Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.08.1989, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1989 33 Mirming: Þorvaldur Guðmundsson fyrrum bóndi Deplum Fæddur 10. maí 1899 Dáinn 21. júlí 1989 Þorvaldur Guðmundsson lést í Sjúkrahúsi Siglufjarðar 21. júlí sl., 90 ára að aldri. Hann átti við van- heilsu að stríða síðustu árin og eft- ir að hann missti konu sína Krist- jönu, sem lést í maí sl., var honum efst í huga að fá hvíld og fylgja henni eftir. Þorvaldur fæddist að Þrasastöð- um í Stíflu 10. maí 1899, ættaijörð forfeðra sinna, kominn af rótgrón- um skagfirskum bændaættum. Foreldrar hans voru Guðmundur Bergsson, bóndi á Þrasastöðum og kona hans Guðný Jóhannsdóttir, en hún dó 41 árs að aldri frá átta börnum, það yngsta þriggja ára. Föðurforeldrar Þorvaldar voru hjónin Bergur Jónsson, bóndi á Þrasastöðum og Katrín Þorfinns- dóttir, Jónssonar útvegsbónda á Hóli í Siglufirði. Móðurforeldrar Þorvaldar voru Jóhann Magnússon, bóndi á Sléttu í Fljótum og kona hans Sigríður Jónsdóttir, bónda á Sléttu, Olafssonar. Þann 20. september 1920 gekk Þorvaldur að eiga Kristjönu Magn- úsdóttur frá Koti í Svarfaðardal, f. að Skuggabjörgum í Deildardal, 26. september 1899, en hún lést í sjúkrahúsinu á Siglufirði 27. maí 1989. Þorvaldur og Kristjana bjuggu á Deplum, næsta bæ við Þrasastaði, til ársins 1943, eða tæp tuttugu ár, og síðar nokkur ár í Tungu í sömu sveit, en fluttu þá til Siglufjarðar. Þorvaldur var farsæll bóndi. Depiar voru ekki stór jörð, en með dugn- aði og eljusemi kornust þau hjón vel af. Þeim var báðum í blóð borið að hirða vel um skepnur sínar og láta sér annt um þær. Á þessu tímabili var Sigluíjörður í miklum uppgangi og sogaði til sín vinnuafl úr nærliggjandi sveitum. Bændur stóðu uppi liðfáir, þegar unga fólkið tindist burtu. Vélvæð- MINOLTA Netta Ijóspitunapválin sem ekkert fer fyrir Lítil og handhæg vél sem ávallt skilar hámarksgæöum. Auðveld í notkun og viðhaldi. T ekur ýmsar gerðir og stærðir pappírs. Sterk vél sem óhætt er að reiða sig á. Útkoman verður oaöfmnanleg með Minoltaff-30 [kiaran Síðumúla 14,108 Reykjavík, s:(91) 83022 ing var þá ekki komin til sögunnar nema að litlu leyti, og margir bænd- ur gáfust upp á búskapnum. Þorvaldur átti trausta og dug- mikla búkonu. Þegar hann brá bú- skap, studdu þau hvort annað í gegnum erfiðleika sem því fylgdi að laga sig að gerbreyttum lifnaðar- háttum eftir að þau fluttu í þétt- býlið. Á Siglufirði stundaði Þoi-vald- ur algenga verkamannavinnu á meðan heilsa hans leyfði. Við litla snyrtilega húsið þeirra á Túngötu. 33 var stór viðarköstur í einu horni lóðarinnar. Þar voru spýtur og sprek, sem Þorvaldur safnaði sam- an og notaði til þess að drýgja með kolin sem þá voru notuð til upphit- unar húsa. Komu þar fram eðliskostir ætt- menna hans margra, sem voru nýtni og búhyggindi. Síðustu æviárin dvöldu Þorvaldur og Kristjana á ellideild Sjúkrahúss Sigluíjarðar. Þar var vel hugsað um þau og starfsfólkið sérstaklega alúðlegt og nærgætið við það aldur- hnigna fólk, sem þar dvelur. Börn Þorvaldar og Kristjönu eru: