Morgunblaðið - 30.06.1989, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1989
Framkvæmdastjórn EB:
Fresta viðræðum við
búlgörsk stjórnvöld
Brusscl, Sofía. Reuter.
VIÐRÆÐUM framkvæmda-
nefndar Evrópubandalagsins,
Bretland:
Óprúttinn
unglingur
Nottingham. Reuter.
SEXTAN ára breskur piltur
gekk milli breskra og banda-
riskra kaupsýslumanna og þótt-
ist vera auðkýfingur sem ætti
eigur í mörgum heimsálfiun.
Tókst honum að plata suma
þeirra en innstæðulausar ávísan-
ir að upphæð jafiivirði um
700.000 dollara, eða rúmlega
Qögurra milljóna ísl. króna,
komu upp um kauða.
Pilturinn fékk snemma áhuga á
verðbréfaviðskiptum. Ákvað hann
að reyna að auðgast með óprúttnum
aðferðum en fljótlega komst upp
um kauða. Hafði hann þó keypt
íbúð í Miami á Flórída að verðmæti
6,5 milljónir króna og keypt hluta-
bréf og verðbréf í bresku kauphöll-
inni fyrir 250 þúsund punda eða
jafnvirði 25 milljóna króna. Þegar
gúmmítékkamir tóku að skoppa
hallaði hins vegar undan fæti og
upp komst um allt saman. Hann
híaut skilorðsbundin tveggja ára
dóm og skipað að ganga til sálfræð-
ings á þeim tíma.
EB, og búlgarskra stjómvalda
um efnahagsmál hefiir verið
slegið á frest og er talið að með
því vilji fulltrúar EB lýsa yfir
andúð á meðferð búlgarskra
stjóravalda á tyrkneskum inn-
flytjendum.
Án þess að minnast sérstaklega
á málefni Tyrlqanna sögðu fulltrú-
ar EB að vegna anná fram-
kvæmdastjómarinnar og stjóm-
málaástandsins í Búlgaríu væri
ekki rétt að hefja viðræður í ágúst-
mánuði eins og fyrirhugað var.
„Vegna atburðanna í Búlgaríu
em þarlend stjómvöld ekki lengur
í forgangsröð framkvæmdastjóm-
ar EB,“ sagði ónafngreindur heim-
ildarmaður Eeuíers-fréttastofunn-
ar.
„Ekki hefur verið afráðið hve-
nær fundimir fara fram en það
verða engar viðræður í sumar,“
sagði hann.
Hugsanlegt er að búlgörsk
stjómvöld veiti mörg þúsund
víetnömskum og kúbverskum
verkamönnum starfsleyfi til að
fylla skörð í þeirra sem hafa yfir-
gefíð landið.
Að sögn háttsetts embættis-
manns í opinbem verkalýðsfélagi
í Búlgaríu.
Yfír 72.000 Tyrkir hafa verið
þvingaðir til að yfirgefa Búlgaríu
eða þeir flúið til Tyrklands frá því
að skipulegar ofsóknir hófust á
hendur þeim fyrr í þessum mánuði.
Hitabreytingar 1 andrúmsloftinu:
„Mesti náttúruógn-
valdur sögunnar“
— segir talsmaður SÞ í umhverfísmálum
Nairobi. Reuter.
MOSTAFA Tolba, framkvæmdastjóri Umhverfisverndarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, UNEP, sagði á miðvikudag að breytingar á
hitastigi í andrúmsloftinu væru „mesti náttúruógnvaldur veraldar-
sögunnar" og gæti valdið „náttúruham£örum“.
Tolba sagði þetta í setningar- haft aivarleg áhrif á veðurfar og
ræðu á þriggja daga ráðstefnu um
umhverfismál, sem haldin er í höf-
uðstöðvum UNEP í Nairobi. Hann
kvaðst vongóður um að alþjóða-
samningur um hitabreytingar í
andrúmslofti jarðar yrði undirritað-
ur árið 1992.
Vísindamenn telja að „gróður-
húsaáhrifin" geti orðið til þess að
meðalhitastigið í andrúmslofti jarð-
ar hækki um 1,5-4,5 gráður á Cels-
ius á næstu 40 árum. Hitabreyting-
amar geti orðið til þess að sjávar-
borðið hækki um 1,4 metra og
uppskeru um allan heim. Tolba
sagði að hita- og veðurfarsbreyt-
ingamar gætu víða valdið neyðar-
ástandL Hann nefndi sem dæmi
að hætta væri á því að flæða myndi
yfir fimmtung ræktarlands í
Egyptalandi og að milljónir Egypta
þyrftu að flytjast búferlum. „FÍætt
gæti yfir 70 alda gamla menningu
á innan við öld,“ sagði Tolba.
Um 120 vísindamenn, embættis-
menn og umhverfisvemdarmenn
frá 41 landi taka þátt í ráðstefn-
unni í Nairobi.
Fíll á förnum vegi
Reuter
Sirkusíllinn Abu lék listir fyrir íbúa í úthverfi Sydney i Ástraliu I gær þegar Ashton-Qölleikahúsið
hélt upp á 140. starfsafinæli sitt. Abu, sem er 57 ára gamall, hefixr verið á launaskrá fjölleikahússins
í 40 ár.
Verðhækkanir í Póllandi:
Sljórnin sökuð um dug-
leysi og hugmyndaskort
Samstaða óttast að verkfallsalda ríði yfír
Varsjá. Reuter.
