Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1989 31 l\\ko«''T'T' s\eos^t e\baO'.'s'r \V'9'T Verið örugg með tvær stöðvar - TREYSTIÐ PHILIPS. i u L L L f IJ J Við höfum fengið nýja sendingu af hágæðamyndbandstækjunum frá PHILIPS sem slógu svo eftirminnilega í gegn í vetur. Enn bjóðum við þessi einstaklega góðu tæki á frábæru verði vegna hagstæðra samninga. • HQ kerfi tryggir fullkomin myndgæði • Sextán stöðva geymslurými Mjög góo kyrrmynd Hægur hraði Leitarhnappur Fullkomin sjálfvirkni i gangsetningu, endurspólun og útkasti snældu Sjálfvirk endurstilling á teljara Fjarstýring á upptökuminni 365 daga upptökuminni Upptökuskráning i minni samtímis fyrir 8 dagskrárl iði 20 minútna öryggisminni Ótal fleiri möguleikar sem aðeins Philips kann tökin á Verðið kemur þér á óvart. érá óvart. (S? Heimilistæki hf Sætuni 8 SÍMI: 69 1500 Kringlunm SfMI:6915 20 osamnuwwb Verslunarmamiahelgin á Hótel ©i* látinn er fyrir tæpum fimm árum og kunnastur er fyrir björgunarnet sitt, hið svokallaða Markúsarnet. Systumar Jóhanna Sigríður, Gest- heiður Þuríður, Ingibjörg Kristín og Edda Kolbrún eru allar giftar og búsettar á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. Alda giftist 27. júní 1953 Vil- hjálmi G. Sveinssyni, sem ættaður er undan Eyjafjöllum, góðum dreng og traustum. Hjónaband þeirra var gott og farsælt. Bæði voru þau dugleg, drífandi og samtaka og leið því ekki á löngu þar til þau höfðu reist sér myndarlegt og fallegt framtíðarheimili, raðhús við Smyrlahraun í Hafnarfirði. Bar heimilið vissulega reglusemi þeirra og elju vitni, enda féll þeim sjaldan verk úr hendi og mátti vart á milli sjá hvort hafði betur í þeim efnum. Virtist allt leika í höndum þeirra beggja. Segja má með sanni að Alda hafi verið sívinnandi fram á síðasta dag. Þar var ekkert slegið af, þótt sárþjáð væri- Alda og Vilhjálmur eignuðust 4 börn sem lifðu, synina Þorgeir og Svein Rúnar og dæturnar Sesselju Unni og Jónínu Sigurbjörgu. Þor- geir býr í Hafnarfirði, giftur Björgu R. Ingimundardóttur og eiga þau einn son. Sveinn Rúnar býr á Pat- reksfirði, giftur Helgu Fjeldsted og eiga þau eina dóttur. Unnur býr í Reykjavík og er sambýlismaður hennar Valgeir Guðbjartsson. Sig- urbjörg er ógift í heimahúsum og vinnur hjá Tryggingastofnun ríkis- ins. Auk þess ólu þau upp frá unga aldri systurdóttur Óldu, Ester Krist- insdóttur. Var hún alltaf og er talin ein af þeirra börnum. Hún er bú- sett á Patreksfirði, gift Sigurði Bergsteinssyni og eiga þau þijú börn. Barnabörnin voru því orðin fimm, raunar sex því fósturson eignaðist Þorgeir með giftingu sinni. Voru þau öll mikið yndi ömmu sinnar. En það voru fleiri en Ester sem nutu umhyggju þeirra hjóna. Um það leyti sem þau hófu búskap hafði Katrín, móðir Öldu, misst heilsuna og tóku þau þá til sín Eddu, yngstu systurina, _sem þá var innan við fermingu. Átti hún athvarf hjá þeim í þijú ár. Fljótlega eftir að Sveinn, tengdafaðir Öldu, missti seinni konu sína flutti hann til þeirra og átti heimili hjá þeim í 10 ár. Hann dvel- ur nú háaldraður á Sólvangi í Hafn- arfirði. Þá átti Þorgeir, faðir Öldu, lengst af skjól og athvarf hjá þeim síðustu ár sín. Alda flíkaði ekki tilfinningum sínum en var viðkvæm sál innst inni og mátti ekkert aumt sjá. Ósér- hlífin var hún með afbrigðum, greiðvikin og hjálpsöm og sannur vinur vina sinna. Það eru því marg- ir sem munu minnast hennar með hlýju og söknuði. Vilhjáimur, eiginmaður Öldu, börn þeirra og barnabörn hafa vissulega misst mikið, en munum að aðeins þeir sem átt hafa mikið getarmisst mikið. Og hvað er dauð- inn? Aðeins tímabundinn aðskilnað- ur. Mér koma í hug orð sem ég þýddi eitt sinn úr ensku, höfundur er mér ókunnur, en þau eru þessi: „Ég stóð á ströndinni. Skipið við hlið mér þandi hvít seglin í morgun- golunni og lagði út á blátt hafið. Það var ímynd fegurðar og styrks og ég stóð og horfði á eftir því uns það — að lokum — virtist sem ský- hnoðri þar sem himinn og haf renna saman í eitt. Þá sagði einhver við hlið mér: „Það er horfið." En horfið hvert? Horfið sjónum mínum, það er allt og sumt. Það er alveg jafn hátt, fagurt og tignarlegt og það var þegar það fór frá hlið mér og jafn fært um að bera lifandi farm sinn til ákvörðunarstaðar. Jafn víst og skipið hefur nú horf- ið sjónum mínum og einhver við hlið mér segir: „Það er horfið“, þá eru önnur augu sem horfa á það koma og aðrar raddir sem hrópa glaðlega: „Þarna kemur það.“ Þetta er dauðinn!" Ég tel víst að þegar ég fer í mína hinstu för héðan þá standi Ald'd/á ströndu og taki þar á móti mér/ sennilega með þessum orðum: „Það var mikið, ætluðum við ekki að vera samferða, eða hvað?“ Það verða gleðilegir endurfundir. Elsku Villi, börnin og aðrir að- standendur, einlæga. samúð mína eigið þið óskipta. Guð veri með ykkur, huggi ykkur og styrki. Sveinbjörg Guðmundsdóttir Bjóðum upp á stórglæsilegan helgarpakka um verslunarmannahelg- ina sem inniheldur gistingu, morgunverð, kvöldverð, aðgang að sundlaug og sauna og einhveijar uppákomur. MATSEÐILL HELGARINNAR FOSTUDAGUR LA UGARDAGUR SUNNUDAGUR FORRÉTTUR: Grafmn lax með sinnepskremi AÐALRÉTTUR: Marinerað lamb með kryddjurtasósu Kaffi AÐALRÉTTUR: Steiktur eða soðinn Ölfusárlax með smjörsósu og agúrkusalati EFTIRRÉTTUR: Ávaxtasalat með Grand Mamier Kaffi FORRÉTTUR: Rabarbarasorbet AÐALRÉTTUR: Heilsteikt nautafilet með ristuðum sveppum og piparsósu. EFTIRRÉTTUR: Heimalagaður konfektís með kiwi Kaffi DISKÓTEK OPIÐ ALLA HELGINA TIL KL. 03 dag og ;Iarka«ihlaðboro sérstakt manna, og aí frídegt vershJ r sér a ,n tuWorðna folkt^g sináfóUctð ,Æ[“r raja manna herb. kr. i, r4 vm H Y HOTEL ÖDK Breiðumörk lc, Hveragerði, s. 98-34700. PHILIPS VR-6448 MYNDBANDSTÆKIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.