Guðmundur; bóndi á Laugarbökk- um í Ölfusi, giftur Gunnhildi Davíðsdóttur, Eggertssonar bónda frá Litla-Hamri í Eyjafirði, og konu hans Sigríðar Sigurðardóttur. Magnús; rafvirkjameistari búsettur í Osló. Guðný; húsfreyja í Reykjavík, gift Eiríki Ásgeirssyni, vélvirkja og verkstjóra hjá Land- smiðjunni, Guðmundssonar frá Þorfinnsstöðum, Önundarfirði og konu hans Ingibjargar Jóhannes- dóttur. Anna Snjólaug; starfaði lengst af við hjúkmn í Arnarholti á Kjalarnesi, lést 5. nóv. 1967, 28 ára að aldri, ógift og barnlaus. Hörður; bifvélavirkjameistari, rekur bílaverkstæði í Kópavogi, giftur Ingibjörgu Þ. Hallgrímsson hjúkr- unarfræðingi, Jóns Þ. Hallgríms- sonar læknis í Reykjavík og konu hans Steingerðar Þórisdóttur. Afkomendur Þorvaldar og Kristj- önu eru nú nær því 40 talsins. Þegar Þorvaldur er nú kvaddur hinstu kveðju, munu margir hugsa með hlýhug og þakklæti til þeirra hjóna. Þau voru gestrisin og góð heim að sækja. Þoi-valdi föðurbróður mínum vil ég þakka fyrir vinsemd og tryggð við föður minn á meðan hann lifði. Samband þeirra bræðra var náið, bújarðir þeirra lágu saman í sveit- inni, og eftir að þeir voru báðir flutt- ir til Siglufjarðar lágu leiðir þeirra þar saman. Börnum þeirra og barnabörnum sendi ég samúðarkveðjur. Gyða Jóhannsdóttir Það er fátt sem kemur í veg fýrir að Renault 19 verði mikíls metinn á íslandi. Hann keppir við þá vinsælustu í sínum flokki. Samkeppnin á markaönum Hönnun og þróun Renault 19 miöaö- ist strax í upphafi viö samkeppni frá Evrópskum og Japönskum bílum. Kröfur bílkaupenda aukast jafnt og þétt, þess vegna er þörfin fyrir Renault 19 til staöar. Tæknilegur tímamótabíll Renault 19 GT5, er meö nýja 80 hestafla „Energy" véi, meö 2ja hólfa blöndungi. Vélin er 1390 cc, Ara strokka og smíðuö til aö standast ströngustu kröfur um mengunarvarnir í Evrópu og Bandarikjunum. Spar- neytnin er ótrúleg, bensíneyöslan er milli 5 og 6 lítrar á hundað kílómetr- um. Hámarkshraöi er 173 km/klst. Fjöörunin er sérstaklega styrkt til aö gefa bilnum góöa aksturseiginleika, jafnt í innanbæjarakstri sem á malar- vegum. Gírkassinn er 5 gíra og er gírskipting- in eins og best gerist í dýrari bílum. GTrkassi og drif hafa sérstakt smur- olíukerfi sem aldrei þarf aö bæta á eöa skipta um olíu. Renault 19 GTS kostar frá 799.399.- Óbreytt kynningarverö Þrátt fyrir gengisbreytingu aö undan- förnu, veröur Renault 19 enn um sinn á óbreyttu kynningarveröi. Einfalt mál aö semja Þú semur um þau kjör sem henta þér best. Viö tökum notaöa bíla í góöu ástandi sem greiðslu upp í nýj- an Renault 19. Greiðslukjörin eru til allt aö 2A mán- aöa. Engin áhætta Þú tekur enga áhættu þegar þú kaupir Renault 19. Bílinn kaupir þú meö 30 daga skilarétti, sem þú getur notaö til aö kynnast bílnum nánar. Sértu ekki ánægö(ur) meö kaupin getur þú einfaldlega skilað bílnum innan 30 daga frá kaupdegi. Nánari upplýsingar um skilaréttinn á Renault 19 færöu hjá sölumönnum. Bílaumboðið hf Krókhðlsi 1, Reykjavík, sími 686633 Renault 19 er meö 6 ára ryövarnarábyrgö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.