þess voru mætt um 400 ferðahross á mótsstað ásamt Vanskil fiskeldisfyrirtækj a skipta hundruðum milljóna fjölda áhorfenda. í gær fóru fram dómar gæðinga og kynbótahrossa og hryssna með afkvæmi. Einnig fór fram unglinga- keppni 12 ára og yngri og undan- rásir í tölti. I dag fara fram dómar í A-flokki gæðinga og stóðhesta, unglingakeppni í eldri flokki og kapp- reiðar. í kyöld verður sölusýning á hrossum. Á laugardag verða kapp- reiðar ásamt sýningu á hrossum í ýmsum flokkum auk unglingadag- skrár og kvöldvöku. Úrslit kappreiða og verðlaunaafhending verða á sunnudag. Búast má við góðri aðsókn og góðu móti. Það er hestamannafélag- ið Freyfaxi á Fljótsdalshéraði sem heldur mótið. Hafa Freyfaxafélagar lagt á sig mikla vinnu við skipulagn- ingu og undirbúning aðstöðu. Björn TRYGGINGASJÓÐUR fiskeldis- lána hefiir veitt 13 fyrirtækjum ábyrgð fyrir 385 milljónum króna af þeim 1800 milljónum, sem sjóðnum er heimiit að ábyrgjast á hveijum tíma, en viðskipta- bankar hafa aðeins veitt lán fyrir broti af þessum ábyrgðum, að sögn Friðriks Sigurðssonar, íramkvæmdastjóra Landssam- bands fiskeldis- og hafbeitar- stöðva. Hann segir vanskil fisk- eldisfyrirtælga við þjónustuaðila nú skipta hundruðum milljóna króna, og langlundargeð þeirra vera á þrotum. Boðað hefur verið til almenns félagsfundar Landssambands fisk- eldis- og hafbeitarstöðva í dag þar sem fjárhagsstaða fiskeldisins verð- ur rædd, og hefur Steingrími Her- mannssyni forsætisráðherra verið boðið á fundinn. „Brúnin á mönnum er orðinn ansi þung þar sem ekkert hefur enn þokast varðandi aukningu afurða- lána til fiskeldisfyrirtækj anna, og ef meiningin er að láta þessa at- vinnugrein rúlla, þá er alveg eins gott að gera það strax og almenni- lega'en vera ekkert að draga menn á asnaeyrum lengur. Vanskil fisk- eldisfyrirtækja við fóðursala skipta nú orðið hundruðum milljóna króna, og vanskil við tryggingarfélög SKIPTAFUNDUR í þrotabúi Hafskips var haldinn í gærmorg- un. Að sögn Ragnars Hall, skipt- aráðanda, var frumvarp skipta- stjóranna, hæstaréttarlögmann- anna Gests Jónssonar, Jóhanns H. Níelssonar og Viðars Más Matthíassonar, samþykkt sem skiptagerð búsins nærri óbreytt. Aðeins smávægilegir fyrirvarar hefðu verið gerðir við frum- varpið. Að sögn Ragnars eru ekki til reiðu allir fjármunir, sem búinu til- heyra og enn eru nokkrar kröfur í innheimtu. Það hefur hins vegar skipta tugum milljóna. Það er alveg ljóst að þessir aðilar geta ekki hald- ið áfram við svo búið, en allir þjón- ustuaðilar við fiskeldið hafa sýnt alveg ótrúlegt langlundargeð hingað til,“ sagði Friðrik Sigurðsson. ekki áhrif á þá úthlutun á fjármun- um úr búinu, sem nú fer fram. Einn kröfuhafi gerði jafnframt athuga- semd um skuldajöfnuð og annar telur að ekki hafi verið gerð upp við sig forgangskrafa. „Þetta eru ekki stórir liðir og trufla ekki þessa úthlutun," sagði Ragnar. Ragnar sagði ástæðu til að vekja athygli á því, að þótt almennir kröfuhafar fengju greiddar um 50% af kröfum sínum, hefðu ekki verið reiknaðar á þær vextir eða verð- bætur frá því í desember 1985 og þær væru því allmiklu lægri að raungildi. Skiptagerð þrotabús Hafskips: Samþykkt nær óbreytt VEÐURHORFUR í DAG, 30. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Norðvestan kaldi á Norðausturlandi, en gola víðast annars staðar. Léttskýjað var um mest allt iand. Hiti var frá 7 stig- um á Norðurlandi í 15 stig syðra. SPÁ: Norðvestan kaldi um norðaustanvert landið en fremur hæg vestlæg eða breytileg átt í öðrum landshlutum, viða hafgola. Áfram verður bjart veður um nær allt land, og 10-15 stiga hiti um hádeg- ið, en kalt að næturlagi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnan eða suðaustan strekkingur og hlýnandi veður. Þurrt norðaustanlands, en einhver rigning í öðrum landshlutum. HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestan- og vestanátt. Hlýtt og bjart um landið austanvert, en skúrir og öllu svalara um landið vestanvert. TÁKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / « / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir * V a = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti vedur Akureyri 9 skýjað Reykjavik 12 léttskýjað Bergen 9 skúr Helsinki 22 skýjað Kaupmannah. 