PÓLSK stjórnvöld létu undan launakröfiim strætisvagnabilsljóra og
sorpeyðingarmanna og tvöfölduðu laun þeirra í gær. Sljórnvöld
hafa lagt blessun sina yfir miklar verðhækkanir á nauðsynjavöru
að undanförnu og sökuðu fulltrúar Samstöðu, hinna frjálsu verkalýðs-
hreyfingar, stjórnvöld um brot á samkomulagi þeirra frá því í apríl
um efnahagsumbætur.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
taldi ólíklegt að verkalýðshreyfíng-
in gæti hindrað að vinnudeilur blossi
upp í landinu og sagði hann að ríkis-
stjórn Mieczyslaws Rakowskis for-
sætisráðherra væri ekki vandanum
vaxin og skorti hugmyndir til lausn-
ar hans.
Mieczyslaw Wilczek, iðnaðarráð-
herra Póllands, sagði í sjónvarpi að
vöruverð hækki hvarvetna i heimin-
um þegar vöraskortur ríki. Hann
sagði jafnframt að Samstöðumenn
vildu ekki eiga aðild að ríkisstjórn
því þeir yrðu að krefjast þess að
landsmenn hertu sultarólamar.
Vinna lagðist niður í fimm borg-
um Póllands í kjölfar mikilla verð-
hækkanna undanfama daga á
sykri, bensíni, áfengi og vindling-
um. Strætísvagnabílstjórar í borg-
inni Toran og sorpeyðingarmenn í
Wroclaw náðu fram 90% og 100%
hækkun á launum sínum. Strætis-
vagnabflstjórar í Kielce og Byd-
goszcz náðu fram 80% launahækk-
un með tólf stunda vinnustöðvun.
Sáttfysi stjómvalda hefur vakið
ugg um að aðrar stéttir leggi niður
störf til að knýja á um svipaðar
hækkanir. í Varsjá gengu um 3.000
læknar og heilsugæslustarfsmenn
um götur undir merkjum Samstöðu
og kröfðust hærri launa og betri
aðbúnaðar.
Talsmenn Samstöðu hafa sakað
ráðamenn um að ganga á bak orða
sinna með því að hækka vöraverð
áður en lög um vísitölutryggingu
launa taka gildi. Verðbólga í Póll-
andi er nálægt 100% á ári.
Jaroslaw Kaezynski, háttskrifað-
ur félagi í Samstöðu, sagði að ríkis-
stjómin hefði engin áform á pijón-
unum. „Ráðamenn virðist skorta
allan vilja til athafna, ef tíl vill eru
þeim allar bjargir bannaðar."
Lech Walesa sagði að brýnt væri
að Pólveijar kysu sem fyrst forseta
sem væri fær um að sameina lands-
menn en hins vegar hafnaði Hann
Wojciech Jaruzelski, leiðtoga pólska
kommúnistaflokksins, í hið nýja
valdamikla embættí. Stuðnings-
menn Jarazelskis segja hann hæ-
fastan tíl að gegna embættinu ef
tryggja eigi stöðugleika Póllands á
tímum örra þjóðfélagsbreytinga.
Stjörnuvöllur - 2. fleild karla - í kvöld kl. 20
STJARNAN
VÍÐIR
fínn nf lykilleikjum sumnrsins.
Stjarnan er í efsta sætí deildarinnar en Víóir íþvíþriója,
SJOVAOOALMENNAR
íslensku pottamir
og pönnurnar frá Alpan hf.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
FÁLKINN
VWNIRMGTi
*MUcnmetfjwiSvatuOuei«SönH
Sovétríkin:
Nauðgaði, drap og
át stúlkur 1 sex ár
Seldi einnig kjötið til manneldis
Moskvu. Reuter.
HÚSVÖRÐUR nokkur frá rússneska bænum Kazan nauðgaði og
drap að minnsta kosti sjö ungar stúlkur, át síðan kjötið af þeim
og seldi það jafhvel á svörtum markaði sem nautakjöt. Þetta kom
fram í frétt, sem sovéska vikublaðið Smena birti í gær.
Vikublaðið lýsti í smáatriðum undur Smenu.
hvemig Alexej Súkletín, um fer-
tugur húsvörður í sumarbústaða-
hverfi nokkra, bauð til sín ungum
stúlkum — allt niður í ellefu ára
gömlum.
ífyrst nauðgaði hann þeim og
síðan myrti hann þær með aðstoð
25 ára gamallar frillu sinnar,
Madínu Shakírovu. Næst hlutuðu
þau líkin í smátt, matbjuggu safa-
ríkustu bitana og átu, en afgang-
inn grófu þau úti i garðL
„Eg hitti vini hins seka, sem
vissu til þess að fyrsta flokks
nautakjöt væri að finna í húsi
húsvarðarins og fóru þangað í von
um að fá eitthvað að narta í í
skógarferð," sagði greinarhöf-
„Hin blíða Madína seldi þeim
nokkur kfló fyrir sama og ekki
neitt," bætti hann við. „Einn [vin-
anna] kastaði upp yfir skriíborð
saksóknarans, þegar honum var
gerð grein fyrir því hversvegna
nautakjötið hefði haft þennan sér-
stæða keim.“
Nautakjöt er af skomum
skammti í miklum hluta Sovétríkj-
anna.
Súkletín náðist, var dæmdur
og tekinn af lífi, sex áram eftir
fyrsta morðið. Shakíróva og mað-
ur nokkur, sem viðriðinn var eitt
morðanna, vora dæmd í 15 ára
fangelsi hvort, en Smena gat ekki
um hvenær ódæðin vora framin.