Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 18
ttj 18 esei islhjA .t; MU&Aaoy[ivqiw..(ii(iAjaMooaoM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1989 Islandsbanki verður til: Flýtir því að ríkis- bankarnir verði gerð- ir að hlutafélögum - segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra JON Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði í ræðu sinni á hluthafa- fundi Utvegsbanka íslands í gær að sameining fjögurra banka í hinn nýja Islandsbanka myndi án efa ýta á eftir því að rekstrarformi ríkis- bankanna yrði breytt og þeir gerðir að hlutafélögum, sem fyrst um sinn yrðu í eigu ríkisins en gætu síðar aflað sér aukins eigin fjár með útgáfu hlutabréfa á almennum markaði. Ráðherra sagðist telja að nýi bankinn myndi veita rlkisbönkunum aukna samkeppni, leiða til hagræðingar í bankarekstri og lækkunar á vaxtamun. Ráðherra sagði að æskiiegt væri lífs hér á landi í framtíðinni, jafn- að sparisjóðirnir tækju með einum eða öðrum hætti þátt í endurskipu- lagningu bankakerfisins. Þá nefndi hann sérstaklega aukinn þátt verkalýðshreyfingarinnar og lífeyr- issjóðanna í íslenzka bankakerfinu, bæði vegna kaupa Alþýðubankans á hlutafé í Útvegsbankanum og aðildar lífeyrissjóða að hinum bönk- unum tveimur, sem þátt tækju í kaupunum. „Lífeyrissjóðirnir, sem eru stærsta uppspretta sparnaðar í landinu, eru nú þegar umsvifamikl- ir á innlendum lánsfjármarkaði, einkum þó í húsnæðiskerfinu," sagði ráðherra. „Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna mun aukast hröð- um skrefum á næstu árum. Það er mikilvægt fyrir hagsmuni þjóðar- innar í heild að lífeyrissjóðirnir taki aukinn þátt í uppbyggingu atvinnu- Isagörður: Böggtmarstöð kynnt sveit- arstjórnum ÁKVEÐIÐ hefur verið að kynna sveitarstjórum á Isafirði, Bolung- arvík og á Suðureyri auk annarra nágranna sveitarsfjórna hugmynd Mengunarsviðs Holiustuverndar rikisins um sameiginlega sorp- böggunarstöð í Hnífsdal. Heildar- kostnaður við böggun og urðun sorps á svæðinu er áætlaður um 27 milljónir króna en kostnaður við sorpbrennslustöð sem búinn er fullkomnum mengunarbúnaði er áætlaður um 50 milljónir króna. Að sögn Einars Guðmundssonar heilbrigðisfulltrúa á ísafirði, hefur Hollustuvernd ríkisins unnið skýrslu um hugsanlegar leiðir til lausnar á sorpmálum sveitarfélaganna. Hefur verið ákveðið að kynna þær í sveitar- stjórnunum og þá sérstaklega með tilliti til böggunar og urðunar á sorpi. Þá eru uppi hugmyndir um að kynna skýrsluna í nágrannasveitarfélögum, sem hugsanlega hefðu áhuga á að taka þátt í rekstrinum með tilkomu jarðganga. Reiknað er með að kynn- ingu verið lokið um miðjan septemb- er. framt því sem það er hagsmunamál félaga í lífeyrissjóðum að geta þeirra til að greiða lífeyri með því að lífeyrissparnaður verði ávaxtað- ur víðar en í húsakosti þjóðarinnar. Þátttaka lífeyrissjóðanna í íslands- banka hf. með þeim tengslum sem sá banki mun hafa við atvinnulíf landsmanna getur orðið upphafið að slíkri framþróun." Frá hluthafafiindi Útvegsbanka íslands í gær. Ekkjur og ekklar ætla að krefl- ast leiðréttingar á eignarskatti SAMTÖK ekkna, ekkla og einstaklinga ætla í samvinnu við Húseigenda- félagið að ganga á fund allra þingmanna Reykjavíkur og Reykjaness og krefjast leiðréttingar á eignarskatti. Fasteignamat er hæst á þessu svæði og því eru eignarskattar hlutfallslega hæstir. Mikil reiði ríkir meðal fólks sem misst hefur maka sinn vegna álagn- ingar eignarskatta, en við hækkun eignarskatts um síðustu áramót, og upptöku sérstaks stóreignaþreps, hafa eignarskattar ekkna og ekkla stórhækkað í mörgum tilfellum. „Þetta eru um 5000 einstaklingar sem lenda í hærra þrepinu og eiga því að bera þessa byrði fram yfir alla aðra. Þetta er fullorðið fólk sem unnið hefur margfalda vinnu alla sína ævi. Og þetta eru að stórum hluta konur, sem sumar eru veikar og geta lítið unnið,“ sagði Þuríður Páisdóttir söngkona, sem verið hefur í forsvari fyrir hópinn. Samkvæmt upplýsingum frá fjár- málaráðuneytinu, hefur heildar- álagning eignarskatta meira en tvö- faldast frá síðasta ári, að mestu leyti vegna skattalagabreytinganna. Þuríður sagði, að eftir að álagning skatta var birt nú um mánaðamótin hefði hún orðið var við mikil viðbrögð hjá ekkjum sem brugðið hefði í brún þegar þær sáu álagðan eignarskatt. Gestur Steinþórsson skattstjóri í Reykjavík sagði við Morgunblaðið, að á Skattstofu Reykjavíkur hefði verið óvenju mikið annríki, síðan skattskráin var birt, ekki hvað síst vegna fyrirspuma um eignarskatt. Eignarskattfrelsismörk einstakl- inga