15 rigning Narssarssuaq vantar Nuuk 2 Þoka Ósló 18 hálfskýjað Stokkhólmur 19 skýjað Þórshöfn 5 rigning Aigarve 25 heiðskírt Amsterdam 13 rigning Barcelona 24 hálfskýjað Beríin 22 skýjað Chicago 17 alskýjað Feneyjar 24 léttskýjað Frankfurt 21 skýjað Glasgow 13 léttskýjað Hamborg 15 rigning Las Palmas 25 skýjað London 12 rigning Los Angeles 12 léttskýjað Luxemborg 15 rigning Madríd heiðskírt Malaga vantar Maliorca vantar Montreal vantar New York 20 léttskýjað Orlando 24 skýjað Paris vantar Róm 25 skýjað Vín 22 skýjað Washington 23 léttskýjað Winnipeg vantar Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir: Skortur gæti orðið á læknum hérlendis GUÐJÓN Magnússon, aðstoðarlandlæknir, telur að fari svo fram sem horfir gæti orðið skortur á læknum hérlendis áður en langt um líður. í samtali við Morgunblaðið sagði hann helstu ástæður þessa vera aukna sókn íslenskra lækna tíl starfa og náms erlendis strax að loknu námi hér heima, f skrifuðust úr læknadeild Háskóla visi samsettír en áður. Guðjón sagði, að æ fleiri lækna- stúdentum bærust boð erlendis frá, einna helst frá Svíþjóð, um störf og námsaðstöðu. „Við óttumst einna helst að brátt muni skorta lækna til að sinna störfum aðstoð- arlækna og heilsugæslulækna á landsbyggðinni. Ef af skorti verður gæti komið til greina að breyta aðstoðarlæknisstöðum í sérfræð- ingsstöður, og höfða þannig til þess hóps íslenskra sérfræðinga sem starfar erlendis. Hann benti á að nú þegar væri orðinn skortur á aðstoðarlæknum, og þá einna mest í Reykjavík. þess sem þeir hópar sem ut- Islands væru fámennari og öðru „Færri kandídatar starfa nú í tvö til fjögur ár sem aðstoðarlæknar áður en þeir halda til sérfræðináms erlendis, en þeir hafa löngum verið uppistaða aðstoðarlækna." Guðrjón sagði að hlutfall kvenna hafí aukist í hópum útskrifaðra lækna, og að þær gerðu aðrar starfskröfur en karimenn, sæktust minna eftir embættum á lands- byggðinni og kysu síður að vinna vaktavinnu. Þessu til viðbótar væri væntanleg frekari minnkun út- skriftarhópa á næstu árum, sem yki enn hættu á læknaskorti. Prestastefna íslands: Mildl bót að löggjöf um starfemenn kirkjunnar PRESTASTEFNU íslands, sem haldin var í safiiaðarheimilinu Kirkjuhvoli I Garðabæ, var slitíð í Bessastaðakirkju i gær, fimmtudag. Þátttakendur í prestastefnunni þágu í gær boð forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, á Bessastöðum og heimboð fráfarandi biskups, herra Péturs Sigurgeirssonar. Pétur lætur af embættí sem biskup nú um mánaðamótin og herra Ólafiir Skúlason tekur við. Prestastefnan samþykkti nær einróma ályktun um að hún telji mikla bót að heildarlöggjöf um starfsmenn Þjóðkirkjunnar, auk þess sem breyttar aðstæður kalli á nokkrar tilfærslur á mörkum prófastsdæma og prestakalla. Prestastefnan tekur undir það við- horf prófastafundar að innan próf- astsdæmanna skuli leita leiða til að starfsmenn kirkjunnar nýtist ætíð vel í margháttuðu og mikil- vægu boðunar- og þjónustuhlut- verki. Prestastefnan hvetur til þess að reynt verði að tryggja fram- gang frumvarps um skipun presta- kalla og prófastsdæma og um starfsmenn Þjóðkirkjunnar, þar sem mörg nýmæli, sem horfi til heilla, sé að finna í frumvarpinu. Olísmálið: Landsbank- inn mótmæiti tryggingum VIÐ áframhaldandi málflutning í kyrrsetningarkröfu Landsbank- ans á hendur Olis í gærdag lagði Olís fram lista yfir lausafé tíl tryggingar kröfii Landsbankans. Um var að ræða viðskiptakröfur, víxla, tæki o.fl. sem Olis mat á 230 miiyónir króna. Landsbankinn mótmæltí flestum þessum eignum og vildi að borgarfógétí úrskurð- aði þær ekki hæfar sem ígUdi trygginga. Við málflutninginn í gærdag taldi Olís sig hafa lagt fram tryggingar í lausafé að upphæð 430-440 miHjón- ir króna. Eftir að Landsbankinn krafðist úrskurðar fógeta um hæfi trygginganna frestaði fógeti mál- flutningnum fram á miðvikudag í næstu viku meðan hann íhugar kröf- una.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.