Morgunblaðið - 30.06.1989, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1989
30 ......... .....
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Hrútur-Krabbi
Hrútur og Krabbi saman í
korti (Sól t.d. í öðru merkinu
og Tungl eða Rísandi í hinu)
skapa ólgu og kraft sem iðu-
lega Ieiðir til afreka. Nokkuð
sálarstríð getur hins vegar
fylgt þessum merkjum, því
þar togast á ævintýra- og
athafnaþörf og þörf fyrir
heimili og fastar rætur. Hrút-
ur horfir til framtíðarinnar
og vill fást við ný verkefni
en Krabbinn er íhaldssamur
og vill halda fast í fortíðina
og byggja á því gamla. Annað
atriði sem getur valdið manni
með þessi merki nokkurri
undrun er að hann er bæði
ákveðinn og viðkvæmur.
Misjöfn orka
Það má því segja að orka
Hrúts og Krabba geti verið
misjöfn. Hann er stundum
kraftmikill og athafnasamur
en þess á milli róast hann
niður og vill dunda heima hjá
sér í rólegheitum. Hann er
því ýmist úthverfur eða inn-
hverfur, gerandi eða þolandi,
fljótfær eða varkár.
Sterkar tilfinningar
Maður með sterkan Hrút og
Krabba í korti sínu getur tjáð
tilfinningar sínar af miklum
krafti. Hann á t.d. auðvelt
með að hrifa aðra með sér
úr ræðustól. Það sem einnig
gerist er að hann lætur
hrífast tilfinningalega
(Krabbi) og áður en hann
veit af er hann rokinn af stað
með nýjar athafnir (Hrútur).
Heimilisvinna
Oft stafar löngunin fyrir nýj-
ar athafnir af þörf fyrir að
vemda sína nánustu og sjá
um vaxandi Qölskyldu. Hrút-
urinn vinnur stöðugt til að
fullnægja vemdarþörf Krabb-
ans.
Öryggi og nýjungar
Það sem helst stangast á er
að þessi maður þráir öryggi
og er íhaldssamur en verður
fljótt Ieiður á rólegu lífi sem
er án spennu og breytinga.
Það að vera Hrútur og Krabbi
kallar á málamiðlun á milli
þess að hafa öryggi en búa
við spennandi lífsstíl. Þangað
til sú málamiðlun er fundin
getur verið sárt að hafa þessi
merki ráðandi í sálarlífi sínu,
því Hrúturinn brýtur það nið-
ur sem Krabbinn er að reyna
að byggja upp.
Tilfinningaólga
Það sem helst er erfitt, er það
sama og gerist alltaf með
samspili elds og vatns, er að
tilfinningar geta verið ólg-
andi. Krabbinn er viðkvæm-
ur, en setur upp skel og lætur
sem ekkert sé þó einhver
hafi móðgað hann. Hrúturinn
lætur aftur á móti allt flakka.
Það er því hætt við að stund-
um bæli hann tilfinningar
sínar niður, en segi stundum
of margt. Hann getur einnig
tekið reiðiköst með tilheyr-
andi hurðaskellum. Hrútur-
Krabbi getur því skapaði óút-
reiknanlega persónu og erfitt
og kraftmikið tilfmningalíf.
Innsœi
Maður sem hefur Hrút og
Krabba saman í korti byggir
skynjun sína og mat á veröld-
inni á tilfínningalegu innsæi.
Hann styðst ekki við rök,
heldur það sem honum sjálf-
um finnst. Hann er' næmur
og fljótur að meta fólk en
getur átt erfitt með að tjá
sig. í skapi er hann stundum
opinskár en stundum lokaður
og varkár. Ég þekki uppeldis-
fræðing sem hefur þessa
stöðu ríkjandi. Hann vinnur
með unglinga sem hafa lent
í vandræðum. Það er Krabbi
sem er uppeldisfræðingur en
Hrútur vill líf og hressileika
og vinnur með unglingum.
Þessi maður er hlýr en jafn-
framt skapmikill.
GARPUR
krfZÚNP&NSÉSSA BVJANMA £k TJL-
SÚJN AB EVÐA EU\ EJ/SJU ki/ÖLD/
/A£> BROSA F~y/ZJk. FtÚLJC'Ð a
-yy.
y&AR HÁT/GN? áG )
S/C/L EKK/ AU/EG--J—ETj
____ _______--—NE/, AUE> -
yjrAÐEJCja-þú
' HEFOgEKK/ L/EJE/B
kEÓNPElNS ME/VLA-
- ,
FÁE/k
'Ae.