eru nú 2,5 milljónir króna, en 5 milljónir hjá hjðnum. Stóreignaþrep einstaklinga er 7 milljónir en 14 milljónir hjá hjónum. Samkvæmt núgildandi lögum greiða ekkjur og ekklar eignarskatta sem einstakling- ar, þótt hjón hafi aflað eignanna, með þeirri undantekningu að eignar- skattur eftirlifandi maka, sem situr í óskiptu búi, er reiknaður eins og hjá hjónum næstu 5 ár eftir andlát maka. Sú breyting var gerð á eignar- skattslögunum í maí, og ekki vannst tími til að taka tillit til þessa við álagninguna nú, hjá þeim sem misstu maka á árinum 1984-1987. Verður það leiðrétt á næstunni, en Þuríður sagði að í gær hefðu hringt í sig margar konur sem sætu í óskiþtu búi og hefðu verið gersamlega miður sín, eftir að hafa fengið álagningar- seðilinn. En Þuríður sagði að þrátt fyrir þessa breytingu, ríkti mjög mikið óréttlæti í álagningu eignarskattsins. „Það er óþolandi árátta hjá stjórn- málamönnum að stýra og ráða örlög- um fólks og nota við það sem ég kalla rússnesku rúllettu formúluna. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn kom í vor inn.breytingartillögu við eignar- skattslögin, þrátt fyrir andstöðu fy'ár- málaráðherra, um að ekkjur fengju frið í 5 ár, þurftu kvennalistakonur að koma því inn að til þess þyrftu ekkjumar að sitja í óskiptu búi. Þær sem höfðu skipt búi áttu greinilega ekkert gott skilið,“ sagði Þuríður. Hún sagði að þessi firnm ára regla væri einnig óréttlát. „Ég veit dæmi um unga ekkju sem á stóra íbúð uppi í Hlíðum og býr þar með þrjá unglinga. Hún fær þessa hrikalegu skatta af því hún hefur verið ekkja í fimm og hálft ár. Þá er þjóðarbókhlöðuskatturinn hneyksli. Hann var fyrst lagður á 1985 og átti að vera þjóðarátak til að Ijúka þjóðarbókhlöðunni. Þessi skattur er lagður á þá sem eiga 4,25 milljóna eignir og hjón sem eiga 8,5 milljónir. Þetta er því ekkert þjóðará- tak þar sem skatturinn leggst ekki jafnt á fólk. Og auk þess kemur það í ljós að þessi skattur fer ekki í þjóðarbók- hlöðuna. Við erum því skattlögð und- ir fölsku yfirskyni og ríkið stelur þessu í annað. Þetta finnst mér vera meiri þjófnaður en söluskattskuldir," sagði Þuríður Pálsdóttir. Skáksamband Norðurlanda: Jóhann valinn skák- maður Norðurlanda JÓHANN Hjartarson var valinn skákmaður Norðurlanda árið 1988, á aðalíundi Skáksambands Norðurlanda. Er þetta í fyrsta skipti sem þessi nafhbót er veitt. Á aðalfundinum, sem haldinn var jafnhliða Norðurlandamótinu í skák, var ákveðið að halda Norður- landamótið eftirleiðis þriðja hvert ár, næst árið 1992 í Svíþjóð. Er þessi breyting gerð vegna þess hve opnum mótum í Evrópu hefur fjölg- að. Finninn Eero Helme varð á aðal- fundinum við áskorunum um að gegna starfi svæðisforseta FIDE í eitt ár í viðbót, en hann. hafði áður VARIO GAMMA/4 ProMinent Skömmtunardælur Eigum fyrirliggjandi skömmtunar- dælur og fylgihluti fyrir allar tegundir af vökvum t.d. klór, hreinsiefni, áburð- arlausnir o.s.frv. Útvegum einnig sjálfvirk stýritæki fyrir klór, sýrustig og leiðni. Helstu notkunarstaðir: fiskvinnsla, matvælaiðnaður, sundlaugar og heitir pottar, gróðurhús, efnaiðnaður og annars staðar þar sem nákvæmrar skömmtunar er krafist. Það borgar sig að velja það besta. Einkaumboð á Íslandi: Þeiœing Reynsla Þjónusta FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 84670 sagt af sér emb- ættinu af heilsu: farsástæðum. í frétt frá Skák- sambandi Is- lands segir að Helme hafi fal- list á að sitja út kjörtímabil sitt, til að afstýra því_________________ að í odda skærist Jóhann Rjartarson í norrænu sam- starfi. Svíar, sem áttu að taka við for- mennsku í Skáksambandi Norður- landa, kröfðust þess að Crister Wánéus yrði einnig útnefndur svæðisforseti en hann naut aðeins stuðnings Svía til þess. Danir stungu upp á Einari S. Einarssyni forseta Skáksambands íslands til starfsins og studdu Norðmenn, Færeyingar og íslendingar það. Svíar létu þá að því liggja að svo gæti farið að þeir segðu sig úr Skáksambandi Norðurlanda ef þeirra maður yrði ekki útnefndur án atkvæðagreiðslu. Einnig kröfð- ust þeir þess að atkvæðisréttur færi eftir meðlimafjölda landanna í stað þess að hvert land hefði eitt atkvæði. Þá töldu þeir vafasamt að þeir myndu skipuleggja næsta Norðurlandamót ef Wánéus yrði ekki kjörinn svæðisforseti. Til að höggva á þennan hnút varð sáttatil- lagan um Helme niðurstaðan. Einar S. Einarsson mun þó sækja ársþing FIDE í Puerto Rico í næstu viku, þar sem Helme getur ekki sótt þingið og hefur tilnefnt Einar staðgengil sinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.