'L>:
í
þEGAR PÚHEFUR /yi/ETT
ENDALAUST OG UEJST
ABSROSJD E/S HLÐ E/fi/A
SEM (3/LD/R, ÞA
VEISHJ HI/AD
EG
'A V/ÐJ
(
GRETTIR
OG> /VllNNSTU EXXl A
MAHUDA0A { TE&KÚAR
JfM P’ðVfÞ
BRENDA STARR
L JSS. G/SELLE■ ELSkTAN AliN-
KÓNöUZ ER. SlAD GÓDUEABHANH
ytnyND/ ekjci /heiða pabba
jb/NAj
AtANSTU AE> þu I/JLD/J? i/e/SBA
LE/KKOUA þEGAk ÞÚ ST/EKKAg.
A/Ú l/ER£>Uk PÚ
AÐ LEIKA VEL .
Af> VENJU ER /VUKHAIL A£>,
BRALLA E/TTHVAS/ - EN AAER
LIKAK þAÐ UEL T jpET TA
G/NN.
/S'Vs' II >—v ' ^ 1 \ 1
TOMMI OG JENNI
r—" ^ : r -a. \ ' l ., T r
FERDINAND
SMAFOLK
THE 'U6LV D06"C0NTE5T 15 ABOUTT0 BE6IN..UIILLTHE C0NTE5TANT AT THE
FAR RI6HT PLEA5E TAKE THE 5ACK OFF OF HI5 HEAP....
i/Sr/J'/ýk?
!—Z3 © 19Q9 united Feature Syndicate, Inc.
Keppnin um ljótasta hundinn er að hefjast. Ég var búin að segja þér þetta.
Vill keppandinn lengst til hægri gjöra svo vel að taka pokann af höfðinu ... Verð ég að gera það?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
A.rnarson
Önnur sögn norðurs vafðist
fyrir báðum spilunum í æfinga-
leik landsliðsins og Polaris.
Suður geíur, enginn á hættu.
Norður
♦ KD6543
VÁD7
♦ G83
+ G
Vestur
♦ Á109
¥ K2
♦ KD105
+ 9762
Suður
♦ G87
¥ 10
♦ Á97642
Austur
♦ 2
¥ G986542
♦ -
+ D10843
+ ÁK5
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 2 tíglar
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 5 lauf
Pass 5 tígiar Pass Pass
Pass
Rétti samningurinn er aug-
ljóslega 4 spaðar, en sú ákvörð-
un norðurs að gefa „splinter"-
sögn við tveimur tíglum með
tígulslemmu í siktinu, teymir
spilið í vonlaust geim. Besta
sögn norðurs er 2 hjörtu, sem
verður að vera krafa. Við því
sagði suður 2 spaða og þá mætti
stökkva í 4 lauf til að sýna
slemmuáhuga.
Það er hins vegar athyglisvert
að í leik Bandaríkjamanna og
Itala 1979 kaus Eisenberg að
segja 2 spaða á spil suðurs í
sinni annarri sögn, þó svo hann
ætti aðeins þrílit. Kantar lagði
þá upp í slemmuleit, en gafst
Ioks upp í 5 spöðum, sem unn-
ust slétt.
DeFalco gekk hins vegar ber-
serksgang með spil norðurs:
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
Pass 1 hjarta 2 hjörtu Pass
4 hjörtu 6 spaðar Pass Pass
Dobl Pass Pass Pass
Hjartasvar hans í upphafi var
undirbúningur fyrir spaðavend-
ingu (reverse), en Goldman og
Soloway tókst með djarfmann-
iegum hætti að stela sagnrýminu
áður en DeFalco gat komið þess-
um sterku spilum að. Eigi að
síður er stökkið í 6 spaða allt
of grimmt.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í keppni í áskorendaflokki á
Skákþingi íslands 1989 kom þessi
staða upp í skák þeirra Arnars
Þorsteinssonar og Þórs Valtýs-
sonar, sem hafði svart og átti
leik. Bæði Arnar og Þór tefla fyr-
ir Skákfélag Akureyrar.
i wm. * m
■ i ■
ÍÉl 111 éim ^ lll!
ipp fP jQf^
‘'JM a ‘WW 'Wmcípi P
27. - Bxf4! ög hvítur gafst upp,
því 29. gxf4 - Hxh4+ endar auð-
vitað með máti. Guðmundur Gísla-
son, frá fsafirði, sigraði með mikl-
um yfirburðum í áskorendaflokki,
hlaut 8 v. Akureyringamir Ólafur
Kristjánsson og Rúnar Sigurpáls-
son deildu öðru sætinu með 6 v.,
en Ólafur sigraði 2/H4 í auka-
keppni um sæti í landsliðskeppn-
inni, sem fram fer síðar á þessu
ári. Keppnin á áskorendaflokkn-
um fór að þessu sinni fram á
Akureyri. Keppni í opnum flokki
á Skákþingi Islands fór hins vegar
fram í Reykjavík og sigraði þar
Siguijón Haraldsson, Taflfélagi
Kópavogs.